Áform um frumvarp til laga um skák
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um ný heildarlög um skák.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-200/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. nóvember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. ágúst 2024)
Umsagnir bárust frá fimm aðilum. Almennt voru umsagnir um áform um lagasetningu jákvæðar og umsagnaraðilar fögnuðu breytingum á núverandi fyrirkomulagi. Ýmsar gagnlegar ábendingar komu fram sem litið var til við vinnslu frumvarpsins. Þar á meðal var bent á mikilvægi þess að breyta núverandi fyrirkomulagi og settar fram tillögur að tímabili styrkja með árangursmiðuðum launum. Tekið var tillit til ábendinga um ferðakostnað og að umsýsla sjóðsins væri hjá Skáksambandi Íslands. Drög að frumvarpi til laga um skák verða kynnt almenningi í samráðsgátt stjórnvalda.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Svavar Kjarrval Lúthersson
Ráðuneytið er minnt á 30. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er varðar þátttöku fatlaðs fólks í „menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi“ og því ætti við frumvarpsgerðina að íhuga styrkingu möguleika og hvata fatlaðs fólks til þátttöku í skák, líkt og ráðuneytið hyggst gera í sambandi við kynjajafnrétti. Þá yrði gagnlegt í frumvarpsgerðinni að ráðuneytið myndi tryggja söfnun viðeigandi tölfræðiupplýsinga, sbr. 31. gr. SRFF, bæði upp á að mæla árangur og þróun þátttöku fatlaðs fólks í skák skv. nýju lögunum, og annarra (minnihluta)hópa sem gætu haft… Lesa alla
Ráðuneytið er minnt á 30. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er varðar þátttöku fatlaðs fólks í „menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi“ og því ætti við frumvarpsgerðina að íhuga styrkingu möguleika og hvata fatlaðs fólks til þátttöku í skák, líkt og ráðuneytið hyggst gera í sambandi við kynjajafnrétti. Þá yrði gagnlegt í frumvarpsgerðinni að ráðuneytið myndi tryggja söfnun viðeigandi tölfræðiupplýsinga, sbr. 31. gr. SRFF, bæði upp á að mæla árangur og þróun þátttöku fatlaðs fólks í skák skv. nýju lögunum, og annarra (minnihluta)hópa sem gætu haft hag af slíkri tölfræði.
- #2Halldór Grétar Einarsson
Ég heiti Halldór Grétar Einarsson er FIDE meistari í skák, Bolvíkingur og er í stjórn Skákdeildar Breiðabliks. Ég er fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands og var í stjórn launasjóðs stórmeistara árin 2013-2020. Ég stofnaði Skákdeild Breiðabliks árið 2012 og á ellefu árum er hún orðin eitt öflugasta taflfélag landsins með mikið unglingastarfið og mörg af efnilegustu ungmennum landsins. Í vor eignaðist Breiðablik sinn fyrsta stórmeistara, Vigni Vatnar Stefánsson, og fleiri eru á leiðinni. Ég tel mig því bæði hafa þekkingu á skákmálum á Íslandi og hvernig eigi að smíða kerfi sem virka og n… Lesa alla
Ég heiti Halldór Grétar Einarsson er FIDE meistari í skák, Bolvíkingur og er í stjórn Skákdeildar Breiðabliks. Ég er fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands og var í stjórn launasjóðs stórmeistara árin 2013-2020. Ég stofnaði Skákdeild Breiðabliks árið 2012 og á ellefu árum er hún orðin eitt öflugasta taflfélag landsins með mikið unglingastarfið og mörg af efnilegustu ungmennum landsins. Í vor eignaðist Breiðablik sinn fyrsta stórmeistara, Vigni Vatnar Stefánsson, og fleiri eru á leiðinni. Ég tel mig því bæði hafa þekkingu á skákmálum á Íslandi og hvernig eigi að smíða kerfi sem virka og ná árangri. Einnig hafa iðkendur Skákdeildar Breiðabliks mikilla hagsmuna að gæta þar sem ný heildarlög munu snerta þá mikið til framtíðar. Sjá umsögn í meðfylgjandi WORD-skjali.
- #3Aðalheiður Bragadóttir
Ég vil koma því a framfæri að það er mikilvægt fyrir ungt fólk að eiga góðar fyrirmyndir og þar koma stórmeistararnir okkar sterkir inn. Þeir eru frábærar fyrirmyndir og það er eftirsóknarvert að komast í þeirra hóp.Ég hef verið skólastjórnandi í mörg ár og hef séð hvernig skákinn getur elft og styrkt ungt fólk og allt skólastarf. Skákkennslan sem ma stórmeistarar hafa sinnt er mjög mikilvæg og væri það mikil afturför að gefa þeim ekki tækifæri til að sinna slíkri fræðslu samfara skákferli sínum. Þeir þurfa laun til að sinna störfum sínum við útbreiðslu skákarinnar og til að geta teflt fyrir Í… Lesa alla
Ég vil koma því a framfæri að það er mikilvægt fyrir ungt fólk að eiga góðar fyrirmyndir og þar koma stórmeistararnir okkar sterkir inn. Þeir eru frábærar fyrirmyndir og það er eftirsóknarvert að komast í þeirra hóp.Ég hef verið skólastjórnandi í mörg ár og hef séð hvernig skákinn getur elft og styrkt ungt fólk og allt skólastarf. Skákkennslan sem ma stórmeistarar hafa sinnt er mjög mikilvæg og væri það mikil afturför að gefa þeim ekki tækifæri til að sinna slíkri fræðslu samfara skákferli sínum. Þeir þurfa laun til að sinna störfum sínum við útbreiðslu skákarinnar og til að geta teflt fyrir Íslands hönd. Það er mjög slæm hugmynd að leggja niður stórmeistaralaunin því þeir sem afreka að ná stórmeistaratitlinum hafa unnið til þess að hljóta þessa viðurkenningu sem launin eru♟️♟️♟️
- #4Hlíðar Þór Hreinsson
Undirritaður hefur all víðtæka þekkingu á málefnum skákhreyfingarinnar eftir að hafa komið að starfi hennar með einum eða öðrum hætti síðustu 30 ár eða svo með margvíslegum hætti. Það er mjög viðkvæmt þegar ræða á launasjóð stórmeistara, því þau sem þaðan þiggja greiðslur eru öll vinir eða kunningjar allra sem í skákhreyfingunni starfa og þetta snýr að lífsviðurværi og öruggri framfærslu og huga þarf að því þegar nýju kerfi er komið á. Hafandi sagt þetta þá er það engu að síður sterk skoðun mín að breytinga á núverandi kerfi er þörf, og þær breytingar munu ekki nást fram með því að breyta n… Lesa alla
Undirritaður hefur all víðtæka þekkingu á málefnum skákhreyfingarinnar eftir að hafa komið að starfi hennar með einum eða öðrum hætti síðustu 30 ár eða svo með margvíslegum hætti. Það er mjög viðkvæmt þegar ræða á launasjóð stórmeistara, því þau sem þaðan þiggja greiðslur eru öll vinir eða kunningjar allra sem í skákhreyfingunni starfa og þetta snýr að lífsviðurværi og öruggri framfærslu og huga þarf að því þegar nýju kerfi er komið á. Hafandi sagt þetta þá er það engu að síður sterk skoðun mín að breytinga á núverandi kerfi er þörf, og þær breytingar munu ekki nást fram með því að breyta núverandi lögum, það þarf að stokka upp á nýtt. Núverandi fyrirkomulag þar sem þeir sem ná stórmeistaratitli fá æviráðningu frá ríkinu á því sem næst lágmarkslaunum, hefur sýnst sig að er löngu úr sér gengið fyrirkomulag. Hér áður fyrr þá var skákmaður með 2.500 skákstig, sem er sá stigafjöldi sem meðal annars þarf að ná til að fá útnefningu, kominn á stall með þeim bestu og þegar skákmaður náði 2.600 stigum þá var hann kominn í allra fremstu röð. Í dag þá eru hátt í 250 virkir skákmenn í heiminum með yfir 2.600 stig og til að komast í fremstu röð þarf að vera með yfir 2.700 stig. Það sem þetta þýðir er að okkar sterku ungu skákmenn sem dreymir um að verða stórmeistarar þeir verða að stefna enn hærra en það, þeir þurfa að stefna á toppinn og til þess þá þarf að vera til kerfi sem styður þá alla leið ekki bara að 2.500 stigunum. Árið 2019 þá kom landsliðsnefnd Skáksambands Íslands, þar sem ég var þá formaður, fram með stefnumótunartillögur að bættu umhverfi okkar afreksskákmanna. Síðasti punkturinn í þeim tillögum var „Launasjóður stórmeistara þarf að styðja við virka atvinnumenn í skák og því þarf að breyta núverandi fyrirkomulagi þar sem hvati er til taflmennsku, árangur verðlaunaður og ferðastyrkir í boði.“ Þetta er nákvæmlega það sem ég vona að nýtt kerfi muni standa fyrir. Hafandi verið í stjórn launasjóðs stórmeistara síðustu ár þá get ég sagt af fenginni reynslu að núverandi kerfi er svo gallað að það verður ekki lagað að mínu mati. Stjórn sjóðsins er verkfæralaus og lög um opinbera starfsmenn, sem stórmeistarar á stórmeistaralaunum eru, gerir kerfið mjög flókið þar sem allar ákvarðanir þurfa að staðfestast af ráðherra og því er kerfið allt orðið að einu stóru bákni sem hreyfir sig ekki. Því fagna ég þessum áformum sem uppi eru mjög og vona að þau leiði til farsællar niðurstöðu fyrir skákhreyfinguna til framtíðar. Virðingarfyllst, Hlíðar Þór Hreinsson
- #5Bragi Þorfinnsson
Meðfylgjandi er umsögn þriggja stórmeistara, um fyrirhuguð áform ráðuneytisins um breytingar á lögum um skák.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.