Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 295. mál

Útlendingar

Dvalarleyfi

LagafrumvarpLagt fram

Hvar er málið statt?

Lagt framsíðan 3. nóv. 2026

Málið hefur verið lagt fram og bíður þess að vera rætt í þingsal.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Skráning Alþingis: „Bíður 1. umræðu.“

Í stuttu máli

Lagafrumvarp er tillaga að nýjum lögum eða breytingu á lögum. Ef Alþingi samþykkir það verður það að lögum. Málið fjallar um dvalarleyfi.

Lagt fram af Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
3. nóvember 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
engin enn

Málið á mannamáli

Einföld útskýring er ekki tilbúin fyrir þetta mál. Þegar samantekt Alþingi eða yfirfarin útskýring Alviti liggur fyrir birtist hún hér.

Hvers konar mál er þetta?

Lagafrumvarp er tillaga að nýjum lögum eða breytingu á lögum. Ef Alþingi samþykkir það verður það að lögum.

Hvar er hægt að lesa meira?

Þingskjalið sjálft, með greinargerð flutningsmanna, er á vef Alþingi: þskj. 334.

Alviti birtir aðeins útskýringar sem hafa verið yfirfarnar. Þangað til eru staðreyndir úr gögnum Alþingis sýndar óbreyttar.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-12/2026· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. jan. 2026 – 6. feb. 2026· 8 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um útlendinga (dvalarleyfi)

Fyrirhugaðar eru breytingar á ákvæðum laga um útlendinga er varða útgáfu dvalarleyfa og grunnskilyrði þeirra og eru hluti af heildarendurskoðun regluverks dvalarleyfa.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-12/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. mars 2026)

Alls bárust átta umsagnir um málið og voru þær teknar til skoðunar við undirbúning frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Þessar breytingar eru rasismi og ætti að hafna þeim með öllu. Það eru allar breytingar sem halla á fólk að einhverju leiti ætti að meðhöndla sem rasisma og ekkert annað. Best væri ef ríkisstjórnin færi í það verkefni að leggja niður lög um útlendinga í heild sinni og leggja niður útlendingastofnun í heild sinni og taka upp stefnu um frjálsa búsetu á Íslandi óháð því hvaðan fólk kemur í heiminum. Svipað og þekkist á Svalbarði undir stjórn Noregs. Það má einnig nefna að starfsemi Útlendingastofnunar er og hefur alltaf verið rasísk og lög um útlendinga hafa alltaf verið rasísk að upplagi. Þetta e… Lesa alla

    Þessar breytingar eru rasismi og ætti að hafna þeim með öllu. Það eru allar breytingar sem halla á fólk að einhverju leiti ætti að meðhöndla sem rasisma og ekkert annað. Best væri ef ríkisstjórnin færi í það verkefni að leggja niður lög um útlendinga í heild sinni og leggja niður útlendingastofnun í heild sinni og taka upp stefnu um frjálsa búsetu á Íslandi óháð því hvaðan fólk kemur í heiminum. Svipað og þekkist á Svalbarði undir stjórn Noregs. Það má einnig nefna að starfsemi Útlendingastofnunar er og hefur alltaf verið rasísk og lög um útlendinga hafa alltaf verið rasísk að upplagi. Þetta er gjörsamlega úreltur og stórhættulegur "við á móti" þeim hugsunarháttur sem er í dag að leggja grunninn að gjöreyðandi heimstyrjöld í heiminum sem íslendingar munu og geta aldrei annað en komið mjög illa undan. Svona lagabreytingum, þar sem hallar á fólk sem fæðist utan Íslands ætti að hafna í heild sinni og fólk sem styður svona mannréttindabrot ætti ekki að vera í stjórnmálum á Íslandi.

  • #2Chloe Jane Mostert Fisher
    The individuals proposing stricter residence permit rules do not seem to understand that Iceland is not Denmark or Norway and thus has much different needs, not do they understand that the strictures already existing in Icelandic law are in fact extremely strict with little ability to allow anyone but the most qualified, the richest, or those who have been most abused legal stay in Iceland. Making it more difficult for a small society to recruit talent and increasing Icelandic language rules while not funding increased availability of Icelandic language learning is a recipe for economic disast… Lesa alla

    The individuals proposing stricter residence permit rules do not seem to understand that Iceland is not Denmark or Norway and thus has much different needs, not do they understand that the strictures already existing in Icelandic law are in fact extremely strict with little ability to allow anyone but the most qualified, the richest, or those who have been most abused legal stay in Iceland. Making it more difficult for a small society to recruit talent and increasing Icelandic language rules while not funding increased availability of Icelandic language learning is a recipe for economic disaster. Please stop shooting yourselves in the foot.

  • #3Aleksandra Monika Macieja

    Breytingar á dvalarleyfum í svo litlu samfélagi eru nauðsynlegar.Ég vil finna fyrir jafn öryggi hér og ég gerði árið 2005 þegar ég kom hingað.Ég sé hversu mikið er að breytast til hins verra, sérstaklega í höfuðborginni.

  • #4Hreiðar Eiríksson
    Mig langar virðingarfyllt að koma á sjónarmiðum mínum um þessi áformum lagasetningu. Ég hef verið tengdur málefnum innflytjenda frá árinu 2008 þegar ég var forstöðumaður leyfasviðs Útlendingastofnunar. Eftir það hef ég verið ráðgjafi innflytjenda hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands sem veitti innflytjendum gjaldfrjálsa lögfræðiráðgjöf. Eftir það hef ég sem lögmaður og lögfræðingur veitt innflytjendum og atvinnurekendum sem óska að ráða innflytjendur til starfa aðstoð við öflun dvalar- og atvinnuleyfa á Íslandi. Á sama hátt þekki ég vel til málefna sem varða mansal og starfaði um tíma á vegum… Lesa alla

    Mig langar virðingarfyllt að koma á sjónarmiðum mínum um þessi áformum lagasetningu. Ég hef verið tengdur málefnum innflytjenda frá árinu 2008 þegar ég var forstöðumaður leyfasviðs Útlendingastofnunar. Eftir það hef ég verið ráðgjafi innflytjenda hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands sem veitti innflytjendum gjaldfrjálsa lögfræðiráðgjöf. Eftir það hef ég sem lögmaður og lögfræðingur veitt innflytjendum og atvinnurekendum sem óska að ráða innflytjendur til starfa aðstoð við öflun dvalar- og atvinnuleyfa á Íslandi. Á sama hátt þekki ég vel til málefna sem varða mansal og starfaði um tíma á vegum Sameinuðu þjóðanna við baráttu gegn mansali og kynlífsþrælkun í Bosníu og Herzegóvínu meðan samtökin voru með friðargæslu þar. Ég hlaut þjálfun og fræðslu um mansal, vann með yfirvöldum og þolendum og kynntist vel hugarfari beggja, erfiðleikum sem fylgja málaflokknum og vandamál sem tengjast spillingu vegna tengsla misnotenda þolenda við valdakerfin. Það er vel að stjórnvöld séu að skoða vandlega á grundvelli raunverulegra upplýsinga en ekki upphrópana hver staðan er á Íslandi hvað varðar flutninga fólks til og frá landinu. Veruleikinn sem við blasir í fjölþjóðlegu samfélagi, þar sem allir einstaklingar geta auðveldlega stofnað til tengsla í gegnum internetið, óháð staðsetningu, útheimtir síbreytilegar nálganir og ný viðfangsefni. Eins og áformum um lagasetningu er lýst þá virðast þau fyrst of fremst hverfast um að láta dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar einskorðast við kjarnafjölskyldu, þ.e.a.s. maka og börn þess sem umsækjendur leiða rétt sinn skv. umsókn af. Það felur í sér að ættingar í beinan legg 67 ára og eldri falla út og geta ekki fengið slík leyfi. Ég set spurningarmerki við þetta. Svo háttar til í mjög mörgum löndum að ekkert samtryggingakerfi er til staðar og börnum ber siðferðisleg og lagaleg skylda til að framfleyta foreldrum sínum þegar þau byrja að eldast. Fjölmargir innflytjendur og fyrrum innflytjendur sem orðnir eru íslenskir ríkisborgarar framfleyta foreldrum sínum áratugum saman með fjárframlögum frá Íslandi, af fjármunum sem verða eftir þegar þeir hafa greitt skatta og skyldur til íslensks samfélags. Þegar foreldrið verður síðan enn eldra og orðið ósjálfbjarga standa þá valkostir þess sem hér býr milli þess að flytja aftur til fæðingarlandsins, oft eftir áratugadvöl hér og að fengnu íslensku ríkisfangi fyrir áratugum, eða láta aldrað foreldi sitt veslast upp erlendis. Við þær aðstæður hefur hingað til verið talið sæma að leyfa hinu aldraða foreldri að koma til Íslands og vera hér þau ár sem það á ólifuð, svo fremi sem ættinginn sem býr hér á landi hefur fjárhagslega burði til að framfleyta því. Ég tel að það þurfi ríka almannahagsmuni til að réttlæta breytingar á þessu. Ég þekki ekki tölur um þátttöku þessa hóps í skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi. Heldur ekki niðurstöður áhættugreininga hvað varðar líkur á því að þessir öldruðu einstaklingar séu þolendur mansals - enda erfitt að sjá hvernig má hagnýta sér þá á ólögmætan hátt. Þá eru ekki mikil margfeldisáhrif af þessum dvalarleyfum þar sem þetta fólk á sjaldnast börn, sem það síðan óskar eftir dvalarleyfi fyrir og ólíklegt að barneignir liggi fyrir því hér á landi. Í raun fer ekkert fyrir þessu fólki hér og því fylgir takmarkaður og tímabundinn samfélagslegur kostnaður. Ég hef efasemdir um að það sé rétt markmið í sjálfu sér og eitt sér að færa lög hér á landi til samræmis við löggjöf annarra Evrópuríkja. Þetta kann að vera nauðsynlegt þegar málefni flóttamanna og hælisleitenda eru annars vegar, því að þar innan um eru hópar fólks sem í raun falla ekki að skilgreiningu flóttamannahugtaksins og það fólk sækir að landamærum þeirra ríka sem hafa veikburða regluverk til að fást við slíkt. Við Íslendingar komum okkur í raun upp slíku veikburða regluverki með lögum nr. 80/2016, sem sett voru í breiðri pólitískri samstöðu á sínum tíma. Hvað varðar fjölskyldusameiningu þá var sú breyting gerð nýverið að heimiluð var fjölskyldusameining þeim sem hér eru á tímabundnum dvalarleyfum vegna atvinnuþátttöku vegna skorts á vinnuafli. Okkur hefur verið og mun alltaf verða nauðsynlegt að bregðast við sveiflum í framboði og eftirspurn eftir vinnuafli að gefa atvinnulífinu kost á að ráða hingað erlenda starfsmenn. Og oft horfir þannig við að sveiflujöfnun EES-samningsins dugir ekki til. Það er þjóðhagslega hagkvæmt og leiðir til stöðugleika í efnahagslífinu að eiga þess kost að fá við tiltekin skilyrði og tímabundið fólk hingað sem er ríkisborgarar ríkja utan EES. En þau dvalarleyfi eru tímabundin og háð því að hér sé skortur á vinnuafli. Þetta eru því í eðli sínu starfsmenn sem hafa eðli "farandverkamanna" eins og það var kallað hér áður fyrr. Það er að mínu viti ekki nauðsynlegt né æskilegt að fjölskylda slíkra starfsmanna flytji hingað til lands, aðlagist samfélaginu og festi hér rætur. Þvert á móti veldur það því að þegar samdráttur verður í hagkerfinu, þurfa stjórnvöld að grípa til synjana á framlengingum dvalar- og atvinnuleyfa og knýja fjölskyldurnar til að flytjast úr landi. Það er óþarfi að mínu viti að opna fyrir þau vandræði í gegnum úrræði sem ætlað er að jafna tímabundnar sveiflur í eftirspurn eftir starfskröftum hérlendis. Samskipti og kynni fólks eru þannig í nútímanum að það kynnist og fellir hugi saman óháð þjóðerni og menningarbakgrunni. Við það er ekkert að athuga og það þarf virkilega að gæta þess að raska ekki einkalífi fólks með of miklum skorðum við að Íslendingar af öllum kynjum geti byggt um sambönd og stofnað fjölskyldu að vild og búið hér á landi með fjölskyldu sinni. Sömu sögu er að segja um þá sem hingað hafa komið og fengið varanlega heimild til að búa hér. Það sem veldur hins vegar vandræðum eru alþjóðlegar skuldbindingar okkar, einkum vegna EES-samningsins. Ríkisborgari aðildarríkis hans o.fl. sem hingað koma á grundvelli fjórfrelsisins eiga samkvæmt samningsskuldbindingum okkar að þjóðarrétti, rétt á að koma með sér hingað til lands fjölskyldumeðlimi sem eru ríkisborgarar ríkja utan EES-svæðisins. Þeir þurfa ekki að sækja u leyfi - því rétturinn er nú þegar tryggður í þjóðréttarskuldbindingum - heldur aðeins að tilkynna um að makinn, barnið eða foreldrið eldra en 67 ára sé hingað flutt og sækja um að það fái í hendur skilríki því til staðfestingar. Þessi réttur er ekki einasta sterkari en möguleiki Íslendingsins til að fá erlendan maka til sín, heldur er skilgreining fjölskyldu víðari fyrir EES-réttinn en möguleika Íslendingsins. Þannig er barn skilgreint sem eintaklingur undir 18 ára aldrei þegar foreldri þess hefur gifst Íslendingi en yngra en 21 árs þegar foreldri þess hefur gifst EES-ríkisborgara sem hér býr. EES ríkisborgarinn getur flogið 3. ríkis maka sínum og barni hans til Íslands strax, tilkynnt um þau og farið að búa með þeim þar til skírteini þeirra berast. Íslenskur ríkisborgari þarf að skila inn dvalarleyfisumsókn fyrir sína fjölskyldu áður en þau koma til landsins og er þeim ómöguleg koma þangað til dvalarleyfi þeirra hafa verið gefinu út. Afgreiðslutími umsókna um slík dvalarleyfi hefur verið á bilinu 6 - 8 mánuðir undanfarin ár. Stjórnvöld hafa náð umtalsverðum árangri hvað varðar endurbætur á löggjöf hvað varðar umsóknir um hæli hér sem flóttamenn. Þær endurbætur eru að skila sér að hluta en hafa ekki enn skilað fullum árangri vegna þess fjölda umsækjenda sem hér var staddur. Við erum þó á réttri leið hvað þetta varðar. Við eigum í talsverðum vandræðum með skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Við því þarf að bregðast. En þessar fyrirhuguðu breytingar duga ekki til þess. Skipulögð glæpastarfsemi hér hefur fyrst og fremst átt rætur sínar í einstaklingum sem hingað hafa komið á grundvelli réttar skv. EES-samningnum og einstaklingum þeim tengdum. Mikilvægt er í þessu sambandi að láta ekki eitt tiltekið mál, sem ekki er af þeim rótum, villa sér sýn hvað þetta varðar. Hvað mansal varðar þá sýnist mér að eðli þess hafi að hluta til breyst á undanförnum árum. Hið svokallaða vinnumansal hefur að mestu verið látið óáreitt hérlendis svo lengi sem minni mitt dugir til að rifja upp. Þannig er staðan enn í dag. Mansal vegna kynlífsþrælkunar fyrir aldamót og frameftir 1. og 2. áratug hennar annars vegar bundið við þolendur frá EES-ríkjum og þolendur sem hingað komu á grundvelli hjúskapar með Íslendingum eða útlendingum með ótimabundin dvalarleyfi. Að svo miklu leyti sem ég hef spurnir af, þá er mestur hluti þess núna tengdur hælisumsækjendum, sem glæpasamtök gera út, eða einstaklingum sem geta komið hingað án áritana í skamman tíma og aflað sér fjár með kynlífsþrælkun til að gera upp skuldir við glæpasamtök. Fyrirhuguð þrenging skilyrða um dvalarleyfi fyrir 67 ára eða eldri kemur ekki til með að breyta þessu. Þolendur mansals óttast ekkert meira en að hrekjast heim og í hendur þeirra glæpasamtala sem seldu þau af stað í þrældóminn. Þrælahaldararnir hafa haldið að þeim upplýsingum um að yfirvöld hér séu þeim óvinsamleg, þau fái aldrei neina vernd hér og að engin dvalarleyfi séu raunverulega í boði ef þau leiti til yfirvalda. Þegar til kemur er þetta svo einmitt raunveruleikinn og fyrstu viðbrögð yfirvalda eru að losa sig við viðkomandi einstakling - og þar með lykilvitni að brotinu. Þegar um er að ræða kynlífsþræla er málið enn flóknara, því reynsla mín sýnir að sá hópur sem kaupir þjónustu þeirra er samansettur af einstaklingum úr öllum starfstéttum samfélagsins alveg á sama hátt hér og í öðrum löndum. Engin munur er á spillingu og spillingaráhættu hér og í öðrum löndum. Við þurfum að horfast í augu við þetta og tala um það eins og það er. Hin hliði á því að hafa hér greiðan aðgang að dvalarleyfum fyrir þolendur mansals er auðvitað sú að það kann að draga að landinu fólk sem hefur áhuga á að láta sem það tilheyri þeim hóp. Málaflokkurinn innflytjendamál er flókinn og einfaldar lausnir eru ekki til. Menn hafa gripið til óvandaðra ráða í pólitískum tilgangi og rangfært stöðuna og einfaldað með þeim hætti að fólk upplifir eitthvað sem vandamál og aðsteðjandi hættu sem er það alls ekki. Þetta hefur gengið vel erlendis og í okkar helsta vina- og bandalagsríki er afleiðingin orðin sú að yfirvöld eru farin að taka almenna borgara af lífi með skotvopnum á götum úti meðan þau vanrækja að sækja dæmda glæpamenn, sem eru staddir þar ólöglega og eru að sleppa úr fangelsi. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að það eigi að leggja meiri áherslu á íslenska tungumálið þegar kemur að dvalarleyfum og þátttöku í íslensku atvinnulífi. Ábyrgðin af því verður að hvíla á þeim sem hingað vill flytja. Hvað varðar meningaraðlögun þá eigum við að vera ófeimin við að leggja áherslu á að fólk aðlagist íslenskri menningu og leikreglum hins frjálslynda lýðræðisríkis sem við stofnuðum 17. júní 1944 en erum nú í miklum vandræðum með að varðveita. Við eigum að kenna Íslandssöguna markvisst í skólum landsins og við eigum að kenna þjóðtrú þar líka. Enginn á að útskrifast úr íslenskum grunnskóla án þess að þekkja stjórnskipan Íslands og þekkja þau grundvallarmannréttindi sem fest eru í stjórnarskrá. Með öðrum orðum: 1) Gamla fólkið er ekki vandamálaið, 2) Hættum fjölskyldusameiningu við einstaklinga sem eru hér bara tímabundið vegna sveiflna á vinnumarkaði og 3) förum fram á að innflytjendur læri tungumálið og aðlagist leikreglum samfélags okkar og að afkomendur þeirra þekki sögu og menningu Íslands að afloknu skyldunámi.

  • #5Ægir Máni Bjarnason

    Er harðlega á móti þessum lagabreytingum og hef áhyggjur af fasískri stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-189/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 1. okt. 2026 – 15. okt. 2026· 65 umsagnir

Dvalarleyfi - Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga

Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun á V. -X. kafla laganna sem fjalla um útgáfu og skilyrði dvalarleyfa. Samhliða því eru gerðar nauðsynlegar breytingar á öðrum lögum í bandormi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-189/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. október 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 65 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (65)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Eins og með fyrri slíkar tilkynntar breytingar. Þá eru þessar breytingar ekkert nema andúð á útlendingum, ef ekki kerfisbundið stjórnvaldlegt hatur á útlendingum. Þetta lagafrumvarp ætti ekki að leggja fram og það ætti að breyta lögum um útlendinga í samræmi við mannréttindasáttmála sem Ísland er aðild að. Slíkir sláttmálar eru ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld geta valið og hafnað úr. Gildir einu þó svo að útlendingur komi frá ríkjum utan Evrópusambandsins, EES og EFTA. Að vísa í önnur ríki og þá norðurlönd er einnig fáránlegt. Þar sem í þessum ríkjum hafa verið stjórnvöld sem eru jafn mi… Lesa alla

    Eins og með fyrri slíkar tilkynntar breytingar. Þá eru þessar breytingar ekkert nema andúð á útlendingum, ef ekki kerfisbundið stjórnvaldlegt hatur á útlendingum. Þetta lagafrumvarp ætti ekki að leggja fram og það ætti að breyta lögum um útlendinga í samræmi við mannréttindasáttmála sem Ísland er aðild að. Slíkir sláttmálar eru ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld geta valið og hafnað úr. Gildir einu þó svo að útlendingur komi frá ríkjum utan Evrópusambandsins, EES og EFTA. Að vísa í önnur ríki og þá norðurlönd er einnig fáránlegt. Þar sem í þessum ríkjum hafa verið stjórnvöld sem eru jafn mikið að brjóta mannréttindasáttmála sem þau hafa skrifað undir og samþykkt með svipuðum hætti og Ísland gerir tilraun með hérna. Stjórnvöld í þessum ríkjum hafa einnig verið í lengri tíma verið í krafti kosninga stjórnmálaflokkar sem teljast til öfgahægri og jafnvel fasta flokkar sem ganga útá hræðsluáróður gagnvart útlendingum til þess að fela þeirra eigin vanhæfni og vangetu í innanlandsmálum. Það sést á því hvaða stefnum stjórnmálaflokkar raunverulega fylgja þegar það sést hvað þeir gera en ekki hvað þeir segja. Þessu frumvarpi ætti að henda í ruslið og kveikja í því og það ætti aldrei að leggja fram svona frumvarp aftur. Þar sem svona frumvörp eru mannréttindabrot, gegn mannlegri reisn. Eina leiðin til þess að koma réttindamálum í lag er að gera lögin sanngjörn og skapa raunverulega leið til þess að fólk geti flutt til Íslands frá ríkjum utan ESB, EES og EFTA. Núverandi lög gera það nær vonlaust ferli og þessar lagabreytingar bæta það ekki neitt. Í ljósi þessa. Þá ætti dómsmálaráðherra einnig að segja af sér embætti fyrir stórkostlega vanhæfni í starfi og brot á alþjóðlegum samþykktum sem Ísland hefur gengist undir. Á Íslandi er einnig stöðug fólksfækkun, þegar flutningur útlendinga til Íslands er dreginn frá. Þetta hefur verið viðvarandi ástand í áratug núna. Svona lagabreytingar munu einnig auka þessa fólksfækkun á Íslandi ef þetta ógeðfelldar lagafrumvarp verður samþykkt á Alþingi. Flutningur útlendinga til Íslands frá ríkjum sem eru í ESB, EES og EFTA mun einnig væntanlega stöðvast og snúast við á næstu árum með versnandi efnahagsástandi. Þá er ljóst að svona lagafrumvörp eru akkerishæll. Það er einnig ljóst að þetta lagafrumvarp er til þess að þóknast mjög smáum en háværum hópi öfgafólks á Íslandi. Þetta er hópur fólks sem enginn ætti að taka mark á. Hvorki í dag eða nokkurntímann í sögunni.

  • #2Ásmunda Björg Baldursdóttir
    Athugasemd við ákvæði um fjölskyldusameiningu Undirrituð gerir athugasemd við þá afmörkun hugtaksins fjölskyldusameiningar sem felst í frumvarpinu, að því er varðar stöðu barna íslenskra ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri. Af frumvarpinu verður ráðið að barn íslensks ríkisborgara, sem orðið er sjálfráða, geti að meginstefnu ekki fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með þeirri afmörkun virðist löggjafinn leggja til grundvallar að fjölskyldutengsl milli foreldris og barns njóti ekki sömu verndar eftir að barn nær 18 ára aldri, nema sérstakar undantekningar eigi við. Að m… Lesa alla

    Athugasemd við ákvæði um fjölskyldusameiningu Undirrituð gerir athugasemd við þá afmörkun hugtaksins fjölskyldusameiningar sem felst í frumvarpinu, að því er varðar stöðu barna íslenskra ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri. Af frumvarpinu verður ráðið að barn íslensks ríkisborgara, sem orðið er sjálfráða, geti að meginstefnu ekki fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með þeirri afmörkun virðist löggjafinn leggja til grundvallar að fjölskyldutengsl milli foreldris og barns njóti ekki sömu verndar eftir að barn nær 18 ára aldri, nema sérstakar undantekningar eigi við. Að mati undirritaðrar er slík nálgun of fortakslaus. Fjölskyldulíf foreldra og barna lýtur ekki eingöngu að aldri barns heldur einnig eðli og styrkleika fjölskyldutengslanna hverju sinni. Ljóst er að fjölskyldutengsl geta verið mjög náin og raunveruleg þrátt fyrir að barn hafi náð lögræðisaldri, meðal annars þegar fyrir hendi er fjárhagslegt, félagslegt eða tilfinningalegt gagnkvæmt háð eða aðrar sérstakar aðstæður sem réttlæta áframhaldandi samvistir fjölskyldunnar. Réttur til friðhelgi fjölskyldulífs nýtur verndar samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Þótt ríkjum sé játað nokkurt svigrúm til að setja skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu hefur í framkvæmd mannréttindadómstóla verið lögð áhersla á að mat á tilvist og vernd fjölskyldulífs ráðist af raunverulegum aðstæðum en ekki eingöngu formlegum aldursmörkum. Þá vekur athygli að sú skipan sem frumvarpið gerir ráð fyrir getur leitt til þess að íslenskur ríkisborgari eigi ekki kost á að sameinast eigin fullorðnu barni hér á landi, jafnvel þótt fyrir hendi séu sterk og verndunarverð fjölskyldutengsl. Slík niðurstaða kallar að mati undirritaðrar á nánari rökstuðning og mat á meðalhófi. Af framangreindu tilefni er lagt til að endurskoðuð verði skilgreining þeirra aðila sem geta fallið undir fjölskyldusameiningu. Að lágmarki ætti að vera fyrir hendi sérstök heimild til einstaklingsbundins mats á umsóknum fullorðinna barna íslenskra ríkisborgara þar sem sýnt er fram á að raunverulegt og verndað fjölskyldulíf sé til staðar. Slík heimild myndi samrýmast betur mannréttindasjónarmiðum, meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar og þeirri meginreglu að mat á fjölskyldutengslum byggist á efnislegum aðstæðum fremur en einvörðungu formlegum aldursmörkum. Raunveruleg áhrif laganna á fjölskyldulíf íslenskra ríkisborgara: Í þessu samhengi er sérstaklega ástæða til að benda á mál stjúpsonar undirritaðrar, mexíkósks ríkisborgara, sem sótti um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið. Umsókn hans var synjað af Útlendingastofnun og sú niðurstaða staðfest með úrskurði Kærunefndar útlendingamála nr. 9/2026 frá 15. janúar 2026. Þar lagði kærunefndin til grundvallar að fjölskyldutengsl umsækjandans við íslenskan föður hans væru ein og sér ekki nægjanleg til veitingar dvalarleyfis, auk þess sem ekki hefðu verið talin fyrir hendi þau umönnunar- eða framfærslusjónarmið sem áskilin eru samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðinum er enn fremur áréttað að ákvæði um sérstök tengsl við landið séu ekki ætlað að útvíkka gildissvið reglna um fjölskyldusameiningu. Þar af leiðandi varð umsækjandinn ekki talinn eiga rétt til dvalar á Íslandi á grundvelli tengsla við íslenskan föður sinn og systkinna. Þar á meðal ungur bróðir sem umsæjandi hefur ekki náð að mynda tengsl við. Málið sýnir með skýrum hætti hvernig gildandi löggjöf hefur í framkvæmd leitt til þess að íslenskir ríkisborgarar geta ekki sameinast eigin fullorðnum börnum nema við afar þröng og sérstök skilyrði. Þótt fyrir liggi raunveruleg fjölskyldutengsl, sameiginlegur uppruni og fjölskyldunet hér á landi, er það ekki talið nægja nema umsækjandi geti jafnframt sýnt fram á ríka þörf fyrir umönnun eða framfærslu. Að mati undirritaðrar er þessi framkvæmd til marks um of þrönga túlkun á hugtakinu fjölskyldulíf. Fjölskyldutengsl milli foreldra og barna falla ekki sjálfkrafa niður við 18 ára aldur og verða ekki síður verndunarverð þegar um er að ræða íslenska ríkisborgara sem óska eftir því að viðhalda eðlilegum fjölskyldutengslum við börn sín. Í ljósi þessa vekur áhyggjur að frumvarpið virðist ekki fela í sér úrbætur á þessu sviði heldur fremur staðfesta þá réttarstöðu að fullorðin börn íslenskra ríkisborgara eigi að jafnaði ekki kost á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Telja verður að slík niðurstaða samrýmist illa markmiðum um vernd fjölskyldulífs og feli í sér verulega skerðingu á möguleikum íslenskra ríkisborgara til að njóta fjölskyldulífs hér á landi. Því er lagt til að frumvarpið verði endurskoðað þannig að heimilt verði að veita fullorðnum börnum íslenskra ríkisborgara dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar eða að lágmarki að fyrir hendi verði skýr heimild til einstaklingsbundins mats þegar sýnt er fram á raunveruleg og sterk fjölskyldutengsl, án þess að gerð sé krafa um sérstaka umönnunarþörf eða framfærslu. Slík breyting myndi betur samræmast vernd fjölskyldulífs samkvæmt 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, auk þess að tryggja íslenskum ríkisborgurum raunhæfari möguleika til að halda uppi fjölskyldulífi með fullorðnum börnum sínum.

  • #3Pétur Bjarni Gunnlaugsson
    Þar sem ég sjálfur hef verið au pair og farið erlendis til þess þá verð ég að vera mjög ósammála því að hindra fólk utan Evrópu til þess að nýta þetta tækifæri til að koma hingað og upplifa Ísland. Þetta var mikil upplifun fyrir mig og reynsla sem ég bý enn að í dag. Nú með 6 manna fjölskyldu erum við með au pair á heimilinu svo við teljum 7 hérna. Í sumar ferðuðumst við mikið um landið til þess að okkar au pair fengi að upplifa og kynnast landinu okkar. Veit ekki betur en þetta sé búið að vera einstök upplifun og eitthvað sem okkar au pair á eftir að lifa lengi á ásamt því að vera búin að… Lesa alla

    Þar sem ég sjálfur hef verið au pair og farið erlendis til þess þá verð ég að vera mjög ósammála því að hindra fólk utan Evrópu til þess að nýta þetta tækifæri til að koma hingað og upplifa Ísland. Þetta var mikil upplifun fyrir mig og reynsla sem ég bý enn að í dag. Nú með 6 manna fjölskyldu erum við með au pair á heimilinu svo við teljum 7 hérna. Í sumar ferðuðumst við mikið um landið til þess að okkar au pair fengi að upplifa og kynnast landinu okkar. Veit ekki betur en þetta sé búið að vera einstök upplifun og eitthvað sem okkar au pair á eftir að lifa lengi á ásamt því að vera búin að læra mjög mikið um okkar land. Svo ég mótmæli eindregið að við lokum okkur af. Við eigum heldur að einfalda þetta og svo bæði þeir sem koma hingað sem au pair geti kynnst okkar landi. Eins lærum við líka mikið um þeirra land að hafa þau hérna, börnin hafa fræðst mjög mikið af þessu. Eina sem ég sagt er að því miður byrjaði ég ekki fyrr að fá au pair. Ég og mín fjölskylda þekkjum vel til Evrópu og flestra landa þar, því var meiri áhugi fyrir því að fá au pair sem var utan Evrópu svo bæði við og au pair myndum læra meira. Ég vona að ráðherra sjái sér sóma í því að endurskoða þetta og fara ekki að apa allt upp eftir örðum ríkjum, við erum ekki eins, verðum ekki eins og viljum ekki vera eins. Verum bara Íslendingar og förum okkar eigin leiðir eins og forfeður okkar börðust fyrir. Verum stolt af því og höldum því áfram.

  • #4Harpa Söring Ragnarsdóttir
    Umsögn um mál S-189/2026 – brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar Ég geri athugasemd við tillögu um að afnema dvalarleyfi vegna vistráðningar (au pair) fyrir einstaklinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég styð að réttindi og öryggi au pair séu tryggð og að tekið sé af festu á misnotkun. Ég tel hins vegar að skoða þurfi betur leiðir til að bæta fyrirkomulagið áður en þessi möguleiki er felldur niður. Fjölskylda mín hefur reynslu af því að hafa au pair frá Filippseyjum. Fyrir okkur hefur þetta fyrirkomulag haft mikið gildi. Ég er móðir tveggja ungra barna og eiginmaður minn er hreyfihamla… Lesa alla

    Umsögn um mál S-189/2026 – brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar Ég geri athugasemd við tillögu um að afnema dvalarleyfi vegna vistráðningar (au pair) fyrir einstaklinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég styð að réttindi og öryggi au pair séu tryggð og að tekið sé af festu á misnotkun. Ég tel hins vegar að skoða þurfi betur leiðir til að bæta fyrirkomulagið áður en þessi möguleiki er felldur niður. Fjölskylda mín hefur reynslu af því að hafa au pair frá Filippseyjum. Fyrir okkur hefur þetta fyrirkomulag haft mikið gildi. Ég er móðir tveggja ungra barna og eiginmaður minn er hreyfihamlaður. Aðstoð við barnagæslu og létt heimilisstörf hefur því sérstaka þýðingu fyrir daglegt líf okkar og möguleika mína til að sinna vinnu og öðrum skyldum. Au pair hefur jafnframt verið hluti af fjölskyldulífinu og dvölin skapað tækifæri til gagnkvæmra menningarskipta. Ég geri ekki lítið úr hættunni á misnotkun eða þeim aðstöðumun sem getur verið milli vistfjölskyldu og au pair. Góð reynsla einnar fjölskyldu útilokar ekki að aðrir búi við óviðunandi aðstæður. Á sama hátt tel ég að ekki eigi að afnema fyrirkomulagið í heild án þess að leggja fram skýrar upplýsingar um umfang vandans hér á landi og mat á því hvort aðrar aðgerðir geti tryggt fullnægjandi vernd. Í því sambandi óska ég eftir upplýsingum um fjölda tilkynntra og staðfestra brota vegna vistráðninga, eðli þeirra og hvernig brugðist hefur verið við. Fáar tilkynningar myndu ekki einar og sér sýna að misnotkun sé sjaldgæf, en gögn um framkvæmdina eru nauðsynleg til að meta hvaða breytinga er þörf. Einnig tel ég mikilvægt að horfa til félagslegs baklands þeirra sem hingað koma. Hér á landi er filippseyskt samfélag sem getur veitt au pair frá Filippseyjum tengsl, stuðning og upplýsingar. Slíkt tengslanet getur dregið úr einangrun og auðveldað þeim að leita aðstoðar. Það kemur ekki í stað ábyrgðar stjórnvalda, en mætti nýta í samstarfi um fræðslu og stuðning. Í greinargerðinni kemur fram að aukið eftirlit sé talið óraunhæft vegna kostnaðar og þess að dvölin fari fram á einkaheimilum. Ég tel þó að rökstyðja þurfi þá niðurstöðu nánar, meðal annars með kostnaðarmati og samanburði á ólíkum leiðum til að tryggja vernd. Regluleg trúnaðarsamtöl við au pair, sjálfstæð ráðgjöf og greiðari leiðir til að skipta um vistfjölskyldu þurfa ekki öll að byggjast á heimsóknum inn á heimili. Einnig þarf að skýra hvers vegna ekki sé unnt að draga úr aðstöðumun með breyttum réttindum og minni tengingu dvalarréttar við tiltekna vistfjölskyldu. Ég óska því eftir að eftirfarandi úrbætur verði metnar sérstaklega áður en leyfaflokkurinn er afnuminn: - Að hver au pair hafi sjálfstæðan tengilið og fái regluleg trúnaðarsamtöl án aðkomu vistfjölskyldunnar. - Að tryggja skýrar og aðgengilegar leiðir til að tilkynna brot og fá aðstoð. - Að auðvelda skipti um vistfjölskyldu og tryggja svigrúm til að yfirgefa óviðunandi aðstæður án tafarlauss missis dvalarréttar. - Að styrkja réttindi varðandi vasapeninga, tryggingar, vinnutíma og frítíma og útiloka vistfjölskyldur sem brjóta gegn skilyrðum. - Að kanna hvort breyttur lagarammi geti betur tryggt réttindi au pair og skýrt mörkin milli menningarskipta og vinnu. Þá þarf að meta áhrif afnámsins á barnafjölskyldur, sérstaklega þar sem fötlun eða veikindi hafa áhrif á daglegt líf. Í greinargerðinni er gert ráð fyrir að fækkun au pair frá ríkjum utan EES verði mætt með einstaklingum innan EES. Ég tel að sú forsenda þarfnist frekari rökstuðnings. Ekki er sjálfgefið að framboð, áhugi og möguleikar til vistráðningar séu sambærilegir milli þessara hópa. Ég óska því eftir að tillagan um brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar verði endurskoðuð. Markmiðið ætti að vera að tryggja öruggt og sanngjarnt fyrirkomulag sem verndar au pair og varðveitir möguleikann á gagnkvæmum menningarskiptum. Áður en sá möguleiki er afnuminn þarf að sýna með skýrari hætti hvers vegna ekki sé hægt að ná því markmiði með bættum réttindum, stuðningi og eftirliti. Virðingarfyllst, Harpa Ragnarsdóttir

  • #5Dmitrii Bukhgolts
    Ég tala smá íslensku. Ég ætla að þýða umsögnina með AI. Ég vil gjarnan koma skoðun minni á þessu frumvarpi á framfæri sem einstaklingur sem kom hingað frá þriðja landi, utan Evrópusambandsins. Þessi lög virðast fyrst og fremst vera til þess fallin að skerða enn frekar réttindi fólks sem hefur mestan áhuga og sterkasta hvatann til að aðlagast lífi og menningu á Íslandi. Ég og eiginkona mín búum hér við nánast þrælslegar aðstæður vegna þess að ég hef ekki rétt til að skipta um starf fyrr en ég fæ ótímabundið dvalarleyfi. Það þýðir sjálfkrafa að atvinnurekandi, sem veit þetta, getur beitt mér þ… Lesa alla

    Ég tala smá íslensku. Ég ætla að þýða umsögnina með AI. Ég vil gjarnan koma skoðun minni á þessu frumvarpi á framfæri sem einstaklingur sem kom hingað frá þriðja landi, utan Evrópusambandsins. Þessi lög virðast fyrst og fremst vera til þess fallin að skerða enn frekar réttindi fólks sem hefur mestan áhuga og sterkasta hvatann til að aðlagast lífi og menningu á Íslandi. Ég og eiginkona mín búum hér við nánast þrælslegar aðstæður vegna þess að ég hef ekki rétt til að skipta um starf fyrr en ég fæ ótímabundið dvalarleyfi. Það þýðir sjálfkrafa að atvinnurekandi, sem veit þetta, getur beitt mér þrýstingi og haft mikil áhrif á mig, því ef mér er sagt upp gæti ég þurft að yfirgefa landið. Einu sinni fékk ég tilkynningu um uppsögn sem síðar var afturkölluð, en ég þurfti þá að samþykkja ný starfsskilyrði. Eftir uppsögn hef ég nokkra mánuði til að finna mér nýtt starf. Það þýðir að nýr atvinnurekandi þarf fyrst að reyna að finna starfsmann meðal Íslendinga í þrjár vikur og, ef enginn finnst, meðal ríkisborgara Evrópusambandsins í þrjár vikur til viðbótar. Aðeins eftir það væri hægt að ráða mig. Líkurnar á því eru afar litlar. Þar að auki þarf ég áfram að greiða húsaleigu og hafa eitthvað til að lifa af. Eiginkona mín býr hér á grundvelli fjölskyldusameiningar. Þar sem ég er ekki einu sinni ríkisborgari ESB hefur hún alls ekki rétt til að vinna. Starfsgrein hennar krefst endurmenntunar hér á landi, sem tekur tíma, og auk þess þarf hún að kunna íslensku, sem er nokkuð erfitt tungumál að læra og ekki öllum auðvelt. Hún getur ekki einfaldlega fengið láglaunastarf, þar sem íslenskir ríkisborgarar og ríkisborgarar ESB eru í forgangi við ráðningar samkvæmt lögunum. Ráðningarferlið yrði það sama og hjá mér, en innanlands. Það kostaði okkur líka gríðarlega mikla vinnu að flytja til Íslands: ótal vottorð og sönnunargögn, sakavottorð frá þeim löndum þar sem við höfðum búið, fyrirframgreitt húsnæði og fjölda þýðinga á skjölum. Allt þetta ferli tók okkur um það bil níu mánuði. Hvað höfum við þá? Ég vinn algjörlega á forsendum atvinnurekandans, þar sem ég get á engan hátt haft áhrif á eigin starfsskilyrði, því annars gæti ég þurft að yfirgefa landið. Eiginkona mín hefur hins vegar alls ekki rétt til að vinna fyrr en hún fær ótímabundið dvalarleyfi. Þannig virðist Ísland annars vegar vilja gera nú þegar erfiðar aðstæður enn erfiðari fyrir okkur, fólk sem hefur mikinn áhuga og sterkan hvata til að læra tungumálið og aðlagast samfélaginu eftir bestu getu. Hins vegar búa hér fjölmargir ríkisborgarar ESB í mörg ár og jafnvel áratugi. Ég þekki persónulega fólk sem hefur búið hér í 20 ár án þess að hafa lært íslensku á grundvallarstigi eða sótt eitt einasta íslenskunámskeið. Þetta fólk lærir ekki tungumálið og hefur að mínu mati ekki sama hvata til að aðlagast samfélaginu. Margir þeirra safna peningum hér og flytja þá úr landi, til heimalands síns, þar sem þeir kaupa jafnvel húsnæði. Margir stunda glæpastarfsemi, þar sem engin fortíðarskoðun er gerð á þeim. Margir stunda ólöglegan rekstur. Og á endanum er það fólk eins og við sem situr uppi með afleiðingarnar — fólk sem kom hingað til að verða hluti af þessu landi. Svo hvaða vernd er verið að tala um í þessum lögum? Hvern eiga þau að vernda? Þessi lög ganga að mínu mati gegn grundvallarmannréttindum. Þau skipta fólki í mismunandi hópa og gera ríkisborgara frá þriðju löndum að eins konar þjónustufólki, án raunverulegs réttar til að hafa áhrif á eigin aðstæður eða lífsgæði. Einnig er sagt að með þessu verði reglurnar sambærilegri við þær ströngu reglur sem gilda í öðrum Norðurlöndum. En í Finnlandi, til dæmis, getur einstaklingur sem lærir tungumálið jafnvel fengið ríkisborgararétt eftir fjögurra ára búsetu. Í Svíþjóð er hægt að fá ótímabundið dvalarleyfi eftir fjögurra ára búsetu með tímabundið dvalarleyfi. Það ætti að hvetja fólk sem leggur sig fram við að aðlagast samfélaginu, en ekki gera því lífið erfiðara. Samt virðist allt sem stendur í þessum lögum vera til þess fallið að setja fleiri hindranir í veg fyrir okkur — fólkið sem leggur mikla vinnu í að bæta sig og aðlagast. Innflytjendalöggjöf fyrir ríkisborgara frá þriðju löndum er nú þegar ströng á Íslandi. Það er engin þörf á að gera hana enn strangari. Kannski ætti höfundur þessa frumvarps sjálf að kynna sér íslenska innflytjendalöggjöf betur til að sannreyna hvort það sem ég segi sé rétt, og einnig kynna sér tölfræði um hversu stórt hlutfall ríkisborgara frá þriðju löndum er meðal allra innflytjenda á Íslandi. Ég get gefið smá vísbendingu: hlutfallið er í raun mjög lágt.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
334Stjórnarfrumvarp3. nóv. 2026Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

Engar ræður hafa verið fluttar um málið.

Umsagnir og erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Engar umsagnir hafa borist.

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.