Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 157. mál

Húsaleigulög

Reglubundnar breytingar á leigufjárhæð

Lagafrumvarp1. umræða

Hvar er málið statt?

1. umræðasíðan 3. okt. 2026

Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“

Í stuttu máli

Að auka húsnæðisöryggi leigjenda, draga úr vægi verðtryggingar og gera þróun húsaleigu fyrirsjáanlegri með skýrari ákvæðum um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á samningstíma.

Lagt fram af Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra (Flf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
3. október 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
114 ræður · 6 klst. 16 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 15. okt. 2026

Markmiðið

Að auka húsnæðisöryggi leigjenda, draga úr vægi verðtryggingar og gera þróun húsaleigu fyrirsjáanlegri með skýrari ákvæðum um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á samningstíma.

Hvað breytist

Lagt er til að reglubundnar breytingar á húsaleigu megi aðeins miðast við vísitölu neysluverðs, fyrir fram ákveðið hlutfall eða fasta fjárhæð. Að minnsta kosti 12 mánuðir verði að líða milli slíkra breytinga og hækkun samkvæmt ákveðnu hlutfalli eða fastri fjárhæð megi ekki vera meiri en hækkun vísitölu neysluverðs á sama tímabili. Mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu yrðu því óheimilar.

Áfram mætti, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, hækka leigu vegna verulega aukins rekstrarkostnaðar, þar á meðal til viðbótar við reglubundnar hækkanir. Breytingar vegna aðlögunar að markaðsleigu og jöfnunar leiguverðs hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum mættu hins vegar ekki bætast við reglubundnar hækkanir.

Reglurnar tækju til leigu íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og annars leiguhúsnæðis. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun yrði falið að birta upplýsingar um markaðsleigu sambærilegra íbúða sem og að útbúa reiknivél og staðlað eyðublað vegna leigubreytinga.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Áhrif á ríkissjóð eru talin takmörkuð og tímabundin og koma einkum fram á árunum 2027 og 2028. Einhver stofnkostnaður kann að falla til vegna þróunar reiknivélar og breytinga á leiguskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar en gert er ráð fyrir að honum verði mætt innan núverandi fjárheimilda stofnunarinnar.

Meira úr samantektinni

Samkvæmt leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar 2026 greiddu um 45% leigjenda meira en 40% ráðstöfunartekna heimilisins í húsaleigu, að öðrum húsnæðiskostnaði frátöldum.

Löggjöf á Norðurlöndum

Í Danmörku er heimilt að semja um árlegar vísitölubreytingar í tilteknum leigusamningum um íbúðarhúsnæði, sbr. húsaleigulög (lov om leje (lejeloven), LOV nr 341 af 22/03/2022). Í Noregi má breyta leigu í samræmi við vísitölu neysluverðs að hámarki einu sinni á ári og aðlaga hana að leiguverði sambærilegs húsnæðis eftir tiltekinn tíma, samkvæmt húsaleigulögum (lov om husleieavtaler (husleieloven), LOV-1999-03-26-17).

Í Finnlandi byggjast leiguhækkanir almennt á umsömdum forsendum og dómstólar geta endurskoðað ósanngjarna leigu, samkvæmt lögum um leigu á íbúðarhúsnæði (lag om hyra av bostadslägenhet, 481/1995). Í Svíþjóð ræst leigufjárhæð almennt af samningum en samkvæmt lögum um útleigu einstaklinga á eigin íbúðarhúsnæði (privatuthyrningslag, 2026:772) má semja um vísitölubreytingar með að minnsta kosti árs millibili. Sérstakar reglur gilda um leigu atvinnuhúsnæðis í löndunum.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 22. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, Brynja leigufélag ses., Seðlabanki Íslands, Félagsstofnun stúdenta, Byggingafélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta Akureyri o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 klst. 16 mín · 114 ræður
18 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Áhrif á ríkissjóð eru talin takmörkuð og tímabundin og koma einkum fram á árunum 2027 og 2028. Einhver stofnkostnaður kann að falla til vegna þróunar reiknivélar og breytinga á leiguskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar en gert er ráð fyrir að honum verði mætt innan núverandi fjárheimilda stofnunarinnar.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Umræða 1
    114 ræður · 6 klst. 16 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-22
    1 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
158Stjórnarfrumvarp3. okt. 2026Ragnar Þór IngólfssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur7. október 2026 kl. 18:07
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur7. október 2026 kl. 18:07
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

114 ræður · 6 klst. 16 mín
  • 1. umræða: 114 ræður · 18 ræðumenn · 6 klst. 16 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Ragnar Þór IngólfssonFlokkur fólksins2144 mín
Sigurður Örn HilmarssonSjálfstæðisflokkur1537 mín
Jens Garðar HelgasonSjálfstæðisflokkur1037 mín
Jón Pétur ZimsenSjálfstæðisflokkur827 mín
Sigríður Á. AndersenMiðflokkurinn727 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn526 mín
Viktor Pétur FinnssonSjálfstæðisflokkur523 mín
Nanna Margrét GunnlaugsdóttirMiðflokkurinn522 mín
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur521 mín
Stefán Vagn StefánssonFramsóknarflokkur320 mín
Þorgrímur SigmundssonMiðflokkurinn517 mín
Tómas Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur316 mín
Sigurjón ÞórðarsonFlokkur fólksins815 mín
Kristján Þórður SnæbjarnarsonSamfylkingin515 mín
Ingveldur Anna SigurðardóttirSjálfstæðisflokkur110 mín
Kolbrún Áslaugar BaldursdóttirFlokkur fólksins37 mín
Ragna SigurðardóttirSamfylkingin46 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur15 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 8. okt. 2026, frestur 22. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Stúdentafélag Háskólans í ReykjavíkumsögnOpna PDF
Brynja leigufélag ses.umsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsstofnun stúdenta, Byggingafélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta AkureyriumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)