Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-175/2020 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)

Með frumvarpi þessu er lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem varða ráðstöfun þeim aflaheimildum sem ríkið er með forræði yfir (5,3%).

Með frumvarpi þessu er lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem varða ráðstöfun þeim aflaheimildum sem ríkið er með forræði yfir (5,3%). Breytingar sem lagðar eru til eru á grundvelli tillagna starfshóps um endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda sem skilaði skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í febrúar 2020.

S-175/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2020 – 18. sep. 2020· 62 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)

Með frumvarpi þessu er lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem varða ráðstöfun þeim aflaheimildum sem ríkið er með forræði yfir (5,3%).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-175/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 62 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 418)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. september 2021)

Drög að frumvarpi þessu voru birt 4. september 2020 í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is (mál nr. S-175/2000) og barst 61 umsögn um málið. Að mestu leyti var í umsögnunum fjallað um sömu álitaefni og reifuð eru ítarlega í skýrslu starfshópsins sem er frumvarpinu til grundvallar. Var skýrsla starfshópsins áður birt til kynningar á vef ráðuneytisins. Farið var vandlega yfir innsendar umsagnir og leiddu þær meðal annars til breytinga á tillögu um uppgjör svonefndra skel- og rækjubóta.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (62)
  • #1Aðalsteinn Agnarsson

    Opna þarf augun fyrir frjálsum handfæraveiðum, sem myndu fylla hafnir Íslands lífi og gleði, öfugt við það sem er í dag.

  • #2Gísli Unnsteinsson
    1. Ekki ætti að leyfa veiðar á laugardögum það mun þýða gríðarlegt magn af eins og tveggja daga gömlum fiski á mörkuðum á mánudögum þar sem fiskmarkaðir eru lokaðir um helgar á sumrin. 2. Ef ég skil frumvarpið rétt stendur til að snúa til baka til þess kerfis sem var áður (með potta fyrir hvert svæði) en núverandi fyrirkomulag var tekið upp það er stór undarlegt í ljósi þess að mun meiri sátt er um kerfið núna en áður var. Legg til að strandveiðipottunum verði skipt í 2 hluta einn fyrir A og D svæði og annan fyrir B og C svæði það mundi jafna möguleikana þannig að allir sætu við sama borð í… Lesa alla

    1. Ekki ætti að leyfa veiðar á laugardögum það mun þýða gríðarlegt magn af eins og tveggja daga gömlum fiski á mörkuðum á mánudögum þar sem fiskmarkaðir eru lokaðir um helgar á sumrin. 2. Ef ég skil frumvarpið rétt stendur til að snúa til baka til þess kerfis sem var áður (með potta fyrir hvert svæði) en núverandi fyrirkomulag var tekið upp það er stór undarlegt í ljósi þess að mun meiri sátt er um kerfið núna en áður var. Legg til að strandveiðipottunum verði skipt í 2 hluta einn fyrir A og D svæði og annan fyrir B og C svæði það mundi jafna möguleikana þannig að allir sætu við sama borð í stað þess að' í núverandi fyrirkomulagi verða B og C illa út úr kerfinu ef potturinn klárast snemma. Nota ætti viðmiðun árana 2018 og 2019 til að finna út réttan tonnafjölda í hvorn pott fyrir sig. 3 Tryggja ætti með lögum að allir strandveiðibátar fái 12 daga í mánuði á tímabilinu frá mai til ágúst.

  • #3Gísli Einar Sverrisson

    Þetta er nokkuð ljóst

  • #4Guðmundur Gísli Geirdal
    Ég legg til að landið verði eitt svæði og að tryggt verði að allir megi róa að minnstakosti 48 daga á ári. Þessi svæðisskipting er að mínu mati bara rugl,hvursu eðlilegt er það að bátur frá Akranesi megi ekki landa á Arnarstapa en hann megi landa á Hornafirði ? Ef einhver staður liggur vel við miðum á ákvenum tímum þá á viðkomandi staður einfaldlega að njóta þess. enda engin trygging fyrir því að fiskur sem landað í ákveðinni höfn sé unninn í því plássi..reyndar sjaldnast. Tímabilið ætti að vera allt kvótaárið,fiskgengd er mismunandi milli landssvæða á misjöfnum tímum og veðrátta einnig… Lesa alla

    Ég legg til að landið verði eitt svæði og að tryggt verði að allir megi róa að minnstakosti 48 daga á ári. Þessi svæðisskipting er að mínu mati bara rugl,hvursu eðlilegt er það að bátur frá Akranesi megi ekki landa á Arnarstapa en hann megi landa á Hornafirði ? Ef einhver staður liggur vel við miðum á ákvenum tímum þá á viðkomandi staður einfaldlega að njóta þess. enda engin trygging fyrir því að fiskur sem landað í ákveðinni höfn sé unninn í því plássi..reyndar sjaldnast. Tímabilið ætti að vera allt kvótaárið,fiskgengd er mismunandi milli landssvæða á misjöfnum tímum og veðrátta einnig. Það á að vera ákvörðun útgerðarmanns hvenær hann telur skynsamlegast að róa. Hámarks lengd róðurs á degi hverjum á einfaldlega að vera 1 róður á sólahring annað er mismunun eftir hve utarlega þú býrð við fjörðinn og eða hve stóra vél þú ert með í bátnum. Að öðrum kosti legg ég til að allir pottar verði afnumdir ,hvort sem það er byggðarkvóti ,línuívilnun,strandveiðar eða sérstakur...Í staðinn verði hægt að leigja af ríkinu á eðlilegu verði,,t.d 90 kr.pr kíló..þú yrðir að vera búinn með þinn kvóta ef einhver er ,gætir eingöngu leigt lítið í einu t.d 10 til 15 tonn og yrðir að vera búinn að veiða 90% áður en þú gætir leigt meira.

  • #5Atli Hermannsson
    Lögin um strandveiðar smábáta eiga ekki að vera eins og einhverjir vanvitar hafi samið þau til að ná tökum á smábörnum á leikskólaaldri. En þannig eru þau uppbyggð og þannig eiga þau að vera áfram samkvæmt þessu lagafrumvarpi. Þá er eins og það sé markmið þeirra sem semja frumvarpið; að tryggt verði að strandveiðimönnum á hinum ýmsu landsvæðum verði áfram att gegn hver öðrum - að sem flestir verði áfram óánægðir. Það gerir fyrirhuguð svæðaskipting nefnilega alveg örugglega - sagan segir það. Það þarf enga svæðaskiptingu. Það þarf heldur engan pott eða þak á heildarveiðina. Það eina sem… Lesa alla

    Lögin um strandveiðar smábáta eiga ekki að vera eins og einhverjir vanvitar hafi samið þau til að ná tökum á smábörnum á leikskólaaldri. En þannig eru þau uppbyggð og þannig eiga þau að vera áfram samkvæmt þessu lagafrumvarpi. Þá er eins og það sé markmið þeirra sem semja frumvarpið; að tryggt verði að strandveiðimönnum á hinum ýmsu landsvæðum verði áfram att gegn hver öðrum - að sem flestir verði áfram óánægðir. Það gerir fyrirhuguð svæðaskipting nefnilega alveg örugglega - sagan segir það. Það þarf enga svæðaskiptingu. Það þarf heldur engan pott eða þak á heildarveiðina. Það eina sem þarf að gera, er að tryggja hverjum og einum að lágmarki 48 daga á ári og lengja tímabilið í báða enda - punktur. Náttúran mun síðan stýra því hve mikill heildaraflinn að lokum verður. Að ætla að handstýra dutlungum náttúrunnar eins og ráðuneytið er sífellt að reyna, sýnir meiri ónáttúru en flest annað. Þá er það afskaplega dapur vitnisburður að eftir 45 ára “uppbyggingu” á okkar helstu fiskstofnum skuli ekki enn vera hægt að gera út smábát á Íslandi - með líkum hætti og gert er hjá frændum okkar í Færeyjum og Noregi. Kristján Þór sjávarútvegsráðherra; Taktu á þig rögg og gefðu sjómönnum tækifæri á að minnast þín fyrir eitthvað annað en dindladekur við stórútgerðina.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-175/2020: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.) · Alviti