Áform um breytingar á lögum um laun forseta Íslands o.fl
Áform þessi varða rafrænar undirritanir á vettvangi ríkisráðs, breytt fyrirkomulag á greiðslum til handhafa forsetavalds, sérstakan aðstoðarmann forseta og launaákvörðun forsetaritara.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-185/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. desember 2025)
Drög að frumvarpi voru birt í Samráðsgáttinni, sjá tengt mál. Búið er að leggja frumvarpið fram á Alþingi (314. mál á 157. löggjafarþingi).
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Óli Jóhann Kristjánsson
Spurning af hverju á að veita forseta leifi til að ráða starfsmann án auglýsingar ef það yrði gert er það þá ekki fordæmdi fyrir aðra hjá ríkinu.
- #2Birna Guðrún Konráðsdóttir
Ég sé ekki nauðsyn þess að ráða aðstoðarmanneskju fyrir forseta Íslands. Embættið rekur forsetaskrifstofu, þar sem starfa fimm manneskjur að meðaltali. Þar að auki starfar fólk fyrir embættið á Bessastöðum. Það er því að mínu mati algjörlega ónauðsynlegt að ráða sérstakan aðstoðarmann forseta. Fyrir löngu hefði mátt lækka laun handhafa forsetavalds sem halda örðum tekjum á meðan þeir gegna forsetavaldinu. Þeirri tillögu fagna ég jafn mikið og ég er á móti þeirri fyrrgreindu.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.