Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 864. mál

Breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 22. jún. 2024

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að bæta afkomu örorkulífeyrisþega, sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa, einfalda örorkulífeyriskerfið og auka stuðning við þá sem búa við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest og fá meðferð eða taka þátt í endurhæfingu, draga úr áhrifum annarra tekna á fjárhæðir greiðslna með frítekjumörkum og gera kerfið í senn skilvirkara, gagnsærra og réttlátara. Að auðvelda þátttöku og endurkomu einstaklinga á vinnumarkað eftir áföll þannig að fólk hafi fjárhagslegan hag af atvinnuþátttöku og njóti stuðnings við atvinnuleit.

Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 22. jún. 2024 greiddu 51 atkvæði með og 0 á móti, 6 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
19. mars 2024
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
52
Umræða í þingsal
76 ræður · 5 klst. 3 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 9. jan. 2025

Markmiðið

Að bæta afkomu örorkulífeyrisþega, sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa, einfalda örorkulífeyriskerfið og auka stuðning við þá sem búa við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest og fá meðferð eða taka þátt í endurhæfingu, draga úr áhrifum annarra tekna á fjárhæðir greiðslna með frítekjumörkum og gera kerfið í senn skilvirkara, gagnsærra og réttlátara. Að auðvelda þátttöku og endurkomu einstaklinga á vinnumarkað eftir áföll þannig að fólk hafi fjárhagslegan hag af atvinnuþátttöku og njóti stuðnings við atvinnuleit.

Hvað breytist

Lagt er til að einfalda örorkulífeyriskerfið þar sem gert verður ráð fyrir tvenns konar lífeyri, örorkulífeyri og hlutaörorkulífeyri, sem fer eftir getu til virkni á vinnumarkaði. Þá er lagt til að nýtt mat, samþætt sérfræðimat, komi í stað núverandi örorkumats til að meta getu einstaklinga til virkni á vinnumarkaði. Í stað endurhæfingarlífeyris á að koma á fót sjúkra- og endurhæfingargreiðslum með lengri hámarkstíma og auknum sveigjanleika. Gert er ráð fyrir að hlutaörorkulífeyrisþegar sem eru í atvinnuleit geti fengið virknistyrk til allt að 24 mánaða. Enn fremur er lagt til að sameina og hækka frítekjumörk.

Lög sem breytast

Lög um almannatryggingar, nr. 100/2007. Lög um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Lög um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006. Lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012. Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006. Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009. Lög um sorgarleyfi, nr. 77/2022. Lög um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir, nr. 24/2020. Lög um bifreiðagjald, nr. 39/1988. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður greiðslukerfis vegna örorku og endurhæfingar aukist um 18,1 milljarð kr. á ári, auk einskiptiskostnaðar vegna nýs kerfis (fjárhæð ótilgreind). Áætlað er að vinnumarkaðsaðgerðir, þ.á.m. virknistyrkur, muni kosta 900 milljónir kr. Áhersla á endurhæfingu hefur skilað árangri á undanförnum árum og í stað 2,5% árlegs vaxtar greiðslukerfisins eins og forsendur fjárlaga hafa gert ráð fyrir hafa útgjöld síðustu ára ekki aukist að ráði umfram verðlagsbætur. Er sá uppsafnaði árangur metinn til allt að 8 milljarða kr. á ársgrunni. Kerfisbreytingarnar í frumvarpinu munu líklega leiða til lægra nýgengis greiðsluþega og stuðla að aukinni atvinnuþátttöku, sem gæti lækkað kostnað um 6 milljarða kr. á nokkrum árum. Að auki er gert ráð fyrir að árlegur kerfislægur vöxtur vegna fjölgunar greiðsluþega lækki um 2,2 milljarða kr. á ársgrunni eða úr 2,5% í 0,3%–0,4%. Samanlagt er því gert ráð fyrir að ávinningur af áherslu á endurhæfingu og þeim kerfisbreytingum sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu verði búinn að vega upp kostnaðaraukann að fimm árum liðnum.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om social pension LBK nr 527 af 25/04/2022.

Finnland

Folkpensionslag 11.5.2007/568.

Noregur

Lov om folketrygd (folketrygdloven) LOV-1997-02-28-19.

Svíþjóð

Socialförsäkringsbalk (2010:110).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Steinunn Þóra Árnadóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
22. jún. 2024
Samþykkt51 með · 0 á móti · 6 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S13–0
  • F13–0
  • 237–0
  • 435–0
  • Flf0–0 · 6 hjá
  • Sf6–0
  • V5–0
  • M2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 3 umsagnabeiðnir · frestur 8. apr. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
19 aðilar
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Félagsráðgjafafélag Íslands, Persónuvernd, Tryggingastofnun ríkisins o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
5 klst. 3 mín · 76 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður greiðslukerfis vegna örorku og endurhæfingar aukist um 18,1 milljarð kr. á ári, auk einskiptiskostnaðar vegna nýs kerfis (fjárhæð ótilgreind). Áætlað er að vinnumarkaðsaðgerðir, þ.á.m. virknistyrkur, muni kosta 900 milljónir kr. Áhersla á endurhæfingu hefur skilað árangri á undanförnum árum og í stað 2,5% árlegs vaxtar greiðslukerfisins eins og forsendur fjárlaga hafa gert ráð fyrir hafa útgjöld síðustu ára ekki aukist að ráði umfram verðlagsbætur. Er sá uppsafnaði árangur metinn til allt að 8 milljarða kr. á ársgrunni. Kerfisbreytingarnar í frumvarpinu munu líklega leiða til lægra nýgengis greiðsluþega og stuðla að aukinni atvinnuþátttöku, sem gæti lækkað kostnað um 6 milljarða kr. á nokkrum árum. Að auki er gert ráð fyrir að árlegur kerfislægur vöxtur vegna fjölgunar greiðsluþega lækki um 2,2 milljarða kr. á ársgrunni eða úr 2,5% í 0,3%–0,4%. Samanlagt er því gert ráð fyrir að ávinningur af áherslu á endurhæfingu og þeim kerfisbreytingum sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu verði búinn að vega upp kostnaðaraukann að fimm árum liðnum.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 22. júní 2024: 51 með, 0 á móti, 6 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með8 tóku til máls

Sýna 2 í viðbót

43 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá2 tóku til máls

4 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-43/2024· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. feb. 2024 – 29. feb. 2024· 38 umsagnir

Drög að frumvarpi vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfisins

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-43/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. febrúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 38 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. september 2024)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 19. mars 2024, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (38)
  • #1Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir

    Í drögum að þessu frumvarpi er talað um að einfalda þetta kerfi. Þá spyr ég á móti. Fyrir HVERN er verið að einfalda þetta? Eftir lestur á þessu fyrirbæri er mér ómögulegt að sjá þá einföldun til handa þeim sem þurfa á þessu kerfi að halda. Þvert á móti er verið að auka það flækjustig sem snýr að fólkinu sjálfu. Hver er þessi einföldun gagnvart þeim sem NEYÐAST til að nýta sér þetta kefi?

  • #2Sveinn Elías Hansson

    Hér er talað um ATVINNUTEKJUR, en í núverandi kerfi teljast greiðslur frá lífeyrissjóðum ekki til atvinnutekna og hámark sem má hafa frá þeim er um 35 þús á mánuði áður en skerðing hefst. Greiðslur frá lífeyrissjóði eru að sjálfsögðu ekkert annað en atvinnutekjur, og af þeim er meira að segja greiddur tekjuskattur.Ef fólk getur unnið eitthvað þá má það hafa um 200 þús á mánuði, án skerðinga. Stendur til að breyta þessu og jafna kjör þessa fólks, eða skal halda áfram þessari mismunun ?

  • #3Jón Frímann Jónsson
    Það er vafasamt að hverfa frá því örorkumatskerfi sem er núna í notkun. Þar sem það er nógu erfitt eins og það er. "Hlutaörorkulífeyrir" er fáránlegt hugtak, þar sem fólk er annaðhvort á örorku eða ekki, hvort sem að örorkan er 10% eða 75% örorka. Það eru ekki allir með eins örorku og þetta nýja kerfi gæti gert þeim sem eru með einhverfu af einhverri gerðinni lífið erfitt. Auk fólks sem er með sjúkdóma sem sjást ekki utan á því en veldur því miklum ama og vandræðum í daglegu lífi. "Nýr örorkulífeyrir" er undarlegt hugtak. Það er þó nauðsynlegt að sameina inn í örorkugreiðslur heimilisuppbót o… Lesa alla

    Það er vafasamt að hverfa frá því örorkumatskerfi sem er núna í notkun. Þar sem það er nógu erfitt eins og það er. "Hlutaörorkulífeyrir" er fáránlegt hugtak, þar sem fólk er annaðhvort á örorku eða ekki, hvort sem að örorkan er 10% eða 75% örorka. Það eru ekki allir með eins örorku og þetta nýja kerfi gæti gert þeim sem eru með einhverfu af einhverri gerðinni lífið erfitt. Auk fólks sem er með sjúkdóma sem sjást ekki utan á því en veldur því miklum ama og vandræðum í daglegu lífi. "Nýr örorkulífeyrir" er undarlegt hugtak. Það er þó nauðsynlegt að sameina inn í örorkugreiðslur heimilisuppbót og framfærsluuppbót inn í örorkugreiðsluna til þess að jafna réttindi þeirra sem eru í sambúð og búa utan Íslands, auk þess að hækka tekjur þeirra. Það hefur verið á síðustu árum verið að reyna að koma í gegn kerfi á Íslandi sem hefur verið kallað starfsgetumatskerfi og mér sýnist að það sé verið að gera það hérna, hlutir eru bara kallaðir örðum nöfnum. Í þeim ríkjum þar sem slíkt kerfi hefur verið tekið upp hefur niðurstaðan alltaf verið meiri fátækt, erfiðara fyrir fólk að komast á örorku og líf fólks með alvarlega sjúkdóma almennt gert erfiðara, ásamt því að flækjustigið er aukið til muna. Auk þess sem að kerfið er í raun hannað til þess að spara ríkinu fjármuni og halda fólki af örorkubótum og úr félagslega öryggisnetinu. Það er ekki nefnt í þessari greinargerð sem er hérna skrifuð með frumvarpinu um hvaða hugtak er verið að nota frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni (á ensku). Það ýtir undir grunsemdir að hérna sé verið að nota ekkert annað en starfsgetumat eins og ég nefndi ofar. Öryrkjar eru þeir hópur fólks sem getur oftast minnst varið sig í þessum málaflokki og tekjur þeirra sæta oft niðurskurði hjá íslenska ríkinu að tilefnislausu. Í staðinn fyrir að hækka skatta á þá sem geta borgað, þá hafa íslenskir stjórnmálaflokkar valið það að skera niður í velferðarþjónustu. Að breyta kerfum til þess að gera fólki erfiðara að komast á örorku er ekki eitthvað sem almenningur á Íslandi ætti að samþykkja. Enda geta allir orðið öryrkjar, hvort sem er vegna sjúkdóma eða slysa sem gerast án fyrirvara. Þetta frumvarp þarf að endurskrifa eða falla frá því að mestu leiti. Þó eins og ég nefni að ofan, nauðsynlegt að sameina greiðslur heimilisuppbótar og framfærsluppbótar inn í eina örorkugreiðslu til þess að jafna stöðu öryrkja og koma þannig í veg fyrir algjöra fátækt þeirra sem fá hvoruga af þessum greiðslum.

  • #4Valgeir Matthías Pálsson
    Þokkalegt frumvarp en ég tel að það sé ekki verið að tala um nýja hluti í þessu máli eða þ.e. það er ekki verið að umbylta þessu kerfi nema kannski á þann veg að setja Starfsgetumatið inn sem einhverskonar mótvægi við annað. Ég tel að starfsgetumat sem slíkt sé ekki að fara að breyta versuleika öryrkja íslenskra neitt. Það sem mér findist að ætti að koma út úr þessu frumvarpi er það að einfalda kerfið. Gera það skilvirkara og hætta þessum "hegningum" eða "refsingum" sem er svo ríkt í gamla örorkumats kerfinu. Eins og kerfið er í dag að þá máttu vinna þér inn 200.000 en það sem eftir stendur… Lesa alla

    Þokkalegt frumvarp en ég tel að það sé ekki verið að tala um nýja hluti í þessu máli eða þ.e. það er ekki verið að umbylta þessu kerfi nema kannski á þann veg að setja Starfsgetumatið inn sem einhverskonar mótvægi við annað. Ég tel að starfsgetumat sem slíkt sé ekki að fara að breyta versuleika öryrkja íslenskra neitt. Það sem mér findist að ætti að koma út úr þessu frumvarpi er það að einfalda kerfið. Gera það skilvirkara og hætta þessum "hegningum" eða "refsingum" sem er svo ríkt í gamla örorkumats kerfinu. Eins og kerfið er í dag að þá máttu vinna þér inn 200.000 en það sem eftir stendur er sama sem ekkert. Sérstök uppfærsla til framfærslu skerðist grimmt bæturnar strax krónu á móti krónu eða krónu á móti 65 aurum. Alveg sama. Þetta hef ég fengið staðfest líka hjá starfsmanni TR sem ég tel áræðanlegar. Það er alltaf og þá segi ég ALLTAF verið að fegra allt sem tengist öryrkjum. Þetta má víst ekki kosta krónu og ég er hræddur um það að þessar tillögur starfsgetumats falli ekki í frjógvan jarðveg hjá ÖBÍ. Það er sífellt vegið að mannréttindum öryrkja á íslandi. Við eigum að lifa við reisn á hátíðarstundum en er það þannig? NEI, öryrkjar lifa við sultar mörk og þetta virðist þingheimur allur nema kannski flokkur fólksins vera sammála um. Fagurgalinn galar fyrir hverjar kosningar til þings hér á fjögurra ára fresti um að nú verði að fara að spýta í í þessum málaflokki en það er bara ekki að gerast. Kannski er viðhorf ykkar og annarra sömuleiðis í þjóðfélaginu það að öryrkjar séu afgangs stærð sem eigi bara að lifa við sult og seyru. Smælkið má eiga sig. Þetta lið er enda óferjandi og alandi. Það er staðreynd að það er brotið á mannréttindum öryrkja á íslandi og þó málin tapist í hæðstarétti að þá sýnir það sig bara að Hæstiréttur er svo viðhallur stjórnvöldum á hverjum tíma. Pólitíkin er sem sagt að hafa áhrif á dómstólana. Það er þannig eða öfugt, getur líka verið. En já. Þetta frumvarp. Stafsgetumats frumvarp D,VG,F þetta frumvarp fær ekki háa einkunn hjá mér. En nú býð ég eftir ályktun ÖBÍ! Einnig má bæta því við að til þess að gera öryrkja færa til vinnu væri heilla ráð að niðurgreiða t.d. sálfræði þjónustu fyrir þennan hóp. Ég veit um marga einstaklinga sem eru fastir vegna þess að þeir fá ekki hjálp til að fóta sig í þjóðfélaginu. Fólk er fast. Það hefur ekki aura til að leita sér endurhæfingar hvort sem það er sálfræðimeðferð eða eitthvað annað. Ég tala að eigin reynslu í þessu máli. Kerfið hendir fólki fram og til baka og ekki mun þetta ástand batna þegar flóttamenn og hælisleitendur fá hér alla þjónustu sálfræðinga og geðlækna en íslenskir öryrkjar sitja heima og velta því fyrir sér hvers vegna fæ ég ekki aðstoð eins og þetta fólk?

  • #5Sigríður J Valdimarsdóttir
    Ég fagna því að einfalda eigi kerfið og að það eigi að reyna að gera auðveldara fyrir þá öryrkja sem geta, að vinna, en mér finnst mikilvægt að ekki sé pressað á öryrkja að vinna bara út af því að ótilgreindum sérfræðingum (eða stjórnvöldum) finnist að þeir eigi að geta það. Að lifa sem öryrki er flókið. Þar spilast inn í allskonar tilfinningar, eins og varnarleysi og skömm, og það hjálpar aldrei þegar opinberir aðilar tala óvarlega um öryrkja eins og hefur gerst í gegnum árin. Það hjálpar heldur ekki þegar gefið er sterklega til kynna að öryrkjar séu ekki að gera nóg til að komast út á vinn… Lesa alla

    Ég fagna því að einfalda eigi kerfið og að það eigi að reyna að gera auðveldara fyrir þá öryrkja sem geta, að vinna, en mér finnst mikilvægt að ekki sé pressað á öryrkja að vinna bara út af því að ótilgreindum sérfræðingum (eða stjórnvöldum) finnist að þeir eigi að geta það. Að lifa sem öryrki er flókið. Þar spilast inn í allskonar tilfinningar, eins og varnarleysi og skömm, og það hjálpar aldrei þegar opinberir aðilar tala óvarlega um öryrkja eins og hefur gerst í gegnum árin. Það hjálpar heldur ekki þegar gefið er sterklega til kynna að öryrkjar séu ekki að gera nóg til að komast út á vinnumarkað. Það eykur bara á skömmina, varnarleysið og vonleysið sem kemur upp vegna þrýstings og óraunhæfra væntinga. Það tekur langan tíma að sætta sig við að vera öryrki. Ég held að enginn sjá fyrir sér að verða öryrki þegar hann byrjar að taka þátt á vinnumarkaði. Ég, til dæmis, fór ekki í gegnum háskólanám til þess að gerast öryrki og því var mjög erfitt að kyngja því að ég væri með takmarkaða orku til vinnu. Ég er mikil reglumanneskja, hef aldrei smakkað áfengi, aldrei reykt eða tekið inn eiturlyf. Ég er svo löghlýðin að ég gef stefnuljós inn í bílastæði. Ég á foreldra sem hafa alltaf verið harðduglegir og ég var sjálf mjög metnaðarfull í námi og á þeim árum sem ég náði á vinnumarkaði. Hefði ég ekki hrunið, þá væri ég í hálaunastarfi, því strax eftir háskóla var ég komin í yfirmannsstöðu. En ég er með takmarkaða orku til vinnu og til almennra verka dagsdaglega, og það má svo lítið koma upp á til að ég hrynji aftur í algert orkuleysi. Ég var farin að gæla við þá hugmynd að prófa míkróprósentu (eins og heimilislæknirinn minn orðaði það) í vinnu, af því að synir mínir eru orðnir eldri og ég hef meiri tíma fyrir sjálfa mig. Geðlækirinn minn var byrjaður að hjálpa mér í gegnum það ferli og við vorum farin að horfa til Vinnumálastofnunnar til að sjá hvernig þetta færi fram. En svo gerðist Grindavík, sem hefur verið áfall eftir áfall, og ég hrundi aftur og hef lítið getað gert yfir daginn frá 10. nóvember. Ég er aftur komin í að nota þann snefil af orku sem ég hef í börnin mín til að passa að þau fái mat og samveru og væntumþykju. Allt annað er eins og að draga rútu með reipi með handaflinu einu. En það þarf ekki hamfarir við æskuheimilið til að ég detti í þetta orkuleysi; erfið samskipti við manneskju getur orsakað það, eða mikil rigning á bílrúðu eftir myrkur. Of mikil læti í búðinni eða að fjölskyldumeðlimur lendi í einhverjum erfiðleikum eða ósanngirni. Það þarf svo lítið til þess að ég missi alla mína orku, og það tekur svo langan tíma að vinna aftur upp þessa orku. Hvernig færi það ef einhver ótilgreindur sérfræðingur myndi stimpla mitt mat með "hlutaörorku" á góðum degi, og svo hryn ég tveimur vikum seinna? Er ég að þurfa að fara í langt og kvíðavaldandi ferli til að fá nýtt mat? Það að þurfa að fara í nýtt mat út af þessu nýja kerfi er alveg ofboðslega kvíðavaldandi eins og er. Ég hef áhyggjur af því að einhver ótilgreindur sérfræðingur sem ég hef aldrei áður hitt fari að meta mína starfsgetu (því við skulum bara kalla þetta frumvarp það sem það er: starfsgetumat). Örorkan sést ekki utan á mér. Ef þið ætlið að fá þetta í gegn þá fer ég fram á að minn geðlæknir, til margra ára og þekkir mín mál út í þaula, fái að meta mína starfshæfni. Minn vandi er jú flókinn og nýlega fékk ég greiningu sem útskýrir af hverju venjuleg úrræði og meðferðir eru ekki að virka fyrir mig. Nú er ég að læra að lifa með greiningunni, og það tekur tíma. En svo ég snúi mér að öðru: Hamrað er á því að það séu jöfn tækifæri í landinu og að fólk eigi að hjálpa sér sjálft (óháð því að sumir einfaldlega geta það ekki). En ég velti því fyrir mér hversu jöfn tækifærin eru. Ég á tvíbura sem verða 17 ára á árinu. Ég fæ greitt með þeim barnalífeyri sem hjálpar mér að kaupa handa þeim mat og nauðsynjar, og borga lítið húsnæði þar sem þeir hafa sitthvort herbergið. Í nýlegri umræðu komst ég að því að þegar þeir verða 18 ára, og eru enn í framhaldsskóla, þá er hægt að fá áframhaldandi barnalífeyri - svo lengi sem þeir eru ekki með "of háar tekjur." Báðir mínir strákar eru í framhaldsskólum. Annar mun líklegast fara í starfsþjálfun nú í sumar og mun því hafa einhverjar tekjur. Hinn er að safna sér pening og er því að vinna eitt kvöld í viku. Samkvæmt þessu samtali sem ég átti varðandi barnalífeyri, þá mun mitt heimili ekki fá barnalífeyri eftir að synir mínir verða 18 ára, af því að þeir eru of duglegir fyrir utan skóla. Það er ætlast til að ég hrifsi af þeim þann pening sem þeir vinna sér inn til að eiga fyrir uppihaldi á þeim og húsnæði. Hvernig eru mín börn með sömu tækifæri og börn annarra þegar þau geta ekki unnið sér inn auka pening án þess að það fari í mat og uppihald? Börn annarra hafa tækifæri til að safna sér fyrir bílprófi/bíl/tölvum/ferðum, því þeirra tekjur/bankainnistæður skerða ekki laun foreldra. Hvernig ætlið þið að taka á þessu í nýja frumvarpinu svo að börnin mín fái raunverulega jöfn tækifæri á við aðra jafnaldra? Synir mínir eiga ekki að þurfa að vinna með framhaldsskóla til að eiga fyrir mat. Eða eiga þeir að sleppa því alveg að vinna til að tryggja að heimilið fái barnalífeyri til að kaupa mat og borga rafmagn? Það á ekki að refsa ungu fólki fyrir dugnað. Og það á ekki að refsa öryrkjum fyrir að eiga börn sem hafa drifkraft í að vinna með námi! Ég hefði haldið að slíkum dugnaði yrði fangað í stað þess að honum sé refsað! Ég fer fram á að greiddur verði út barnalífeyrir vegna öryrkja með ungt fólk í námi, óháð tekjum/fjármagnstekjum ungmennanna. Og svo verðið þið að passa að taka algerlega úr sambandi tekjur (þ.m.t. fjármagnstekjur) barna öryrkja, í sambandi við útreikning á örorkulífeyri. Það er grimmt að ætlast sé til að öryrkjar sparki unga fólkinu sínu af heimilinu til að lögheimilið skerði ekki örorkulífeyrinn (t.d. heimilisuppbót). Hvar eru jöfn tækifærin þegar börn annarra mega vera á heimilum foreldra sinna til þrítugs, en börn örkyrkja neyðast til að flytja út um tvítugt, eða jafnvel fyrr út af tekjutenginum? Þetta er svo grimmt kerfi í dag að mér fallast hendur... Það er allt gert til að gera öryrkjum erfitt fyrir - og þetta er fólk sem hefur ekki orku í að standa í stappi við kerfið! Þetta er fólk sem hefur ekki orku til að komast að því hvaða réttindi það hefur því að það er enginn sem grípur fólkið þegar það er metið til örorku. Fólk stendur bara uppi og þarf að finna upp hjólið. Í staðin er gengið út frá því að öryrkjar séu að svindla á kerfinu. Hinn almenni öryrki er ekki að því, en okkur er öllum refsað af því einhverntíman hefur einhver svindlað. Þetta er eins og að stinga öllum alþingismönnum í fangelsi fyrir það að einn þeirra braut lög! Ég vona að nýtt kerfi verði betra, en það má aldrei vera þannig að tilgangurinn sé að gera veiku fólki erfiðara fyrir að fá örorkugreiningu, eða að ýta á veikt fólk að koma sér út á vinnumarkað áður en það er tilbúið til þess. Treystið læknum viðkomandi einstaklinga til að gera matið; ekki leggja það á okkur að sitja á stól fyrir framan ókunnuga einstaklinga sem eiga að meta hversu mikið við getum unnið eftir eitt eða tvö samtöl. Það er aldrei að fara að enda vel og á bara eftir að keyra öryrkja dýpra í veikindi vegna kvíða og álags og skömm. Svona til samantektar: - Ekki þrýsta á veikt fólk til að fara að vinna ef það er ekki tilbúið til þess. - Ekki láta ókunnuga um starfsgetumatið; leyfið læknum hvers og eins að gera það. - Veitið börnum örkyrkja raunveruleg jöfn tækifæri á við jafnaldra með því að borga barnalífeyri, óháð tekjum námsmanna. - Takið úr sambandi alla tekjutengingu barna öryrkja við öryrkjann, þ.á.m. fjármagnstekjur. Þá meina ég líka uppkominna barna sem eru enn í námi. - Þegar talað er um örorkulífeyri, vinsamlegast hættið að taka heimilisuppbót og annað út fyrir svigann til að skerða. - Öryrkjar eru eins mismunandi og þeir eru margir. Ein lausn hentar ekki öllum. Ekki þvinga alla í sama mótið, því það er aldrei að fara að enda vel.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    38 ræður · 2 klst. 19 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 8. apríl 2024
    3 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Þingskjal
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  11. Þingskjal
  12. Þingskjal
  13. Þingskjal
  14. Umræða
    2. umræða
    37 ræður · 2 klst. 43 mín
  15. Þingskjal
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 6 með, 34 á móti
  20. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  21. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  22. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 6 á móti
  23. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  24. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 6 á móti
  25. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  26. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 6 á móti
  27. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  28. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  29. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  30. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  31. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  32. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  33. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  34. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  35. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  36. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  37. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  38. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  39. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  40. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  41. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  42. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  43. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  44. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 6 með, 34 á móti
  45. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  46. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  47. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  48. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  49. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  50. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  51. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  52. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  53. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  54. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  55. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  56. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  57. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  58. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  59. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  60. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  61. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  62. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 6 með, 34 á móti
  63. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  64. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  65. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  66. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  67. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  68. Þingskjal
  69. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti

Þingskjöl

10 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1290Stjórnarfrumvarp19. mar. 2024Guðmundur Ingi GuðbrandssonLesaPDF
1848Nefndarálit11. jún. 2024Steinunn Þóra Árnadóttir, Ásmundur Friðriksson +4LesaPDF
1849Breytingartillaga11. jún. 2024Steinunn Þóra Árnadóttir, Ásmundur Friðriksson +4LesaPDF
1897Nefndarálit14. jún. 2024Jóhann Páll JóhannssonLesaPDF
1907Breytingartillaga18. jún. 2024Jóhann Páll Jóhannsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir +3LesaPDF
2034Nefndarálit21. jún. 2024Arndís Anna Kristínardóttir GunnarsdóttirLesaPDF
2036Nál. með brtt.21. jún. 2024Guðmundur Ingi KristinssonLesaPDF
2050Frhnál. með brtt.21. jún. 2024Steinunn Þóra Árnadóttir, Jóhann Páll Jóhannsson +6LesaPDF
2102Frumvarp eftir 2. umræðu22. jún. 2024—LesaPDF
2123Lög í heild22. jún. 2024—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

55 alls · 52 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

76 ræður · 5 klst. 3 mín
  • 1. umræða: 38 ræður · 5 ræðumenn · 2 klst. 19 mín
  • 2. umræða: 37 ræður · 10 ræðumenn · 2 klst. 43 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur27 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins181 klst. 13 mín
Inga SælandFlokkur fólksins836 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn11 mín
Arndís Anna Kristínardóttir GunnarsdóttirUtan þingflokka731 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka312 mín
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur11 mín
Jóhann Páll JóhannssonSamfylkingin532 mín
Guðbrandur EinarssonViðreisn11 mín
Guðmundur Ingi GuðbrandssonUtan þingflokka191 klst. 2 mín
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka1147 mín

Umsagnir og erindi

21 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 3 umsagnabeiðnir 25. mar. 2024, frestur 8. apr. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinskynningOpna PDF
Stígamót,samtök kvennaumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
GeðhjálpumsögnOpna PDF
Bandalag háskólamannaumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag heyrnarlausraumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
TryggingastofnunumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
VIRK - StarfsendurhæfingarsjóðurumsögnOpna PDF
HugaraflumsögnOpna PDF
Landssamtök lífeyrissjóðaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.