Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-154/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: september).

Áform um breytingar á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjfóflóðum og skriðuföllum með það að markmiði að auka skýrleika tiltekinna ákvæða, einkum varðandi nýtingu eigna á hættusvæðum, styrkveitingar til sveitarfélaga, og eftirlitshlutverk Veðurstofu Íslands. Markmiðið er að einfalda og skýra betur tiltekin ákvæði laganna og taka af vafa um framkvæmd þeirra, bregðast við athugasemdum og leggja til ný ákvæði.

S-154/2025· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. ágú. 2025 – 19. sep. 2025· 8 umsagnir

Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-154/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. september 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 4)
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2026)

Allar umsagnir voru teknar til skoðunar. Sérstaklega var litið til umsagnar lögreglunnar á Vestfjörðum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar endurskoðun laganna en minnir á að vandamál vegna jarðvegsskriða á byggðum svæðum í bæði þéttbýli og dreifbýli hafa aukist á liðnum árum vegna m.a. hækkandi hitastigs, aukins gróðurs í bröttum brekkum og hærri vatnsstöðu í rigningarsömum árum. Þetta hefur nú þegar leitt til algjörlega ófyrirsjáanlegra skriðufalla sem hafa valdið tjóni á íbúðarhúsum og mannvirkjum í þéttbýli sem erfiðlega hefur gengið að fá bætt af Ofanflóðasjóði. Frá því að lög um varnir gegn ofanflóðum og skriðföllum tóku gildi hefur margt breyst í veðurfari og samfélagsgerð á Íslandi, sem hefur… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar endurskoðun laganna en minnir á að vandamál vegna jarðvegsskriða á byggðum svæðum í bæði þéttbýli og dreifbýli hafa aukist á liðnum árum vegna m.a. hækkandi hitastigs, aukins gróðurs í bröttum brekkum og hærri vatnsstöðu í rigningarsömum árum. Þetta hefur nú þegar leitt til algjörlega ófyrirsjáanlegra skriðufalla sem hafa valdið tjóni á íbúðarhúsum og mannvirkjum í þéttbýli sem erfiðlega hefur gengið að fá bætt af Ofanflóðasjóði. Frá því að lög um varnir gegn ofanflóðum og skriðföllum tóku gildi hefur margt breyst í veðurfari og samfélagsgerð á Íslandi, sem hefur eðlilega haft og mun hafa enn frekari áhrif á þau verkefni sem Ofanflóðasjóði er ætlað að fjármagna. Í dag er vaxandi ógn af jarðvegsskriði í Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók. Skríði þessi jarðvegur fram meira en nú þegar er orðið mun það leiða til skemmda á löngu byggðum íbúðarhúsum og öðrum mannvirkjum. Í þessu tilfelli er jafnframt mjög kostnaðarsamt að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir og fjarlægja jarðveg og gróður eða ráðast í gerð varnargarða til að koma í veg fyrir frekara tjón. Því er nauðsynlegt við endurskoðun laganna að sveitarfélög geti sótt fjármuni í Ofanflóðasjóð til bæði fyrirbyggjandi aðgerða og einnig ef til tjóns kemur. Minna má að vítt og breytt um landið má finna hús og byggðir sem risu löngu áður en núverandi skipulagslög eða varnir gegn ofanflóðum tóku gildi. Jafnframt þarf að kveða á um með skýrari hætti en er í gildandi lögum að óski sveitarstjórnir eftir gerð hættumats vegna mögulegra ofanflóða þá skuli skilyrðislaust orðið við slíkri beiðni. Það er ekki að gamni gert að sveitarstjórnir leggi slíka beiðni fram. Enn fremur er nauðsynlegt að skýra ákvæði 1. greinar umræddra laga hvað varðar fall eða flóð af náttúrulegum ástæðum þannig að óumdeilt sé að undir ákvæði laganna falli ofanflóð vegna óstöðugra jarðlaga, í ljósi þeirra breytinga á náttúrufari sem þegar hefur orðið vart við.

  • #2Ottó Björgvin Óskarsson

    Sæl. Hér kemur umsögn Skipulagsstofnunar

  • #3Múlaþing

    Umsögn byggðaráðs Múlaþings.

  • #4Samband íslenskra sveitarfélaga

    Í viðhengi er að finna umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  • #5Lögreglustjórinn á Vestfjörðum

    Sjá meðfylgjandi viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-154/2025: Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum · Alviti