Beint í efni
Alviti
Þingmál153. þing · 188. mál

Vísinda- og nýsköpunarráð

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 16. des. 2022

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 16. des. 2022 greiddu 57 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
22. september 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
12
Umræða í þingsal
12 ræður · 1 klst. 4 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 27. mar. 2023

Markmiðið

Að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Hvað breytist

Með frumvarpinu er lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs endurskoðað. Veigamesta breytingin á núverandi fyrirkomulagi sem lögð er til er aðskilnaður ráðgefandi og stefnumótandi hlutverks ráðsins svo að annars vegar sé starfandi ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og hins vegar sjálfstætt og faglegt Vísinda- og nýsköpunarráð sem sé ráðgefandi. Þá er lagt til að innan þess ráðuneytis eða ráðuneyta sem fara með málefni vísinda og nýsköpunar starfi sérfræðingar á sviði greiningar, mats og úttekta sem styðji starfsemi beggja og styrki þannig grunn stefnumótunar. Gert er ráð fyrir að nafni ráðsins verði breytt í Vísinda- og nýsköpunarráð.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Vísinda- og tækniráð, nr. 2/2003. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, lögum um Landsbókasafn Íslands, nr. 142/2011, og lögum um vandaða starfshætti í vísindum, nr. 70/2019.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld ríkissjóðs aukist um u.þ.b. 20 milljónir kr. og verði um 40 milljónir kr. á ári.

Meira úr samantektinni

Breytt lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs. Tillaga verkefnishóps. Forsætisráðuneytið, ágúst 2020.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
16. des. 2022
Samþykkt57 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarp um Vísinda- og nýsköpunarráð sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • F13–0
  • 237–0
  • 435–0
  • Flf6–0
  • Sf5–0
  • V4–0
  • M2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 27. okt. 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna, Auðna-Tæknitorg ehf., Forsætisráðuneytið, Auðna tæknitorg, Verkfræðingafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 4 mín · 12 ræður
4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld ríkissjóðs aukist um u.þ.b. 20 milljónir kr. og verði um 40 milljónir kr. á ári.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 16. desember 2022: 57 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með4 tóku til máls

53 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-150/2022· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. ágú. 2022 – 6. sep. 2022· 7 umsagnir

Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð

Forsætisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Frumvarpið felur í heildarendurskoðun á lögum nr. 2/2003 um Vísinda- og tækniráð.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-150/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. september 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Pétur Ástvaldsson
    Umsögn Háskóla Íslands: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð Óskað var eftir umsögn um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, sem ætlað er að koma í stað laga um Vísinda- og tækniráð frá árinu 2003. Háskóli Íslands fagnar heildarendurskoðun laganna og telur margt jákvætt í frumvarpinu, má í því sambandi nefna langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum, öflugri sjálfstæða gagnagreiningu og eftirfylgni og aukið samstarf og samhæfingu milli ráðuneyta. Einnig er jákvætt að stefnt er að einfaldara fyrirkomulagi og betri upplýsingagjöf en áður. Í skýrslu verkefnishó… Lesa alla

    Umsögn Háskóla Íslands: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð Óskað var eftir umsögn um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, sem ætlað er að koma í stað laga um Vísinda- og tækniráð frá árinu 2003. Háskóli Íslands fagnar heildarendurskoðun laganna og telur margt jákvætt í frumvarpinu, má í því sambandi nefna langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum, öflugri sjálfstæða gagnagreiningu og eftirfylgni og aukið samstarf og samhæfingu milli ráðuneyta. Einnig er jákvætt að stefnt er að einfaldara fyrirkomulagi og betri upplýsingagjöf en áður. Í skýrslu verkefnishóps var gerð tillaga um einfaldara fyrirkomulag markáætlana, m.a. í því skyni að auðveldara yrði að bregðast hratt við aðsteðjandi vanda með nýjum markáætlunum. Þær tillögur er því miður ekki að finna í frumvarpinu. Því er brýnt að fylgjast vel með því hvort nýtt fyrirkomulag leysi þann vanda sem bent var á og laut einkum að of litlum sveigjanleika við framkvæmd markáætlana. Í tillögum verkefnishópsins kom jafnframt fram að setja skyldi á fót skrifstofu vísinda- og nýsköpunarmála. Það er miður að sú tillaga hafi ekki ratað í frumvarpið, en í greinargerðinni kemur fram að gert sé ráð fyrir að sérfræðingar innan ráðuneytisins muni veita ráðinu ráðgjöf og faglega þjónustu, einkum við greinar- og textavinnu á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni. Slík eining mun væntanlega þjóna hlutverki áðurnefndrar skrifstofu. Í frumvarpinu er lögð áhersla á að rjúfa þau beinu tengsl sem nú eru á milli annars vegar ráðherra og hins vegar stjórnenda og sérfræðinga úr háskóla- og vísindaumhverfinu og atvinnulífi. Fyrirhugað er að ná þessu fram með lögfestingu sérstakrar ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun, þar sem eingöngu sitja ráðherrar, og með skipan níu manna ráðgefandi Vísinda- og nýsköpunarráðs sem hittir ráðherranefndina tvisvar á ári líkt og getið er í greinargerð. Háskóli Íslands telur að framangreindur aðskilnaður sé varhugaverður. Á það var bent í umsögn Háskólans um tillögur verkefnishópsins og er það hér með ítrekað. Með framangreindum lögum um Vísinda- og tækniráð, sem sett voru árið 2003, var markmiðið að færa stefnumótun á sviði háskóla, vísinda og nýsköpunar á efsta stig stjórnsýslunnar. Markmiðið var jafnframt að styrkja með formlegum hætti samtal stjórnvalda við háskóla- og vísindasamfélagið auk atvinnulífs. Þetta var gert að erlendri fyrirmynd en víða um heim er þróunin ennþá í þessa átt. Þetta er mikilvægt, ekki síst vegna nýrrar þekkingar um mikilvægi menntunar, vísinda og nýsköpunar og hvernig unnt er að beita málaflokkunum í þágu samfélagsins. Frumvarpið gerir ráð fyrir framtíðarsýn til tíu ára í senn og aðgerðaráætlun til tveggja ára. Háskóli Íslands bendir á að heppilegra væri að aðgerðaráætlunin tæki til lengri tíma. Það er mat Háskóla Íslands að fyrirhuguð ráðherranefnd ásamt vísinda- og nýsköpunarráði verði verr í stakk búin en núverandi Vísinda- og tækniráð til að annast sannfærandi stefnumótun á sviði háskóla-, vísinda- og nýsköpunarmála. Háskólinn telur mikilvægt að ráðherrar og vísindasamfélagið starfi, ásamt fulltrúum atvinnulífsins, áfram á sameiginlegum vettvangi til að takast á við þær margvíslegu samfélagslegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Það þarf að efla þetta samstarf fremur en að veikja það. Virkur samráðsvettvangur af þessu tagi er nauðsynlegur til að tengja ákvarðanir um eflingu háskólamenntunar, rannsókna og nýsköpunar beint við aðrar meginákvarðanir stjórnvalda um samkeppnishæfni og framtíðaruppbyggingu samfélagsins. Í þessu sambandi er rétt að benda á að í skýrslu starfshópsins kemur fram að algengast sé (í 68% tilvika samkvæmt úttekt OECD) að í ráðum af þessu tagi á alþjóðlegum vettvangi sitji ráðherrar, fulltrúar háskólasamfélagsins, rannsóknastofnana og atvinnulífs saman, þ.e. rétt eins og Vísinda- og tækniráð er nú skipað (bls. 53). Háskóli Íslands ítrekar mikilvægi samtarfs ráðherranefndar og Vísinda- og nýsköpunarráðs. Háskóli Íslands leggur því til að sett verði ný málsgrein í 3. gr. laganna þar sem kveðið er á um að Vísinda- og nýsköpunarráð haldi að jafnaði tvo fundi árlega með ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun. Samkvæmt frumvarpinu er Vísinda- og nýsköpunarráðið skipað fulltrúum eftir tillögu sérstakrar tilnefningarnefndar á vegum ráðherra. Háskólinn bendir á mikilvægi þess að gerð verði rík krafa um sérfræðiþekkingu til þeirra sem sitja í því ráði. Með vísan til framangreinds er margt jákvætt í frumvarpinu en virkt samstarf ráðherranefndar og Vísinda- nýsköpunarráðs er mikilvæg forsenda þess að vel takist til við að styrkja íslenskt þekkingarsamfélag og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

  • #2Íris Lind Sæmundsdóttir

    Vísað er til upplýsinga um samráðs um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, sem birtar voru í samráðsgátt stjórnarráðsins, 23. ágúst 2022, sbr. mál nr. 150/2022. Meðfylgjandi eru athugasemdir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og dótturfélaga, við frumvarpið.

  • #3Hólmfríður Sveinsdóttir
    Umsögn Háskólans á Hólum: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Nafnbreytingin á frumvarpinu, þ.e. „nýsköpun“ í stað „tækniþróun“ er mikilvægt og stórt skref. Til að breytingin þjóni tilgangi sínum er mikilvægt að samræma skilning á hvernig nýsköpun er skilgreind, a.m.k. almennt. Hugtakið nýsköpun er mun víðara hugtak en tækniþróun, sbr. eftirfarandi sem stendur í greinargerð (bls. 8-9) með frumvarpinu (samhljóða því sem sagt er bls. 11 í tillögu verkefnahópsins). Þetta virðist vera í eina skiptið í þessum skjölum þar skilgreining hugtaksins nýsköpun er rædd:​ „Lagt er til a… Lesa alla

    Umsögn Háskólans á Hólum: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Nafnbreytingin á frumvarpinu, þ.e. „nýsköpun“ í stað „tækniþróun“ er mikilvægt og stórt skref. Til að breytingin þjóni tilgangi sínum er mikilvægt að samræma skilning á hvernig nýsköpun er skilgreind, a.m.k. almennt. Hugtakið nýsköpun er mun víðara hugtak en tækniþróun, sbr. eftirfarandi sem stendur í greinargerð (bls. 8-9) með frumvarpinu (samhljóða því sem sagt er bls. 11 í tillögu verkefnahópsins). Þetta virðist vera í eina skiptið í þessum skjölum þar skilgreining hugtaksins nýsköpun er rædd:​ „Lagt er til að nafn ráðsins verði Vísinda- og nýsköpunarráð frekar en Vísinda- og tækniráð. Er það í takt við breytta hugtakanotkun á síðustu 20 árum þar sem hugtakið nýsköpun hefur víða komið í stað hugtaksins tækniþróun. Hugtakið nýsköpun er víðara en tækniþróun, enda tekur það einnig til nýsköpunar sem felur ekki í sér þróun tækni, svo sem nýsköpunar í þjónustu. Finnar gerðu sambærilega nafnbreytingu árið 2009.“ ​ Punkturinn er að þessi nafnabreyting getur, og mun örugglega hafa áhrif á stefnumótun um þessi mál í framtíðinni, sem og alla umræðu. Til dæmis er mjög líklegt, og reyndar ekki óeðlilegt að þetta hafi áhrif á sjóðakerfið, sem vel að merkja er ekki lagt til að breytist með þessu frumvarpi. Mætti t.d. sjá fyrir að stefna um markáætlun gæti brugðist við þessu fyrst, enda heitir hún: Markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. ​ Hvað varðar beina tillögu mætti benda á að í greinargerð með frumvarpinu, og hugsanlega í frumvarpinu sjálfu mætti skerpa á skilgreiningu á hugtakinu nýsköpun og færa ítarlegri rök fyrir hvers vegna nafnabreytingin sé nauðsynleg. Þannig mætti nefna að nýsköpunahugtakið vísar til beitingar nýrrar og víðtækari sýnar og þekkingar (bæði frá vísindum og listum) í atvinnulífinu, í mótun nýrra, árangursríkra og sjálfbærra vinnubragða í hvers kyns auðlindanýtingu (í landbúnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónust o.s.frv.), og ekki síst í viðbrögðum við umhverfisvánni, eins og loftslagsbreytingum og tapi líffræðilegrar fjölbreytni. ​ Að lokum, hér er á ferðinni þarft og gott mál, en markmið og árangur styrkist ef ítarlegri, skýrari og meira leiðbeinandi sýn er gefin á þessu stigi.

  • #4Rannsóknamiðstöð Íslands

    Sjá meðfylgjandi umsögn Rannsóknamiðstöðvar Íslands

  • #5Verkfræðingafélag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Verkfræðingafélags Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    3 ræður · 27 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 27. október 2022
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    8 ræður · 36 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 8 með, 33 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 8 með, 34 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  20. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  21. Þingskjal
  22. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  23. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  24. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
189Stjórnarfrumvarp22. sep. 2022Katrín JakobsdóttirLesaPDF
771Nál. með brtt.10. des. 2022Bryndís Haraldsdóttir, Jódís Skúladóttir +3LesaPDF
778Nál. með brtt.12. des. 2022Eyjólfur ÁrmannssonLesaPDF
846Frumvarp eftir 2. umræðu15. des. 2022—LesaPDF
895Lög í heild16. des. 2022—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

15 alls · 12 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. október 2022 kl. 17:29
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd11. október 2022 kl. 17:29
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:21
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um Vísinda- og nýsköpunarráð.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:22
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um Vísinda- og nýsköpunarráð.
    2. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:22
    Að samþykkja breytingartillögu við Vísinda- og nýsköpunarráð.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:3 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:23
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um Vísinda- og nýsköpunarráð.
    3. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Fellt15. desember 2022 kl. 14:24
    Að samþykkja breytingartillögu við Vísinda- og nýsköpunarráð.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 14 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 12 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 7 á móti
    • 43Þingflokkur 43:2 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:25
    Að samþykkja breytingartillögu við Vísinda- og nýsköpunarráð.
    2
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:25
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um Vísinda- og nýsköpunarráð.
    4. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Fellt15. desember 2022 kl. 14:27
    Að samþykkja breytingartillögu við Vísinda- og nýsköpunarráð.
    2
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 12 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 7 á móti
    • 43Þingflokkur 43:2 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:27
    Að samþykkja breytingartillögu við Vísinda- og nýsköpunarráð.
    3
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:28
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um Vísinda- og nýsköpunarráð.
    5. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2022 kl. 14:28
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um Vísinda- og nýsköpunarráð.
    6.--8. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur15. desember 2022 kl. 14:28
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt16. desember 2022 kl. 15:11
    Að samþykkja frumvarp um Vísinda- og nýsköpunarráð sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

12 ræður · 1 klst. 4 mín
  • 1. umræða: 3 ræður · 2 ræðumenn · 27 mín
  • 2. umræða: 8 ræður · 2 ræðumenn · 36 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

11 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. okt. 2022, frestur 27. okt. 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök frumkvöðla og hugvitsmannaupplýsingarOpna PDF
Samtök frumkvöðla og hugvitsmannaskýrslaOpna PDF
Auðna-Tæknitorg ehf.kynningOpna PDF
ForsætisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Auðna tæknitorgumsögnOpna PDF
Verkfræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Háskóli ÍslandsumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Rannís - Rannsóknamiðstöð ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök frumkvöðla og hugvitsmannaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.