Ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka
Drögin fela í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með markaðssettu útboði.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-51/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 22 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. mars 2024)
Ábendingar og tillögur varðandi framkvæmd söluferlisins gáfu sumar tilefni til breytinga á frumvarpsdrögunum, en að einhverjum þeirra verður hugað í framkvæmd. Umsagnir sem ekki varða framkvæmd kalla á áréttingu nokkurra atriða í meðfylgjandi niðurstöðuskjali.
- Drög að frumvarpi - ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka
- Mat á áhrifum - ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (22)
- #1Elín Erna Steinarsdóttir
Ég mótmæli því að eign mín (hlutur minn í sameign þjóðarinnar) í Íslandsbanka sé seld án míns samþykkis. Vilji einhver setja fjármuni sína í að kaupa hlut í banka segir það að hann hyggst græða á því. Af því leiðir að sá sem selur varður af þeim gróða. Það er alltaf betra að eiga en vera eignarlaus. Við vitum lika af sárri reynslu að einkabankar hirða gróðann en ef illa fer þá þarf ríkið að borga. Síðast en ekki síst ættu bankar ekki að vera gróðastofnanir sem draga úr krafti samfélagsins með háum fjármögnunarkostnaði. Það væri mjög arðbær fjárfesting fyrir ríkið að taka lán hjá ríkisbönkunum… Lesa alla
Ég mótmæli því að eign mín (hlutur minn í sameign þjóðarinnar) í Íslandsbanka sé seld án míns samþykkis. Vilji einhver setja fjármuni sína í að kaupa hlut í banka segir það að hann hyggst græða á því. Af því leiðir að sá sem selur varður af þeim gróða. Það er alltaf betra að eiga en vera eignarlaus. Við vitum lika af sárri reynslu að einkabankar hirða gróðann en ef illa fer þá þarf ríkið að borga. Síðast en ekki síst ættu bankar ekki að vera gróðastofnanir sem draga úr krafti samfélagsins með háum fjármögnunarkostnaði. Það væri mjög arðbær fjárfesting fyrir ríkið að taka lán hjá ríkisbönkunum til að geta haldið eignarhaldi sínu á þeim. Hægt væri líka að hækka bankaskattinn því gróði bankanna er óhóflegur. Ég bið þess að öreigastefnu stjórnvalda linni. Það er hvorki smart né skynsamlegt að vera öreigi og þurfa að borga allar vörur og þjónustu á uppskrúfiðu verði.
- #2Theodór Magnússon
Nóg er komið að vaðli Sjálfstæðisflokksins á skítugum skónum yfir eigur almennings. Undir engum kringumstæðum er vilji þjóðarinnar að Íslandsbanki sé seldur. Vill fá þessar hugmyndir flokksins í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- #3Elmar Freyr Torfason
Því miður hefur það sýnt sig að fjármálaráðherrum Sjálfstæðisflokksins er ekki treystandi til að selja eigur allra landsmanna. Ef eindreginn vilji er til að taka bankann úr mjög dreifðu eignarhaldi (allra landsmanna) í eignarhald fárra, þá þarf að færa umsjón þess verkefnis frá Sjálfstæðisflokknum til einhvers sem ræður við verkefnið.
- #4Viggó Einar Viðarsson
Ég gef ekki leyfi fyrir sölu á mínum hlut í bankanum. Ef hann eignarhlutur ríkisins er seldur án þjóðaratkvæðagreiðslu þá eru þingmenn landsins sekir um þjófnað og það verður kært fyrir slíkt.
- #5Marteinn Gísli Árnason
Nu verður að að hætta að selja eigur okkar i gegnum misgafaðra stjornmalamanna okkar,sem við eða hluti okkar hafa kosið . Spillingin er hrikaleg sem viðgengst hja stjornmalamönnum (sumum) ekki bara i sölu eigna okkar. Af hverju er verið að selja "gæsir sem verpa gulleggjum"? lindarhvoll,Keflavikursvæðið þetta eru bara toppar a isjakanum sem sjast það sem er selt undir okkar ratsja er ohuggulegt. Hverjir keyptu t.d.Valitor ut ur Landsbankanum okkar eign bakvið luktar dyr a "SPOTT PRIS" og siðan selt til erlendra aðila með griðarlegum groða osfr....... Nu er mal að linni.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.