Breyting á lögum um listamannalaun
Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um listamannalaun sem miðar að því að stofna þrjá nýja launasjóði og fjölga þeim mánaðarlegu starfslaunum sem koma til úthlutunar.
Ferill í Samráðsgátt
- Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2024
- Birt í Samráðsgátt (S-86/2024)
- Umsagnarfresti lýkur · 55 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (55)
- #1Tómas Rólant Hansson
Þetta frumvarp er með öllu ólíðandi. Á meðan innviðir grotna niður í landinu, (sbr. viðhald vega, heilbrigðiskerfið og svo mætti lengi telja) er verið að tala um að auka útgjöld til málaflokks sem siðferðislega á engan rétt á sér. Nær væri að draga úr þessu óþarfa. Ég mótmæli svona bruðli með almannafé.
- #2Sigurður Egill Sigurðsson
Það er með öllu ólíðandi að fjármagna list með þessum hætti. Aukning er líka hrikaleg hugmynd á þessum tímum þegar ríkið þarf að sýna aðhald. Öll gæluverkefni og þar með talið þetta á að fara í bið meðan verðbólga, skattar og vextir eru í hæstu hæðum
- #3Hanna Þóra Benediktsdóttir
Ég ætla nú bara rétt að vona að þetta frumvarp nái ekki fram að ganga ég er svo gjörsamlega furðulostin.Ert þú Lilja gjörsamlega veruleikafirrt um það hvernig fólki líður í þjóðfélaginu margir ná ekki endum saman á algjörum sultarlaunum en nei þá ætlar þú að tvöfalda eða þrefalda laun listamanna sem gætu alveg unnið og sinnt sínum áhugamálum . Af hverju vilt þú ekki hjálpa frekar fólki sem þarf á því að halda heldur en að spreða peningum svona og bara svo þú vitir það að þó þú sért ráðherra þá getur þú ekki farið svona með peninga almennings.þetta er algjör óhæfa.Ég held þú ættir að horfa betu… Lesa alla
Ég ætla nú bara rétt að vona að þetta frumvarp nái ekki fram að ganga ég er svo gjörsamlega furðulostin.Ert þú Lilja gjörsamlega veruleikafirrt um það hvernig fólki líður í þjóðfélaginu margir ná ekki endum saman á algjörum sultarlaunum en nei þá ætlar þú að tvöfalda eða þrefalda laun listamanna sem gætu alveg unnið og sinnt sínum áhugamálum . Af hverju vilt þú ekki hjálpa frekar fólki sem þarf á því að halda heldur en að spreða peningum svona og bara svo þú vitir það að þó þú sért ráðherra þá getur þú ekki farið svona með peninga almennings.þetta er algjör óhæfa.Ég held þú ættir að horfa betur í kringum þig og sjá hvernig landið liggur með von um að þú sjáir vitleysuna í þér.
- #4Hallgrímur Helgason
Ísland vill ekki verða hreinræktuð fiskistöð og ferðamannanýlenda sem skapar ekkert sjálft og leggur ekkert til heimsmenningarinnar, land sem rúllar bara kúltúrlaust áfram á máltíðum, bílakaupum og enska boltanum. Við viljum skilja eitthvað eftir okkur. Að lokinni misheppnaðri útrás og köflóttu gengi í íþróttum hefur á liðnum árum myndast hér sá sannleikur að Ísland fer lengst á listinni. Á undanförnum árum hefur menningin nefnilega haldið merki okkar hvað hæst á lofti, allt frá tónleikasigrum Laufeyjar, Daða Freys og Víkings Heiðars, til Óskarsverðlauna Hildar Guðnadóttur og Norðurlandaverðl… Lesa alla
Ísland vill ekki verða hreinræktuð fiskistöð og ferðamannanýlenda sem skapar ekkert sjálft og leggur ekkert til heimsmenningarinnar, land sem rúllar bara kúltúrlaust áfram á máltíðum, bílakaupum og enska boltanum. Við viljum skilja eitthvað eftir okkur. Að lokinni misheppnaðri útrás og köflóttu gengi í íþróttum hefur á liðnum árum myndast hér sá sannleikur að Ísland fer lengst á listinni. Á undanförnum árum hefur menningin nefnilega haldið merki okkar hvað hæst á lofti, allt frá tónleikasigrum Laufeyjar, Daða Freys og Víkings Heiðars, til Óskarsverðlauna Hildar Guðnadóttur og Norðurlandaverðlauna Ránar Flygenring og Benedikts Erlingssonar, að ógleymdum bóksöluafrekum Auðar Övu, Ragnars Jónassonar, Arnaldar og Jóns Kalmans. Í síðastliðnum janúarmánuði komu út tíu ísenskar skáldsögur í Frakklandi. Atgangurinn var svo mikill að frönsku blöðin töluðu um íslenska bylgju. Má Ísland ekki vera stolt af því? Þessir toppar eru þó ekki allt það sem skiptir máli, akurinn verður að vera breiður og blómlegur, hinn svokallaði lággróður verður líka að vera til staðar. Sérhver bók sem skrifuð er skiptir máli, barnabækur ekki síst. Ef ein þeirra nær að fanga ungan huga sem býr við bága æsku í blokk í Kórahverfi er það líka afrek sem skiptir máli. Eitt lítið lag með snjöllum texta getur leyst heilan listferil úr læðingi. Við verðum að hugsa menninguna á léréttan hátt líka, ekki aðeins lóðréttan. Og svonalagað gerist ekki af sjálfu sér. Svonalagað sprettur úr farvegi sem búinn er til, sem ríkið fjármagnar. List er ekki áhugamál. Slíkt er algengur misskilningur. Þetta er ekkert hobbý. Og hobbývinnubrögð duga aldrei til. „Aldrei hefur verið saman svo ómerkileg bók, að hún hafi ekki kostað meira andlegt erfiði en stjórn heillar togaraútgerðar í tíu ár“ sagði Þórbergur Þórðarson. Enginn skrifar skáldsögu án þess að sitja við átta tíma á dag í tvö ár hið minnsta, segi ég. Enginn leggur harðar að sér og enginn vinnur lengri vinnudag en listamenn sem sinna köllun sinni af krafti. Jafn lítið land og Ísland getur hinsvegar aldrei haldið uppi markaði fyrir list, sem listamenn okkar geta lifað á. Ríkið verður að grípa inn. Starfslaun listamanna eru rótgróin og margsönnuð aðferð til að halda uppi öflugu listalífi í einu landi. Samkepppnin um þau er alltaf hörð, fólk þarf að sýna fram á árangur og markmið. Að hljóta slík laun er því alltaf heiður. Og þegar sagt er frá þessum veruleika íslenskra listamanna erlendis ratar slíkt einatt í fyrirsagnir. Ríkið ræður okkur í vinnu við að skrifa bækur, mála myndir, hugsa innsetningar, semja tónverk, skapa danssýningar, skrifa kvikmyndir. Höfuð munurinn á þeirri vinnu og öðrum störfum á vegum ríkisins, svosem hjúkrun og kennslu, er að listafólkið þarf að sækja aftur um hana á hverju ári. Að öðru leyti er þetta bara eins og hver önnur vinna. Bestu samfélögin leyfa öllum sínum þegnum að blómstra samkvæmt styrk þeirra og hæfileikum. En nú stendur til að stækka kökuna, hugsa stærra í takti við þá fjölgun sem orðið hefur í listageiranum. Staðan er nú sú að 4% landsmanna starfa í skapandi geiranum, 1% fleiri en í sjávarútveginum. Sá síðarnefndi skapar hærri útflutningstekjur en sá fyrrnefndi skapar hin menningarlegu verðmæti sem aldrei verða metin til fjár. Eða hvað kosta Íslendingasögurnar? Hvað kosta portrettin sem Kjarval gerði ungur af bændum á Borgarfirði eystra? Hvað kostar þjóðsöngurinn eða kraftaverkið mikla Heyr himna smiður? Allt eru þetta menningarafurðir sem fáir geta hugsað sér að vera án. Samt sem áður verður heildartalan yfir starfslaunaútgjöld ríkisins aldrei meira en í kringum einn milljarð. Af öllum þeim milljarðatugum sem rúlla í fréttatímum daganna — sem bankarnir skila í arð, sem útgerðin græðir, sem ríkið tapaði á röngum ákvörðunum gærdagsins — erum við bara að tala um einn lítinn milljarð í menningu og listir, fjárhæð sem bæði skilar sér margfalt til baka í ríkulegra samfélagi og verðmætum sem engar upphæðir ná utan um. Gleymum því ekki að aðaltekjulind Parísarborgar í dag er eitt lítið málverk sem er 77 cm á hæð og 53 cm á breidd, málverk sem franski kóngurinn keypti árið 1517 fyrir 200,000 íslenskar að núvirði, og hafði vit á að selja aldrei aftur. Við listamenn fögnum þessu frumvarpi menningarráðherra. Hér er starfslaunamánuðum fjölgað og stofnaðir þrír nýir sjóðir. Nú þegar hin nýja tækni streymis og gervigreindar virðist ætla að ryðja burt mörgum af þeim tekjumöguleikum sem listamenn höfðu þó, ber að hlúa enn betur að ungum sem öldnum sköpurum í myndlist, tónlist, ritlist, leiklist og kvikmyndum. Þetta nýja frumvarp er greinilega liður í því.
- #5Soffía Auður Birgisdóttir
Ég fagna þessum breytingum á lögum um listamannalaun og ekki síst þeim tveimur nýju flokkum sem nú bætast við: Vöxtur og Vegsemd. Þá vil ég minna á að doktor Ágúst Einarsson hagfræðingur hefur fyrir löngu síðan með rannsóknum sínum og útgáfu bóka sýnt fram á hagræn áhrif ritlistar (2014), tónlistar (2004, 2012) og kvikmyndalistar (2011). Listageirinn skilar margfalt til baka því fjármagni sem hann þiggur úr ríkissjóði. Margfeldisáhrifin er mjög fjölbreytileg, meðal annars koma þau fram í auknum ferðamannastraumi til landsins, fyrir utan beinharða peninga í ríkissjóð í formi allkyns skatta og… Lesa alla
Ég fagna þessum breytingum á lögum um listamannalaun og ekki síst þeim tveimur nýju flokkum sem nú bætast við: Vöxtur og Vegsemd. Þá vil ég minna á að doktor Ágúst Einarsson hagfræðingur hefur fyrir löngu síðan með rannsóknum sínum og útgáfu bóka sýnt fram á hagræn áhrif ritlistar (2014), tónlistar (2004, 2012) og kvikmyndalistar (2011). Listageirinn skilar margfalt til baka því fjármagni sem hann þiggur úr ríkissjóði. Margfeldisáhrifin er mjög fjölbreytileg, meðal annars koma þau fram í auknum ferðamannastraumi til landsins, fyrir utan beinharða peninga í ríkissjóð í formi allkyns skatta og gjalda. Þessi einfalda staðreynd ætti því að vera öllum ljós í dag, þótt vert sé að leggja áherslu á að hin "óhagrænu" gildi listarinnar vega margfalt þyngra, til dæmis með að stuðla að andlegri vellíðan þeirra sem kunna að njóta allra þeirra gjafa sem listamenn færa þjóðinni. Fjárfesting í listamönnum er fjárfesting til framtíðar og verk þeirra auka lífsgæði þjóðarinnar og auka orðpor hennar erlendis.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.