Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 938. mál

Opinber skjalasöfn

Gjaldskrá, rafræn skil

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 22. jún. 2024

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að skýra gjaldtökuheimildir opinberra skjalasafna, stuðla að jafnræði sveitarfélaga og stíga skref í þá átt að skil afhendingarskyldra skjala til opinberra skjalasafna verði að meginreglu rafræn.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 22. jún. 2024 greiddu 56 atkvæði með og 0 á móti, 5 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. apríl 2024
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
3 ræður · 15 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. júl. 2025

Markmiðið

Að skýra gjaldtökuheimildir opinberra skjalasafna, stuðla að jafnræði sveitarfélaga og stíga skref í þá átt að skil afhendingarskyldra skjala til opinberra skjalasafna verði að meginreglu rafræn.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði gjaldskrárheimild fyrir vissa þjónustu Þjóðskjalasafns við sveitarfélög, s.s. ráðgjöf um skjalahald, eftirlit með því og miðlun gagna. Jafnframt er lagt til að lögfest verði sú meginregla að gögn skuli afhent opinberu skjalasafni á því formi sem þau urðu til en í nútímastjórnsýslu verður yfirgnæfandi meiri hluti gagna til á rafrænu formi. Þá er einnig kveðið á um heimild til að innheimta gjald fyrir kostnað sem fellur til vegna vinnu sérfræðinga Þjóðskjalasafns við yfirfærslu safnkosts og verkefna héraðsskjalasafns sem ákveðið hefur verið að leggja niður.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af arkivloven (arkivloven) LBK nr 1201 af 28/09/2016.

Finnland

Arkivlag 831/1994.

Noregur

Lov om arkiv [arkivlova] LOV-1992-12-04-126.

Svíþjóð

Arkivlag (1990:782).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
22. jún. 2024
Samþykkt56 með · 0 á móti · 5 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Opinber skjalasöfn“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • F13–0
  • 238–0
  • 430–0 · 5 hjá
  • Flf6–0
  • Sf6–0
  • V5–0
  • M2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 17. maí 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Sigurður Gylfi Magnússon, Reykjavíkurborg, Hrafn Sveinbjarnarson, Félag héraðsskjalavarða á Íslandi o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
15 mín · 3 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 22. júní 2024: 56 með, 0 á móti, 5 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

53 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

5 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-55/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2024 – 7. mar. 2024· 12 umsagnir

Breyting á lögum um opinber skjalasöfn

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um opinber skjalasöfn sem varða gjaldtöku og gjaldskrár opinberra skjalasafna. Þá er lagt til að afhending skjala verði að meginreglu rafræn.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-55/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. mars 2024)

Gagnlegar ábendingar komu fram í umsögnum sem urðu til þess að breytingar voru gerðar á frumvarpinu. Þetta átti t.a.m. við um ákvæði um rafræn skil, upptalningu kostnaðarliða sem gjaldskrár mega taka mið af og upptalningu þátta sem héraðsskjalasöfnum er heimilt að innheimta gjald fyrir. Aðrar ábendingar lutu ekki að efni frumvarpsins heldur að lagaumhverfi opinberra skjalasafna í heild og voru ekki þess eðlis að þær gætu leitt til breytinga á þessu frumvarpi. Ráðuneytið þakkar umsagnaraðilum framlagið, sem varð til þess að bæta gæði frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Skagafjörður
    Á 86. fundi byggaðrráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 28. febrúar 2024 var eftirfarandi bókað um mál 55/2024 til samráðs - Breyting á lögum um opinber skjalasöfn. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar þeim breytingum á lögum um opinber skjalasöfn sem eru hér til kynningar. Byggðarráð telur að þessar breytingar séu jákvæð skref í átt að auknu jafnræði sveitarfélaga hvað varðar rekstur á opinberum skjalasöfnum. Tvö atriði mættu þó vera skýrari í lögunum. Í fyrsta lagi segir í 6. grein að gjaldskrár „... opinberra skjalasafna skulu miða við þann kostnað sem hlýst í rekstri skjalasafns af varðveislu… Lesa alla

    Á 86. fundi byggaðrráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 28. febrúar 2024 var eftirfarandi bókað um mál 55/2024 til samráðs - Breyting á lögum um opinber skjalasöfn. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar þeim breytingum á lögum um opinber skjalasöfn sem eru hér til kynningar. Byggðarráð telur að þessar breytingar séu jákvæð skref í átt að auknu jafnræði sveitarfélaga hvað varðar rekstur á opinberum skjalasöfnum. Tvö atriði mættu þó vera skýrari í lögunum. Í fyrsta lagi segir í 6. grein að gjaldskrár „... opinberra skjalasafna skulu miða við þann kostnað sem hlýst í rekstri skjalasafns af varðveislu skjala með hliðsjón af eðli þeirra og magni. Gjöld skulu ekki vera hærri en raunkostnaður af þeim þáttum sem þeim er ætlað að mæta að teknu tilliti til launa starfsfólks sem sinnir þjónustunni, sérstaks efniskostnaðar vegna þjónustunnar og eðlilegra afskrifta af þeim búnaði sem notaður er við veitingu þjónustunnar“. Hér þyrfti einnig að telja til kostnað vegna húsnæðis en rekstur varðveislurýmis er einn af stærstu kostnaðarliðum í rekstri skjalasafna. Í öðru lagi þarf að skýra hvað átt er við með þeirri meginreglu að „gögnum skuli skilað á því sniði sem þau urðu til á“. Gera má ráð fyrir að hér sé átt við að gögn sem verði til rafrænt sé skilað inn rafrænt og þá eftir þeim reglum sem Þjóðskjalasafn Íslands hefur sett um þau skil, þ.e. í svokölluðum vörsluútgáfum. Það er þó einnig hægt að skilja þetta ákvæði svo að hægt sé að skila inn gögnum í margs konar rafrænu sniði. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Ísafjarðarbær

    Málið var tekið fyrir á 1275. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, þann 4. mars 2024, og var bæjarritara falið að senda inn umsögn byggða á meðfylgjandi minnisblaði, dags. 1. mars 2024.

  • #3Sigurður Gylfi Magnússon

    Sjá viðhengi

  • #4Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. sambandsins, Valgerður Rún

  • #5Stefán Bogi Sveinsson
    Umsögn þessi er veitt fyrir hönd Félags héraðsskjalavarða á Íslandi og í umboði stjórnar félagsins. ----------------------------------------------- Í greinargerð með þeim frumvarpsdrögum sem nú liggja fyrir er í 5. tl. vísað til annarrar greinargerðar, þeirrar sem fylgdi frumvarpi því sem síðar varð að gildandi lögum um opinber skjalasöfn. Þar er lagt upp með það markmið að tryggja jafnræði sveitarfélaga sem annars vegar reka eða eru aðilar að rekstri héraðsskjalasafns og hins vegar þeirra sem gera það ekki og eru því skilaskyld til Þjóðskjalasafns Íslands. Í fyrirliggjandi greinargerð er lö… Lesa alla

    Umsögn þessi er veitt fyrir hönd Félags héraðsskjalavarða á Íslandi og í umboði stjórnar félagsins. ----------------------------------------------- Í greinargerð með þeim frumvarpsdrögum sem nú liggja fyrir er í 5. tl. vísað til annarrar greinargerðar, þeirrar sem fylgdi frumvarpi því sem síðar varð að gildandi lögum um opinber skjalasöfn. Þar er lagt upp með það markmið að tryggja jafnræði sveitarfélaga sem annars vegar reka eða eru aðilar að rekstri héraðsskjalasafns og hins vegar þeirra sem gera það ekki og eru því skilaskyld til Þjóðskjalasafns Íslands. Í fyrirliggjandi greinargerð er lögð áhersla á að því sé ætlað að styðja enn frekar við þetta markmið. Félag héraðsskjalavarða á Íslandi tekur heilshugar undir mikilvægi þess að tryggja jafnræði sveitarfélaga hvað þennan þátt varðar og að sveitarfélögum sem ákveða að sinna langtímavörslu skjala af metnaði, með rekstri eigin héraðsskjalasafns eða aðkomu að slíkum rekstri, sé ekki refsað fyrir það. Fyrir þessu eru einföld sanngirnisrök, en að auki er það mat félagsins að tilvist héraðsskjalasafna um allt land sé gríðarlega mikilvægur þáttur í varðveislu gagna sem geta bæði verið mikilvæg fyrir persónulega hagsmuni og réttaröryggi íbúa landsins, og ekki síður fyrir skrásetningu sögu lands og þjóðar. Félagið vill þó ítreka það sem áður hefur komið fram af þess hálfu, að til að ná til fulls markmiðum um jafnræði og tryggja sem öruggasta skjalavörslu um land allt, sé skilvirkast og skynsamlegast að lögfesta skyldu allra sveitarfélaga til að vera aðili að héraðsskjalasafni. Þannig er skjalavarslan líka í bestu samræmi við þá stjórnarskrárbundnu meginreglu að landinu er skipt upp í sveitarfélög sem skulu sjálf ráða málefnum sínum. Félagið hefur áður sent menningar- og viðskiptaráðherra ítarlegar tillögur um hvernig slík löggjöf gæti litið út og röksemdir fyrir henni. Telur félagið að ráðuneytið ætti, fremur en að leggja fyrirliggjandi frumvarpsdrög fyrir Alþingi, að byggja nýtt frumvarp til breytinga á lögum um opinber skjalasöfn á þeim tillögum sem félagið hefur lagt fram, og eru meðfylgjandi umsögn þessari. Á fjölmennum félagsfundi Félags héraðsskjalavarða á Ísland nú í vikunni varð það niðurstaðan að leggja megináherslu á framangreint, en jafnframt var farið efnislega yfir ákvæði frumvarpsdraganna og fram komu ýmsar ábendingar og athugasemdir. Verður tæpt á nokkrum þeirra hér, en jafnframt munu einstakir héraðsskjalverðir, hver fyrir sig eða nokkrir saman, senda inn athugasemdir varðandi einstaka þætti. Félagið vill benda á að ákvæðið í a-lið 3. gr. þurfi að skýra betur. Sé greinargerðin lesin virðist ljóst að markmið ákvæðisins er að lögfesta þá meginreglu að gögn sem eru rafræn í skjalasöfnum skilaskyldra aðila, skuli afhenda til rafrænnar langtímavörslu. Að sama skapi eigi að jafnaði að afhenda pappírsskjöl á því formi. Að mati félagsins er orðalag ákvæðisins ekki fyllilega skýrt og gæti skapað misskilning í framkvæmd. Þannig mætti líta svo á að orðið „snið“ eigi við um skráargerð rafrænna skjala (.doc, .pdf o.s.frv.). Í dag er skýrt kveðið á um að skjalamyndara ber að skila gögnum í svokallaðri vörsluútgáfu til opinbers skjalasafns. Þetta er sambærilegt við það að skila ber pappírsskjölum frágengnum með ákveðnum hætti. Til þess að ekki skapist sú staða að skjalamyndarar geti vísað til þessa ákvæðis í lögum um opinber skjalasöfn og hafnað því að skila rafrænum skjölum öðruvísi en í nákvæmlega þeirri mynd sem þau eru geymd hjá viðkomandi skjalamyndara, þarf að skilgreina betur hvað átt er við með orðinu „snið“. Varðandi sama ákvæði bendir félagið einnig á að rétt getur verið að skerpa á því hvað átt er við með orðalaginu „…sem skjölin urðu til á.“ Það er orðið vel þekkt verklag að erindi sem berast opinberum stofnunum á pappír eru strax við móttöku skönnuð inn í rafræn skjalavörslukerfi. Í því tilfelli vaknar sú spurning hvort varðveita beri upprunaleg eintök á pappír í 30 ár, meðan að rafrænt afrit er vistað í skjalakerfi og afhent til langtímavarðveislu eftir fimm ár. Varðandi 5. gr. vill félagið benda á að ástæða getur verið til að gera greinarmun á því hvort um er að ræða einstakling sem kallar eftir leit og afriti af gögnum sem varða viðkomandi sjálfan, jafnvel viðkvæmar persónuupplýsingar, eða hvort um er að ræða einstakling eða fyrirtæki sem er að leita að gögnum til hagsmunagæslu, rannsókna, eða hreinlega af áhuga á viðfangsefninu. Í fyrra tilfellinu verður að líta svo á að réttur viðkomandi sé mjög ríkur til að nálgast upplýsingarnar sem um ræðir og að fara verði varlega í að koma upp fjárhagslegum hindrunum sem gætu leitt til mismununar einstaklinga á grundvelli efnahagslegrar stöðu þeirra. Að lokum vill félagið benda á að í síðustu mgr. 6. gr. eru taldir upp nokkrir þættir sem fallið geta undir raunkostnað við varðveislu skjala. Þar er ekki minnst á húsnæðiskostnað, sem verður þó að teljast einn af allra mikilvægustu kostnaðarþáttunum, og telur félagið ástæðu til að úr því verði bætt verði frumvarpið lagt fyrir Alþingi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 4 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 17. maí 2024
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 10 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Þingskjal
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  14. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1385Stjórnarfrumvarp5. apr. 2024Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF
1891Nál. með brtt.13. jún. 2024Bryndís Haraldsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir +4LesaPDF
2005Frumvarp eftir 2. umræðu21. jún. 2024—LesaPDF
2084Lög í heild22. jún. 2024—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur30. apríl 2024 kl. 17:56
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd30. apríl 2024 kl. 17:56
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 12:58
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber skjalasöfn“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 12:58
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Opinber skjalasöfn“.
    1--2
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 12:59
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber skjalasöfn“.
    2.--9. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur21. júní 2024 kl. 12:59
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt22. júní 2024 kl. 12:17
    Að samþykkja frumvarpið „Opinber skjalasöfn“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

3 ræður · 15 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 4 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 10 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 3. maí 2024, frestur 17. maí 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Menningar- og viðskiptaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Sigurður Gylfi MagnússonumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Hrafn SveinbjarnarsonumsögnOpna PDF
Félag héraðsskjalavarða á ÍslandiumsögnOpna PDF
Sögufélag KópavogsumsögnOpna PDF
Sögufélag KópavogsumsögnOpna PDF
Héraðsskjalasafn ÁrnesingaumsögnOpna PDF
Þjóðskjalasafn ÍslandsumsögnOpna PDF
Árni Pétur ÁrnasonumsögnOpna PDF

Tengd mál

  • 246. mál (143. þing, ekki í Alviti enn)skylt

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.