Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022
Með frumvarpi um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022 er ætlunin að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnum nýrra björgunarskipa.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-77/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. maí 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. júlí 2025)
Lagt hefur verið mat á allar athugasemdir í umsögnum sem bárust. Námsskrá og listi yfir kennara verður háð samþykki Samgöngustofu. Þá verður námið háð eftirliti stofnunarinnar, líkt og gildir um annað nám í siglingatengdum greinum. Er því ekki talin ástæða til að ætla að gæði náms skv. reglugerð sem sett verður í samræmi við fyrirhugaða breytingu á lögum verði minni en gæði náms í öðrum fagskólum. Í greinargerð frumvarpsins verður hvatt til samráðs við fagskóla við myndun námskrár.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Samgöngustofa
- #2Félag skipstjórnarmanna
Meðfylgjandi er umsögn Félags skipstjórnarmanna.
- #3Samtök ferðaþjónustunnar
Góðan dag, Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar-SAF um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa. Með góðum kveðjum F.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson
- #4Verkmenntaskólinn á Akureyri
Í meðfylgjandi viðhengi er sameiginleg umsögn Tækniskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri
- #5Halldór Arnar Guðmundsson
Umsögn VM-Félags vélstjóra og málmtæknimanna
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.