Höfundalög
Hámarksrefsing fyrir stórfelld brot
Hvar er málið statt?
Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að sporna gegn stórfelldum og ítrekuðum höfundaréttarbrotum, einkum ólögmætri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu, með því að þyngja hámarksrefsingu fyrir slík brot.
Lagt fram af Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Sf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 18. september 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 10 ræður · 23 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að sporna gegn stórfelldum og ítrekuðum höfundaréttarbrotum, einkum ólögmætri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu, með því að þyngja hámarksrefsingu fyrir slík brot.
Hvað breytist
Lagt er til að stórfelld eða ítrekuð brot gegn höfundarétti geti varðað sektum eða fangelsi allt að sex árum. Samkvæmt gildandi lögum er hámarksfangelsisrefsing fyrir brot gegn höfundalögum tvö ár. Við mat á því hvort brot teljist stórfellt yrði meðal annars litið til umfangs þess, fjárhagslegs tjóns rétthafa og ávinnings brotamanns auk þess hvort brotið hafi verið framið í atvinnuskyni, verið skipulagt eða verið hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.
Breytingunni er einkum ætlað að ná til umfangsmikillar ólöglegrar dreifingar og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu, svo sem sjónvarps- og kvikmyndaefnis, en ekki sérstaklega til einstaklinga sem kaupa áskrift að slíku efni eða horfa á það í streymi. Fyrir brot sem teljast hvorki stórfelld né ítrekuð yrði hámarksfangelsisrefsing áfram tvö ár.
Lög sem breytast
Kostnaður fyrir ríkið
Frumvarpið getur haft í för með sér bæði aukin útgjöld og auknar tekjur fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að hugsanlegur kostnaðarauki rúmist innan fjárheimilda en áhrifin hafa ekki verið metin til fjár.
Meira úr samantektinni
Í rannsókn Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO), sem birt var í nóvember 2024, kemur fram að árið 2023 hafi hver netnotandi á aldrinum 15–74 ára í ríkjum Evrópusambandsins að meðaltali sótt í ólöglega miðlað efni á netinu um tíu sinnum í mánuði. Í um helmingi tilvika var um sjónvarpsefni að ræða. Sama ár fjölgaði heimsóknum á vefsíður þar sem hægt er að gerast áskrifandi að ólöglegri netsjónvarpsþjónustu (IPTV) um 10%. Sú tala nær þó aðeins til heimsókna á áskriftarsíðurnar en segir ekkert um hversu mikið var horft á efnið.
Löggjöf á Norðurlöndum
Í Danmörku og Svíþjóð geta sérstaklega alvarleg höfundaréttarbrot varðað allt að sex ára fangelsi. Samkvæmt 76. gr. dönsku höfundalaganna (bekendtgørelse af lov om ophavsret (ophavsretsloven), LBK nr 1093 af 20/08/2023) varða höfundaréttarbrot að jafnaði sektum. Séu tiltekin brot framin af ásetningi og við þyngjandi aðstæður getur refsingin þó orðið allt að eins árs og sex mánaða fangelsi. Séu brot sérstaklega stórfelld og framin í því skyni að afla sér eða öðrum ólögmæts ávinnings eða við aðrar sérstaklega þyngjandi aðstæður getur refsingin orðið allt að sex ára fangelsi, sbr. 299. gr. b hegningarlaga (bekendtgørelse af straffeloven (straffeloven), LBK nr 1294 af 07/11/2025). Í Svíþjóð varða höfundaréttarbrot sektum eða fangelsi allt að tveimur árum en fyrir stórfelld ásetningsbrot er kveðið á um fangelsi frá sex mánuðum til sex ára, sbr. 53. gr. laga um höfundarétt að bókmenntum og listaverkum (lag om upphovsrätt till litterära och konstnärliga verk, 1960:729).
Í Noregi varða brot gegn lögum um höfundarétt að hugverkum o.fl. (lov om opphavsrett til åndsverk mv. (åndsverkloven), LOV-2018-06-15-40) sektum eða fangelsi allt að einu ári, sbr. 79. gr., en sektum eða fangelsi allt að þremur árum ef brot telst stórfellt, sbr. 80. gr. Í Finnlandi varða tiltekin höfundaréttarbrot sektum samkvæmt 56. gr. a höfundalaga (upphovsrättslag, 404/1961). Samkvæmt 1. gr. 49. kafla hegningarlaga (strafflag, 39/1889) geta brot hins vegar varðað allt að tveggja ára fangelsi. Það á meðal annars við um brot sem framin eru með notkun tölvuneta eða upplýsingakerfa, enda séu þau í báðum tilvikum til þess fallin að valda rétthafa verulegu tjóni eða óhagræði.
Sex ára hámarksrefsingin sem lögð er til í frumvarpinu er því sú sama og gildir fyrir sérstaklega alvarleg höfundaréttarbrot í Danmörku og Svíþjóð, þótt skilyrðin séu ólík. Í frumvarpinu er jafnframt gert ráð fyrir að ítrekuð brot geti fallið undir þyngri refsiramma þótt þau teljist ekki stórfelld en sambærilegt ákvæði er ekki að finna í þeim norrænu refsiákvæðum sem hér eru borin saman.
Afstaða þingflokkanna
Logi EinarssonSamfylkinginmenningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Framsögumaður nefndar: Víðir Reynisson
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Allsherjar- og menntamálanefnd
- sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 8. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 10 aðilar
- Plusminus Optic, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda, STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, Arnar Elvarsson, Fjarskiptastofa o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 23 mín · 10 ræður
- 3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Frumvarpið getur haft í för með sér bæði aukin útgjöld og auknar tekjur fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að hugsanlegur kostnaðarauki rúmist innan fjárheimilda en áhrifin hafa ekki verið metin til fjár.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 110 ræður · 23 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-082 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur22. september 2026 kl. 16:47Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd22. september 2026 kl. 16:47Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 10 ræður · 3 ræðumenn · 23 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Samfylkingin | 5 | 13 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 3 | 6 mín | |
| Miðflokkurinn | 2 | 4 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 24. sep. 2026, frestur 8. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Plusminus Optic | umsögn | Opna PDF | |
| Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda | umsögn | Opna PDF | |
| STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar | umsögn | Opna PDF | |
| Arnar Elvarsson | umsögn | Opna PDF | |
| Fjarskiptastofa | umsögn | Opna PDF | |
| Sýn hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Rithöfundasamband Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök iðnaðarins | umsögn | Opna PDF | |
| Félag rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði, FRÍSK | umsögn | Opna PDF | |
| Kvikmyndamiðstöð Íslands | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Höfundalögtengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)