Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 35. mál

Endurnot opinberra upplýsinga

Mjög verðmæt gagnasett, EES-reglur o.fl.

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 30. apr. 2024

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að auka möguleika fyrirtækja, einkaaðila og almennings til hagnýtingar á upplýsingum frá hinu opinbera og stuðla að hagvexti og nýsköpun til aukinnar samkeppnishæfni og hagsbóta fyrir samfélagið í heild.

Lagt fram af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 30. apr. 2024 greiddu 29 atkvæði með og 0 á móti, 3 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
1. desember 2023
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
11 ræður · 40 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. júl. 2025

Markmiðið

Að auka möguleika fyrirtækja, einkaaðila og almennings til hagnýtingar á upplýsingum frá hinu opinbera og stuðla að hagvexti og nýsköpun til aukinnar samkeppnishæfni og hagsbóta fyrir samfélagið í heild.

Hvað breytist

Með frumvarpinu á að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1024 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera. Lagt er til að skilgreind verði gagnasett sem skulu vera gjaldfrjáls, á véllæsilegu sniði og veitt um viðeigandi forritaskil og, þegar við á, með magnniðurhali. Jafnframt er gert ráð fyrir að rannsóknargögn sem eru að hluta eða öllu leyti fjármögnuð af hinu opinbera megi endurnota gjaldfrjálst að því tilskildu að þau hafi verið gerð aðgengileg í gegnum gagnasafn stofnunar eða gagnasafn á tilteknu sviði.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1024 frá 20. júní 2019 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om videreanvendelse af den offentlige sektors informationer LBK nr 1764 af 26/08/2021.

Finnland

Lag om informationshantering inom den offentliga förvaltningen 906/2019.

Svíþjóð

Lag om den offentliga sektorns tillgängliggörande av data (2022:818).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Berglind Ósk Guðmundsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
30. apr. 2024
Samþykkt29 með · 0 á móti · 3 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Endurnot opinberra upplýsinga“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S9–0
  • F8–0
  • 236–0
  • 432–0
  • Flf0–0 · 3 hjá
  • Sf3–0
  • V1–0
  • M0–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
sendi 3 umsagnabeiðnir · frestur 7. feb. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Ríkisendurskoðun, Skatturinn, Skrifstofa Alþingis, Dómstólasýslan, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarins o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
40 mín · 11 ræður
4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 30. apríl 2024: 29 með, 0 á móti, 3 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

27 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

3 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-190/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. okt. 2023 – 27. okt. 2023· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (mjög verðmæt gagnasett, rannsóknargögn o.fl.)

Með frumvarpinu er fjallað um lágmarksreglur til að auka hagnýtingu gagna sem safnað er hjá opinberum aðilum í þeim tilgangi að örva nýsköpun og til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-190/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. desember 2023)

Fjórar umsagnir bárust um frumvarpsdrögin. Við frágang á frumvarpinu og greinargerðar með því til framlagningar á Alþingi var tekið tillit til umsagnanna. Nánar vísast til 5. kafla í tilvísuðu þingskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Svavar Kjarrval Lúthersson
    Ég fagna því að tilskipunin hafi hlotið samþykki sameiginlegu nefndar EES-samningsins. Vil þó gera athugasemd um að frumvarpið mætti reyna að tryggja sérstaklega rétt fatlaðs fólks til aðgengis að gagnasettunum sem heimilt yrði að dreifa með tilstilli samþykkts frumvarps, sbr. t.a.m. b-lið 1. mgr. og f- til h-lið 2. mgr. 9. gr., og c- og d-liðar 21. gr. SRFF, auk þess til hliðsjónar 33. og 71. gr. inngangs tilskipunarinnar sem á að innleiða. Ekki er því neitað að almennt aðgengi að mjög verðmætum gagnasettum gæti, eftir atvikum, leitt til aukins upplýsingaaðgengis fatlaðs fólks. Í ljósi fyriræ… Lesa alla

    Ég fagna því að tilskipunin hafi hlotið samþykki sameiginlegu nefndar EES-samningsins. Vil þó gera athugasemd um að frumvarpið mætti reyna að tryggja sérstaklega rétt fatlaðs fólks til aðgengis að gagnasettunum sem heimilt yrði að dreifa með tilstilli samþykkts frumvarps, sbr. t.a.m. b-lið 1. mgr. og f- til h-lið 2. mgr. 9. gr., og c- og d-liðar 21. gr. SRFF, auk þess til hliðsjónar 33. og 71. gr. inngangs tilskipunarinnar sem á að innleiða. Ekki er því neitað að almennt aðgengi að mjög verðmætum gagnasettum gæti, eftir atvikum, leitt til aukins upplýsingaaðgengis fatlaðs fólks. Í ljósi fyrirætlana ríkisstjórnarinnar að lögfesta SRFF er sérstakt tilefni til þess að skoða samræmi fyrirætlaðrar löggjafar við téðan samning, en umfjöllunin í greinargerð um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar bendir ekki til þess að ráðuneytið hafi haft hann í huga í þessu ferli.

  • #2Guðmundur Ásgeirsson
    Undirritaður er almennt fylgjandi þessu frumvarpi, en með eftirfarandi athugasemdum. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta einkum að því að skilgreina verðmæt gagnasett. Þau skuli gerð aðgengileg gjaldfrjáls og með minnstu mögulegu lagalegum og tæknilegum takmörkunum. Jafnframt verði skylt að tryggja aðgengi að þeim með svonefndum forritaskilum (API). Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til viðauka með tilskipun 2019/1024 þar sem eru skilgreindir sex þemabundnir flokkar mjög verðmætra gagnasetta, þar á meðal hagskýrslur (tölfræðilegar upplýsingar). Í 5. gr. frumvarps… Lesa alla

    Undirritaður er almennt fylgjandi þessu frumvarpi, en með eftirfarandi athugasemdum. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta einkum að því að skilgreina verðmæt gagnasett. Þau skuli gerð aðgengileg gjaldfrjáls og með minnstu mögulegu lagalegum og tæknilegum takmörkunum. Jafnframt verði skylt að tryggja aðgengi að þeim með svonefndum forritaskilum (API). Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til viðauka með tilskipun 2019/1024 þar sem eru skilgreindir sex þemabundnir flokkar mjög verðmætra gagnasetta, þar á meðal hagskýrslur (tölfræðilegar upplýsingar). Í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að ráðherra skuli setja reglugerð um mjög verðmæt gagnasett þ.m.t. hvaða opinberu upplýsingar teljast til mjög verðmætra gagnasetta, reglur um snið, lýsigögn og formlega staðla. Samkvæmt þessu er lykilatriði hvaða opinberu upplýsingar verði tilgreindar í reglugerðinni sem og snið þeirra. Meðal þeirra stofnana sem birta mikilvægar tölulegar upplýsingar er Seðlabanki Íslands. Þar á meðal eru hagtölur bankans, sögulegar upplýsingar um vexti sem bankinn ákvarðar eða birtir o.fl. Þessar upplýsingar eru jafnan birtar á vef bankans í Excel skjölum sem er tiltölulega auðvelt að nálgast. Sá birtingarmáti hefur þó ákveðna ókosti. Í fyrsta lagi er sérstakur hugbúnaður nauðsynlegur til að opna slík skjöl til aflestrar og úrvinnslu. Í öðru lagi eru slík skjöl ekki allra heppilegasta formið sem völ er á til að lesa upplýsingar með vélrænum hætti, svo sem til innflutnings í tölvukerfi sem ætlað er að vinna úr slíkum upplýsingum með sjálfvirkum hætti. Sum gögn bankans eru reyndar aðgengileg nú þegar á XML formi en alls ekki öll og gera mætti betur í þeim efnum. Undirritaður leggur því til að í reglugerð á grundvelli laga samkvæmt frumvarpinu verði hagtölur og aðrar tölulegar upplýsingar Seðlabanka Ísland skilgreindar sem verðmæt gagnasett. Jafnframt verði kveðið á um að þær skuli gera aðgengilegar bæði á formi sem er auðlæsilegt mönnum án sérstaks hugbúnaðar og formi sem er auðlæsilegt með vélrænum hætti svo sem með hugbúnaði. Sem dæmi um form sem er auðlæsilegt mönnum væri einfaldlega hægt að birta þær í töflum á vefsíðu bankans þannig að ekki þurfi annan hugbúnað en netvafra til að fletta þeim upp, líkt og er t.d. hægt á vefsíðu Hagstofu Ísland. Sem dæmi um form sem er auðlæsilegt með vélrænum hætti mætti nefna vefþjónustur eða sambærileg forritaskil þar sem hægt væri að sækja sömu gögn á formi sem fylgir viðurkenndum stöðlum á borð við JSON eða XML. Ráðlegt væri að hafa samráð við hugbúnaðarsérfræðinga um val á útfærslum með tilliti til þess hvað sé hagkvæmast og skilvirkast í slíkri notkun. Enn fremur þyrfti að beina því til Seðlabanka Íslands að huga sem fyrst að útfærslu slíkra birtingarmáta og forritaskila.

  • #3Sævar Þór Halldórsson

    4. gr. 2. ml. ætti að falla út eða breytast. t.d. vill Google og Apple og aðrir stórnotendur ekki nota mörg opinber landfræðileg gagnasett, þar sem þau vilja og ætla ekki að geta í skilmálum eða á öðrum stöðum, uppruna gagnanna. Betra væri bara ef þetta yrði orðað öðruvísi eða bara sleppt í lögunum.

  • #4Viðskiptaráð Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    10 ræður · 33 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 7. febrúar 2024
    3 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 7 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 37 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 37 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 37 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Þingskjal
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 29 með, 0 á móti
  14. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
35Stjórnarfrumvarp1. des. 2023Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirLesaPDF
1546Nál. með brtt.18. apr. 2024Þórunn Sveinbjarnardóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir +7LesaPDF
1610Frumvarp eftir 2. umræðu30. apr. 2024—LesaPDF
1621Lög í heild30. apr. 2024—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur22. janúar 2024 kl. 18:42
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd22. janúar 2024 kl. 18:42
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt30. apríl 2024 kl. 16:18
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Endurnot opinberra upplýsinga“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:10 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt30. apríl 2024 kl. 16:18
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Endurnot opinberra upplýsinga“.
    1--3
    • SSjálfstæðisflokkur:10 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt30. apríl 2024 kl. 16:19
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Endurnot opinberra upplýsinga“.
    2.--9. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:10 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur30. apríl 2024 kl. 16:19
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt30. apríl 2024 kl. 17:42
    Að samþykkja frumvarpið „Endurnot opinberra upplýsinga“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • SfSamfylkingin:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:1 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

11 ræður · 40 mín
  • 1. umræða: 10 ræður · 3 ræðumenn · 33 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 7 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sendi 3 umsagnabeiðnir 24. jan. 2024, frestur 7. feb. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
RíkisendurskoðunumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Skrifstofa AlþingisumsögnOpna PDF
DómstólasýslanumsögnOpna PDF
Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Haraldur ÓlafssonumsögnOpna PDF
Veðurstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Hagstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Landmælingar ÍslandsumsögnOpna PDF
Ólafur RögnvaldssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.