Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
68 mál · sótt 27. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-329/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 20. des. 2019 – 20. jan. 2020· 9 umsagnir
Frumvarp - breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs (EES-innleiðing)
Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tilskipun (ESB) 2018/850, um breytingu á tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs, og tilskipun (ESB) 2018/851, um breytingu á tilskipun 2008/98/EB um úrgang. Nauðsynlegt er að samræma lög um meðhöndlun úrgangs efnisákvæðum þessara tilskipana.
- Ekki komið til AlþingisS-318/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. des. 2019 – 20. jan. 2020· 34 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða
Með frumvarpinu er lagt er til að sett verði á fót ný stofnun sem ætlað er að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða.
- Ekki komið til AlþingisS-309/2019· Annað· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. des. 2019 – 13. jan. 2020· 8 umsagnir
Skýrsla um jarðstrengi í flutningskerfi raforku
Í samræmi við þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku var sérfróður aðili fenginn til að vinna skýrslu um mismunandi tæknilegar lausnir við lagningu raflína. Skýrsla hins sérfróða aðila liggur nú fyrir og er hún lögð fram til umsagnar.
- Ekki komið til AlþingisS-303/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. des. 2019 – 2. jan. 2020· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar og orkunýtingaráætlun.
Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum nr. 48/2011 um verndar og orkunýtingaráætlun.
- Ekki komið til AlþingisS-296/2019· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. nóv. 2019 – 13. des. 2019· 31 umsögn
Áform um lagasetningu - breyting á áfengislögum
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á áfengislögum sem felur m.a. í sér tvær undanþágur á einokun ÁTVR á smásölu áfengis. Annars vegar til þess að heimila innlenda vefverslun með áfengi til neytenda í smásölu og hins vegar heimila framleiðendum áfengis að selja áfengi til neytenda með ákveðnum takmörkunum.
- Ekki komið til AlþingisS-291/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 9. des. 2019· 19 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna breytinga á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingar á ýmsum lögum til jöfnunar lífeyrisréttinda og stuðnings við öflun íbúðarhúsnæðis.
- Ekki komið til AlþingisS-289/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 26. nóv. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnufélög, nr. 22/1991, og fleiri lögum (innlánsdeildir samvinnufélaga).
Með frumvarpinu er annars vegar lagt til að heimildir samvinnufélaga til að starfrækja innlánsdeildir verði felldar brott og hins vegar að gerðar verði breytingar sem lúta að hæfisskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra samvinnufélaga.
- Ekki komið til AlþingisS-285/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2019 – 26. nóv. 2019· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (leigusamningar)
Frumvarpið varðar meðferð leigusamninga í reikningsskilum þeirra félaga sem falla undir gildissvið laga um ársreikninga.
- Ekki komið til AlþingisS-283/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. nóv. 2019 – 28. nóv. 2019· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir
Frumvarpinu er ætlað að kveða á um heimildir til að stofna til samvinnu opinberra aðila við einkaaðila um tilteknar vegaframkvæmdir og gjaldtöku vegna þeirra.
- Ekki komið til AlþingisS-274/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2019 – 14. nóv. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um umbótavettvang
Áformað er að formfesta hagkvæman ramma um umbótastarf ríkisins sem stuðlar með markvissari hætti að nýsköpun, faglegri mannauðsstjórnun, hagkvæmum innkaupum og eykur stuðning við stafræna þjónustu með víðtækari hætti en áður í starfsemi ríkisins.
- Ekki komið til AlþingisS-272/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 36 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta (ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt og tekjuskatt sem fela í sér ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.
- Ekki komið til AlþingisS-268/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2019 – 11. nóv. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði
Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að stuðla að hagræðingu í ríkisrekstri og bættri þjónustu.
- Ekki komið til AlþingisS-266/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. okt. 2019 – 8. nóv. 2019· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á höfundalögum nr. 73/1972 (aðild að alþjóðasáttmála og innleiðing tilskipunar um tiltekna notkun einstaklinga sem eiga við sjón- eða lestarhömlun að stríða)
Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum til að samræma reglur um gerð eintaka af höfundavernduðum verkum fyrir þá sem stríða við sjón- eða lestrarhömlun.
- Ekki komið til AlþingisS-261/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 8. nóv. 2019· 12 umsagnir
Frumvarp um breytingu á samkeppnislögum
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005.
- Ekki komið til AlþingisS-260/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. okt. 2019 – 1. nóv. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999
Eftir gildistöku breytingalaga nr. 37/2018 á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga kom í ljós að samræmingu skorti á milli laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra um öldrunarráð.
- Ekki komið til AlþingisS-254/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi
Um er að ræða fyrirhugaðar lagabreytingar vegna athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
- Ekki komið til AlþingisS-252/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 1 umsögn
Frumvarp, lög um úrvinnslugjald (EES-reglur)
Fyrirhugað er að leggja til breytingar á lögum um úrvinnslugjald í samræmi við þær kröfur sem kveðið er á um í tilskipun (ESB) 2018/851, um breytingu á tilskipun 2008/98/EB, um úrgang til kerfa sem byggja á framlengdri framleiðendaábyrgð.
- Ekki komið til AlþingisS-251/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 1 umsögn
Frumvarp, lög um meðhöndlun úrgangs (EES-reglur)
Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tvær tilskipanir ESB þar sem settar eru fram nýjar og endurskoðaðar reglur um úrgangsstjórnun og gera breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs til að samræma lögin efnisákvæðum tilskipananna.
- Ekki komið til AlþingisS-250/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2019 – 15. okt. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um erfðafjárskatt (þrepaskipting)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, sem fela í sér þrepaskiptingu erfðafjárskatts.
- Ekki komið til AlþingisS-242/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2019 – 7. okt. 2019· 4 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004 (þrepaskipting)
Í áformuðu frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um erfðafjárskatt í tengslum við þrepaskiptingu erfðafjárskatts.
- Ekki komið til AlþingisS-237/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. sep. 2019 – 8. okt. 2019· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011
Markmið frumvarpsins er fyrst og fremst að styrkja það lögbundna hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum til þeirra.
- Ekki komið til AlþingisS-235/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2019 – 9. okt. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi
Frumvarpið kveður á um breytingu á lögum um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi. Lögin eru heilstæður rammi utan um hvaða ívilnanir stjórnvöldum er heimilt að veita vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Breytingarnar eru tilkomnar vegna athugsemda frá Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og Ríkisendurskoðunar.
- Ekki komið til AlþingisS-227/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. sep. 2019 – 24. sep. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um neytendalán nr. 33/2013, með síðari breytingum (efling neytendaverndar, lagavalsákvæði o.fl.).
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um neytendalán til að efla neytendavernd á fjármálamarkaði. Frumvarpið felur í sér hluta af tillögum starfshóps um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja.
- Ekki komið til AlþingisS-225/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. sep. 2019 – 30. sep. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga breytingu á lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa með síðari breytingum.
- Ekki komið til AlþingisS-212/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2019 – 16. sep. 2019· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi um til breytinga á ýmsum lögum vegna alþjóðasamþykktar um vinnu við fiskveiðar
Frumvarpi þessu er ætlað að gera nauðsynlegar breytingar á lögum til að mæta kröfum 188. samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Varða breytingarnar næturvinnu ungmenna, einkareknar skráningar og ráðningarþjónustur og heilbrigðisvottorð skipverja.
- Ekki komið til AlþingisS-210/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. ágú. 2019 – 9. sep. 2019· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um matvæli, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum um sjávarafurðir og lögum um slátrun og sláturafurðir
Lagðar eru til breytingar á lögum um matvæli, lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru, lögum um sjávarafurðir og lögum um slátrun og sláturafurðir.
- Ekki komið til AlþingisS-206/2019· Drög að stefnu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. ágú. 2019 – 10. sep. 2019· 24 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga er hér lögð fram til umsagnar. Allir geta sent inn umsögn og ábendingar og því um að ræða mikilvægt tækifæri til að hafa áhrif á stefnuna.
- Ekki komið til AlþingisS-204/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. ágú. 2019 – 11. sep. 2019· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til nýrra laga um markaði fyrir fjármálagerninga
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID2) og reglugerð ESB 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFIR).
- Ekki komið til AlþingisS-203/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. júl. 2019 – 13. ágú. 2019· 6 umsagnir
Áform um breytingu á lögum um sölu fasteigna og skipa
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið áformar að leggja til breytingar á lögum um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015.
- Ekki komið til AlþingisS-198/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. júl. 2019 – 12. ágú. 2019· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um leigubifreiðar - Seinna samráð
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir nú í annað sinn til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar. Frumvarpið var fyrst kynnt 17. maí sl. Markmiðið með frumvarpinu er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum og tryggja örugga og góða þjónustu.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)