Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 133. mál

Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð

Brottfall sjálfstæðrar rannsóknareiningar

Lagafrumvarp1. umræða

Hvar er málið statt?

1. umræðasíðan 22. sep. 2026

Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“

Í stuttu máli

Að afnema skyldu Hagstofu Íslands til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem annast gerð þjóðhagsspáa, koma í veg fyrir tvíverknað hjá hinu opinbera og skapa svigrúm til að styrkja aðra starfsemi Hagstofunnar.

Lagt fram af Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra (Sf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
22. september 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
5 ræður · 13 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. okt. 2026

Markmiðið

Að afnema skyldu Hagstofu Íslands til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem annast gerð þjóðhagsspáa, koma í veg fyrir tvíverknað hjá hinu opinbera og skapa svigrúm til að styrkja aðra starfsemi Hagstofunnar.

Hvað breytist

Lagt er til að Hagstofu Íslands verði ekki lengur skylt að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem gerir þjóðhagsspár, þ.e. spár um þróun efnahagsmála. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að styðjast í staðinn við þjóðhagsspár Seðlabanka Íslands við stefnumörkun í opinberum fjármálum, meðal annars við gerð fjármálastefnu og fjármálaáætlunar.

Með breytingunni yrði hægt að nýta starfsfólk rannsóknareiningarinnar til annarra verkefna Hagstofunnar, meðal annars til að bæta gæði þjóðhagsreikninga og hagtalna um vinnumarkað og mannfjölda.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Í skýrslu hagtalnanefndar frá mars 2026 kemur fram að erfiðara sé að tryggja gæði mikilvægra hagtalna vegna breytinga á gagnaöflun, óvissu um gæði stjórnsýslugagna og minnkandi þátttöku í könnunum meðal einstaklinga. Nefndin leggur meðal annars til að Hagstofa Íslands verði efld sem miðstöð hagtölugerðar, henni verði falin ný verkefni og gagnainnviðir bættir.

Löggjöf á Norðurlöndum

Misjafnt er hvernig gerð þjóðhagsspáa er háttað á Norðurlöndunum og hvaða skyldur hagstofur hafa á því sviði. Í Danmörku er hagstofunni (Danmarks Statistik) heimilt að vinna tölfræðilegar greiningar og spár samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um dönsku hagstofuna (bekendtgørelse af lov om Danmarks Statistik, LBK nr 610 af 30/05/2018) en ákvæðið skyldar hana ekki til að gera þjóðhagsspár. Í Finnlandi er það hlutverk hagstofunnar (Statistikcentralen) að taka saman hagtölur og gera úttektir á samfélagsmálum samkvæmt 2. gr. laga um hagstofuna (lag om statistikcentralen, 48/1992). Finnska fjármálaráðuneytið annast hins vegar gerð þjóðhagsspáa sem lagðar eru til grundvallar við fjárlagagerð og áætlanir um opinber fjármál. Samkvæmt 8. gr. laga um stjórn opinberra fjármála (lag om skötseln av de offentliga finanserna, 1440/2025) tekur yfirmaður þeirrar deildar ráðuneytisins sem annast spágerð sjálfstæðar ákvarðanir um spárnar.

Í Noregi ber hagstofunni (Statistisk sentralbyrå) að stunda rannsóknir og greiningar samkvæmt 17. gr. laga um opinbera hagskýrslugerð og hagstofuna (lov om offisiell statistikk og Statistisk sentralbyrå (statistikkloven), LOV-2019-06-21-32). Gerð þjóðhagsspáa er einnig meðal verkefna hennar samkvæmt leiðbeiningum norska fjármálaráðuneytisins. Í Svíþjóð ber hagstofunni (Statistiska centralbyrån) að gera langtímaspár um mannfjölda, vinnumarkað og menntun samkvæmt 2. gr. reglugerðar um starfsfyrirmæli fyrir sænsku hagstofuna (förordning med instruktion för Statistiska centralbyrån, 2016:822). Almennar þjóðhagsspár eru hins vegar á meðal lögbundinna verkefna sérstakrar efnahagsrannsóknastofnunar, Konjunkturinstitutet, samkvæmt 1. gr. reglugerðar um starfsfyrirmæli fyrir Konjunkturinstitutet (förordning med instruktion för Konjunkturinstitutet, 2007:759).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Arna Lára Jónsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 20. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Viðskiptaráð Íslands, BSRB, Hagstofa Íslands, Arnar Elvarsson · allar umsagnir
Umræða í þingsal
13 mín · 5 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Umræða 1
    5 ræður · 13 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-20
    1 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
133Stjórnarfrumvarp22. sep. 2026Kristrún FrostadóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur5. október 2026 kl. 15:09
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur5. október 2026 kl. 15:09
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

5 ræður · 13 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 13 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Kristrún FrostadóttirSamfylkingin39 mín
Sigríður Á. AndersenMiðflokkurinn24 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 6. okt. 2026, frestur 20. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF
Hagstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)