Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 418. mál

Stjórn fiskveiða

Atvinnu- og byggðakvótar o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 20. jan. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja betur byggðafestu og nýliðun í sjávarútvegi.

Lagt fram af Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
16. desember 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
22 ræður · 1 klst.

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að tryggja betur byggðafestu og nýliðun í sjávarútvegi.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á lögunum hvað snertir byggðakvóta, strandveiðar, bætur, línu­íviln­­un o.fl. Lagt er til að ákvæði um nýtingu 5,3% aflaheimilda til sérstakra aðgerða, sem nú er að finna í ýmsum greinum laga um stjórn fiskveiða, verði dregin saman í einn kafla í lögunum og skapaður skýrari grundvöllur undir nýtingu þeirra og meðferð en nú er. Þá er lagt til að kveðið verði á um föst innbyrðis hlutföll í ráðstöfun umræddra 5,3% aflaheimilda milli einstakra verkefna og að þau hlutföll byggist á ráðstöfun til einstakra aðgerða fyrir fiskveiðiárið 2019–2020. Lagt er til að við úthlutun byggðakvóta verði lögð áhersla á stuðning við dreifðar sjávarbyggðir. Þannig verði föstu hlutfalli almenns byggðakvóta úthlutað til einstakra byggðarlaga árlega og byggi sú úthlutun á meðaltalsúthlutun fyrri ára á byggðakvóta. Þá er gert ráð fyrir að heimilt verði að ráðstafa aflaheimildum almenns byggðakvóta byggðarlags, samkvæmt beiðni sveitarstjórnar, að hluta eða í heild, til verkefna varðandi sértækan byggðakvóta og til tilraunaverkefna til byggðaþróunar. Einnig er lagt til að ónýtt hlutfall línuívilnunar á hverju þriggja mánaða tímabili færist sem viðbót við almennan byggðakvóta. Því verði síðan skipt milli sjávarbyggða í samræmi við hlutdeild þeirra í löndun línuívilnunar miðað við meðaltal undanfarinna ára.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Skýrsla starfshóps um 5,3% aflaheimildir. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, 21. febrúar 2020.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 10. feb. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
25 aðilar
Sveitarfélagið Skagafjörður, Grindavíkurbær, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Grundarfjarðarbær, Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. · 22 ræður
7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 1 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-175/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2020 – 18. sep. 2020· 62 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)

Með frumvarpi þessu er lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem varða ráðstöfun þeim aflaheimildum sem ríkið er með forræði yfir (5,3%).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-175/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 62 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. september 2021)

Drög að frumvarpi þessu voru birt 4. september 2020 í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is (mál nr. S-175/2000) og barst 61 umsögn um málið. Að mestu leyti var í umsögnunum fjallað um sömu álitaefni og reifuð eru ítarlega í skýrslu starfshópsins sem er frumvarpinu til grundvallar. Var skýrsla starfshópsins áður birt til kynningar á vef ráðuneytisins. Farið var vandlega yfir innsendar umsagnir og leiddu þær meðal annars til breytinga á tillögu um uppgjör svonefndra skel- og rækjubóta.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (62)
  • #1Aðalsteinn Agnarsson

    Opna þarf augun fyrir frjálsum handfæraveiðum, sem myndu fylla hafnir Íslands lífi og gleði, öfugt við það sem er í dag.

  • #2Gísli Unnsteinsson
    1. Ekki ætti að leyfa veiðar á laugardögum það mun þýða gríðarlegt magn af eins og tveggja daga gömlum fiski á mörkuðum á mánudögum þar sem fiskmarkaðir eru lokaðir um helgar á sumrin. 2. Ef ég skil frumvarpið rétt stendur til að snúa til baka til þess kerfis sem var áður (með potta fyrir hvert svæði) en núverandi fyrirkomulag var tekið upp það er stór undarlegt í ljósi þess að mun meiri sátt er um kerfið núna en áður var. Legg til að strandveiðipottunum verði skipt í 2 hluta einn fyrir A og D svæði og annan fyrir B og C svæði það mundi jafna möguleikana þannig að allir sætu við sama borð í… Lesa alla

    1. Ekki ætti að leyfa veiðar á laugardögum það mun þýða gríðarlegt magn af eins og tveggja daga gömlum fiski á mörkuðum á mánudögum þar sem fiskmarkaðir eru lokaðir um helgar á sumrin. 2. Ef ég skil frumvarpið rétt stendur til að snúa til baka til þess kerfis sem var áður (með potta fyrir hvert svæði) en núverandi fyrirkomulag var tekið upp það er stór undarlegt í ljósi þess að mun meiri sátt er um kerfið núna en áður var. Legg til að strandveiðipottunum verði skipt í 2 hluta einn fyrir A og D svæði og annan fyrir B og C svæði það mundi jafna möguleikana þannig að allir sætu við sama borð í stað þess að' í núverandi fyrirkomulagi verða B og C illa út úr kerfinu ef potturinn klárast snemma. Nota ætti viðmiðun árana 2018 og 2019 til að finna út réttan tonnafjölda í hvorn pott fyrir sig. 3 Tryggja ætti með lögum að allir strandveiðibátar fái 12 daga í mánuði á tímabilinu frá mai til ágúst.

  • #3Gísli Einar Sverrisson

    Þetta er nokkuð ljóst

  • #4Guðmundur Gísli Geirdal
    Ég legg til að landið verði eitt svæði og að tryggt verði að allir megi róa að minnstakosti 48 daga á ári. Þessi svæðisskipting er að mínu mati bara rugl,hvursu eðlilegt er það að bátur frá Akranesi megi ekki landa á Arnarstapa en hann megi landa á Hornafirði ? Ef einhver staður liggur vel við miðum á ákvenum tímum þá á viðkomandi staður einfaldlega að njóta þess. enda engin trygging fyrir því að fiskur sem landað í ákveðinni höfn sé unninn í því plássi..reyndar sjaldnast. Tímabilið ætti að vera allt kvótaárið,fiskgengd er mismunandi milli landssvæða á misjöfnum tímum og veðrátta einnig… Lesa alla

    Ég legg til að landið verði eitt svæði og að tryggt verði að allir megi róa að minnstakosti 48 daga á ári. Þessi svæðisskipting er að mínu mati bara rugl,hvursu eðlilegt er það að bátur frá Akranesi megi ekki landa á Arnarstapa en hann megi landa á Hornafirði ? Ef einhver staður liggur vel við miðum á ákvenum tímum þá á viðkomandi staður einfaldlega að njóta þess. enda engin trygging fyrir því að fiskur sem landað í ákveðinni höfn sé unninn í því plássi..reyndar sjaldnast. Tímabilið ætti að vera allt kvótaárið,fiskgengd er mismunandi milli landssvæða á misjöfnum tímum og veðrátta einnig. Það á að vera ákvörðun útgerðarmanns hvenær hann telur skynsamlegast að róa. Hámarks lengd róðurs á degi hverjum á einfaldlega að vera 1 róður á sólahring annað er mismunun eftir hve utarlega þú býrð við fjörðinn og eða hve stóra vél þú ert með í bátnum. Að öðrum kosti legg ég til að allir pottar verði afnumdir ,hvort sem það er byggðarkvóti ,línuívilnun,strandveiðar eða sérstakur...Í staðinn verði hægt að leigja af ríkinu á eðlilegu verði,,t.d 90 kr.pr kíló..þú yrðir að vera búinn með þinn kvóta ef einhver er ,gætir eingöngu leigt lítið í einu t.d 10 til 15 tonn og yrðir að vera búinn að veiða 90% áður en þú gætir leigt meira.

  • #5Atli Hermannsson
    Lögin um strandveiðar smábáta eiga ekki að vera eins og einhverjir vanvitar hafi samið þau til að ná tökum á smábörnum á leikskólaaldri. En þannig eru þau uppbyggð og þannig eiga þau að vera áfram samkvæmt þessu lagafrumvarpi. Þá er eins og það sé markmið þeirra sem semja frumvarpið; að tryggt verði að strandveiðimönnum á hinum ýmsu landsvæðum verði áfram att gegn hver öðrum - að sem flestir verði áfram óánægðir. Það gerir fyrirhuguð svæðaskipting nefnilega alveg örugglega - sagan segir það. Það þarf enga svæðaskiptingu. Það þarf heldur engan pott eða þak á heildarveiðina. Það eina sem… Lesa alla

    Lögin um strandveiðar smábáta eiga ekki að vera eins og einhverjir vanvitar hafi samið þau til að ná tökum á smábörnum á leikskólaaldri. En þannig eru þau uppbyggð og þannig eiga þau að vera áfram samkvæmt þessu lagafrumvarpi. Þá er eins og það sé markmið þeirra sem semja frumvarpið; að tryggt verði að strandveiðimönnum á hinum ýmsu landsvæðum verði áfram att gegn hver öðrum - að sem flestir verði áfram óánægðir. Það gerir fyrirhuguð svæðaskipting nefnilega alveg örugglega - sagan segir það. Það þarf enga svæðaskiptingu. Það þarf heldur engan pott eða þak á heildarveiðina. Það eina sem þarf að gera, er að tryggja hverjum og einum að lágmarki 48 daga á ári og lengja tímabilið í báða enda - punktur. Náttúran mun síðan stýra því hve mikill heildaraflinn að lokum verður. Að ætla að handstýra dutlungum náttúrunnar eins og ráðuneytið er sífellt að reyna, sýnir meiri ónáttúru en flest annað. Þá er það afskaplega dapur vitnisburður að eftir 45 ára “uppbyggingu” á okkar helstu fiskstofnum skuli ekki enn vera hægt að gera út smábát á Íslandi - með líkum hætti og gert er hjá frændum okkar í Færeyjum og Noregi. Kristján Þór sjávarútvegsráðherra; Taktu á þig rögg og gefðu sjómönnum tækifæri á að minnast þín fyrir eitthvað annað en dindladekur við stórútgerðina.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    22 ræður · 1 klst.
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 10. febrúar 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
625Stjórnarfrumvarp16. des. 2020Kristján Þór JúlíussonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur20. janúar 2021 kl. 17:54
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd20. janúar 2021 kl. 17:54
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

22 ræður · 1 klst.
  • 1. umræða: 22 ræður · 7 ræðumenn · 1 klst.
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka523 mín
Kristján Þór JúlíussonSjálfstæðisflokkur719 mín
Sigurður Páll JónssonMiðflokkurinn24 mín
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur24 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin24 mín
Ásmundur FriðrikssonSjálfstæðisflokkur23 mín
Halla Signý KristjánsdóttirFramsóknarflokkur23 mín

Umsagnir og erindi

25 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 22. jan. 2021, frestur 10. feb. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
GrindavíkurbærbókunOpna PDF
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegiumsögnOpna PDF
GrundarfjarðarbærumsögnOpna PDF
Samtök fiskframleiðenda og útflytjendaumsögnOpna PDF
Landssamband smábátaeigendaumsögnOpna PDF
VesturbyggðumsögnOpna PDF
Útgerðarfélagið Röðull ehf.umsögnOpna PDF
Snæfell - félag smábátaeigenda á SnæfellsnesiumsögnOpna PDF
Drangey - smábátafélag SkagafjarðarumsögnOpna PDF
BolungarvíkurkaupstaðurumsögnOpna PDF
FiskistofaumsögnOpna PDF
VestmannaeyjabærumsögnOpna PDF
Samtök eigenda sjávarjarðaumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
SH-204 ehf.umsögnOpna PDF
ByggðastofnunumsögnOpna PDF
Ingólfur ÁrnasonumsögnOpna PDF
Samtök smærri útgerðaumsögnOpna PDF
Guðlaugur GunnarssonumsögnOpna PDF
FjarðabyggðumsögnOpna PDF
Þórður BirgissonumsögnOpna PDF
Hrollaugur - félag smábátaeigenda á HornafirðiumsögnOpna PDF
Bátafélagið Ægir í StykkishólmiumsögnOpna PDF
StykkishólmsbærumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.