Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra)
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-184/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. október 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. desember 2024)
Alls bárust átta umsagnir um frumvarpið. Ráðuneytið þakkar fyrir veittar umsagnir. Frumvarpið verður ekki lagt fram á 155. löggjafarþingi þar sem þingfundum hefur verið frestað og þinginu lokið.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Björg Maggý Pétursdóttir
Kópavogur, 20.9.2024 Varðar: umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi Undirrituð er þakklát fyrir endurskoðun þessara mikilvægu laga með það að leiðarljósi að verið sé að bæta stöðu foreldra og maka á erfiðum tímum. Mikilvægar breytingar liggja í þessum drögum, t.d. lengin sorgarleyfis þeirra sem missa barn á meðgöngu. Samkvæmt lögunum um Sorgarleyfi er vísað í að greiðslur í sorgarleyfi sé til að koma til móts við tekjutap foreldra og markmiðið er að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis (samkv. 1. og 2.gr.). Einnig er tiltekið… Lesa alla
Kópavogur, 20.9.2024 Varðar: umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi Undirrituð er þakklát fyrir endurskoðun þessara mikilvægu laga með það að leiðarljósi að verið sé að bæta stöðu foreldra og maka á erfiðum tímum. Mikilvægar breytingar liggja í þessum drögum, t.d. lengin sorgarleyfis þeirra sem missa barn á meðgöngu. Samkvæmt lögunum um Sorgarleyfi er vísað í að greiðslur í sorgarleyfi sé til að koma til móts við tekjutap foreldra og markmiðið er að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis (samkv. 1. og 2.gr.). Einnig er tiltekið í lögum um sorgarleyfi að lögin séu ætluð til að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Í lögum um fæðingarorlof kemur fram að greiðslur fæðingarorlofs falli niður sama dag barn fellur frá. Mikið ósamræmi er á útreikningum milli sorgarleyfis og fæðingarorlofs og getur fólk lent í því að töluverð lækkun verði á greiðslum ef fólk missir barn meðan á fæðingarorlofi stendur þar sem tekið er mið á útreikningi úr frá 80% meðaltekna samkvæmt skrám skattayfirvalda miðað við 6 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveim mánuðum fyrir dánardag barns. En við útreikning vegna fæðingarorlofs samkvæmt vinnumálastofnun er tekið mið af 80% af meðaltekjum miðavið 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Því lækka foreldrar umtalsvert í greiðslum við það eitt að færast úr fæðingarorlofi yfir í sorgarleyfi. Foreldrar ættu í raun að halda sömu greiðslum án þess að þurfa að óska eftir því sérstaklega þar sem fólk í þessari stöðu hefur oft ekki burði í sorginni til að vinna í umsóknum. Einnig mætti bæta inn í lögin rétt til greiðslna vegna sálfræðiviðtala eða annarskonar aðstoðar til að vinna sig úr sorginni með það að leiðarljósi eins og sagt er í lögunum að fólki eigi farsæla endurkomu á vinnumarkaðinn og til að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Virðingafyllst, Björg Maggý Pétursdóttir
- #2Starfsgreinasamband Íslands
Þann 1. janúar 2023 var stigið mikilvægt skref þegar lög um sorgarleyfi tóku gildi og foreldrum tryggðar greiðslur til að koma til móts við tekjutap í kjölfar barnsmissis. Með þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér er betur komið til móts við þá foreldra sem missa maka og þurfa svigrúm til sorgarúrvinnslu, bæði sinnar eigin og barna sinna. Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við umrætt frumvarp sem mun, nái það fram að ganga, styðja betur við foreldra sem upplifa makamissi og þurfa að hverfa tímabundið af vinnumarkaði, draga úr áhyggjum þeirra af framfærslu og auðvelda e… Lesa alla
Þann 1. janúar 2023 var stigið mikilvægt skref þegar lög um sorgarleyfi tóku gildi og foreldrum tryggðar greiðslur til að koma til móts við tekjutap í kjölfar barnsmissis. Með þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér er betur komið til móts við þá foreldra sem missa maka og þurfa svigrúm til sorgarúrvinnslu, bæði sinnar eigin og barna sinna. Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við umrætt frumvarp sem mun, nái það fram að ganga, styðja betur við foreldra sem upplifa makamissi og þurfa að hverfa tímabundið af vinnumarkaði, draga úr áhyggjum þeirra af framfærslu og auðvelda endurkomu þeirra á vinnumarkað þegar að því kemur.
- #3Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.
- #4Birta Sif Arnardóttir
Umsögn Félags atvinnurekenda er í viðhengi.
- #5Sorgarmiðstöð, félagasamtök
Umsögn Sorgarmiðstöðvar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.