Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-49/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum ofl. (endurheimt ávinnings af afbrotum ofl.)

Frumvarp um breytingar á lögum er varða endurheimt ávinnings af afbrotum í formi haldlagningar, kyrrsetningar og upptöku eigna og annarra verðmæta.

Frumvarpið felur í sér breytingar á m.a. lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum og lögreglulögum og hefur það að markmiði að auka skilvirkni og efla getu löggæsluyfirvalda til að endurheimta ávinning af refsiverðri háttsemi með haldlagningu, kyrrsetningu og upptöku eigna og annarra verðmæta. Frumvarpið er liður í því að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem leiða af þátttöku Íslands í alþjóðlega fjármálaaðgerðahópum um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryjuðjuverka, FATF (e. Financial Action Task Force). Með frumvarpinu er regluverk einnig fært til betra samræmis við það sem gildir á hinum Norðurlöndunum. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að lögreglu verði veitt heimild til að óska eftir upplýsingum hjá fjármálafyrirtækjum og sambærilegum þjónustuveitendum án dómsúrskurðar vegna rannsóknar sakamála. Núverandi fyrirkomulag hefur sætt gagnrýni af hálfu FATF en breytingin er einnig í samræmi við það sem gildir á hinum Norðurlöndunum. Jafnframt er lagt til að stofnuð verði sérstök eining hjá embætti héraðssaksóknara sem hefur það hlutverk að vinna markvisst að endurheimt ávinnings, annars vegar með því að vera öðrum lögregluembættum til aðstoðar og hins vegar að hafa á höndum umsjón með haldlögðum og kyrrsettum eignum í samræmi við reglugerð um meðhöndlun, vörslur og sölu haldlagðra, kyrrsettra og upptækra eigna og muna. Ákvæðum sakamálalaga um haldlagningu og kyrrsetningu skal einnig breytt í því skyni að unnt verði að haldleggja eignir til tryggingar greiðslu sekta og sakarkostnaðar og til að koma í veg fyrir að unnt sé að krefjast aðfarar og nauðungarsölu á eignum sem lögregla hefur kyrrsett. Loks er ákvæðum hegningarlaga um upptöku breytt á þann veg að annars vegar verður unnt að dæma einstakling til að greiða fjárhæð sem samsvarar ávinningi í þeim tilvikum er haldlögð verðmæti duga ekki til og hins vegar settar samræmdar reglur um upptöku án sakfellingar, þ.e. í þeim tilvikum er upptökuþoli er látinn, ekki er vitað hver hann er eða hann finnst ekki.

S-49/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. feb. 2025 – 12. mar. 2025· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum ofl. (endurheimt ávinnings af afbrotum ofl.)

Frumvarp um breytingar á lögum er varða endurheimt ávinnings af afbrotum í formi haldlagningar, kyrrsetningar og upptöku eigna og annarra verðmæta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-49/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 269)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Allar lögheimildir sem krefjast haldlagningar á eignum fólks, fjármunum og slíku skulu vera þannig úr garði gerðar að slíkt krefjist heimildar frá dómara ásamt röksemdum frá viðkomandi lögregluembætti og lögreglumönnum. Að gera slíkt án heimildar frá dómara er brot á mannréttindum, ferli rannsókna og annara alþjóðlegra samþykkta sem Ísland hefur skrifað undir. Það er ekki í lagi að lögreglan fái heimildir án yfirsjónar frá dómstólum. Þrátt fyrir alþjóðlegar kröfur sem Ísland hefur skrifað undir. Enda er það svo að mjög fáir einstaklingar stunda stórfellt peningaþvætti. Slíkt er yfirleitt gert… Lesa alla

    Allar lögheimildir sem krefjast haldlagningar á eignum fólks, fjármunum og slíku skulu vera þannig úr garði gerðar að slíkt krefjist heimildar frá dómara ásamt röksemdum frá viðkomandi lögregluembætti og lögreglumönnum. Að gera slíkt án heimildar frá dómara er brot á mannréttindum, ferli rannsókna og annara alþjóðlegra samþykkta sem Ísland hefur skrifað undir. Það er ekki í lagi að lögreglan fái heimildir án yfirsjónar frá dómstólum. Þrátt fyrir alþjóðlegar kröfur sem Ísland hefur skrifað undir. Enda er það svo að mjög fáir einstaklingar stunda stórfellt peningaþvætti. Slíkt er yfirleitt gert í gegnum fyrirtæki sem starfa kannski og kannski ekki innan lögsögu Íslands. Upplýsingaskylda til þeirra sem sæta svona rannsókn þarf einnig að tryggja. Sérstaklega ef mál er fellt niður og rannsókn hætt. Dómsmál og lögreglurannsóknir þurfa að uppfylla strangar kröfur til þess að rannsókn sé í lagi og feril rannsókna sé í lagi. Því þarf að vanda mjög til slíkrar lagsetningar frá upphafi og líka þegar lögum er breytt.

  • #2Erna Ýr Öldudóttir

    Það vantar rökstuðning. Hefur verið sýnt fram á að á hérlendis fari fram þvílík peningaþvættisstarfsemi af hendi einstaklinga og fyrirtækja - sem í alþjóðlegu samhengi eru örsmá - að það kalli á önnur eins mannréttindabrot og felast í þessu frumvarpi?

  • #3Ingólfur Daníel Árnason

    Þetta er hreinn og beinn fasismi Fokk samfylkingun. Fokk Viðreisn og fokk flokk fólksins.

  • #4Margrét Arnheiður Jónsdóttir

    Góðan dag. Viðfest er umsögn fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Virðingarfyllst, fyrir hönd SFF. Margrét A. Jónsdóttir

  • #5Afstaða til ábyrgðar
    Umsögn Afstöðu vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum o.fl. (endurheimt ávinnings af afbrotum o.fl.) Í drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar sem miða að því að auka getu og skilvirkni lögreglu við að endurheimta ávinning af refsiverðri háttsemi. Afstaða lýsir yfir áhyggjum af sumum þáttum draganna sem gætu haft veruleg áhrif á borgaraleg réttindi einstaklinga. Að öðru leiti styður félagið áform stjórnvalda sem munu styðja við þá stefnu sem felur í sér að taka fast á skipulagðri glæpastarfssemi. Það þarf hins vegar… Lesa alla

    Umsögn Afstöðu vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum o.fl. (endurheimt ávinnings af afbrotum o.fl.) Í drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar sem miða að því að auka getu og skilvirkni lögreglu við að endurheimta ávinning af refsiverðri háttsemi. Afstaða lýsir yfir áhyggjum af sumum þáttum draganna sem gætu haft veruleg áhrif á borgaraleg réttindi einstaklinga. Að öðru leiti styður félagið áform stjórnvalda sem munu styðja við þá stefnu sem felur í sér að taka fast á skipulagðri glæpastarfssemi. Það þarf hins vegar að gera án þess að mannréttindi og persónusjónarmið séu fótum troðin. Mikilvægt er að rannsóknir fari fram á peningavætti hér á landi og ekki réttlætanlegt að þrengja svo mikið að mannréttindum og einkalífi almennings eins og stefnt er að í drögunum fyrr en að niðurstaða þeirra rannsókna liggur fyrir. Það er einnig mikilvægt að fram komi að í dag hafa stjórnvöld framselt eftirlitsvald til fjármálastofnanna sem hafa tekið upp mjög ítarlegar áreiðanleikakannanir og auknar kannanir sem að mati Afstöðu er skýrt brot á stjórnarskrá landsins enda engin lagaheimild fyrir því að einkaaðilar sjái um slíkt eftirlit. Bankarnir hafa tekið upp á því að loka reikningum hjá fjölda einstaklinga og fyrirtækja undanfarin misseri og virðist sem bankarnir deili sín á milli upplýsingum um einstaklinga. Kallar það á tafarlausa rannsókn stjórnvalda á starfsháttum bankanna. Að mati Afstöðu munu fordæmalausar aðgerðir bankanna leiða til þess að Íslendingar færi bankaviðskipti sín í meira mæli til útlendra fjármálastofnana. Aðgerðir bankanna, sem sagðar eru í vera forvarnir gegn peningaþvætti, og drög þessi að frumvarpi munu gera það að verkum, að mati Afstöðu, að hratt mun byggjast upp mjög stórt svart hagkerfi rétt eins og við erum að sjá í löndunum í kringum okkur. Afstaða hvetur stjórnvöld til að endurskoða frumvarpsdrögin áður en þau eru lögð fyrir Alþingi. Helstu áhyggjuefni: 1. Heimildir lögreglu án dómsúrskurðar. Frumvarpið felur í sér að lögregla fái auknar heimildir til að óska eftir upplýsingum frá fjármálafyrirtækjum og öðrum þjónustuveitendum án dómsúrskurðar. Við teljum þessa auknu heimild umfangsmikla og of rúma. Það þarf að vera skýr rökstuðningur fyrir því að slíkar breytingar séu nauðsynlegar og að þær brjóti ekki gegn mannréttindum. Í þessu tilfelli telur félagið að engum sé treystandi fyrir svo viðamiklum heimildum eins og þessari vegna bæði persónu og mannréttindasjónarmiða. Mjög auðveldlega er hægt fyrir lögreglu og aðra eftirlitsaðila að óska eftir beiðni og úrskurð dómara til að fá slíka heimild, sem í gegnum tíðina hefur verið samþykkt í 99% tilfella hjá dómstólum. Þó svo að það megi gagnrýna hversu oft dómstólar samþykki slíkar óskir að þá að minnsta kosti er örugg skráning og utanumhald með því litla eftirliti sem er á slíkum aðgerðum. Afstaða telur einnig að afturkalla þurfi allar aðrar heimildir sem aðrar stofnanir hafa til hins sama eins og Skatturinn og aðrar eftirlitsstofnanir á sama tíma í þessum breytingum enda úrskurðir dómara auðfengnir eins og hefur komið fram. 2. Vernd viðkvæmra einstaklinga. Það þarf að setja skýrari skorður við beitingu þessara heimilda ef leyfðar verða, til að tryggja að þær beinist ekki gegn viðkvæmum og oft jaðarsettum hópum sem ekki eru hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Við leggjum til að slíkar heimildir verði aðeins nýttar í málum þar sem rökstuddur grunur er um umfangsmikla og alvarlega brotastarfsemi sem felur í sér háar fjárhæðir og mun hærri refsiramma. 3. Nauðsyn dómsúrskurðar. Við leggjum áherslu á að heimildir til upplýsingaöflunar sem geta varðað einkalíf einstaklinga ættu alltaf í öllum tilfellum allra stofnana að krefjast úrskurðar dómara. Dómsúrskurður veitir nauðsynlegt eftirlit og tryggir að aðgerðir séu réttmætar og í samræmi við lög. Einnig veitir það almenningi meira traust og minni áhyggjum um sitt einkalíf. Tillögur að úrbótum: • Skerpa á skilyrðum fyrir beitingu þessara heimilda, þar á meðal að takmarka þær við alvarlegri mál sem varða stærri fjárhæðir og þar sem fyrir liggur rökstuddur grunur um alvarleg brot mæð hærri refsiramma. • Innleiða skyldu til að afla dómsúrskurðar fyrir slíkum aðgerðum til að viðhalda réttlæti og gegnsæi. • Setja upp sérstakar verndarráðstafanir til að tryggja réttindi þeirra viðkvæmustu, þar með talið að setja ströng mörk á það hversu oft og í hvaða tilvikum slíkar heimildir megi beita. Þá þurfi alltaf að skipa réttargæslumann fyrir hvern úrskurð til að gæta hagmuna þeirra sem er verið að kanna án þeirra vitneskju. Í ljósi ofangreindra áhyggja og tillagna hvetjum við til endurskoðunar á þessum þáttum frumvarpsins áður en frekari skref eru stigin í lagasetningarferlinu. Þá lýsum við okkur tilbúin til þess að mæta hjá ykkur og fara vel yfir okkar umsögn og viðhorf á málinu. Virðingarfyllst Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-49/2025: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum ofl. (endurheimt ávinnings af afbrotum ofl.) · Alviti