Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-29/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breyting á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka

Tillaga að breytingum á lágmarkstíma auglýsingar útboðsins og að nýrri tilboðsbók fyrir stærri fjárfesta.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar).

Í frumvarpsdrögunum eru lagðar til breytingar til að freista þess að sníða af vankanta núverandi laga, án þess þó að stefna í hættu grundvallargildum laganna. Annars vegar með smávægilegum breytingum á lágmarkstíma auglýsingar útboðsins og hins vegar með nýrri tilboðsbók C. Með breytingunum er stefnt að því að auka líkurnar á aðkomu stórra erlendra fagfjárfesta og þannig auka eftirspurn og vægi markmiðs laganna um hagkvæmni, án þess þó að víkja frá yfirlýstum markmiðum og tilgangi núgildandi laga um hlutlægni og jafnræði. Það er einkum gert með viðbót um sérstaka tilboðsbók C, sem er eingöngu ætluð fyrir afmarkaðan hóp fagfjárfesta. Hnykkt er á því í athugasemdum við frumvarpsdrögin með hvaða hætti hugsanlegt er að ráðherra muni auka magn útboðsins, gefi eftirspurn tilefni til þess.

S-29/2025· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2025 – 23. feb. 2025· 3 umsagnir

Breyting á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka

Tillaga að breytingum á lágmarkstíma auglýsingar útboðsins og að nýrri tilboðsbók fyrir stærri fjárfesta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-29/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 173)
Niðurstöður samráðs (27. febrúar 2025)

Í umsögnum komu fram sjónarmið um að fyrirhuguð sala væri vel til fundin. Fram kom ábending um að skýra betur forgang tilboðsbóka A og B og brugðist hefur verið við þeirri ábendingu með skýringu í greinargerð. Þá var spurt um ráðstafanir gegn því að fjársterkir aðilar kaupi upp stóran hlut í tilboðsbók A með samningum við einstaklinga. Því er til að svara að tilboðsbók A er ætluð einstaklingum en ekki eru takmarkanir á því hvað þeir gera við hluti sem þeir kaupa, t.d. selji hlut sinn áfram. Þó má gera ráð fyrir að slíkur fjársterkur aðili myndi fyrst og fremst beina sjónum að tilboðsbók B.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Jón Oddsson

    Hvernig ætlið þið að koma í veg fyrir að fjársterkir aðilar viðhafi einskonar "smölun" í Tilboðsbók A og tryggi sér besta verðið, þ.e.a.s. noti "leppi" sem skrá sig fyrir 20 milljónum hver og selji síðan viðkomandi sinn hlut ?

  • #2Kauphöll Íslands hf.

    Meðfylgjandi er umsögn Kauphallar Íslands um ofangreind drög að frumvarpi.

  • #3Viðskiptaráð Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-29/2025: Breyting á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka · Alviti