Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 269. mál

Meðferð sakamála o.fl.

Endurheimt ávinnings af brotum o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 19. jún. 2025

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 156. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að gera laga- og stofnanaumgjörð um endurheimt ávinnings af brotum skýrari og skilvirkari og innleiða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt tilmælum FATF.

Lagt fram af Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
29. mars 2025
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
2 ræður · 20 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að gera laga- og stofnanaumgjörð um endurheimt ávinnings af brotum skýrari og skilvirkari og innleiða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt tilmælum FATF.

Hvað breytist

Lagt er til að ákærandi geti krafið banka, fjármálafyrirtæki og sambærilega þjónustuveitendur um upplýsingar án undangengins dómsúrskurðar ef ætla má að upplýsingarnar hafi sönnunargildi við rannsókn brots sem getur varðað fjögurra ára fangelsi. Einnig yrði heimilt að leggja hald á muni til tryggingar greiðslu sektar eða sakarkostnaðar og að kyrrsetning vegna sakamáls víki ekki fyrir fjárnámi.

Gert er ráð fyrir sérstakri einingu hjá héraðssaksóknara sem ynni að endurheimt og upptöku ávinnings af brotum og hefði umsjón með haldlögðum, kyrrsettum og upptækum eignum. Þá yrði heimilt að gera upptækan ávinning, muni sem keyptir eru fyrir hann eða komið hafa í stað hans og dæma viðkomandi til greiðslu fjárhæðar sem svarar til ávinningsins. Ef ekki er hægt að sanna nákvæma fjárhæð hans megi áætla hana. Loks yrði upptaka án ákæru heimil þegar ekki er vitað hver framdi brotið eða hver er eigandi eða handhafi eignar eða þegar viðkomandi er látinn eða hefur ekki þekktan dvalarstað hér á landi.

Lög sem breytast

Lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Lögreglulög, nr. 90/1996. Almenn hegningarlög, nr. 19/1940. Lög um fullnustu refsinga, nr. 15/2016. Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018. Lög um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að rýmkaðar upptökuheimildir geti haft jákvæð áhrif á ríkissjóð til lengri tíma.

Meira úr samantektinni

Í ársskýrslu FATF 2023–2024 kemur fram að tilmælum 4, 30, 31 og 38 ásamt tengdum skýringum hafi verið breytt. Þar er ríkjum jafnframt gert að forgangsraða endurheimt eigna og koma á úrræðum til eignaupptöku án sakfellingar (FATF Annual Report 2023–2024).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Samkvæmt 1. mgr. 75. gr. hegningarlaga (Bekendtgørelse af straffeloven (straffeloven), LBK nr 1145 af 05/11/2024) er heimilt að gera ávinning af refsiverðum verknaði eða fjárhæð sem samsvarar honum upptækan að öllu leyti eða að hluta.

Finnland. Samkvæmt 2. gr. 10. kafla hegningarlaga (Strafflag, 39/1889) skal gera fjárhagslegan ávinning af broti upptækan til ríkisins. Ákvæðið tekur meðal annars til virðis eigna sem stafa beint frá brotinu eða hafa komið í stað slíkra eigna.

Noregur. Í 67. gr. hegningarlaga (Lov om straff (straffeloven), LOV-2005-05-20-28) er kveðið á um að ávinningur af refsiverðum verknaði skuli gerður upptækur en í stað ávinningsins megi gera virði hans upptækt að öllu leyti eða að hluta.

Svíþjóð. Samkvæmt 3. gr. 36. kafla hegningarlaga (Brottsbalk, 1962:700) skal gera ávinning af broti upptækan. Feli upptakan í sér greiðsluskyldu er jafnframt heimilt, samkvæmt 8. gr. sama kafla, að gera aðrar eignir upptækar sem unnt væri að gera fjárnám í.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 25. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Ríkissaksóknari, Héraðssaksóknari, Skatturinn, Persónuvernd · allar umsagnir
Umræða í þingsal
20 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að rýmkaðar upptökuheimildir geti haft jákvæð áhrif á ríkissjóð til lengri tíma.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-124/2024· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. jún. 2024 – 21. ágú. 2024· 5 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála o.fl. (endurheimt ávinnings, netbrot o.fl. breytingar vegna alþjóðasamninga)

Til stendur að breyta viðeigandi löggjöf vegna alþjóðlegra skuldbindinga sem Ísland hefur undirgengist og varða endurheimt ávinnings, netglæpi o.fl.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-124/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. ágúst 2026)

Frumvarp var lagt fram á 156. löggjafarþingi Alþingis og endurflutt á 157. löggjafarþingi, 103. mál. Varð að lögum nr. 77/2025 Lög um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögreglulögum, almennum hegningarlögum, lögum um fullnustu refsinga, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda (upptaka fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.). Upphafleg áform lutu jafnframt að lagabreytingum vegna netbrota, þ.e. á refsiákvæðum og rannsóknarheimildum. Tekin var ákvörðun um að vinna síðastnefndar lagabreytingar í öðru frumvarpi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Margrét Kristín Pálsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um mál S-124-2024 sem varðar áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála ofl. (endurheimt ávinnings af brotum, netbrot o.fl., breytingar vegna alþjóðasamninga).

  • #2Benedikt Sveinbjörn Benediktsson

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála o.fl. (endurheimt ávinnings, netbrot o.fl. breytingar vegna alþjóðasamninga)

  • #3Margrét Arnheiður Jónsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Virðingarfyllst, Margrét A. Jónsdóttir, lögfræðingur

  • #4Ásmundur Jónsson

    Meðfylgjandi er umsögn lögreglustjórans á Suðurnesjum

  • #5Fjarskiptastofa

    Meðfylgjandi er umsögn Fjarskiptastofu

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-49/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. feb. 2025 – 12. mar. 2025· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum ofl. (endurheimt ávinnings af afbrotum ofl.)

Frumvarp um breytingar á lögum er varða endurheimt ávinnings af afbrotum í formi haldlagningar, kyrrsetningar og upptöku eigna og annarra verðmæta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-49/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Allar lögheimildir sem krefjast haldlagningar á eignum fólks, fjármunum og slíku skulu vera þannig úr garði gerðar að slíkt krefjist heimildar frá dómara ásamt röksemdum frá viðkomandi lögregluembætti og lögreglumönnum. Að gera slíkt án heimildar frá dómara er brot á mannréttindum, ferli rannsókna og annara alþjóðlegra samþykkta sem Ísland hefur skrifað undir. Það er ekki í lagi að lögreglan fái heimildir án yfirsjónar frá dómstólum. Þrátt fyrir alþjóðlegar kröfur sem Ísland hefur skrifað undir. Enda er það svo að mjög fáir einstaklingar stunda stórfellt peningaþvætti. Slíkt er yfirleitt gert… Lesa alla

    Allar lögheimildir sem krefjast haldlagningar á eignum fólks, fjármunum og slíku skulu vera þannig úr garði gerðar að slíkt krefjist heimildar frá dómara ásamt röksemdum frá viðkomandi lögregluembætti og lögreglumönnum. Að gera slíkt án heimildar frá dómara er brot á mannréttindum, ferli rannsókna og annara alþjóðlegra samþykkta sem Ísland hefur skrifað undir. Það er ekki í lagi að lögreglan fái heimildir án yfirsjónar frá dómstólum. Þrátt fyrir alþjóðlegar kröfur sem Ísland hefur skrifað undir. Enda er það svo að mjög fáir einstaklingar stunda stórfellt peningaþvætti. Slíkt er yfirleitt gert í gegnum fyrirtæki sem starfa kannski og kannski ekki innan lögsögu Íslands. Upplýsingaskylda til þeirra sem sæta svona rannsókn þarf einnig að tryggja. Sérstaklega ef mál er fellt niður og rannsókn hætt. Dómsmál og lögreglurannsóknir þurfa að uppfylla strangar kröfur til þess að rannsókn sé í lagi og feril rannsókna sé í lagi. Því þarf að vanda mjög til slíkrar lagsetningar frá upphafi og líka þegar lögum er breytt.

  • #2Erna Ýr Öldudóttir

    Það vantar rökstuðning. Hefur verið sýnt fram á að á hérlendis fari fram þvílík peningaþvættisstarfsemi af hendi einstaklinga og fyrirtækja - sem í alþjóðlegu samhengi eru örsmá - að það kalli á önnur eins mannréttindabrot og felast í þessu frumvarpi?

  • #3Ingólfur Daníel Árnason

    Þetta er hreinn og beinn fasismi Fokk samfylkingun. Fokk Viðreisn og fokk flokk fólksins.

  • #4Margrét Arnheiður Jónsdóttir

    Góðan dag. Viðfest er umsögn fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Virðingarfyllst, fyrir hönd SFF. Margrét A. Jónsdóttir

  • #5Afstaða til ábyrgðar
    Umsögn Afstöðu vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum o.fl. (endurheimt ávinnings af afbrotum o.fl.) Í drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar sem miða að því að auka getu og skilvirkni lögreglu við að endurheimta ávinning af refsiverðri háttsemi. Afstaða lýsir yfir áhyggjum af sumum þáttum draganna sem gætu haft veruleg áhrif á borgaraleg réttindi einstaklinga. Að öðru leiti styður félagið áform stjórnvalda sem munu styðja við þá stefnu sem felur í sér að taka fast á skipulagðri glæpastarfssemi. Það þarf hins vegar… Lesa alla

    Umsögn Afstöðu vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, almennum hegningarlögum o.fl. (endurheimt ávinnings af afbrotum o.fl.) Í drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar sem miða að því að auka getu og skilvirkni lögreglu við að endurheimta ávinning af refsiverðri háttsemi. Afstaða lýsir yfir áhyggjum af sumum þáttum draganna sem gætu haft veruleg áhrif á borgaraleg réttindi einstaklinga. Að öðru leiti styður félagið áform stjórnvalda sem munu styðja við þá stefnu sem felur í sér að taka fast á skipulagðri glæpastarfssemi. Það þarf hins vegar að gera án þess að mannréttindi og persónusjónarmið séu fótum troðin. Mikilvægt er að rannsóknir fari fram á peningavætti hér á landi og ekki réttlætanlegt að þrengja svo mikið að mannréttindum og einkalífi almennings eins og stefnt er að í drögunum fyrr en að niðurstaða þeirra rannsókna liggur fyrir. Það er einnig mikilvægt að fram komi að í dag hafa stjórnvöld framselt eftirlitsvald til fjármálastofnanna sem hafa tekið upp mjög ítarlegar áreiðanleikakannanir og auknar kannanir sem að mati Afstöðu er skýrt brot á stjórnarskrá landsins enda engin lagaheimild fyrir því að einkaaðilar sjái um slíkt eftirlit. Bankarnir hafa tekið upp á því að loka reikningum hjá fjölda einstaklinga og fyrirtækja undanfarin misseri og virðist sem bankarnir deili sín á milli upplýsingum um einstaklinga. Kallar það á tafarlausa rannsókn stjórnvalda á starfsháttum bankanna. Að mati Afstöðu munu fordæmalausar aðgerðir bankanna leiða til þess að Íslendingar færi bankaviðskipti sín í meira mæli til útlendra fjármálastofnana. Aðgerðir bankanna, sem sagðar eru í vera forvarnir gegn peningaþvætti, og drög þessi að frumvarpi munu gera það að verkum, að mati Afstöðu, að hratt mun byggjast upp mjög stórt svart hagkerfi rétt eins og við erum að sjá í löndunum í kringum okkur. Afstaða hvetur stjórnvöld til að endurskoða frumvarpsdrögin áður en þau eru lögð fyrir Alþingi. Helstu áhyggjuefni: 1. Heimildir lögreglu án dómsúrskurðar. Frumvarpið felur í sér að lögregla fái auknar heimildir til að óska eftir upplýsingum frá fjármálafyrirtækjum og öðrum þjónustuveitendum án dómsúrskurðar. Við teljum þessa auknu heimild umfangsmikla og of rúma. Það þarf að vera skýr rökstuðningur fyrir því að slíkar breytingar séu nauðsynlegar og að þær brjóti ekki gegn mannréttindum. Í þessu tilfelli telur félagið að engum sé treystandi fyrir svo viðamiklum heimildum eins og þessari vegna bæði persónu og mannréttindasjónarmiða. Mjög auðveldlega er hægt fyrir lögreglu og aðra eftirlitsaðila að óska eftir beiðni og úrskurð dómara til að fá slíka heimild, sem í gegnum tíðina hefur verið samþykkt í 99% tilfella hjá dómstólum. Þó svo að það megi gagnrýna hversu oft dómstólar samþykki slíkar óskir að þá að minnsta kosti er örugg skráning og utanumhald með því litla eftirliti sem er á slíkum aðgerðum. Afstaða telur einnig að afturkalla þurfi allar aðrar heimildir sem aðrar stofnanir hafa til hins sama eins og Skatturinn og aðrar eftirlitsstofnanir á sama tíma í þessum breytingum enda úrskurðir dómara auðfengnir eins og hefur komið fram. 2. Vernd viðkvæmra einstaklinga. Það þarf að setja skýrari skorður við beitingu þessara heimilda ef leyfðar verða, til að tryggja að þær beinist ekki gegn viðkvæmum og oft jaðarsettum hópum sem ekki eru hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Við leggjum til að slíkar heimildir verði aðeins nýttar í málum þar sem rökstuddur grunur er um umfangsmikla og alvarlega brotastarfsemi sem felur í sér háar fjárhæðir og mun hærri refsiramma. 3. Nauðsyn dómsúrskurðar. Við leggjum áherslu á að heimildir til upplýsingaöflunar sem geta varðað einkalíf einstaklinga ættu alltaf í öllum tilfellum allra stofnana að krefjast úrskurðar dómara. Dómsúrskurður veitir nauðsynlegt eftirlit og tryggir að aðgerðir séu réttmætar og í samræmi við lög. Einnig veitir það almenningi meira traust og minni áhyggjum um sitt einkalíf. Tillögur að úrbótum: • Skerpa á skilyrðum fyrir beitingu þessara heimilda, þar á meðal að takmarka þær við alvarlegri mál sem varða stærri fjárhæðir og þar sem fyrir liggur rökstuddur grunur um alvarleg brot mæð hærri refsiramma. • Innleiða skyldu til að afla dómsúrskurðar fyrir slíkum aðgerðum til að viðhalda réttlæti og gegnsæi. • Setja upp sérstakar verndarráðstafanir til að tryggja réttindi þeirra viðkvæmustu, þar með talið að setja ströng mörk á það hversu oft og í hvaða tilvikum slíkar heimildir megi beita. Þá þurfi alltaf að skipa réttargæslumann fyrir hvern úrskurð til að gæta hagmuna þeirra sem er verið að kanna án þeirra vitneskju. Í ljósi ofangreindra áhyggja og tillagna hvetjum við til endurskoðunar á þessum þáttum frumvarpsins áður en frekari skref eru stigin í lagasetningarferlinu. Þá lýsum við okkur tilbúin til þess að mæta hjá ykkur og fara vel yfir okkar umsögn og viðhorf á málinu. Virðingarfyllst Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 25. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn
  3. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 9 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 11 mín

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
301Stjórnarfrumvarp29. mar. 2025Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirLesaPDF
754Nál. með brtt.19. jún. 2025Víðir Reynisson, Grímur Grímsson +5LesaPDF
803Breytingartillaga30. jún. 2025Grímur GrímssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur10. apríl 2025 kl. 12:59
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd10. apríl 2025 kl. 12:59
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 20 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 9 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 11 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 10. apr. 2025, frestur 25. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
RíkissaksóknariminnisblaðOpna PDF
HéraðssaksóknariumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
RíkissaksóknariumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.