Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-52/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur).

Frumvarp þetta er lagt fram til að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA hvað varðar innleiðingu reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 frá 29. apríl 2004 um samræmingu almannatryggingakerfa. Markmiðið þess er að koma til móts við foreldra sem starfa á innlendum vinnumarkaði en hafa starfað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Lagt er til að við 23. gr. laganna verði bætt við ný málgrein þar sem kveðið er á um þau nýmæli að þegar foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði skemur en fjóra mánuði á viðmiðunartímabili tekna skv. 1., 2. eða 3. mgr. greinarinnar en hefur starfað að hluta eða að öllu leyti í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Norðurlandasamningnum um almannatryggingar, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða samningi milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar á fyrrnefndu viðmiðunartímabili skuli miða útreikning á meðaltali heildarlauna við þá almanaksmánaði sem foreldrið hefur starfað á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.

S-52/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2025 – 13. mar. 2025· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-52/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 225)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. janúar 2026)

Niðurstaða máls var frumvarp lagt fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Logan Lee Sigurðsson

    Please see attachment on behalf of W.O.M.E.N. Thank you. Vinsamlegast sjáið viðhengið fyrir hönd W.O.M.E.N. Takk

  • #2Logan Lee Sigurðsson

    Apologies my previous submission was intended for another review of the same bill - please disregard

  • #3Bandalag háskólamanna

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn BHM Kær kveðja, Ingvar Sverrisson

  • #4Bandalag háskólamanna

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn BHM Kær kveðja, Ingvar Sverrisson

  • #5Samband íslenskra námsmanna erl

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra námsmanna erlendis um Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-52/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur) · Alviti