Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 122. mál

Ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 17. okt. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um ráðstafanir til að lækka kostnað við uppbyggingu á háhraða rafrænum fjarskiptanetum. Að stuðla að og hvetja til hagkvæmari uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta með því að auðvelda sameiginlega nýtingu á núverandi efnislegum grunnvirkjum og með því að hvetja til skilvirkari uppbyggingar á nýjum efnislegum grunnvirkjum þannig að útbreiðsla slíkra neta sé möguleg með lægri kostnaði.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 17. okt. 2019 greiddu 48 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
17. september 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
6 ræður · 19 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 21. okt. 2019

Markmiðið

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um ráðstafanir til að lækka kostnað við uppbyggingu á háhraða rafrænum fjarskiptanetum. Að stuðla að og hvetja til hagkvæmari uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta með því að auðvelda sameiginlega nýtingu á núverandi efnislegum grunnvirkjum og með því að hvetja til skilvirkari uppbyggingar á nýjum efnislegum grunnvirkjum þannig að útbreiðsla slíkra neta sé möguleg með lægri kostnaði.

Hvað breytist

Lagt er til að fjarskiptafyrirtæki geti beðið um tilteknar lágmarksupplýsingar rekstraraðila neta um annars vegar fyrirliggjandi efnisleg grunnvirki og hins vegar yfirstandandi eða fyrirhugaða leyfisskylda mannvirkjagerð í því skyni að kanna möguleika á samnýtingu fyrirliggjandi innviða eða samhæfingu framkvæmda í því skyni að hraða uppbyggingu háhraða fjarskiptaneta. Gert er ráð fyrir að rekstraraðilum beri skylda til að verða við réttmætum beiðnum um aðgang að fyrirliggjandi efnislegum grunnvirkjum með uppbyggingu háhraða fjarskiptaneta í huga, samkvæmt sanngjörnum og eðlilegum skilmálum, þ.m.t. um verð. Synji rekstraraðili nets slíkri beiðni eða náist ekki samningar um skilmála og skilyrði er lagt til að báðum málsaðilum verði heimilt að vísa málinu til ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Einnig er gert ráð fyrir að sérstakar skyldur séu lagðar á þá rekstraraðila nets sem standa beint eða óbeint að mannvirkjagerð sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð úr opinberum sjóðum. Lagt er til að Póst- og fjarskiptastofnun leysi úr ágreiningi milli aðila sem kann að koma upp við túlkun ákvæða með bindandi ákvörðun. Samhliða myndi stofnunin einnig þjóna sem miðlæg upplýsingaþjónusta og annast milligöngu upplýsingaöflunar fyrir fjarskiptafyrirtæki gagnvart rekstraraðila nets, sé þess óskað.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, og lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/61 frá 15. maí 2014 um ráðstafanir til að lækka kostnað við uppbyggingu á háhraða rafrænum fjarskiptanetum.

Stafræn áætlun fyrir Evrópu – Stafræn tækni sem drifkraftur fyrir vöxt í Evrópu (The Digital Agenda for Europe – Driving European growth digitally). Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, 2012.

Verkefnið Ísland ljóstengt (í umsjá fjarskiptasjóðs).

Grænbók um fjarskipta- og póstmál (drög).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
17. okt. 2019
Samþykkt48 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S11–0
  • 238–0
  • M6–0
  • F6–0
  • Sf7–0
  • 435–0
  • V3–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 5. okt. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
8 aðilar
Síminn hf, Samband íslenskra sveitarfélaga, Sýn hf., Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, Gagnaveita Reykjavíkur ehf o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
19 mín · 6 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á afkomu ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 17. október 2019: 48 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

46 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 13 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 5. október 2019
    2 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 6 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
122Stjórnarfrumvarp17. sep. 2019Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF
283Nál. með brtt.16. okt. 2019Bergþór Ólason, Líneik Anna Sævarsdóttir +7LesaPDF
288Frumvarp eftir 2. umræðu22. okt. 2019—LesaPDF
290Lög (samhlj.)17. okt. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

6 ræður · 19 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 13 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 6 mín

Umsagnir og erindi

8 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 25. sep. 2019, frestur 5. okt. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Síminn hfumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Sýn hf.umsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
Gagnaveita Reykjavíkur ehfumsögnOpna PDF
Míla ehf.umsögnOpna PDF
ByggðastofnunumsögnOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)