Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 908. mál

Sjúkratryggingar

Ýmsar breytingar

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 11. apr. 2024

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 154. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja skýrleika laganna og gagnsæi við málsmeðferð sjúkratryggingastofnunarinnar.

Lagt fram af Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
27. mars 2024
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
9 ræður · 20 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 18. júl. 2025

Markmiðið

Að tryggja skýrleika laganna og gagnsæi við málsmeðferð sjúkratryggingastofnunarinnar.

Hvað breytist

Lagt er til að skýra betur skyldu sjúkratryggingastofnunarinnar til að byggja ákvarðanatöku og stefnumótun á gagnreyndri meðferð ásamt faglegu og hagrænu mati. Jafnframt er gert ráð fyrir að biðtími eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins styttist úr sex mánuðum í þrjá. Þá er lagt til að veita sjúkratryggingastofnuninni skýrari heimildir til að ákvarða hvort einstaklingur sé sjúkratryggður hér á landi á grundvelli búsetu. Enn fremur er lagt til að lögfesta greiðsluþátttöku fyrir læknismeðferð erlendis vegna biðtíma hér á landi. Loks er gert ráð fyrir að greiðsluþátttaka vegna veikinda og slysa utan Evrópska efnahagssvæðisins verði ekki almenn heldur gildi um afmarkaða hópa, s.s. einstaklinga sem stunda nám í öðru landi.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir því að kostnaður af því að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu úr sex mánuðum í þrjá nemi um 90 milljónum kr. á ári. Ætla má að sparnaður hljótist af takmörkun á greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES en kostnaðurinn nam um 80 milljónum kr. árið 2023. Með því að gera málsmeðferð sjúkratryggingastofnunarinnar rafræna má gera ráð fyrir sparnaði upp á 10 milljónir kr. á ári. Þá er áætlað að einskiptiskostnaður vegna breytinga á tölvukerfum stofnunarinnar geti numið um 5–7 milljónum kr.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 30. apr. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Sjúkratryggingar Íslands, Heilbrigðisráðuneytið, Persónuvernd, Skatturinn, Samtök iðnaðarins og Tannsmíðafélag Íslands · allar umsagnir
Umræða í þingsal
20 mín · 9 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir því að kostnaður af því að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu úr sex mánuðum í þrjá nemi um 90 milljónum kr. á ári. Ætla má að sparnaður hljótist af takmörkun á greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES en kostnaðurinn nam um 80 milljónum kr. árið 2023. Með því að gera málsmeðferð sjúkratryggingastofnunarinnar rafræna má gera ráð fyrir sparnaði upp á 10 milljónir kr. á ári. Þá er áætlað að einskiptiskostnaður vegna breytinga á tölvukerfum stofnunarinnar geti numið um 5–7 milljónum kr.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-260/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. des. 2023 – 3. jan. 2024· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar

Áformað er að breyta lögum um sjúkratryggingar einkum með það að markmiði að skýra heimildir stofnunarinnar til að vinna nauðsynlegar upplýsingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-260/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. janúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. febrúar 2024)

Engar athugasemdir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-35/2024· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. feb. 2024 – 23. feb. 2024· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar

Lagðar eru til ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar, svo sem um vinnsluheimildir Sjúkratrygginga og að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-35/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. febrúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. júlí 2024)

Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Verður endurflutt á nýju þingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    9 ræður · 20 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 30. apríl 2024
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1353Stjórnarfrumvarp27. mar. 2024Willum Þór ÞórssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. apríl 2024 kl. 18:38
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd11. apríl 2024 kl. 18:38
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

9 ræður · 20 mín
  • 1. umræða: 9 ræður · 3 ræðumenn · 20 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 16. apr. 2024, frestur 30. apr. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Sjúkratryggingar ÍslandsminnisblaðOpna PDF
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Sjúkratryggingar ÍslandsumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarins og Tannsmíðafélag ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.