Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (Viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.)
Drög að frumvarpi leggja til breytingar á lyfjalögum, nr. 100/2020, lögum um lækningatæki, nr. 132/2020, og lögum um dýralyf, nr. 14/2022.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-25/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 3. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 257)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. maí 2025)
Lagt fram á Alþingi
- Drög að frumvarpi til laga (Viðbrög við lyfjaskorti o.fl.)
- Rekjanlegar beytingar á lyfjalögum - birt með fyrirvara
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
- #1ÖBÍ réttindasamtök
Heilbrigðisráðuráðuneytið Síðumúla 24 108 Reykjavík Reykjavík, 21. febrúar 2025 Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka (ÖBÍ) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (Viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.). Mál í samráðsgátt stjórnvalda nr. S-25/2025. ÖBÍ réttindasamtök fagna þeim áformum heilbrigðisráðherra að draga úr lyfjaskorti í drögum að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum og styður framgang þess. Lyf eru mörgu fötluðu fólki og endurhæfingar- og örokulífeyristökum lífsnauðsynleg vegna sjúkdóma sinna og skortur á þeim grafalvarlegt mál. Frumvarpinu er ætlað að auka getu L… Lesa alla
Heilbrigðisráðuráðuneytið Síðumúla 24 108 Reykjavík Reykjavík, 21. febrúar 2025 Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka (ÖBÍ) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (Viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.). Mál í samráðsgátt stjórnvalda nr. S-25/2025. ÖBÍ réttindasamtök fagna þeim áformum heilbrigðisráðherra að draga úr lyfjaskorti í drögum að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum og styður framgang þess. Lyf eru mörgu fötluðu fólki og endurhæfingar- og örokulífeyristökum lífsnauðsynleg vegna sjúkdóma sinna og skortur á þeim grafalvarlegt mál. Frumvarpinu er ætlað að auka getu Lyfjastofnunar til að takast á við lyfjaskort. Eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er „skortur á lyfjum er vaxandi ógn við lýðheilsu sem grefur undan rétti sjúklinga til að fá aðgang að viðeigandi læknismeðferð.“ Því er nauðsynlegt að Lyfjastofnun hafi allar heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, til að lágmarka áhrif skorts á heilsu fólk. ÖBÍ styður allar aðgerðir til að draga úr lyfjaskorti og þar með lágmarka þau áhrif sem lyfjaskortur hefur í för með sér fyrir sjúklinga. ÖBÍ styður framkomnar tillögur um viðbrögð við lyfjaskorti, sem Lyfjastofnun er heimilt að grípa til, og eru tilgreindar fjórar leiðir til þess. Eftirfarandi tillögu styður ÖBÍ heilshugar en hana er að finna í nýrri grein (32. gr.a.) sem áform eru um að setja í Lyfjalög: „stýra og/eða takmarka afgreiðslu og afhendingu lyfja við ákveðna sjúklingahópa, ákveðna aldurshópa eða sjúkdómsástand sjúklinga samkvæmt áhættumati, eða“ 1. Undanþágulyf Í frumvarpinu eru svokölluð undanþágulyf skilgreind betur, m.a. að ekki eigi að gefa lyfi undanþágu sem hefur nú þegar markaðsleyfi á Íslandi, en hafa ekki verið markaðssett hér á landi. 2. Greiðsluþátttaka í lyfjum Í frumvarpinu er fjallað um greiðsluþáttttöku á lyfjum og ferli um greiðsluþátttöku verði einfaldað og komið í veg fyrir tvíverknað við vinnslu greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingastofnun og Lyfjastofnun. Að auki fagnar ÖBÍ þeim áformum að í frumvarpinu er opnað á heimild til að veita einstaklingum greiðsluþátttöku í lyfjum sem hafa ekki markaðsleyfi hér á landi eða svokölluð undanþágulyf, sem hingað til hafa verið án greiðsluþátttöku. Þessi aðgerð styrkir stöðu fatlaðs fólks og lífeyristaka hvað varðar aðgengi að nauðsynlegum lyfjum. 3. Lokaorð Ítrekaður er stuðningur ÖBÍ réttindasamtaka við framkomið frumvarp frá heilbrigðisráðherra ÖBÍ er reiðubúið til samráðs, ráðgjafar og samvinnu á öllum stigum málsins. Ekkert um okkur án okkar! Alma Ýr Ingólfsdóttir Formaður ÖBÍ réttindasamtaka Rósa María Hjörvar Stafrænn verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum Gunnar Alexander Ólafsson Hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum
- #2Persónuvernd
Meðfylgjandi er umsögn Persónuverndar
- #3Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir
Meðfylgjandi má sjá umsögn Lyfjafræðingafélags Íslands
- #4Krabbameinsfélag Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Krabbameinsfélags Íslands.
- #5Dýralæknafélag Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Dýralæknafélags Íslands
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.