Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 171. mál

Opinber fjármál

Stöðugleikaregla o.fl.

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 5. júl. 2025

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að setja skorður við útgjaldavexti ríkissjóðs, herða kröfur um skuldaþróun og aðlaga hlutverk fjármálaráðs að hinu nýja regluverki.

Lagt fram af Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 5. júl. 2025 greiddu 30 atkvæði með og 10 á móti, 2 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
14. mars 2025
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
7
Umræða í þingsal
80 ræður · 3 klst. 52 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. jan. 2026

Markmiðið

Að setja skorður við útgjaldavexti ríkissjóðs, herða kröfur um skuldaþróun og aðlaga hlutverk fjármálaráðs að hinu nýja regluverki.

Hvað breytist

Lagt er til að stöðugleikaregla komi í stað afkomureglu. Samkvæmt henni mega undirliggjandi útgjöld A1-hluta ríkissjóðs (þ.e. þess hluta ríkisrekstrarins sem einkum er fjármagnaður með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum) vaxa að hámarki um 2% á ári að raunvirði með tilteknum undanþágum, m.a. vegna fjárfestinga, vaxtagjalda og framlaga til Atvinnuleysistryggingasjóðs og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Jafnframt er lagt til að skuldalækkunarregla falli brott og að stjórnvöld setji fram skýra skuldaþróunaráætlun þegar skuldir eru umfram viðmið; útgjaldavöxtur umfram 2% skal fjármagnaður með tekjuaukandi aðgerðum og ef ráðstafanir draga úr tekjuöflun minnkar svigrúm til útgjaldaukningar að sama skapi. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að aðlaga tiltekin stefnumið í fjármálaáætlun ef efnahagsforsendur breytast verulega enda sé það rökstutt og forsendur birtar. Loks er gert ráð fyrir að hlutverk fjármálaráðs verði uppfært til samræmis, m.a. með mati á samræmi áætlana við stöðugleikareglu og auknu hlutverki við vöktun og greiningu á þróun framleiðni.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að breytingar á fjármálareglum auki stöðugleika og trúverðugleika ríkisfjármála, sem til lengri tíma litið styður við lægri verðbólgu, lægri vexti og bætt lífskjör. Gert er ráð fyrir að útvíkkað hlutverk fjármálaráðs eigi ekki að hafa í för með sér teljandi útgjaldaaukningu og að slíkt rúmist innan fjárheimilda.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Budgetlov (Budgetloven) LOV nr 547 af 18/06/2012.

Finnland

Lag om sättande i kraft av de bestämmelser som hör till området för lagstiftningen i fördraget om stabilitet, samordning och styrning inom Ekonomiska och monetära unionen och om tillämpning av fördraget samt om kraven på de fleråriga ramarna för de offentliga finanserna 869/2012.

Svíþjóð

Budgetlag (2011:203).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Dagur B. Eggertsson

Lokaatkvæðagreiðsla
5. júl. 2025
Samþykkt30 með · 10 á móti · 2 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Opinber fjármál“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • Sf13–0
  • S0–7
  • V9–0
  • Flf8–0
  • M0–0 · 2 hjá
  • F0–3
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Fjárlaganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 2. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Hagstofa Íslands, Samtök atvinnulífsins, Seðlabanki Íslands, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
3 klst. 52 mín · 80 ræður
16 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að breytingar á fjármálareglum auki stöðugleika og trúverðugleika ríkisfjármála, sem til lengri tíma litið styður við lægri verðbólgu, lægri vexti og bætt lífskjör. Gert er ráð fyrir að útvíkkað hlutverk fjármálaráðs eigi ekki að hafa í för með sér teljandi útgjaldaaukningu og að slíkt rúmist innan fjárheimilda.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 5. júlí 2025: 30 með, 10 á móti, 2 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

27 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti6 tóku til máls

4 aðrir þingmenn greiddu atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

2 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna7 tóku til máls

Sýna 1 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-42/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. feb. 2025 – 27. feb. 2025· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 (stöðugleikaregla o.fl.)

Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 (stöðugleikaregla o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-42/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. mars 2025)

Tvær umsagnir bárust, annars vegar frá BSRB og hins vegar sameiginleg umsögn frá Viðskiptaráði, Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Við frumvarpsgerð var horft til umsagna og reynt að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem þar komu fram.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    19 ræður · 54 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    41 ræða · 2 klst. 18 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 19 með, 33 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 19 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 19 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 19 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 19 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 19 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  16. Þingskjal
  17. Umræða
    3. umræða
    20 ræður · 40 mín
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 30 með, 10 á móti
  19. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
183Stjórnarfrumvarp14. mar. 2025Daði Már KristóferssonLesaPDF
704Nál. með brtt.12. jún. 2025Ragnar Þór Ingólfsson, Dagur B. Eggertsson +3LesaPDF
708Nál. með frávt.13. jún. 2025Stefán Vagn Stefánsson, Guðlaugur Þór Þórðarson +2LesaPDF
767Frumvarp eftir 2. umræðu20. jún. 2025—LesaPDF
832Lög í heild5. júl. 2025—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

10 alls · 7 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur17. mars 2025 kl. 17:09
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ fjárlaganefnd17. mars 2025 kl. 17:09
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Fellt20. júní 2025 kl. 11:57
    Atkvæðagreiðsla í málinu „Opinber fjármál“: till. um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar á.
    • SfSamfylkingin:0 með · 15 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:8 með · 0 á móti
    • VViðreisn:0 með · 10 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 8 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
  • Samþykkt20. júní 2025 kl. 11:58
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Opinber fjármál“.
    1
    • SfSamfylkingin:15 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 8 á móti
    • VViðreisn:9 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 5 á móti
  • Samþykkt20. júní 2025 kl. 11:58
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber fjármál“.
    1. gr., svo breytt,
    • SfSamfylkingin:15 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 8 á móti
    • VViðreisn:9 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 5 á móti
  • Samþykkt20. júní 2025 kl. 12:00
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Opinber fjármál“.
    2
    • SfSamfylkingin:15 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 8 á móti
    • VViðreisn:9 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 5 á móti
  • Samþykkt20. júní 2025 kl. 12:03
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber fjármál“.
    2. gr., svo breytt,
    • SfSamfylkingin:15 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 8 á móti
    • VViðreisn:9 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 5 á móti
  • Samþykkt20. júní 2025 kl. 12:11
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber fjármál“.
    3.--5. gr.
    • SfSamfylkingin:15 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 8 á móti
    • VViðreisn:9 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 5 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur20. júní 2025 kl. 12:12
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt5. júlí 2025 kl. 12:22
    Að samþykkja frumvarpið „Opinber fjármál“ sem lög.
    • SfSamfylkingin:13 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 7 á móti
    • VViðreisn:9 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 3 á móti

Hverjir tóku til máls

80 ræður · 3 klst. 52 mín
  • 1. umræða: 19 ræður · 4 ræðumenn · 54 mín
  • 2. umræða: 41 ræða · 11 ræðumenn · 2 klst. 18 mín
  • 3. umræða: 20 ræður · 9 ræðumenn · 40 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur151 klst. 10 mín
Stefán Vagn StefánssonFramsóknarflokkur829 mín
Daði Már KristóferssonUtan þingflokka1026 mín
Ragnar Þór IngólfssonFlokkur fólksins923 mín
Dagur B. EggertssonSamfylkingin716 mín
Sigurður Ingi JóhannssonFramsóknarflokkur513 mín
Njáll Trausti FriðbertssonSjálfstæðisflokkur611 mín
Halla Hrund LogadóttirFramsóknarflokkur210 mín
Þorgrímur SigmundssonMiðflokkurinn210 mín
Hildur SverrisdóttirSjálfstæðisflokkur35 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur34 mín
Rósa GuðbjartsdóttirSjálfstæðisflokkur24 mín
Guðmundur Ari SigurjónssonSamfylkingin24 mín
Guðrún HafsteinsdóttirSjálfstæðisflokkur23 mín
Kristrún FrostadóttirSamfylkingin22 mín
Nanna Margrét GunnlaugsdóttirMiðflokkurinn22 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Fjárlaganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 20. mar. 2025, frestur 2. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Hagstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)umsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF
Vinstrihreyfingin - grænt framboðumsögnOpna PDF
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðkynningOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.