Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-157/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Breytingar á einkaleyfalögum

Með frumvarpinu er formlega innleidd reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/933 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 469/2009.

Markmið frumvarps þessa er að bæta við lög um einkaleyfi innleiðingarákvæði sem formlega innleiðir reglugerð ESB 2019/933í íslenskan rétt. Þann 18. maí 2021 samþykkti Alþingi lög nr. 57/2021 þar sem gerðar voru breytingar á lögum um einkaleyfi á þann hátt að innleidd var sérstök undanþága til framleiðslu og útflutnings á samheitalyfjum á meðan frumlyfið hefur enn tiltekna vernd sem byggir á svokölluðu viðbótarvottorði (e. supplementary protection certificate) sem virkjast getur að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Breyting þessi byggði á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/933 frá 20. maí 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 469/2009 um vottorð um viðbótarvernd fyrir lyf en fyrrnefnda reglugerðin hafði ekki verið tekin upp í EES-samninginn á þessum tíma. Því var ekki um að ræða eiginlega innleiðingarlöggjöf. Ástæða þess að breytingar voru gerðar á landslögum áður en umrædd gerð varð hluti af EES-samningnum var sú að hagsmunir íslensks iðnaðar voru miklir af því að búa við sama starfsumhverfi og í Evrópusambandinu. Samkeppnisstaða samheitalyfjaframleiðenda á Íslandi var önnur en samskonar framleiðenda í Evrópusambandinu þar sem undanþágan hafði þegar tekið gildi. Umrædd reglugerð var síðan tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2022 frá 10. júní 2022. Ekki er því nauðsynlegt nú að gera aðrar breytingar á einkaleyfalögum en að uppfylla kröfur um formlega innleiðingu ofangreindrar reglugerðar ESB nr. 2019/933 um framleiðsluundanþágu í samhengi viðbótarvottorða fyrir lyf

S-157/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. ágú. 2024 – 2. sep. 2024· 0 umsagnir

Breytingar á einkaleyfalögum

Með frumvarpinu er formlega innleidd reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/933 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 469/2009.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-157/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. september 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 102)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. október 2025)

Engin umsögn barst um frumvarpsdrögin. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 15. febrúar 2025, sjá hlekk hér að neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-157/2024: Breytingar á einkaleyfalögum · Alviti