Beint í efni
Alviti
Þingmál153. þing · 542. mál

Hækkun verðbólgu

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að efla umgjörð fyrir sköpun og flutning tónlistar á Íslandi með því að marka heildarramma fyrir málefni tónlistar og búa henni hagstæð skilyrði.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 8 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 4. júl. 2024

Markmiðið

Að efla umgjörð fyrir sköpun og flutning tónlistar á Íslandi með því að marka heildarramma fyrir málefni tónlistar og búa henni hagstæð skilyrði.

Hvað breytist

Lagt er til að stofna tónlistarmiðstöð og tónlistarsjóð. Gert er ráð fyrir að tónlistarmiðstöð taki við af ÚTÓN og Íslenskri tónverkamiðstöð. Lagt er til að tónlistarsjóður verði sameinaður úr þremur sjóðum í einn nýjan sjóð með fjórum deildum. Þá er gert ráð fyrir að Sinfóníuhljómsveit Íslands verði áfram í eigu þjóðarinnar, með áherslu á kynningu og útbreiðslu íslenskrar tónlistar.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Sinfóníuhljómsveit Íslands, nr. 36/1982, og frá 1. júní 2023 falla úr gildi lög um tónlistarsjóð, nr. 76/2004.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna stofnunar og reksturs tónlistarmiðstöðvar og eflingar tónlistarsjóðs verði 324,8 milljónir kr. á árinu 2023, 374,8 milljónir kr. á árinu 2024 og 424,8 milljónir kr. á árinu 2025.

Meira úr samantektinni

Skýrsla starfshóps um tónlistarmiðstöð. Mars 2021.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om musik LBK nr 32 af 14/01/2014.

Finnland

Lag om främjande av scenkonst 17.12.2020/1082.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 27. feb. 2023
Sendu inn umsögn eða erindi
8 aðilar
Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Kennarasamband Íslands, Ríkisendurskoðun, Félag íslenskra tónlistarmanna, Reykjavíkurborg o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
8 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna stofnunar og reksturs tónlistarmiðstöðvar og eflingar tónlistarsjóðs verði 324,8 milljónir kr. á árinu 2023, 374,8 milljónir kr. á árinu 2024 og 424,8 milljónir kr. á árinu 2025.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-145/2022· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. ágú. 2022 – 31. ágú. 2022· 22 umsagnir

Frumvarp til laga um tónlist

Markmiðið með frumvarpinu að efla umgjörð fyrir sköpun og flutning tónlistar á landinu öllu, marka heildarramma fyrir málefni tónlistar og búa henni hagstæð skilyrði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-145/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. ágúst 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 22 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (22)
  • #1Róbert Þórhallsson
    Ég vil benda á mikilvægi þess að hugað verði að framtíðarhúsnæði fyrir Menntaskóla í tónlist. Nú er skólinn á tveimur stöðum í óhenntugu húsnæði og nemendur þurf að fara á milli hverfa í borginni til að sækja tíma. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir tónlistarlífið að vel sé búið að tónlistarmenntun á framhaldskólastigi og að stutt verði við uppbyggingu á hentugu skólahúsnæði fyrir MÍT þar sem 200 nemendur á framhaldsskólastigi í tónlist stunda nám. Ég tel það mjög mikilvægt að sett verði markmið í tónlistarstefnunni að stefnt sé að því að tryggja hentugt framtíðarhúsnæði fyrir Menntaskóla í tó… Lesa alla

    Ég vil benda á mikilvægi þess að hugað verði að framtíðarhúsnæði fyrir Menntaskóla í tónlist. Nú er skólinn á tveimur stöðum í óhenntugu húsnæði og nemendur þurf að fara á milli hverfa í borginni til að sækja tíma. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir tónlistarlífið að vel sé búið að tónlistarmenntun á framhaldskólastigi og að stutt verði við uppbyggingu á hentugu skólahúsnæði fyrir MÍT þar sem 200 nemendur á framhaldsskólastigi í tónlist stunda nám. Ég tel það mjög mikilvægt að sett verði markmið í tónlistarstefnunni að stefnt sé að því að tryggja hentugt framtíðarhúsnæði fyrir Menntaskóla í tónlist.

  • #2Tryggvi M Baldvinsson
    Umsögn um Frumvarp til laga um tónlist Í 1. grein segir m.a.: Markmið laganna er að efla umgjörð fyrir sköpun og flutning tónlistar á landinu öllu, marka heildarramma fyrir málefni tónlistar og búa henni hagstæð skilyrði. Þetta er ákaflega metnaðarfullt markmið og fyrir löngu kominn tími til að tónlistin fái sterkan málsvara innan lagarammans. Það er væntanlega vegna starfssviðs ráðuneytisins að ekkert er fjallað um tónlistarmenntun í frumvarpinu, jafnvel þó að hún sé einn kafli í stefnunni til grundvallar frumvarpinu. Góð tónlistarmenntun er án efa hornsteinn íslensks tónlistarlífs… Lesa alla

    Umsögn um Frumvarp til laga um tónlist Í 1. grein segir m.a.: Markmið laganna er að efla umgjörð fyrir sköpun og flutning tónlistar á landinu öllu, marka heildarramma fyrir málefni tónlistar og búa henni hagstæð skilyrði. Þetta er ákaflega metnaðarfullt markmið og fyrir löngu kominn tími til að tónlistin fái sterkan málsvara innan lagarammans. Það er væntanlega vegna starfssviðs ráðuneytisins að ekkert er fjallað um tónlistarmenntun í frumvarpinu, jafnvel þó að hún sé einn kafli í stefnunni til grundvallar frumvarpinu. Góð tónlistarmenntun er án efa hornsteinn íslensks tónlistarlífs og því þykir það mér skjóta skökku við að sjá ekki gert ráð fyrir fulltrúa tónlistarkennara í stjórn væntanlegrar Tónlistarmiðstöðvar. Sérstaklega þar sem sú stétt er að oft helsti drifkraftur tónlistarlífs á landsbyggðunum. Stjórn tónlistarmiðstöðvar, eins og hún birtist í frumvarpinu, er mikil höfuðborgarstjórn fyrir utan að hagsmunir fyrirhugaðra aðila skarast. Orðið tónlistarkennsla kemur reyndar einu sinni fyrir, í grein um Sinfóníuhljómsveit Íslands, en rétt er að taka fram að hugtakið tónlistarmenntun er það hugtak sem notað er nú til dags. Tryggvi M. Baldvinsson Tónskáld og forseti tónlistardeildar LHÍ

  • #3Hávarður Tryggvason
    v/Frumvarps til laga um tónlist. IV.kafli : Sinfóníuhljómsveit Íslands. 1) Í 8.gr. stendur "Sinfóníuhljómsveit Íslands er eign íslensku þjóðarinnar" Þetta er dálítið óvenjulegt orðalag um opinbera stofnun. Helsti auður SÍ er mannauður (hljóðfæraleikarar og annað starfsfólk). Varla er þetta fólk eign íslensku þjóðarinnar. 2) Í gömlu lögunum um SÍ (1982 nr.36) stendur : 1.gr. "Hljómsveitin heitir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Heimili hennar og varnarþing er í Reykjavík." og svo "Málefni hennar heyra undir menntamálaráðuneytið" (nú Menningar og Viðskiptaráðuneytið). Þessum setningum þyrf… Lesa alla

    v/Frumvarps til laga um tónlist. IV.kafli : Sinfóníuhljómsveit Íslands. 1) Í 8.gr. stendur "Sinfóníuhljómsveit Íslands er eign íslensku þjóðarinnar" Þetta er dálítið óvenjulegt orðalag um opinbera stofnun. Helsti auður SÍ er mannauður (hljóðfæraleikarar og annað starfsfólk). Varla er þetta fólk eign íslensku þjóðarinnar. 2) Í gömlu lögunum um SÍ (1982 nr.36) stendur : 1.gr. "Hljómsveitin heitir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Heimili hennar og varnarþing er í Reykjavík." og svo "Málefni hennar heyra undir menntamálaráðuneytið" (nú Menningar og Viðskiptaráðuneytið). Þessum setningum þyrfti að koma inn í nýju lögin, t.d. í 8.gr. eða 11.gr. Virðingarfyllst, Hávarður Tryggvason Fulltrúi hljóðfæraleikara í stjórn SÍ

  • #4Atli Ingólfsson
    1. gr. „Ráðherra fer með yfirstjórn málefna er varða tónlist samkvæmt lögum þessum.“ Þessa setningu má stroka út eða umorða. Kannski réttara að ráðherra beri ábyrgð á framfylgni laga þessara, en þarf að taka það fram? 3. gr. 5. „Stuðla að auknum samskiptum og tengslamyndun við erlenda aðila á sviði tónlistar.“ Hér vantar að taka fram í hvaða tilgangi það er. Þá verður ekki séð að mikill munur sé á samskiptum og tengslamyndun, nema átt sé við að stofna eigi til fastra tengsla. Altént ekki ljóst hverju þetta efnisatriði bætir við það þriðja. 4. gr. Af þeim sem skipa í stjórn… Lesa alla

    1. gr. „Ráðherra fer með yfirstjórn málefna er varða tónlist samkvæmt lögum þessum.“ Þessa setningu má stroka út eða umorða. Kannski réttara að ráðherra beri ábyrgð á framfylgni laga þessara, en þarf að taka það fram? 3. gr. 5. „Stuðla að auknum samskiptum og tengslamyndun við erlenda aðila á sviði tónlistar.“ Hér vantar að taka fram í hvaða tilgangi það er. Þá verður ekki séð að mikill munur sé á samskiptum og tengslamyndun, nema átt sé við að stofna eigi til fastra tengsla. Altént ekki ljóst hverju þetta efnisatriði bætir við það þriðja. 4. gr. Af þeim sem skipa í stjórnina eru þrjú félög höfunda og flytjenda og eitt félag úr tónlistariðnaðinum. Er Félag hljómplötuframleiðenda örugglega sá aðili sem helst ætti að vera fulltrúi iðnaðarins? Að öðru leyti er þessi skipan skiljanleg: Málefni er varða tónlist eru a) kennsla, b) sköpun, c) iðkun og d) birting eða dreifing tónlistar. Það er hugsanlegt að miðstöðin eigi ekki að fjalla um kennslu, en þá ákvörðun þarf að rökstyðja betur. 5. gr. Það væri ekki úr vegi að setja dálitlar skorður við gjaldtöku þannig að þóknun fyrir veitta þjónustu verði sanngjörn og gæti jafnræðis. Skýra hvort innheimta megi þóknun fyrir ráðgjöf, sendingu, fjölföldun, framleiðslu o.s.frv. 6. gr. Hér vantar greinilega meiri upplýsingar um tónlistarráð. Hversu margir eru í því? Hve oft hittist það? Er formaður? Hver ákveður málefnaskrá? 9. gr. „einum tilnefndum af þeim ráðherra er fer með fjárreiður ríkisins og tveir tilnefndum af ráðherra án tilnefningar“ Þetta mun eiga að vera: „og tveimur skipuðum af ráðherra án tilnefningar“. En þarna er einungis tryggt að einn af fimm meðlimum stjórnar hafi tónlistarmenntun. Þrír af fimm eru skipaðir af ráðuneyti. Mætti tónlistarráð ekki tilnefna einn þeirra? ** „Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands ræður aðalhljómsveitarstjóra og aðra fasta hljómsveitarstjóra og skipar verkum með þeim.“ Hér birtist ágalli þess að ekki sé tryggð meiri tónlistarþekking innan stjórnarinnar. Líklega ætti þó að vera hér viðbótarklausa um að valferli hljómsveitarstjóra sé á ábyrgð framkvæmdastjóra. ** „Heimilt er að ráða tónskáld til starfa í þágu hljómsveitarinnar í takmarkaðan tíma eða fá verk til flutnings hjá tónskáldum.“ Þetta er of óskýrt og hér þarf að semja mun lengri málsgrein. Í fyrsta lagi þarf hljómsveitin að geta ráðið listræna stjórnendur í tiltekin verkefni (sýningarstjóra eða „kúratora“) sem geta þá verið tónskáld. Í öðru lagi er vissulega gott að heimild sé til þess að ráða tónskáld en setja þarf skýrari ramma um ráðningartíma og verksvið. Í þriðja lagi er orðalagið „fá verk til flutnings hjá tónskáldum“ ekki heppilegt. Réttara væri að hljómsveitin kappkosti að panta ný verk hjá íslenskum tónskáldum og flytja eldri verk starfandi íslenskra tónskálda, enda er sérstaklega getið um þetta í 8. grein laganna. ** „Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands er heimilt að skipa verkefnavalsnefnd um verkefni hljómsveitarinnar. Stjórnin ákveður nánar um skipulag og hlutverk nefndarinnar.“ Hér vantar meðvitund um að sinfóníuhljómsveit, eins og leikhús, dansflokkur eða listasafn, þarf listræna stefnu. Hér er því um tvo kosti að velja: Annað hvort ber að ráða framkvæmdastjóra eða tónlistarstjóra í opnu ferli og á listrænum forsendum, og ber sá þá ábyrgð á að móta hljómsveitinni listræna stefnu (sbr. 11. grein gömlu Þjóðleikhúslaganna: „Þjóðleikhússtjóri er stjórnandi leikhússins og hefur forystu um að móta listræna stefnu þess.“), eða skipa skilyrðislaust verkefnavalsnefnd til að hafa umsjón með þessu. Sé listræn ábyrgð og stefna ekki rekjanleg og skilgreind er mjög hætt við því að hljómsveitarstjórar, einleikarar og erlendar umboðsskrifstofur taki hana yfir og þessi „eign íslensku þjóðarinnar“ hlýði hagsmunum þeirra, fylgi engri sérstakri stefnu og vanræki íslenska tónmenningu. 10. gr. „Í öllu starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands skal leggja áherslu á að hafa sem best samstarf við aðila sem vinna að skyldum markmiðum,“ Hér mætti í framhaldinu koma: „einkum íslenska höfunda og flytjendur tónlistar, einstaklinga, hópa og stofnanir.“ Höfundar tónlistar teljast hiklaust til aðila sem vinna að skyldum markmiðum. ** „Efna má til samvinnu milli Sinfóníuhljómsveitarinnar annars vegar og Þjóðleikhússins, Íslenska dansflokksins og annarra aðila hins vegar um einstök verkefni eftir því sem tilefni gefast til og önnur starfsemi hljómsveitarinnar leyfir. “ Hér er óþarfi að setja fyrirvarann „eftir því…sem önnur starfsemi hljómsveitarinnar leyfir.“ Þetta fellur jú allt undir starfsemi hljómsveitarinnar og óþarfi að raða verkefnunum í virðingarröð þar sem önnur starfsemi er sett ofar en samstarfsverkefni. ** „Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ríkisútvarpið ohf. skulu gera með sér samning um flutning á tónlistarefni hljómsveitarinnar. “ Hér er væntanlega átt við samning um skrásetningu, varðveislu og útsendingu á tónlistarflutningi hljómsveitarinnar. Sérstök varðveisluákvæði ættu að gilda um upptökur íslenskra verka í samræmi við tilgang beggja stofnana. ** „Sinfóníuhljómsveit Íslands er heimilt að hafa tekjur af eigin starfsemi og taka aðgangseyri.“ Það er gott að hafa ákvæði um þetta í lögum. En þar sem hljómsveitin er rekin að mestu fyrir opinbert fé ættu að vera til ákvæði sem setja tekjum og útgjöldum frekari mörk. Þar mætti koma fram: - Hvort og þá að hvaða marki hljómsveitin má leita styrktaraðila. - Hversu mikið af starfi hljómsveitarinnar má vera í þjónustu styrktaraðila. - Hversu mikið af starfi hljómsveitarinnar má vera útseld vinna, til sjálfstæðra tónleikahaldara, auglýsingagerðar o.s.frv. - Hversu mikið af útgjöldum hljómsveitarinnar má renna til umboðsaðila. En einnig: - Hversu hátt hlutfall af rekstrarfé hljómsveitarinnar skal renna til frumsköpunar. Þótt ekki sé gerlegt að hafa lög svo nákvæm mætti skrifa: Framkvæmdastjóri skal marka hljómsveitinni skýran fjárhagslegan ramma þar sem fram kemur m.a.: 1) Hver hlutdeild styrktaraðila verði í rekstri og listrænu starfi, 2) Hvaða svigrúm er til að sinna útseldri vinnu, 3) Hver hlutur umboðsaðila verði í útgjöldum 4) Hvert er rými frumsköpunar í útgjöldum. ** „Framkvæmdastjóri ræður starfsfólk á skrifstofu og til aðstoðar við æfingar, tónleika, nótnavörslu og annað að fengnu samþykki stjórnar.“ Þessi efnisgrein gæti átt betur heima í grein um verksvið framkvæmdastjóra. Hana mætti einnig orða svo að framkvæmdastjóri beri ábyrgð á skipuriti stofnunarinnar og ráðningum. Atli Ingólfsson tónskáld, prófessor í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands

  • #5Margrét Bóasdóttir
    Umsögn um drög að frumvarpi til laga um tónlist 1. Tími fyrir umsagnir er afar stuttur á þeim tíma sem í boði er, þ.e í lok sumars. Mikilvægt væri að framlengja frest um 2 vikur til að fleiri hafi tíma til að senda inn umsögn. 2. 2. kafli 4. grein Þrjú ár er mjög stuttur starfstími stjórnar. Rík hefð er fyrir 4 ára skipunartímabili. Sá tími gefur mun betri líkur á árangri í starfi. Það myndi styrkja stjórn að hafa þar fulltrúa tónlistarkennara, t.d. frá Tónlistardeild LHÍ þar sem bæði fer fram menntun og rannsóknarvinna. Tónlistarmenntun er sístæð og miðað við þróun í samtíma, myndi fu… Lesa alla

    Umsögn um drög að frumvarpi til laga um tónlist 1. Tími fyrir umsagnir er afar stuttur á þeim tíma sem í boði er, þ.e í lok sumars. Mikilvægt væri að framlengja frest um 2 vikur til að fleiri hafi tíma til að senda inn umsögn. 2. 2. kafli 4. grein Þrjú ár er mjög stuttur starfstími stjórnar. Rík hefð er fyrir 4 ára skipunartímabili. Sá tími gefur mun betri líkur á árangri í starfi. Það myndi styrkja stjórn að hafa þar fulltrúa tónlistarkennara, t.d. frá Tónlistardeild LHÍ þar sem bæði fer fram menntun og rannsóknarvinna. Tónlistarmenntun er sístæð og miðað við þróun í samtíma, myndi fulltrúi menntunar og rannsókna hafa betri tengingu en fulltrúi hljómplötuframleiðenda. Það er atvinnugrein tengd tónlist en ekki hagaðili. Þessi tillaga virðist byggja á gömlum hagsmunagrunni sem ekki á lengur við rök að styðjast. 6. grein. Orðalag um hlutverk tónlistarráðs er óljóst – hlutverk þess, fjöldi ráðsmanna, varamenn, hverjir eru þeir hagaðilar sem skipa. Þetta þarf að skýra, en aðalspurningin er þó hvort þetta er til hagsbóta eða trafala. Ég get ekki séð mikilvægi þessa. 3. kafli, 7. grein. Hvaða hagaðilar skipa í úthlutunarnefndir? – þetta er óljóst. Hver er hagur greinarinnar af því ráðherra skipi formann allra nefnda án tilefningar? Ég tel þetta varhugavert og of pólitískt hugsað. Nær væri að skoða framkvæmd úthlutunar Listamannalauna þar sem jafningjamat er viðhaft. Orðalag í lokamálsgrein „ráðherra ákveður stefnu og áherslur.....“ og síðar: Tónlistarmiðstöð – (ekki stjórn hennar og forstöðumaður? )-....“mótar tillögur....og færir ráðherra til samþykktar“. Þetta er sérkennilegt orðalag og þyrfti að endurskoða. 4. kafli. Margt í orðalagi um starf Sinfóníuhljómsveitarinnar virkar eins og skrifarar þekki ekki málefnið nægilega. Sumt er of smásmugulega tilgreint og virkar ekki eins og lagatexti heldur (of) nákvæm greinargerð. Það væri mikilvægt að endurskoða texta frumvarpsdraganna og fínpússa. Færri orð og betra heildarsamræmi myndu gera meira gagn. Virðingarfyllst, Margrét Bóasdóttir Söngkona, kórstjóri, söngkennari, fv. formaður Félags íslenskra tónlistarmanna, stjórnarmaður í BÍL, varamaður í stjórn Útflutningsráðs/Íslandsstofu, formaður Landssambands blandaðra kóra og núverandi Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 8 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 27. febrúar 2023
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 8 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 8 mín

Umsagnir og erindi

8 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. feb. 2023, frestur 27. feb. 2023.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Menningar- og viðskiptaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Kennarasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
RíkisendurskoðunumsögnOpna PDF
Félag íslenskra tónlistarmannaumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttarumsögnOpna PDF
Félag tónskálda og textahöfundaathugasemdOpna PDF
Landsbókasafn Íslands - HáskólabókasafnumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.