Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
68 mál · sótt 27. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-40/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. feb. 2019 – 20. feb. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð einkamála, lögum um meðferð sakamála, lögum um dómstóla o.fl.
Tilefni lagasetningarinnar er að gera nokkrar breytingar á ákvæðum réttarfarslöggjafar eins og þessum lögum var breytt þegar millidómsstigi var komið á fót. Þá eru jafnframt lagðar til nokkrar breytingar á lögum um dómstóla og öðrum lögum.
- Ekki komið til AlþingisS-38/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2019 – 12. feb. 2019· 1 umsögn
Áform um breytingu á lögum um siglingavernd og lögum um loftferðir
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hyggst leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um sigingavernd og lögum um loftferðir þar sem stefnt er að því að efla varnaðaráhrif þeirra ákvæða laganna sem snúa að flug- og siglingavernd og tryggja úrræði til að bregðast við brotum gegn þeim ákvæðum.
- Ekki komið til AlþingisS-31/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. jan. 2019 – 20. feb. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til breytinga á tollalögum, nr. 88/2005 (persónuupplýsingar, aðstaða til tolleftirlits, rafræn skil upplýsinga o.fl.)
Frumvarpið mun innhalda tillögur um ýmsar breytingar sem ætlað að gera embætti tollstjóra betur í stakk búið til að takast á við þau verkefni sem því ber að annast.
- Ekki komið til AlþingisS-27/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. jan. 2019 – 31. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um breytingu á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald (ráðstöfun tryggingagjalds).
Áformað er að fjárveitingu sem samsvarar tekjum af tryggingagjaldi verði ráðstafað til Tryggingastofnunar ríkisins til að fjármagna lífeyris- og slysatryggingar almannatrygginga en um aðra ráðstöfun samkvæmt gildandi lögum verði kveðið á um í sérlögum.
- Ekki komið til AlþingisS-26/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. jan. 2019 – 31. jan. 2019· 1 umsögn
Áform um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattlagning tekna af höfundarréttindum).
Áformað er að höfundagreiðslur sem viðurkennd rétthafasamtök innheimta verði skattlagðar sem eignatekjur/fjármagnstekjur.
- Ekki komið til AlþingisS-22/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2019 – 4. feb. 2019· 2 umsagnir
Meðferð ríkisaðstoðarmála
Áformað frumvarp varðar nýmæli sem leiða af fyrirhugaðri upptöku reglugerðar ráðsins (ESB) 2015/1589 í EES-samninginn og samsvarandi breytingum á bókun 3 við samning EFTA-ríkjanna um eftirlitsstofnun og dómstól (SED). Auk þess er gert ráð fyrir að ákvæði er varða eftirlit með ríkisaðstoð sem nú er að finna í samkeppnislögum nr. 40/2005 verði tekin upp í frumvarpið.
- Ekki komið til AlþingisS-21/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2019 – 4. feb. 2019· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um úrskurðarnefndir á sviði neytendamála
Með frumvarpinu er lagt til að setja umgjörð um lausn deilumála utan dómstóla vegna neytendaviðskipta og að tryggja neytendum aðgang að skilvirkri og faglegri málsmeðferð við lausn ágreinings við seljendur.
- Ekki komið til AlþingisS-13/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. jan. 2019 – 28. jan. 2019· 1 umsögn
Verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar til innleiðingar á reglugerð ESB nr. 909/2014 um sama efni (e. Central Securities Depositories Regulation (CSDR)).
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)