Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (umsáturseinelti).
Með frumvarpi þessu er lagt til að bætt verði sérstöku ákvæði um umsáturseinelti við almenn hegningarlög nr. 19/1940.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-165/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 14. september 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 132)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. desember 2020)
Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið. Ein frá Barnaheillum þar sem lagt er til að fjallað verði sérstaklega um áhrif lögfestingarinnar á börn á heildstæðan hátt í samræmi við 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem fram kemur sú meginregla að við allar ákvarðanir sem varða börn skuli hafa að leiðarljósi það sem barni er fyrir bestu og tvær frá einstaklingum. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 7. október 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Rúnar Lárusson
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um að bæta ákvæði inn í hegningarlög um umsáturseinelti. Þetta frumvarp er gott og löngu tímabært að taka á eltihrellum hvar sem þeir eru og í hvaða verndaða umhverfi þeir eru til að vinna illvirki sín. Ég vil taka dæmi af einelti, sem svínvirkaði fyrir illvirkja. Sá maður Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur stefndi undirrituðum fyrir dómstóla (mál nr. 397/2013) með skelfilegum afleiðingum fyrir undirritaðan. Tilefnið var aðeins að skaða mig fjárhagslega. Lögin eru afdráttarlaus og skýr og úrskurður Innanríkisráðuneytis, Héraðsdómur o… Lesa alla
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um að bæta ákvæði inn í hegningarlög um umsáturseinelti. Þetta frumvarp er gott og löngu tímabært að taka á eltihrellum hvar sem þeir eru og í hvaða verndaða umhverfi þeir eru til að vinna illvirki sín. Ég vil taka dæmi af einelti, sem svínvirkaði fyrir illvirkja. Sá maður Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur stefndi undirrituðum fyrir dómstóla (mál nr. 397/2013) með skelfilegum afleiðingum fyrir undirritaðan. Tilefnið var aðeins að skaða mig fjárhagslega. Lögin eru afdráttarlaus og skýr og úrskurður Innanríkisráðuneytis, Héraðsdómur og Hæstiréttur komust að sömu niðurstöðu. Eftir stendur verknaður þessa manns og óbeit hans á minni persónu, eins og ég sé það, og komast upp með að nota auð OR til að klekkja á peði bótalaust. Einelti valdamanns gengur ekki, 4 ára fangelsi og vera rekin úr starfi er lágmark. Ég vil taka fram að Bjarni Bjarnason var studdur af yfirstjórn borgarinnar, þrátt fyrir að þeir vissu að lögin gáfu ekki tilefni til. Ég fer fram á að frumvarpið verði víðtækara og nái yfir breiðara svið. Þá hef ég sérstaklega í huga að valdamenn geti ekki notað völd sín og auð fyrirtækis til að fara gegn borgurum að tilefnislausu. Það á að vera skýrt í lögum að fjárhagslegur skaði verði greiddur eða fangelsisdómur verði hlutskipti eltihrellis. Umboðsmaður Alþingis lét hafa eftir sér, að fara yfir mörk valdsviðs síns eigi að hafa afleiðingar. Reykjavík, 3. september 2020. Virðingarfyllst, Rúnar Lárusson.
- #2Davíð Ragnar Bjarnason
Nú eru mál sem hafa verið í gangi, mig langar til að vita hvort það er hækt að kæra einstaklinga aftur í tímann kv Davíð
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.