Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-174/2025 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna

Menningar, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og íslenskri tungu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október); 158. þing (áætlað: janúar).

Á síðustu árum hefur samkeppni við alþjóðlegar streymisveitur og samfélagsmiðla haft neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi og samkeppnisstöðu innlendra fjölmiðla, sem kemur niður á framleiðslu innlends efnis og veikir þar með stöðu íslenskrar tungu. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ný skylda innlendra og erlendra streymisveitna, með starfsemi á Íslandi, til að greiða svokallað menningarframlag. Menningarframlag verði í formi skatts sem nemi 5% af heildartekjum streymisveitna af sölu áskrifta á Íslandi. Fjárfestingar í innlendu efni komi til skattalækkunar -Gert er ráð fyrir að skatturinn lækki í samræmi við umfang beinna fjárfestinga í framleiðslu á innlendu efni og falli niður þegar beinar fjárfestingar í framleiðslu á innlendu efni nema 5% af skattstofni. Heimilt verði að dreifa kostnaði við beina fjárfestingu í innlendu efni sem umfram er 5% af stofni til útreiknings menningarframlags á allt að þrjú ár. Undanþegnir aðilar -Streymisveitur með ársveltu undir 20.000.000 kr. eða áskrifendafjölda undir 1% af fjölda heimila á Íslandi, verði undanþegnar greiðslu menningarframlags. -Ríkisútvarpið verði undanþegið greiðslu menningarframlags, með vísan til þeirra skyldna sem nú þegar hvíla á Ríkisútvarpinu um þátttöku þess í kvikmynda- og sjónvarpsgerð, m.a. með kaupum af sjálfstæðum framleiðendum. Hið sama gildi um aðra sambærilega fjölmiðla sem heyra undir lög um um almannaþjónustufjölmiðla í öðrum EES-ríkjum. -Þá verði streymisveitur sem eingöngu miðla íþróttaefni, fréttum eða trúarlegu efni undanþegnar greiðslu menningarframlags. Hvað eru streymisveitur? -Streymisveitur eru fjölmiðlaveitur sem miðla efni eftir pöntun (e. video on demand, VOD), sumar eingöngu innanlands en aðrar yfir landamæri til fleiri ríkja. Stærstu einkareknu streymisveiturnar hér á landi eru Stöð 2+ í eigu Sýnar og Sjónvarp Símans Premium, í eigu Símans. Erlendar streymisveitur með starfsemi hér á landi í september 2025 eru a.m.k. Netflix, Disney+, Viaplay, Amazon Prime Video og HBO MAX. Markmið -Markmið frumvarpsins er að efla íslenska menningu og íslenska tungu með því að hvetja til fjárfestingar í framleiðslu kvikmynda, stuttmynda, leikins sjónvarpsefnis og heimildamynda, sem eru á íslensku eða hafa aðra íslenska menningarlega og samfélagslega skírskotun. Frumvarpið er liður í því að jafna samkeppnisstöðu innlendra fjölmiðla gagnvart erlendum streymisveitum. Auk þess kann aukin fjárfesting í framleiðslu á innlendu efni að leiða til fleiri atvinnutækifæra fagfólks sem starfar við sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslu hér á landi. Skilgreining á innlendu efni -Innlent efni í skilningi frumvarpsins er nýjar leiknar kvikmyndir, stuttmyndir, leikið sjónvarpsefni og heimildamyndir, sem hafa íslenska menningarlega og samfélagslega skírskotun eða þar sem meira en helmingur talmáls er á íslensku og efni uppfyllir þar að auki aðra af eftirfarandi kröfum. a) 50% eða hærra hlutfall framleiðslukostnaðar er greitt á Íslandi. b) 50% eða hærra hlutfall af upptökum viðkomandi myndefnis fer fram á Íslandi. -Lagt er til að fréttir, útsendingar frá íþróttaviðburðum, leikja- og skemmtidagskrá, auglýsingar, textavarpsþjónusta eða fjarkaup, teljist ekki til innlends efnis í skilningi frumvarpsins. Skráningarskylda streymisveitna -Lagt er til að streymisveitur tilkynni starfsemi sína til skráningar á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Komi upp vafatilvik verði Ríkisskattstjóra heimilt að leita umsagnar hjá fjölmiðlanefnd um það hvort aðili uppfylli skilyrði þess að teljast streymisveita í skilningi frumvarpsins. Umsýsla og kæruleiðir -Lagt er til að Ríkisskattstjóri annist álagningu menningarframlags, á grundvelli skýrslu sem skattskyldum aðilum verði gert að skila til Skattsins frá og með árinu 2026. Kvikmyndamiðstöð Íslands annist mat á því hvað teljist til fjárfestinga í innlendu efni í skilningi frumvarpsins. Þá er lagt til í frumvarpinu að ákvarðanir Ríkisskattstjóra verði kæranlegar til yfirskattanefndar en niðurstaða Kvikmyndamiðstöðvar um mat á innlendu efni verði kæranleg til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Framlag ríkisins í Kvikmyndasjóð verði hækkað -Áætlað er að frumvarpið muni skila tekjum sem renni í ríkissjóð, sbr. 37. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Til að unnt verði að ná því markmiði sem að er stefnt með frumvarpinu miðast tillagan við þá grundvallarforsendu að framlag ríkisins í Kvikmyndasjóð verði hækkað sem þeirri upphæð nemur, með ákvörðun Alþingis sem ákveður skiptingu fjárheimilda til málefnasviða og málaflokka í fjárlögum ár hvert. Gert er ráð fyrir að áhrif frumvarpsins verði mest á streymisveitur sem fjárfesta lítið eða takmarkað í nýju, íslensku efni. Að lokinni birtingu í samráðsgátt verður farið yfir umsagnir og ábendingar sem þar berast. Að því loknu verður frumvarpið fullunnið og lagt fram á Alþingi á haustþingi 2025.

S-174/2025· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2025 – 24. okt. 2025· 12 umsagnir

Frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna

Menningar, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og íslenskri tungu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-174/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 318)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. júlí 2026)

Umsagnir bárust frá þrettán aðilum. Unnið var úr þeim og nokkrar breytingar gerðar. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 2. desember 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan, en hlaut ekki frekari framgang á þingi. Í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Hermundur Skaftfeld Sigurðsson
    Umsögn um frumvarp um menningarframlag streymisveitna (svonefndan streymisveitnaskatt) Ég vil sérstaklega vekja athygli á þeirri undanþágu sem veitt er Ríkisútvarpinu (RÚV) frá greiðslu hins svokallaða menningarframlags. Að mínu mati er þessi undanþága vafasöm með tilliti til jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og kann jafnvel að fela í sér brot á lögum. 1. Brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar (65. gr.) Samkvæmt 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 skulu „allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til stöðu eða eigna.“ Þessi regla gildir jafnt gagnv… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp um menningarframlag streymisveitna (svonefndan streymisveitnaskatt) Ég vil sérstaklega vekja athygli á þeirri undanþágu sem veitt er Ríkisútvarpinu (RÚV) frá greiðslu hins svokallaða menningarframlags. Að mínu mati er þessi undanþága vafasöm með tilliti til jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og kann jafnvel að fela í sér brot á lögum. 1. Brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar (65. gr.) Samkvæmt 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 skulu „allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til stöðu eða eigna.“ Þessi regla gildir jafnt gagnvart einstaklingum og lögaðilum, og felur í sér að löggjafinn má ekki mismuna aðilum í sambærilegri stöðu nema það sé málefnalega réttlætt, hlutlægt og í samræmi við meðalhóf. Í þessu frumvarpi eru allar streymisveitur, innlendar sem erlendar, skyldaðar til að greiða 5 % af áskriftartekjum í menningarframlag — nema RÚV, sem er í beinni samkeppni við aðra aðila á markaði, og selur einnig streymisþjónustu (t.d. RÚV Play+ o.fl.). Þar sem RÚV veitir þjónustu sem að hluta til er sambærileg við starfsemi einkarekinna streymisveitna, er erfitt að sjá að málefnaleg rök réttlæti fulla undanþágu hans frá gjaldskyldu. Undanþágan getur þannig falið í sér ólögmæta mismunun milli samkeppnisaðila á markaði. 2. Ómálefnaleg mismunun og samkeppnisröskun Rök ráðuneytisins fyrir undanþágunni virðast einkum þau að RÚV hafi þegar lögbundnar skyldur til að fjárfesta í innlendu efni. Þó er það ekki nægjanlegt sjónarmið í sjálfu sér til að réttlæta undanþágu, þar sem aðrar innlendar streymisveitur, s.s. Sýn (Stöð 2 +) og Síminn (Sjónvarp Símans Premium), fjárfesta einnig verulega í innlendu efni og sinna þjóðmenningarlegu hlutverki. Engin hlutlæg ástæða er fyrir því að gera slíkan greinarmun á milli aðila í samkeppni. Undanþágan skapar því markaðslegan mismun og getur brotið gegn meginreglum samkeppnisréttar, þar sem hún veitir einum markaðsaðila — í eigu ríkisins — forréttindi sem ekki standa öðrum til boða. 3. Árekstur við jafnræðis- og meðalhófsreglur stjórnsýsluréttar Þegar löggjafinn veitir undanþágur frá almennri lagaskyldu þarf það að byggjast á skýrum, málefnalegum og nauðsynlegum rökum. Í þessu tilviki virðist undanþágan byggð á almennum tilvísunum í lög um Ríkisútvarpið, án þess að metið sé sérstaklega hvort þær skyldur RÚV sem þegar eru til staðar jafngildi eða fari fram úr 5 % framlagi sem aðrir aðilar greiða. Engin greinargerð fylgir sem sýnir slíkt jafngildi, né heldur að undanþágan sé nauðsynleg til að ná markmiði laganna um að efla íslenska menningu. Því skortir bæði meðalhóf og rökstudda réttlætingu, sem eru grundvallarskilyrði stjórnsýslu og löggjafar. 4. Niðurstaða Með vísan til framangreinds tel ég að undanþága RÚV, eins og hún er sett fram í frumvarpinu, geti verið andstæð 65. gr. stjórnarskrárinnar, meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og grundvallarreglum um jafna samkeppni. Ef ætlunin er að viðhalda undanþágu fyrir RÚV þarf hún að byggjast á skýrum og afmörkuðum lagarökum, með nákvæmri útfærslu um hvernig núverandi skyldur RÚV séu sambærilegar eða hærri en menningarframlagið sem öðrum ber að greiða. 5. Tillaga Lagt er til að ákvæðið um undanþágu RÚV verði: annaðhvort fellt brott, eða endurorðað þannig að undanþága gildi aðeins að því marki sem RÚV sýnir fram á að lögbundnar fjárfestingar þess í innlendu efni jafngildi eða fari fram úr 5 % menningarframlagi.

  • #2Sýn hf.

    Sjá meðfylgjandi umsögn Sýnar hf.

  • #3Jóna Hlíf Halldórsdóttir

    Sjá meðfylgjandi umsögn Bandalags íslenskra listamanna.

  • #4Miðeind ehf.

    Hjálögð er umsögn Miðeindar ehf.

  • #5Sveinbjörn I Baldvinsson
    Umsögn FLH um frumvarp um menningarframlag streymisveitna. Ágæta menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, Félag leikskálda og handritshöfunda (FLH) styður vitaskuld markmið frumvarps til laga um menningarframlag streymisveitna, þ.e. að efla íslenska menningu og tungu og tekur undir með systursamtökum sínum í þessu efni. FLH fagnar væntanlegri innleiðingu 5% menningarframlags af tekjum streymisveitna af sölu áskrifta á Íslandi, enda um hóflegt framlag að ræða, sem þó getur haft raunveruleg áhrif sé það rétt nýtt. Við höfum hins vegar áhyggjur af því hvernig tryggt verður að þessir fjármu… Lesa alla

    Umsögn FLH um frumvarp um menningarframlag streymisveitna. Ágæta menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, Félag leikskálda og handritshöfunda (FLH) styður vitaskuld markmið frumvarps til laga um menningarframlag streymisveitna, þ.e. að efla íslenska menningu og tungu og tekur undir með systursamtökum sínum í þessu efni. FLH fagnar væntanlegri innleiðingu 5% menningarframlags af tekjum streymisveitna af sölu áskrifta á Íslandi, enda um hóflegt framlag að ræða, sem þó getur haft raunveruleg áhrif sé það rétt nýtt. Við höfum hins vegar áhyggjur af því hvernig tryggt verður að þessir fjármunir skili sér raunverulega til eflingar íslenskrar kvikmynda- og - ekki síður - sjónvarpsþáttagerðar og nýtist þar með í alvöru til að efla vöxt og viðgang þeirrar greinar sem mestan snertiflöt hefur við almenning og þar með mest áhrif þegar kemur að því að láta íslenskt samfélag, menningu og tungu skipta fólk máli. Í frumvarpinu segir að innlent efni í skilningi laganna séu nýjar kvikmyndir, sjónvarpsefni og heimildamyndir sem hafi íslenska menningarlega skírskotun eða þar sem meirihluti talmáls sé á íslensku og að minnsta kosti helmingur framleiðslu- eða upptökukostnaðar falli til á Íslandi. Þessi skilgreining tryggir hins vegar ekki að íslenskir kvikmyndahöfundar, handritshöfundar og leikstjórar komi að sköpun efnisins. Afleiðingin gæti orðið sú, líkt og aðrir hafa bent á, að streymisveitur fjárfesti í framleiðslu á þáttum sem teknir eru upp hér á landi, á íslensku, en byggjast á erlendri fyrirmynd og þarfnast hvorki frumsamins handrits né skapandi aðkomu íslenskra höfunda — til dæmis þættir á borð við Love Island eða Biggest Loser. Slík framleiðsla myndi samkvæmt núverandi skilgreiningu teljast sem fjárfesting í „íslensku efni”, án þess að stuðla að neinni raunverulegri eflingu íslenskrar menningar eða frásagnarhefðar. Íslensk kvikmyndagerð byggist á því að fólk fái tækifæri til að skrifa og leikstýra frumsömdu efni. Það sem stendur greininni helst fyrir þrifum í dag er skortur á fjármagni til þróunar og framleiðslu á slíkum verkefnum, og því er lykilatriði að tryggja að þetta nýja fjármagn, þótt lítið sé, fari beint í það verkefni. FLH leggur því til að skilgreining á „innlendu efni“ verði breytt þannig að þar komi skýrt fram að aðkoma íslenskra kvikmyndahöfunda, handritshöfunda og leikstjóra, sé forsenda þess að verkefni teljist innlent. Slík breyting væri í fullu samræmi við markmið frumvarpsins um að efla íslenska menningu. Fh. stjórnar FLH, Sveinbjörn I. Baldvinsson, formaður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-174/2025: Frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna · Alviti