Menningarminjar og mannvirki
Álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja
Hvar er málið statt?
Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Samþykkt
Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“
Í stuttu máli
Að einfalda reglur um vernd húsa og mannvirkja og gera þær markvissari með því að afnema almenna skyldu eigenda til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna ófriðaðra húsa og mannvirkja frá árunum 1924–1940 og beina þannig vinnu stofnunarinnar frekar að þeim byggingararfi sem talinn er þarfnast verndar.
Lagt fram af Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Sf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 22. okt. 2026 greiddu 38 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.
- Lagt fram
- 9. september 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 8
- Umræða í þingsal
- 7 ræður · 12 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að einfalda reglur um vernd húsa og mannvirkja og gera þær markvissari með því að afnema almenna skyldu eigenda til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna ófriðaðra húsa og mannvirkja frá árunum 1924–1940 og beina þannig vinnu stofnunarinnar frekar að þeim byggingararfi sem talinn er þarfnast verndar.
Hvað breytist
Lagt er til að eigendur húsa og mannvirkja sem ekki eru friðuð þurfi ekki lengur, eingöngu vegna aldurs, að leita álits Minjastofnunar Íslands áður en ráðist er í að breyta þeim, flytja þau eða rífa. Sama gildir um ófriðuð kirkjuhús sem reist voru 1940 eða fyrr. Eigendum og forráðamönnum yrði þess í stað heimilt að leita álits stofnunarinnar óháð byggingarári.
Jafnframt er lagt til að byggingarfulltrúar sveitarfélaga geti gert það að skilyrði fyrir leyfi til framkvæmda að eigandi eða forráðamaður leiti álits Minjastofnunar. Þannig yrði ekki lengur sjálfkrafa skylt að afla álits vegna allra húsa sem nú falla undir aldursviðmiðið en áfram væri hægt að kalla eftir faglegu mati stofnunarinnar þegar tilefni er til.
Lög sem breytast
Kostnaður fyrir ríkið
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
Meira úr samantektinni
Samkvæmt upplýsingum Minjastofnunar Íslands gildir nú sú regla að eigendur ófriðaðra húsa og mannvirkja sem byggð voru 1940 eða fyrr og forráðamenn kirkna frá sama tíma þurfi að leita álits stofnunarinnar með minnst sex vikna fyrirvara áður en ráðist er í að breyta mannvirki, flytja það eða rífa. Minjastofnun skal svara innan fjögurra vikna og getur lagt til skilyrði fyrir framkvæmdum eða lagt til að mannvirki verði friðlýst (Álitsskyld hús og mannvirki – Minjastofnun Íslands).
Löggjöf á Norðurlöndum
Samanburður við hin Norðurlöndin bendir til þess að vernd ófriðaðra eldri bygginga byggist þar almennt á mati á varðveislugildi, skipulagsákvæðum eða sérstakri friðun fremur en föstu og víðtæku aldursviðmiði á borð við íslensku álitsskylduna.
Í Danmörku telst bygging meðal annars varðveisluverð hafi hún verið tilgreind sem slík í skipulagi sveitarfélags. Áður en slík bygging er rifin verður sveitarfélagið að taka afstöðu til þess hvort banna skuli niðurrif á grundvelli skipulagsreglna. Menningarmálaráðherra getur einnig ákveðið að aðrar byggingar skuli njóta varðveisluverndar. Verndin byggist því á fyrir fram skilgreindu varðveislugildi en ekki almennu aldursmarki (bekendtgørelse af lov om bygningsfredning og bevaring af bygninger og bymiljøer (bygningsfredningsloven), LBK nr. 219 af 06/03/2018; sjá einkum 17.–19. gr. a).
Í Finnlandi þarf almennt leyfi sveitarfélags til að rífa byggingu á deiliskipulagssvæði og í tilteknum öðrum tilvikum. Samkvæmt byggingarlögum (bygglag, 751/2023; sjá einkum 55.-56. gr.) er það meðal skilyrða fyrir niðurrifsleyfi að framkvæmdin torveldi ekki markmið um vernd hins byggða umhverfis. Reglurnar taka því mið af skipulagi og verndargildi en ekki byggingarári einu saman.
Í Noregi eru byggingar frá tímabilinu 1537–1649 sjálfkrafa friðaðar hafi viðkomandi stjórnvald skilgreint þær sem slíkar. Yngri byggingar og mannvirki sem hafa menningarsögulegt eða byggingarlistarlegt gildi má friða sérstaklega með stjórnvaldsákvörðun. Þetta aldursviðmið er mun þrengra en íslenska álitsskyldan og vernd bygginga byggist að öðru leyti á mati á hverju mannvirki fyrir sig (lov om kulturminner (kulturminneloven), LOV-1978-06-09-50; sjá einkum 4. og 15. gr.).
Í Svíþjóð kveða skipulags- og byggingarlög (plan- och bygglag, 2010:900; sjá einkum 13. gr. 8. kafla og 43.-45. gr. 9. kafla) á um sérstaka vernd bygginga sem hafa sérstakt sögulegt, menningarsögulegt, umhverfislegt eða listrænt gildi. Leyfis er meðal annars krafist til að rífa slíkar byggingar við tilteknar aðstæður og sveitarfélög geta sett frekari verndarákvæði í skipulagi. Verndin byggist því einnig á varðveislugildi og skipulagi en ekki almennu aldursviðmiði.
Samanburðurinn er þó takmarkaður þar sem stjórnsýsluhættir, friðunarflokkar og leyfiskerfi ríkjanna eru ólík. Ekkert þessara kerfa er að fullu sambærilegt við álitsskyldu samkvæmt 30. gr. íslensku laganna um menningarminjar.
Afstaða þingflokkanna
Jóhann Páll JóhannssonSamfylkinginumhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Framsögumaður nefndar: Víðir Reynisson
- Sf11–0
- S7–0
- V6–0
- Flf8–0
- M3–0
- F2–0
- U1–0
Gott að vita um atkvæðin
- Með – greiddi atkvæði með (já)
- Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
- Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
- Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
- Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð
Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Allsherjar- og menntamálanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 3 aðilar
- Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Arnar Elvarsson, Minjastofnun Íslands · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 12 mín · 7 ræður
- 3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 14 ræður · 6 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-011 beiðnir um umsögn
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 21 ræður · 5 mín
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 43 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 43 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 43 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 43 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 43 með, 0 á móti
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Þingskjal
- Þingskjal
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 35 með, 0 á móti
- UmræðaUmræða 32 ræður · 1 mín
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 38 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 38 með, 0 á móti
- Þingskjal
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
| Þskj. | Tegund | Útbýtt | Flutningsmenn | Skjal |
|---|---|---|---|---|
| 3 | Stjórnarfrumvarp | 9. sep. 2026 | Jóhann Páll Jóhannsson | LesaPDF |
| 250 | Nál. með brtt. | 16. okt. 2026 | Víðir Reynisson, Grímur Grímsson +6 | LesaPDF |
| 284 | Frumvarp eftir 2. umræðu | 21. okt. 2026 | — | LesaPDF |
| 300 | Breytingartillaga | 22. okt. 2026 | Víðir Reynisson | LesaPDF |
| 307 | Lög í heild | 22. okt. 2026 | — | LesaPDF |
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur16. september 2026 kl. 16:08Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur16. september 2026 kl. 16:08Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt21. október 2026 kl. 14:07Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.1
- SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
- Samþykkt21. október 2026 kl. 14:07Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um menningarminjar og mannvirki.1. gr., svo breytt,
- SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
- Samþykkt21. október 2026 kl. 14:08Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.2 (nýr kafli með nýrri grein)
- SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
- Samþykkt21. október 2026 kl. 14:08Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um menningarminjar og mannvirki.2. gr.
- SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
- Samþykkt21. október 2026 kl. 14:09Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.3 (ný fyrirsögn)
- SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
- yfirlýsing forseta/mál gengur21. október 2026 kl. 14:09Frumvarp gengur til 3. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt22. október 2026 kl. 14:52Að veita afbrigði frá þingsköpum vegna máls um menningarminjar og mannvirki.
- SfSamfylkingin:11 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:2 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti
- Samþykkt22. október 2026 kl. 14:54Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.
- SfSamfylkingin:11 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:2 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
- Samþykkt22. október 2026 kl. 14:55Að samþykkja frumvarp um menningarminjar og mannvirki sem lög.
- SfSamfylkingin:11 með · 0 á móti
- SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
- VViðreisn:6 með · 0 á móti
- FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti
- FFramsóknarflokkur:2 með · 0 á móti
- UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín
- 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumenn · 5 mín
- 3. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 1 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Samfylkingin | 3 | 6 mín | |
| Samfylkingin | 2 | 5 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 2 | 1 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.
Tengd mál
- 226. mál á 156. þingtengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)