Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu (heilbrigðisskrár)
Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Varða breytingar ákvæði um heilbrigðisskrár sem embætti landlæknis heldur.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-5/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. ágúst 2024)
Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Guðjón Sigurðsson
Að hafa aðgang að sjúkraskrám er grundvöllur þátttöku okkar í alþjóðlegu vísindastarfi fyrir MND veika til dæmis. Að ekki séu til miðlægar upplýsingar um taugasjúkdóma hefur háð innlendum og erlendum vísindamönnum að leita nýrra leiða til að bæta líf þessa hóps. Ég skora á löggjafann að hleypa fleirum að þessum mikilvægu upplýsingum og innifela sem flesta sjúkdóma flokka í svona miðlægum skrám.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.