Beint í efni
Alviti
Þingmál157. þing · 287. mál

Almannavarnir

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 25. nóv. 2025

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 157. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að setja skýrari og heildstæðari umgjörð um almannavarnir og styrkja getu samfélagsins til að undirbúa sig fyrir, bregðast við og vinna úr alvarlegum áföllum. Lögð er áhersla á samhæfingu aðgerða, skýra ábyrgð og aukið áfallaþol vegna náttúruvár, heilbrigðisvár, netöryggisógna, hernaðarógna og annarrar váar.

Lagt fram af Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
21. nóvember 2025
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
40 ræður · 2 klst. 45 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. maí 2026

Markmiðið

Að setja skýrari og heildstæðari umgjörð um almannavarnir og styrkja getu samfélagsins til að undirbúa sig fyrir, bregðast við og vinna úr alvarlegum áföllum. Lögð er áhersla á samhæfingu aðgerða, skýra ábyrgð og aukið áfallaþol vegna náttúruvár, heilbrigðisvár, netöryggisógna, hernaðarógna og annarrar váar.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði ný heildarlög um almannavarnir sem komi í stað gildandi laga. Í frumvarpinu er nánar kveðið á um skyldur ráðherra, ríkisstofnana, sveitarfélaga, almannavarnanefnda og ábyrgðaraðila ómissandi innviða, m.a. til að greina áhættu og áfallaþol, gera aðgerða- og viðbragðsáætlanir og taka þátt í æfingum. Þá er lagt til nýtt almannavarnastig, þjóðarvá, sem forsætisráðherra yrði heimilt að lýsa yfir þegar neyðarástand er mjög umfangsmikið. Einnig er mælt nánar fyrir um samhæfingu og stjórn aðgerða vegna mismunandi tegunda vár og að heimild verði veitt til að starfrækja tímabundna þjónustumiðstöð fyrir þá sem þurfa að takast á við afleiðingar áfalls.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um almannavarnir, nr. 82/2008. Jafnframt verða breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Ný stefna í almannavarna- og öryggismálum. Forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið, 18. mars. 2021.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af beredskabsloven (beredskabsloven) LBK nr 314 af 03/04/2017.

Finnland

Beredskapslag 1552/2011.

Räddningslag 379/2011.

Noregur

Lov om sivil beskyttelse og beredskap (sivilbeskyttelsesloven) LOV-2010-06-25-45.

Svíþjóð

Lag om kommuners och regioners åtgärder inför och vid extraordinära händelser i fredstid och höjd beredskap (2006:544).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Víðir Reynisson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 10. des. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
32 aðilar
Dýraverndarsamband Íslands, Elías Pétursson, Grindavíkurbær, Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins, Örugg verkfræðistofa ehf. o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 45 mín · 40 ræður
8 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 2 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-114/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. júl. 2025 – 18. ágú. 2025· 79 umsagnir

Frumvarp til laga um almannavarnir

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um almannavarnir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-114/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 79 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (79)
  • #1Svavar Kjarrval Lúthersson
    Vakin er athygli ráðuneytisins á 11. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), er fjallar um hættu- og neyðarástand. Gagnrýnisvert er að hvorki frumvarpið né greinargerðin, einkum kaflinn um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, minnist ekki einu orði á þennan samning og þetta ákvæði. Þá er einnig hægt að vísa til 3. liðar svars dómsmálaráðherra á þskj. 733 á 154. löggjafarþingi og þeirrar staðreyndar að engin samtök fatlaðs fólks fengu boð um þátttöku skv. listanum hér á samráðsgáttinni eða sérstakra yfirlýsinga í greinargerð. Það er ekki að ástæðulausu sem 11. gr.… Lesa alla

    Vakin er athygli ráðuneytisins á 11. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), er fjallar um hættu- og neyðarástand. Gagnrýnisvert er að hvorki frumvarpið né greinargerðin, einkum kaflinn um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, minnist ekki einu orði á þennan samning og þetta ákvæði. Þá er einnig hægt að vísa til 3. liðar svars dómsmálaráðherra á þskj. 733 á 154. löggjafarþingi og þeirrar staðreyndar að engin samtök fatlaðs fólks fengu boð um þátttöku skv. listanum hér á samráðsgáttinni eða sérstakra yfirlýsinga í greinargerð. Það er ekki að ástæðulausu sem 11. gr. SRFF var samin enda talsverðar áhyggjur að ríki láti neyðaraðstoð við fatlað fólk sæta afgangi. Umsagnaraðili hefur því talsverðar áhyggjur að svo verði áfram í framkvæmd, meðal annars með hliðsjón af því að eingöngu einu sinni er vísað í fatlað fólk í frumvarpinu og greinargerðinni samanlagt, sem upptalningu í dæmaskyni um viðkvæma hópa. Þó það sé jákvætt að setja nýmæli um að gæta sérstöðu viðkvæmra hópa er eingöngu minnst á það hugtak einu sinni í frumvarpinu sjálfu, en það er í tengslum við viðbragðsáætlun. Ekki er t.a.m. gert sérstaklega ráð fyrir aðkomu fatlaðs fólks eða samtaka þeirra í nokkru öðru er kemur að framkvæmd laganna, svo sem í samráðshópi ríkislögreglustjóra skv. 11. gr. eða veitingu umsagna um viðbragðsáætlanirnar sjálfar eða jafnvel snið þeirra. Almennt séð mættu vera fleiri/sterkari ákvæði með jákvæðum skyldum til þess að gæta að viðkvæmum hópum við framkvæmd fyrirhugaðra laga og/eða að lágmarki samráðsskyldu við samtök þeirra hópa við undirbúning viðbragða við atburðum sem frumvarpið á að ná yfir. Ef slík skylda er ekki orðuð sérstaklega er mikil hætta á að hún verði ekki talin vera til staðar eða framkvæmdin sundurleit. Miðað við fyrri reynslu er það ekki traustvekjandi ef það er talið duga að vísa til mikilvægra hópa sem þessara í orðskýringargrein.

  • #2Persónuvernd

    Sjá meðfylgjandi umsögn Persónuverndar.

  • #3Garðar Agnar Garðarsson
    Athugasemdir við 44. grein um almenna borgaralega skyldu. Ef almennur borgari er kvaddur til starfa á hættustundu án endurgjalds, væntanlega frá daglegri vinnu sinni í einkageiranum, hvar á hann þá að fá tekjutapið bætt? Ætla má að almennur borgari sem vinnur hjá hinu opinbera, hvort sem það er á vegum sveitarfélags eða ríkisins haldi launum sínum þar, þó svo að hann sé kvaddur til starfa á vegum almannavarna. Það er ekki á vísan að róa ef viðkomandi er í einkageiranum. Hann gæti verið launalaus með öllu. Það er ekki hægt að vísa til góðmennsku launagreiðenda um að viðkomandi haldi óskert… Lesa alla

    Athugasemdir við 44. grein um almenna borgaralega skyldu. Ef almennur borgari er kvaddur til starfa á hættustundu án endurgjalds, væntanlega frá daglegri vinnu sinni í einkageiranum, hvar á hann þá að fá tekjutapið bætt? Ætla má að almennur borgari sem vinnur hjá hinu opinbera, hvort sem það er á vegum sveitarfélags eða ríkisins haldi launum sínum þar, þó svo að hann sé kvaddur til starfa á vegum almannavarna. Það er ekki á vísan að róa ef viðkomandi er í einkageiranum. Hann gæti verið launalaus með öllu. Það er ekki hægt að vísa til góðmennsku launagreiðenda um að viðkomandi haldi óskertum launum í allt öðru hlutverki heldur en hann réð sig til. Því þarf að setja inn ákvæði um að þeir sem kvaddir eru til starfa fái laun fyrir starf sitt. Síðasta málsgrein 44. greinar tekur af öll tvímæli um að þeir sem kvaddir hafa verið til starfa í þágu almannavarna eigi rétt á bótum ef þeir verði fyrir meiðslum eða tjóni á námskeiði eða æfingu. Það er vel. Eftir stendur ef almennur borgari sem kvaddur hefur verið til starfa á vegum almannavarna, er að vinna í þágu almannavarna á hættustund, er viðkomandi ekki með neinn bótarétt ef hann verður fyrir meiðslum eða tjóni. Allavega er það ekki tekið fram. Það þarf að vera algjörlega á hreinu að almennir borgarar eru vel tryggðir meðan þeir vinna í þágu almannavarna, því ætla má það geti verið töluvert hættulegra en dagleg störf viðkomandi.

  • #4Elinóra Inga Sigurðardóttir
    Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, kveður á um borgaralega skyldu allra Íslendinga á aldrinum 18–65 ára til að mæta til þjónustu við ríkislögreglustjóra án endurgjalds þegar hættustund ríður á. Þar með fellur niður ferðafrelsi, atvinnufrelsi og grundvallarréttindi. Nauðungarvinna verður lögboðin, með refsiábyrgð við brot. Slíkt frumvarp brýtur beinlínis gegn 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands: „Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.“ Ég vil að Ísland verði áfram fullvalda, herlaust, hlutlaust og friðelskandi land. Ég mótmæli því að afkomendur mín… Lesa alla

    Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, kveður á um borgaralega skyldu allra Íslendinga á aldrinum 18–65 ára til að mæta til þjónustu við ríkislögreglustjóra án endurgjalds þegar hættustund ríður á. Þar með fellur niður ferðafrelsi, atvinnufrelsi og grundvallarréttindi. Nauðungarvinna verður lögboðin, með refsiábyrgð við brot. Slíkt frumvarp brýtur beinlínis gegn 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands: „Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.“ Ég vil að Ísland verði áfram fullvalda, herlaust, hlutlaust og friðelskandi land. Ég mótmæli því að afkomendur mínir verði nauðbeygðir sendir í her, sem í þessu frumvarpi er sett undir falskt flagg "almannavarna"

  • #5Guðmundur Benediktsson

    Mótmæli harðlega.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    40 ræður · 2 klst. 45 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 10. desember 2025
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
396Stjórnarfrumvarp21. nóv. 2025Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur25. nóvember 2025 kl. 20:06
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd25. nóvember 2025 kl. 20:06
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

40 ræður · 2 klst. 45 mín
  • 1. umræða: 40 ræður · 8 ræðumenn · 2 klst. 45 mín

Umsagnir og erindi

33 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 26. nóv. 2025, frestur 10. des. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Dýraverndarsamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Elías PéturssonumsögnOpna PDF
GrindavíkurbærumsögnOpna PDF
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisinsumsögnOpna PDF
Örugg verkfræðistofa ehf.umsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
HS Veitur hf.umsögnOpna PDF
Barnaheill og UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Jón Friðrik BjartmarzumsögnOpna PDF
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Neyðarlínan ohf.umsögnOpna PDF
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystraumsögnOpna PDF
Veitur ohf.umsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Kristján SturlusonumsögnOpna PDF
Guðrún Alda HarðardóttirumsögnOpna PDF
Norðurorka hf.umsögnOpna PDF
Embætti landlæknisumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisinsumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Isavia ohf.umsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Húsnæðis- og mannvirkjastofnunumsögnOpna PDF
Slysavarnafélagið LandsbjörgumsögnOpna PDF
Landhelgisgæsla ÍslandsumsögnOpna PDF
RíkislögreglustjóriumsögnOpna PDF
MatvælastofnunumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.