Breyting á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka
Tillaga að breytingum á lágmarkstíma auglýsingar útboðsins og að nýrri tilboðsbók fyrir stærri fjárfesta.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-29/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. febrúar 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. febrúar 2025)
Í umsögnum komu fram sjónarmið um að fyrirhuguð sala væri vel til fundin. Fram kom ábending um að skýra betur forgang tilboðsbóka A og B og brugðist hefur verið við þeirri ábendingu með skýringu í greinargerð. Þá var spurt um ráðstafanir gegn því að fjársterkir aðilar kaupi upp stóran hlut í tilboðsbók A með samningum við einstaklinga. Því er til að svara að tilboðsbók A er ætluð einstaklingum en ekki eru takmarkanir á því hvað þeir gera við hluti sem þeir kaupa, t.d. selji hlut sinn áfram. Þó má gera ráð fyrir að slíkur fjársterkur aðili myndi fyrst og fremst beina sjónum að tilboðsbók B.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Jón Oddsson
Hvernig ætlið þið að koma í veg fyrir að fjársterkir aðilar viðhafi einskonar "smölun" í Tilboðsbók A og tryggi sér besta verðið, þ.e.a.s. noti "leppi" sem skrá sig fyrir 20 milljónum hver og selji síðan viðkomandi sinn hlut ?
- #2Kauphöll Íslands hf.
Meðfylgjandi er umsögn Kauphallar Íslands um ofangreind drög að frumvarpi.
- #3Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.