Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 635. mál

Lækningatæki

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 12. mar. 2020

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja gæði og öryggi lækningatækja með öryggi almennings að leiðarljósi og tryggja að framleiðsla, viðhald og notkun lækningatækja sé í samræmi við bestu fagþekkingu á hverjum tíma. Að innleiða tvær Evrópureglugerðir um lækningatæki.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
5. mars 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. sep. 2020

Markmiðið

Að tryggja gæði og öryggi lækningatækja með öryggi almennings að leiðarljósi og tryggja að framleiðsla, viðhald og notkun lækningatækja sé í samræmi við bestu fagþekkingu á hverjum tíma. Að innleiða tvær Evrópureglugerðir um lækningatæki.

Hvað breytist

Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um lækningatæki. Lagt er til að skerpt verði á þeim kröfum sem lækningatæki þurfa almennt að uppfylla. Gerðar eru auknar kröfur til framleiðanda lækningatækja, m.a. varðandi eftirfylgni með lækningatækjum á markaði. Einnig eru gerðar auknar kröfur til klínískra rannsókna, m.a. um gæði gagna og aðgang að gögnum. Þá verður með frumvarpinu sett upp auðkenniskerfi í þeim tilgangi að geta rakið lækningatækið, m.a. til að koma í veg fyrir fölsuð tæki. Skýrt er kveðið á um þá ábyrgð eiganda lækningatækis að tryggja að notandi tækisins hljóti rétta kennslu og þjálfun til réttrar og öruggar notkunar. Mælt er fyrir um skyldu notanda til að þekkja aðalatriðin í virkni lækningatækis og hafa hlotið þjálfun í meðferð og notkun tækisins. Jafnframt er skýrt kveðið á um ábyrgð eiganda lækningatækis á því að framkvæmt sé reglubundið gæða- og öryggiseftirlit og viðhald á lækningatækjum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna falla úr gildi lög um lækningatæki, nr. 16/2001.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/745 frá 5. apríl 2017 um lækningatæki, um breytingu á tilskipun 2001/83/EB, reglugerð (EB) nr. 178/2002 og reglugerð (EB) nr. 1223/2009 og um niðurfellingu á tilskipunum ráðsins 90/385/EBE og 93/42/EBE.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/746 frá 5. apríl 2017 um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi og um niðurfellingu á tilskipun 98/79/EB og ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2010/227/ESB.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ólafur Þór Gunnarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 8. apr. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Icepharma hf, Samtök iðnaðarins · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-327/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 10. jan. 2020· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um lækningatæki

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um lækningatæki. Umsagnarfrestur er til og með 10. janúar 2020.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-327/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júní 2020)

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um lækningatæki í mars 2020

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Florealis ehf.
    Lagt er til að bætt verði inn í 10gr. um auglýsingar eftirfarandi: ”Heimilt er að auglýsa og kynna lækningatæki undir heitinu lækningavara.” Orðið lækningatæki getur verið villandi fyrir form eins og til dæmis krem, gel, froðu og stíla. Meira lýsandi væri að nota orðið lækningavara. Orðið lækningavara lýsir þessum formum betur, sérstaklega fyrir neytendur en einnig fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Á ensku er hugtakið ”medical devices” og sem dæmi um skandinavískt tungumál þá er hugtakið ”medicintekniska produkter” notað í sænsku. Orðið lækningavara er góð þýðing á þessum hugtökum en til þess… Lesa alla

    Lagt er til að bætt verði inn í 10gr. um auglýsingar eftirfarandi: ”Heimilt er að auglýsa og kynna lækningatæki undir heitinu lækningavara.” Orðið lækningatæki getur verið villandi fyrir form eins og til dæmis krem, gel, froðu og stíla. Meira lýsandi væri að nota orðið lækningavara. Orðið lækningavara lýsir þessum formum betur, sérstaklega fyrir neytendur en einnig fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Á ensku er hugtakið ”medical devices” og sem dæmi um skandinavískt tungumál þá er hugtakið ”medicintekniska produkter” notað í sænsku. Orðið lækningavara er góð þýðing á þessum hugtökum en til þess að ekki þurfi að breyta orðalagi alls staðar í íslenskum lögum og reglugerðum tengdum lækningatækjum, þá er lagt til að einungis verði breytt orðalaginu í 10.gr. um auglýsingar. Einnig hefði verið æskilegt ef lengri frestur hefði verið gerður til umsagna við þessum drögum að frumvarpi til laga um lækningatæki.

  • #2Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Samtaka iðnaðarins og Samtaka líf- og heilbrigðistæknifyrirtækja um drög að frumvarpi til laga um lækningatæki.

  • #3Benedikt Sveinbj. Benediktsson

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um drög að frumvarpi til laga um lækningatæki.

  • #4Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson

    Meðfylgjandi er umsögn Icepharma hf. um drög að frumvarpi til laga um lækningatæki

  • #5Embætti landlæknis

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 7 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 8. apríl 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1073Stjórnarfrumvarp5. mar. 2020Svandís SvavarsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. mars 2020 kl. 11:46
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd12. mars 2020 kl. 11:46
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 7 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 7 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 18. mar. 2020, frestur 8. apr. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Icepharma hfumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.