Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
32 mál · sótt 27. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-258/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2018 – 13. jan. 2019· 18 umsagnir
Drög að frumvarpi um gjald vegna nýtingar eldissvæða í sjó
Um er að ræða frumvarp um gjald vegna nýtingar eldissvæða í sjó.
- Ekki komið til AlþingisS-257/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2018 – 13. jan. 2019· 31 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi
Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi svo sem um áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.
- Ekki komið til AlþingisS-245/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. nóv. 2018 – 14. des. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna heitis Einkaleyfastofunnar (nafnabreyting á stofnuninni).
Með frumvarpinu er lagt til að heiti Einkaleyfastofunnar verði breytt og verði Hugverkastofan. Jafnframt er lagt til að ákvæðum ýmissa sérlaga verði breytt með hliðsjón af þessu.
- Ekki komið til AlþingisS-235/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2018 – 25. nóv. 2018· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Lög um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins um sama efni og tryggir rétt fagmenntaðra einstaklinga til þeirra starfa sem menntun þeirra lýtur að.
- Ekki komið til AlþingisS-231/2018· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. nóv. 2018 – 28. nóv. 2018· 4 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, plastpokar (EES-innleiðing)
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu er verið að innleiða tilskipun (ESB) 2015/720 um breytingu á tilskipun 94/62/EB að því er varðar að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti.
- Ekki komið til AlþingisS-230/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. nóv. 2018 – 23. nóv. 2018· 1 umsögn
Drög að frumvarpi um CFC, samsköttun félaga, takmörkun á frádrætti vaxtagjalda og skattlagningu vegna útsendra starfsmanna
Drög að frumvarpi um CFC-skattlagningu, samsköttun félaga, takmörkun á frádrætti vaxtagjalda og skattlagningu vegna útsendra starfsmanna.
- Ekki komið til AlþingisS-174/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2018 – 6. nóv. 2018· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um helgidagafrið og lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar (starfsemi á helgidögum)
Með frumvarpinu er lagt til að felld verði niður ákvæði sem banna tiltekna þjónustu og afþreyingu á helgidögum þjóðkirkjunnar. Einnig er lagt til að upptalning á helgidögum þjóðkirkjunnar verði færð yfir í þjóðkirkjulög.
- Ekki komið til AlþingisS-173/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2018 – 5. nóv. 2018· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um dómstóla og lögum um meðferð sakamála (birting dóma og myndatökur í dómhúsum)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi reglum um birtingu dóma. Jafnframt er lagt til að dómstólasýslunni verði heimilt að setja reglur um myndatökur og hljóðritun í dómhúsum.
- Ekki komið til AlþingisS-167/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 12. nóv. 2018· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, með síðari breytingum, og lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, með síðari breytingum (afnám gagnageymdar o.fl.)
Með frumvarpinu er lagt til að skyldubundin gagnageymd fjarskiptafyrirtækja verði afnumin og að skilyrði fyrir aðgangi lögreglu/ákæranda að gögnum verði hert.
- Ekki komið til AlþingisS-166/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 12. nóv. 2018· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002, ásamt síðari breytingum (takmarkaðri ábyrgð hýsingaraðila)
Með frumvarpinu er stefnt að rýmkun tjáningarfrelsis með því að draga úr ábyrgð hýsingaraðila og skyldu þeirra til að taka niður gögn.
- Ekki komið til AlþingisS-146/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. okt. 2018 – 17. okt. 2018· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga sem falla undir málefnasvið félags- og jafnréttismálaráðherra, til þess að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga samkvæmt viðkomandi lögum samræmist ákvæðum laga nr. 90/2018.
- Ekki komið til AlþingisS-138/2018· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2018 – 22. okt. 2018· 4 umsagnir
Frumvarp, loftslagslög, breyting (loftslagsráð)
Breyting á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, er lögð fram í þeim tilgangi að: 1) kveða á um stofnun og skipan loftslagsráðs í lögum; 2) innleiða tilskipun (ESB) 2018/410; 3) breyta ákvæði 6. gr. um þá opinberu aðila sem safna upplýsingum vegna losunarbókhalds Íslands; 4) uppfæra IX. kafla um Loftslagssjóð.
- Ekki komið til AlþingisS-134/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2018 – 2. okt. 2018· 9 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála
Lagt er til að stofnað verði tímabundið til starfs samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs með heildarlöggjöf. Einnig er lagt til ákvæði um að óheimilt verði að ráða einstaklinga til starfa hjá íþróttafélögum eða þiggja framlag þeirra sem sjálfboðaliða hafi þeir hlotið refsidóm fyrir kynferðisbrot.
- Ekki komið til AlþingisS-128/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. sep. 2018 – 28. sep. 2018· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (eiginfjáraukar).
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki þar sem lagðar verða til breytingar á ákvæðum laganna er varða eiginfjárauka.
- Ekki komið til AlþingisS-117/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. ágú. 2018 – 14. sep. 2018· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlag í lífeyrissjóði)
Hækkun á mótframlagi Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs og ríkissjóðs til lífeyrisjóða sem og á greiðslum Ábyrgðasjóðs launa til lífeyrissjóða.
- Ekki komið til AlþingisS-112/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. ágú. 2018 – 6. sep. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum
Alþingi hefur samþykkt lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sem taka gildi 1. október 2018. Í því skyni að tryggja þá þjónustu sem lögin gera ráð fyrir þannig að markmið laganna nái fram að ganga þykir nauðsynlegt að tryggja áfram í
- Ekki komið til AlþingisS-103/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. ágú. 2018 – 29. ágú. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda
Með frumvarpsdrögunum er lagt til að ákvæði fasteignalánatilskipunarinnar um heimildir lánamiðlara til að stunda viðskipti yfir landamæri verði tekin upp í íslenskan rétt.
- Ekki komið til AlþingisS-93/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. júl. 2018 – 25. ágú. 2018· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um myndavélaeftirlit í sjávarútvegi
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um myndavélaeftirlit í sjávarútvegi. Meginmarkmið meðfylgjandi frumvarps er að skapa traust til sjávarútvegsins með notkun á nýjustu tækni við eftirlit með vigtun, brottkasti og framhjáafla.
- Ekki komið til AlþingisS-85/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jún. 2018 – 10. ágú. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
Með frumvarpinu eru lagðar til þær lágmarksbreytingar sem gera þarf á lögum sem heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til að ná því markmiði sem felst í nýjum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsingar nr. 90/2018.
- Ekki komið til AlþingisS-75/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jún. 2018 – 19. júl. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, nr. 130/2016, með síðari breytingum.
Með frumvarpinu er stefnt að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðanna þeirra er heyrðu undir ákvörðunarvald kjararáðs samkvæmt lögum nr. 130/2016.
- Ekki komið til AlþingisS-36/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2018 – 22. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003.
- Ekki komið til AlþingisS-35/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2018 – 22. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til breytinga á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007.
Í frumvarpinu felast breytingar á lögum nr. 85/2007 sem snerta annars vegar ákvæði 17. gr. um tækifærisleyfi og hins vegar nokkur ákvæði er varða heimagistingu, leyfisveitingar, niðurfellingu leyfa og viðurlög við brotum.
- Ekki komið til AlþingisS-31/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2018 – 19. mar. 2018· 12 umsagnir
Frumvarp til nýrra persónuverndarlaga
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra persónuverndarlaga til innleiðingar á nýrri reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/679 um persónuvernd, svo nefnd persónuverndarreglugerð.
- Ekki komið til AlþingisS-19/2018· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2018 – 9. mar. 2018· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2014/52/ESB um mat á umhverfisáhrifum sem hefur tekið gildi.
- Ekki komið til AlþingisS-16/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2018 – 8. mar. 2018· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (innleiðing tilskipunar og viðlagaákvæði).
Með frumvarpinu eru gerðar nokkrar breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun. Breytingarnar eru tilkomnar vegna innleiðingar þriðju raforkutilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku.
- Ekki komið til AlþingisS-14/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. feb. 2018 – 2. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna.
- Ekki komið til AlþingisS-13/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. feb. 2018 – 2. mar. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
Frumvarpið kveður á um lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að ná fram markmiðum um samræmda áætlanagerð í öllum málaflokkum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
- Ekki komið til AlþingisS-11/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2018 – 26. feb. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011
Innleiðing tilskipunar 2014/60/ESB í landsrétt kallar á breytingar á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011, sem taka mið af ákvæðum tilskipunar 93/7/EBE frá 15. mars 1993.
- Ekki komið til AlþingisS-10/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. feb. 2018 – 23. feb. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um launasjóð skákmanna
Með þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að gildandi lög um launasjóð stórmeistara, nr. 58/1990, verði lögð af og að nýtt fyrirkomulag um laun til afreksskákmanna verði tekið upp.
- Ekki komið til AlþingisS-9/2018· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 20. feb. 2018· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu vegna innleiðingar tilskipunar 2015/2302/ESB um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun
Áformað er að setja löggjöf sem innleiðir tilskipun 2015/2302/ESB um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar, 90/314/EBE, sem innleidd var sem lög um alferðir, nr. 80/1994.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)