Áform um breytingar á lögum um opinber innkaup
Áformað er að ráðast í afmarkaðar breytingar á lögum um opinber innkaup.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-50/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. mars 2024)
Áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup var birt í samráðsgátt og var tveggja vikna frestur veittur til að skila umsögnum. Í heildina bárust fimm umsagnir sem voru frá Samtökum iðnaðarins, Viðskiptaráði, Reykjavíkurborg, Consensa og einum einstaklingi. Umsagnirnar voru almennt jákvæðar gagnvart þeim breytingum sem lýst var í áformaskjali og þeim markmiðum sem þeim væri ætlað. Gengið verður frá frumvarpi vegna þeirra breytinga sem þörf er að gera á tilteknum ákvæðum í núgildandi lögum um opinber innkaup og leitast verður við að taka mið af þeim umsögnum sem bárust.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Samtök iðnaðarins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins.
- #2Guðmundur Birkir Guðmundsson
Meðfylgjandi er umsögn um áformaðar breytingar.
- #3Viðskiptaráð Íslands
Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands
- #4Theodór Kjartansson
Umsögn Reykjavíkurborgar um áform um breytingar á lögum um opinber innkaup.
- #5Birgir Örn Birgisson
Sjá meðfylgjandi umsögn Consensa.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.