Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 937. mál

Listamannalaun

Nýir sjóðir og fjölgun úthlutunarmánaða

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 22. jún. 2024

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að auka veg listsköpunar og bæta hag listamanna.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 22. jún. 2024 greiddu 54 atkvæði með og 1 á móti, 6 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. apríl 2024
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
42 ræður · 2 klst. 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 23. júl. 2025

Markmiðið

Að auka veg listsköpunar og bæta hag listamanna.

Hvað breytist

Lagt er til að stofnaðir verði þrír nýir sjóðir sem listamannalaun verði veitt úr: sjóður kvikmyndahöfunda; Vöxtur, sjóður fyrir listamenn yngri en 35 ára; og Vegsemd, sjóður fyrir listamenn 67 ára og eldri. Gert er ráð fyrir að þeim mánaðarlegu starfslaunum sem koma til úthlutunar árlega verði fjölgað úr 1.600 í 2.670 í áföngum.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir 600 milljóna kr. kostnaðarauka fyrir ríkissjóð fram til ársins 2028.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
22. jún. 2024
Samþykkt54 með · 1 á móti · 6 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Listamannalaun“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • F13–0
  • 238–0
  • 435–0
  • Flf1–0 · 5 hjá
  • Sf6–0
  • V5–0
  • M0–1 · 1 hjá
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 27. maí 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
17 aðilar
Rannís, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Samtök iðnaðarins og Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Bandalag háskólamanna, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 7 mín · 42 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir 600 milljóna kr. kostnaðarauka fyrir ríkissjóð fram til ársins 2028.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 22. júní 2024: 54 með, 1 á móti, 6 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með9 tóku til máls

Sýna 3 í viðbót

45 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti0 tóku til máls

1 annar þingmaður greiddi atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

5 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-86/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 14. mar. 2024 – 21. mar. 2024· 55 umsagnir

Breyting á lögum um listamannalaun

Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um listamannalaun sem miðar að því að stofna þrjá nýja launasjóði og fjölga þeim mánaðarlegu starfslaunum sem koma til úthlutunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2024
  2. Birt í Samráðsgátt (S-86/2024)
  3. Umsagnarfresti lýkur · 55 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (55)
  • #1Tómas Rólant Hansson

    Þetta frumvarp er með öllu ólíðandi. Á meðan innviðir grotna niður í landinu, (sbr. viðhald vega, heilbrigðiskerfið og svo mætti lengi telja) er verið að tala um að auka útgjöld til málaflokks sem siðferðislega á engan rétt á sér. Nær væri að draga úr þessu óþarfa. Ég mótmæli svona bruðli með almannafé.

  • #2Sigurður Egill Sigurðsson

    Það er með öllu ólíðandi að fjármagna list með þessum hætti. Aukning er líka hrikaleg hugmynd á þessum tímum þegar ríkið þarf að sýna aðhald. Öll gæluverkefni og þar með talið þetta á að fara í bið meðan verðbólga, skattar og vextir eru í hæstu hæðum

  • #3Hanna Þóra Benediktsdóttir
    Ég ætla nú bara rétt að vona að þetta frumvarp nái ekki fram að ganga ég er svo gjörsamlega furðulostin.Ert þú Lilja gjörsamlega veruleikafirrt um það hvernig fólki líður í þjóðfélaginu margir ná ekki endum saman á algjörum sultarlaunum en nei þá ætlar þú að tvöfalda eða þrefalda laun listamanna sem gætu alveg unnið og sinnt sínum áhugamálum . Af hverju vilt þú ekki hjálpa frekar fólki sem þarf á því að halda heldur en að spreða peningum svona og bara svo þú vitir það að þó þú sért ráðherra þá getur þú ekki farið svona með peninga almennings.þetta er algjör óhæfa.Ég held þú ættir að horfa betu… Lesa alla

    Ég ætla nú bara rétt að vona að þetta frumvarp nái ekki fram að ganga ég er svo gjörsamlega furðulostin.Ert þú Lilja gjörsamlega veruleikafirrt um það hvernig fólki líður í þjóðfélaginu margir ná ekki endum saman á algjörum sultarlaunum en nei þá ætlar þú að tvöfalda eða þrefalda laun listamanna sem gætu alveg unnið og sinnt sínum áhugamálum . Af hverju vilt þú ekki hjálpa frekar fólki sem þarf á því að halda heldur en að spreða peningum svona og bara svo þú vitir það að þó þú sért ráðherra þá getur þú ekki farið svona með peninga almennings.þetta er algjör óhæfa.Ég held þú ættir að horfa betur í kringum þig og sjá hvernig landið liggur með von um að þú sjáir vitleysuna í þér.

  • #4Hallgrímur Helgason
    Ísland vill ekki verða hreinræktuð fiskistöð og ferðamannanýlenda sem skapar ekkert sjálft og leggur ekkert til heimsmenningarinnar, land sem rúllar bara kúltúrlaust áfram á máltíðum, bílakaupum og enska boltanum. Við viljum skilja eitthvað eftir okkur. Að lokinni misheppnaðri útrás og köflóttu gengi í íþróttum hefur á liðnum árum myndast hér sá sannleikur að Ísland fer lengst á listinni. Á undanförnum árum hefur menningin nefnilega haldið merki okkar hvað hæst á lofti, allt frá tónleikasigrum Laufeyjar, Daða Freys og Víkings Heiðars, til Óskarsverðlauna Hildar Guðnadóttur og Norðurlandaverðl… Lesa alla

    Ísland vill ekki verða hreinræktuð fiskistöð og ferðamannanýlenda sem skapar ekkert sjálft og leggur ekkert til heimsmenningarinnar, land sem rúllar bara kúltúrlaust áfram á máltíðum, bílakaupum og enska boltanum. Við viljum skilja eitthvað eftir okkur. Að lokinni misheppnaðri útrás og köflóttu gengi í íþróttum hefur á liðnum árum myndast hér sá sannleikur að Ísland fer lengst á listinni. Á undanförnum árum hefur menningin nefnilega haldið merki okkar hvað hæst á lofti, allt frá tónleikasigrum Laufeyjar, Daða Freys og Víkings Heiðars, til Óskarsverðlauna Hildar Guðnadóttur og Norðurlandaverðlauna Ránar Flygenring og Benedikts Erlingssonar, að ógleymdum bóksöluafrekum Auðar Övu, Ragnars Jónassonar, Arnaldar og Jóns Kalmans. Í síðastliðnum janúarmánuði komu út tíu ísenskar skáldsögur í Frakklandi. Atgangurinn var svo mikill að frönsku blöðin töluðu um íslenska bylgju. Má Ísland ekki vera stolt af því? Þessir toppar eru þó ekki allt það sem skiptir máli, akurinn verður að vera breiður og blómlegur, hinn svokallaði lággróður verður líka að vera til staðar. Sérhver bók sem skrifuð er skiptir máli, barnabækur ekki síst. Ef ein þeirra nær að fanga ungan huga sem býr við bága æsku í blokk í Kórahverfi er það líka afrek sem skiptir máli. Eitt lítið lag með snjöllum texta getur leyst heilan listferil úr læðingi. Við verðum að hugsa menninguna á léréttan hátt líka, ekki aðeins lóðréttan. Og svonalagað gerist ekki af sjálfu sér. Svonalagað sprettur úr farvegi sem búinn er til, sem ríkið fjármagnar. List er ekki áhugamál. Slíkt er algengur misskilningur. Þetta er ekkert hobbý. Og hobbývinnubrögð duga aldrei til. „Aldrei hefur verið saman svo ómerkileg bók, að hún hafi ekki kostað meira andlegt erfiði en stjórn heillar togaraútgerðar í tíu ár“ sagði Þórbergur Þórðarson. Enginn skrifar skáldsögu án þess að sitja við átta tíma á dag í tvö ár hið minnsta, segi ég. Enginn leggur harðar að sér og enginn vinnur lengri vinnudag en listamenn sem sinna köllun sinni af krafti. Jafn lítið land og Ísland getur hinsvegar aldrei haldið uppi markaði fyrir list, sem listamenn okkar geta lifað á. Ríkið verður að grípa inn. Starfslaun listamanna eru rótgróin og margsönnuð aðferð til að halda uppi öflugu listalífi í einu landi. Samkepppnin um þau er alltaf hörð, fólk þarf að sýna fram á árangur og markmið. Að hljóta slík laun er því alltaf heiður. Og þegar sagt er frá þessum veruleika íslenskra listamanna erlendis ratar slíkt einatt í fyrirsagnir. Ríkið ræður okkur í vinnu við að skrifa bækur, mála myndir, hugsa innsetningar, semja tónverk, skapa danssýningar, skrifa kvikmyndir. Höfuð munurinn á þeirri vinnu og öðrum störfum á vegum ríkisins, svosem hjúkrun og kennslu, er að listafólkið þarf að sækja aftur um hana á hverju ári. Að öðru leyti er þetta bara eins og hver önnur vinna. Bestu samfélögin leyfa öllum sínum þegnum að blómstra samkvæmt styrk þeirra og hæfileikum. En nú stendur til að stækka kökuna, hugsa stærra í takti við þá fjölgun sem orðið hefur í listageiranum. Staðan er nú sú að 4% landsmanna starfa í skapandi geiranum, 1% fleiri en í sjávarútveginum. Sá síðarnefndi skapar hærri útflutningstekjur en sá fyrrnefndi skapar hin menningarlegu verðmæti sem aldrei verða metin til fjár. Eða hvað kosta Íslendingasögurnar? Hvað kosta portrettin sem Kjarval gerði ungur af bændum á Borgarfirði eystra? Hvað kostar þjóðsöngurinn eða kraftaverkið mikla Heyr himna smiður? Allt eru þetta menningarafurðir sem fáir geta hugsað sér að vera án. Samt sem áður verður heildartalan yfir starfslaunaútgjöld ríkisins aldrei meira en í kringum einn milljarð. Af öllum þeim milljarðatugum sem rúlla í fréttatímum daganna — sem bankarnir skila í arð, sem útgerðin græðir, sem ríkið tapaði á röngum ákvörðunum gærdagsins — erum við bara að tala um einn lítinn milljarð í menningu og listir, fjárhæð sem bæði skilar sér margfalt til baka í ríkulegra samfélagi og verðmætum sem engar upphæðir ná utan um. Gleymum því ekki að aðaltekjulind Parísarborgar í dag er eitt lítið málverk sem er 77 cm á hæð og 53 cm á breidd, málverk sem franski kóngurinn keypti árið 1517 fyrir 200,000 íslenskar að núvirði, og hafði vit á að selja aldrei aftur. Við listamenn fögnum þessu frumvarpi menningarráðherra. Hér er starfslaunamánuðum fjölgað og stofnaðir þrír nýir sjóðir. Nú þegar hin nýja tækni streymis og gervigreindar virðist ætla að ryðja burt mörgum af þeim tekjumöguleikum sem listamenn höfðu þó, ber að hlúa enn betur að ungum sem öldnum sköpurum í myndlist, tónlist, ritlist, leiklist og kvikmyndum. Þetta nýja frumvarp er greinilega liður í því.

  • #5Soffía Auður Birgisdóttir
    Ég fagna þessum breytingum á lögum um listamannalaun og ekki síst þeim tveimur nýju flokkum sem nú bætast við: Vöxtur og Vegsemd. Þá vil ég minna á að doktor Ágúst Einarsson hagfræðingur hefur fyrir löngu síðan með rannsóknum sínum og útgáfu bóka sýnt fram á hagræn áhrif ritlistar (2014), tónlistar (2004, 2012) og kvikmyndalistar (2011). Listageirinn skilar margfalt til baka því fjármagni sem hann þiggur úr ríkissjóði. Margfeldisáhrifin er mjög fjölbreytileg, meðal annars koma þau fram í auknum ferðamannastraumi til landsins, fyrir utan beinharða peninga í ríkissjóð í formi allkyns skatta og… Lesa alla

    Ég fagna þessum breytingum á lögum um listamannalaun og ekki síst þeim tveimur nýju flokkum sem nú bætast við: Vöxtur og Vegsemd. Þá vil ég minna á að doktor Ágúst Einarsson hagfræðingur hefur fyrir löngu síðan með rannsóknum sínum og útgáfu bóka sýnt fram á hagræn áhrif ritlistar (2014), tónlistar (2004, 2012) og kvikmyndalistar (2011). Listageirinn skilar margfalt til baka því fjármagni sem hann þiggur úr ríkissjóði. Margfeldisáhrifin er mjög fjölbreytileg, meðal annars koma þau fram í auknum ferðamannastraumi til landsins, fyrir utan beinharða peninga í ríkissjóð í formi allkyns skatta og gjalda. Þessi einfalda staðreynd ætti því að vera öllum ljós í dag, þótt vert sé að leggja áherslu á að hin "óhagrænu" gildi listarinnar vega margfalt þyngra, til dæmis með að stuðla að andlegri vellíðan þeirra sem kunna að njóta allra þeirra gjafa sem listamenn færa þjóðinni. Fjárfesting í listamönnum er fjárfesting til framtíðar og verk þeirra auka lífsgæði þjóðarinnar og auka orðpor hennar erlendis.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    26 ræður · 1 klst. 20 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 27. maí 2024
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    12 ræður · 44 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Umræða
    3. umræða
    4 ræður · 4 mín
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 1 á móti
  17. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1384Stjórnarfrumvarp5. apr. 2024Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF
1919Nál. með brtt.18. jún. 2024Bryndís Haraldsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir +3LesaPDF
1946Nefndarálit19. jún. 2024Eyjólfur ÁrmannssonLesaPDF
2008Frumvarp eftir 2. umræðu21. jún. 2024—LesaPDF
2088Lög í heild22. jún. 2024—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur23. apríl 2024 kl. 22:56
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd23. apríl 2024 kl. 22:56
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 13:23
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Listamannalaun“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 13:23
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Listamannalaun“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 13:24
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Listamannalaun“.
    2--6
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt21. júní 2024 kl. 13:24
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Listamannalaun“.
    2.--12. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:17 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • yfirlýsing forseta/mál gengur21. júní 2024 kl. 13:24
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt22. júní 2024 kl. 12:33
    Að samþykkja frumvarpið „Listamannalaun“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 1 á móti · 1 sat hjá

Hverjir tóku til máls

42 ræður · 2 klst. 7 mín
  • 1. umræða: 26 ræður · 8 ræðumenn · 1 klst. 20 mín
  • 2. umræða: 12 ræður · 6 ræðumenn · 44 mín
  • 3. umræða: 4 ræður · 4 ræðumenn · 4 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Lilja AlfreðsdóttirFramsóknarflokkur1225 mín
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins628 mín
Hafdís Hrönn HafsteinsdóttirFramsóknarflokkur417 mín
Dagbjört HákonardóttirSamfylkingin412 mín
Berglind Ósk GuðmundsdóttirSjálfstæðisflokkur49 mín
Jódís SkúladóttirUtan þingflokka312 mín
Arndís Anna Kristínardóttir GunnarsdóttirUtan þingflokka36 mín
Birgir ÞórarinssonSjálfstæðisflokkur213 mín
Sigmar GuðmundssonViðreisn22 mín
Lilja Rannveig SigurgeirsdóttirFramsóknarflokkur13 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín

Umsagnir og erindi

19 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. maí 2024, frestur 27. maí 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
RannísviðbótarumsögnOpna PDF
Menningar- og viðskiptaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Menningar- og viðskiptaráðuneytiðumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarins og Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðendaumsögnOpna PDF
Bandalag háskólamannaumsögnOpna PDF
Guðrún Jóhanna ÓlafsdóttirumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
RannísumsögnOpna PDF
Félag íslenskra tónlistarmannaumsögnOpna PDF
Bandalag íslenskra listamannaumsögnOpna PDF
Félag KvikmyndagerðarmannaathugasemdOpna PDF
Félag íslenskra bókaútgefendaumsögnOpna PDF
Listasafn ÍslandsumsögnOpna PDF
SÍM, Samband íslenskra myndlistarmannaumsögnOpna PDF
Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndumumsögnOpna PDF
Tónskáldafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Rithöfundasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Miðstöð hönnunar og arkitektúrsumsögnOpna PDF
STEFumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.