Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-77/2025 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022

Með frumvarpi um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022 er ætlunin að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnum nýrra björgunarskipa.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Innviðaráðuneytið áformar að leggja til að í lögum verði heimild fyrir ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum sem og nánari ákvæði um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem gegna sérhæfðu hlutverki. Áformað er að heimild til setningar reglugerðar verði takmörkuð á eftirfarandi veg: • Námskrá og listi yfir kennara eru háð samþykki Samgöngustofu. • Samgöngustofa hefur eftirlit með náminu. • Námið gildir eingöngu til starfa um borð í skipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar skv. skipaskrá. • Námið og siglingatími í framhaldi af því í skipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar nýtist ekki til að öðlast önnur réttindi skv. lögunum.

S-77/2025· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. apr. 2025 – 2. maí 2025· 7 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022

Með frumvarpi um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022 er ætlunin að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnum nýrra björgunarskipa.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-77/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. maí 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 86)
Niðurstöður samráðs (10. júlí 2025)

Lagt hefur verið mat á allar athugasemdir í umsögnum sem bárust. Námsskrá og listi yfir kennara verður háð samþykki Samgöngustofu. Þá verður námið háð eftirliti stofnunarinnar, líkt og gildir um annað nám í siglingatengdum greinum. Er því ekki talin ástæða til að ætla að gæði náms skv. reglugerð sem sett verður í samræmi við fyrirhugaða breytingu á lögum verði minni en gæði náms í öðrum fagskólum. Í greinargerð frumvarpsins verður hvatt til samráðs við fagskóla við myndun námskrár.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-77/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022 · Alviti