Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-157/2026 · Forsætisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð

Forsætisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð nr. 163/2007.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).

Undanfarin ár hefur Hagstofa Íslands starfrækt sjálfstæða rannsóknareiningu sem annast hefur útgáfu þjóðhagsspáa. Spár Hagstofunnar hafa síðan legið til grundvallar stefnumörkun í opinberum fjármálum, þ.e. fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Nú liggur fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að áætlanir í opinberum fjármálum, þ.m.t. fjármálaáætlun 2027-2031, skuli byggja á þjóðhagsspám Seðlabanka Íslands. Ljóst er að spá bankans uppfyllir einnig skilyrði laga um opinber fjármál og að því marki sem frekari upplýsinga er þörf hefur verið gert samkomulag um að ráðuneytinu verði látnar í té tilteknar viðbótarupplýsingar sem bankinn birtir ekki opinberlega. Stefna í opinberum fjármálum og peningastefnan munu þannig byggja á sömu forsendum og umgjörð um mótun efnahagsstefnu stjórnvalda styrkjast. Með frumvarpi þessu er því lagt til að skylda Hagstofunnar til starfrækslu sjálfstæðrar rannsóknareiningar verði felld brott úr lögum, enda ekki lengur fyrir hendi aðstæður sem kalla á þjóðhagsspá þaðan. Með því móti verði komið í veg fyrir tvíverknað í starfsemi hins opinbera.

S-157/2026· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. ágú. 2026 – 9. sep. 2026· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð

Forsætisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð nr. 163/2007.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-157/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. september 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 133)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-157/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð · Alviti