Þjóðarsjóður
Hvar er málið statt?
Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Dagaði uppi
Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 154. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“
Í stuttu máli
Að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir.
Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 22. mars 2024
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 15 ræður · 57 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir.
Hvað breytist
Lagt er til að stofnaður verði sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins, Þjóðarsjóður, til að styrkja fjárhagsstöðu ríkisins við stórfelld áföll. Framlög til sjóðsins skulu vera jafnhá öllum tekjum ríkisins af arðgreiðslum og öðrum tekjum vegna nýtingar orkuauðlinda. Gert er ráð fyrir að þessir fjármunir verði eingöngu fjárfestir í erlendum verðbréfum samkvæmt fjárfestingarstefnu sem stjórn sjóðsins setur með samþykki ráðherra. Jafnframt er lagt til að fjárveitingar úr sjóðnum verði einungis heimilaðar ef ríkissjóður verður fyrir verulegum fjárhagslegum skakkaföllum af völdum ófyrirséðs áfalls.
Lög sem breytast
Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.
Kostnaður fyrir ríkið
Gert er ráð fyrir að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé þannig að hann hafi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þó er gert ráð fyrir að í upphafi fjármagni ríkissjóður tímabundið það rekstrarfé sem sjóðurinn þarf á að halda við undirbúning starfseminnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur markað eiganda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins, sem felur í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Ávallt verður nokkur óvissa um fjárhæð arðgreiðslutekna af þessum toga en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári. Hér er miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 15 milljarða kr. af þessum völdum og að jafnhátt framlag verði veitt til Þjóðarsjóðs. Þar sem um er að ræða tekjur sem upprunnar eru í auðlindarentu er óvíst að þær verði viðvarandi til frambúðar þar sem ýmislegt getur haft áhrif á þær, s.s. breytingar í orkubúskapnum, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar, t.d. aukin hagnýting vind- eða sólarorku. Ef slíkar forsendur verða hagstæðari en nú er gert ráð fyrir gæti uppbygging sjóðsins orðið hraðari en á hinn bóginn hægari ef þær reynast óhagstæðari.
Meira úr samantektinni
Þjóðarauðssjóðir í öðrum löndum
Ástralía
Future Fund
Bandaríkin (Alaska)
Alaska Permanent Fund
Chile
Fondo de Estabilización Económica y Social
Fondo de Reserva de Pensiones
Noregur
Statens pensjonsfond utland (norska) (enska)
--Lög um norska þjóðarauðssjóðinn (lov om Statens pensjonsfond) LOV-2005-12-21-123.
--Reglur fjármálaráðherra um umboð Seðlabanka Noregs til að hafa umsjón með þjóðarauðssjóðnum (Mandat for forvaltning av Statens pensjonsfond utland) FOR-2010-11-08-1414.
--Skýrsla og tillögur nefndar um breytingar á lögum um seðlabanka Noregs (NOU 2017:13) (norska) (enska).
Nýja-Sjáland
New Zealand Superannuation Fund
Afstaða þingflokkanna
Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirSjálfstæðisflokkurfjármála- og efnahagsráðherra
Framsögumaður nefndar: Ágúst Bjarni Garðarsson
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 24. maí 2024
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 4 aðilar
- Seðlabanki Íslands, Viðskiptaráð Íslands, Landsvirkjun, Náttúruhamfaratrygging Íslands · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 57 mín · 15 ræður
- 5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gert er ráð fyrir að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé þannig að hann hafi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þó er gert ráð fyrir að í upphafi fjármagni ríkissjóður tímabundið það rekstrarfé sem sjóðurinn þarf á að halda við undirbúning starfseminnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur markað eiganda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins, sem felur í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Ávallt verður nokkur óvissa um fjárhæð arðgreiðslutekna af þessum toga en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári. Hér er miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 15 milljarða kr. af þessum völdum og að jafnhátt framlag verði veitt til Þjóðarsjóðs. Þar sem um er að ræða tekjur sem upprunnar eru í auðlindarentu er óvíst að þær verði viðvarandi til frambúðar þar sem ýmislegt getur haft áhrif á þær, s.s. breytingar í orkubúskapnum, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar, t.d. aukin hagnýting vind- eða sólarorku. Ef slíkar forsendur verða hagstæðari en nú er gert ráð fyrir gæti uppbygging sjóðsins orðið hraðari en á hinn bóginn hægari ef þær reynast óhagstæðari.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins1 ræða · 2 andsvör · 19 mín
Sigurður Ingi JóhannssonFramsóknarflokkur1 ræða · 6 andsvör · 19 mín
Kristrún FrostadóttirSamfylkingin1 ræða · 14 mín
Gísli Rafn ÓlafssonÞingflokkur 432 andsvör · 3 mín
Orri Páll JóhannssonÞingflokkur 232 andsvör · 2 mín
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða15 ræður · 57 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 24. maí 20241 beiðni um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur7. maí 2024 kl. 18:03Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd7. maí 2024 kl. 18:03Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 15 ræður · 5 ræðumenn · 57 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Utan þingflokka | 2 | 2 mín | |
| Utan þingflokka | 2 | 3 mín | |
| Samfylkingin | 1 | 14 mín | |
| Framsóknarflokkur | 7 | 19 mín | |
| Flokkur fólksins | 3 | 19 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 10. maí 2024, frestur 24. maí 2024.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Seðlabanki Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Viðskiptaráð Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Landsvirkjun | umsögn | Opna PDF | |
| Náttúruhamfaratrygging Íslands | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Þjóðarsjóðurtengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)