Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 907. mál

Landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár

Heilbrigðisskrár

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 11. apr. 2024

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 154. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að setja ítarleg ákvæði um tilgang heilbrigðisskráa, öflun upplýsinga í slíkar skrár, rekstur þeirra og notkun. Að tryggja lagastoð fyrir stofnun og rekstri gæðaskráa af hálfu heilbrigðisstofnana og starfsstofa heilbrigðisstarfsfólks. Að hraða og bæta meðferð kvörtunar- og kærumála með því að heimila heilbrigðisyfirvöldum aðgang að rafrænum sjúkraskrám.

Lagt fram af Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
27. mars 2024
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. ágú. 2025

Markmiðið

Að setja ítarleg ákvæði um tilgang heilbrigðisskráa, öflun upplýsinga í slíkar skrár, rekstur þeirra og notkun. Að tryggja lagastoð fyrir stofnun og rekstri gæðaskráa af hálfu heilbrigðisstofnana og starfsstofa heilbrigðisstarfsfólks. Að hraða og bæta meðferð kvörtunar- og kærumála með því að heimila heilbrigðisyfirvöldum aðgang að rafrænum sjúkraskrám.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði ný og ítarlegri ákvæði um heilbrigðisskrár sem þjóna þeim tilgangi að afla þekkingar um heilbrigðisþjónustu og þá þætti sem hafa áhrif á heilsu einstaklinga. Þá er gert ráð fyrir að heimila heilbrigðisyfirvöldum aðgang að rafrænni sjúkraskrá sjúklings við meðferð mála er varða kærur eða kvartanir vegna veittrar heilbrigðisþjónustu og rannsóknir atvika í heilbrigðisþjónustu.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 30. apr. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Heilbrigðisráðuneytið, Guðjón Sigurðsson, Persónuvernd, Landspítalinn, Félagsráðgjafafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-5/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. jan. 2023 – 31. jan. 2023· 1 umsögn

Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu (heilbrigðisskrár)

Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Varða breytingar ákvæði um heilbrigðisskrár sem embætti landlæknis heldur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-5/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. ágúst 2024)

Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Guðjón Sigurðsson

    Að hafa aðgang að sjúkraskrám er grundvöllur þátttöku okkar í alþjóðlegu vísindastarfi fyrir MND veika til dæmis. Að ekki séu til miðlægar upplýsingar um taugasjúkdóma hefur háð innlendum og erlendum vísindamönnum að leita nýrra leiða til að bæta líf þessa hóps. Ég skora á löggjafann að hleypa fleirum að þessum mikilvægu upplýsingum og innifela sem flesta sjúkdóma flokka í svona miðlægum skrám.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 7 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 30. apríl 2024
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1352Stjórnarfrumvarp27. mar. 2024Willum Þór ÞórssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. apríl 2024 kl. 18:16
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd11. apríl 2024 kl. 18:16
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 7 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 7 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 16. apr. 2024, frestur 30. apr. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
HeilbrigðisráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Guðjón SigurðssonumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
LandspítalinnumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Embætti landlæklnisumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.