Áform um lagasetningu - breyting á búvörulögum og búnaðarlögum um framlengingu búvörusamninga
Atvinnuvegaráðuneyti kynnir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 og búnaðarlögum nr. 70/1998 um framlengingu búvörusamninga.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).
Núgildandi búvörusamningar milli stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands (BÍ), þ.e. rammasamningur um almenn starfsskilyrði landbúnaðar, samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar, samningur um starfsskilyrði nautgriparæktar og samningur um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, voru gerðir árið 2016. Þar er mælt fyrir um að samningarnir gildi til 10 ára eða til og með 31. desember 2026. Samningarnir hafa verið endurskoðaðir nokkrum sinnum síðan þeir öðluðust gildi en síðasta endurskoðun fór fram á árinu 2023 og voru þá ekki gerðar veigamiklar breytingar á búvörusamningum, þar sem samningsaðilar voru sammála um að hefja strax samtal um starfsumhverfi landbúnaðar til framtíðar.
Undirbúningur fyrir samtal stjórnvalda og BÍ hefur staðið yfir um nokkurt skeið og á árinu 2023 voru samþykktar af Alþingi tvær þingsályktanir er varða landbúnað til framtíðar, annars vegar matvælastefna til ársins 2040 og hins vegar landbúnaðarstefna til ársins 2040. Síðustu misseri hafa stjórnvöld átt í samtali við BÍ um starfsumhverfi landbúnaðar en fyrir liggur að meiri tíma þarf fyrir það samtal og er því tilefni þessa frumvarps að framlengja núgildandi búvörusamninga til ársloka 2027.
Með samkomulagi milli atvinnuvegaráðherra og fjármála-og efnahagsráðherra fyrir hönd stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands dags. 3. júní 2026 er kveðið á um að framlengja núgildandi búvörusamninga til og með 31. desember 2027 á meðan samtal um stuðningskerfi landbúnaðar til framtíðar fer fram.
Mælt er fyrir um gildistíma búvörusamninga í ákvæðum búvöru- og búnaðarlaga og því eru áformaðar breytingar á núgildandi lögum svo samkomulag um framlengingu búvörusamninga öðlist gildi. Áformað er að gera orðalagsbreytingar á 37., 38., 41., 55. og 58. gr. búvörulaga. Þá eru áformaðar breytingar á 3. gr. búnaðarlaga.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áformin og umsagnafrestur er til og með 10. ágúst 2026.
S-124/2026· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. júl. 2026 – 10. ágú. 2026· 1 umsögn
Áform um lagasetningu - breyting á búvörulögum og búnaðarlögum um framlengingu búvörusamninga
Atvinnuvegaráðuneyti kynnir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 og búnaðarlögum nr. 70/1998 um framlengingu búvörusamninga.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)