Beint í efni
Alviti
Þingmál153. þing · 530. mál

Tóbaksvarnir

Innihaldsefni, umbúðir o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 15. des. 2022

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 153. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að innleiða Evróputilskipun 2014/40/ESB um tóbaksvörur og tengdar vörur (tóbakstilskipun ESB) og framselda tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/109/ESB.

Lagt fram af Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
2. desember 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
10 ræður · 32 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. júl. 2025

Markmiðið

Að innleiða Evróputilskipun 2014/40/ESB um tóbaksvörur og tengdar vörur (tóbakstilskipun ESB) og framselda tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/109/ESB.

Hvað breytist

Lagt er til að innleidd verði tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niðurfellingu á tilskipun 2001/37/EB. Meðal annars er lagt til að innleiddar verði reglur tilskipunarinnar um umbúðir tóbaksvara, rekjanleika og skráningu þeirra og tilkynningar um nýjar vörur. Jafnframt verður lagt til að innleiddar verði reglur um jurtavörur til reykinga og takmarkanir á einkennandi bragði og tilteknum aukaefnum í tóbaksvörum. Þá er lagt til að innleidd verði framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/109/ESB.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/40/ESB frá 3. apríl 2014 um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niðurfellingu á tilskipun 2001/37/EB (tóbakstilskipunin).

Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/109/ESB frá 10. október 2014 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/40/ESB með því að taka saman safn af myndaviðvörunum til að nota á tóbaksvörur.

Rammasamningur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaksvarnir frá maí 2003.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 18. jan. 2023
Sendu inn umsögn eða erindi
12 aðilar
Heilbrigðisráðuneytið, Rolf Johansen & Co ehf, Heilbrigðisráðuneytið - uppfært, Krabbameinsfélag Íslands, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
32 mín · 10 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

3 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-225/2021· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. des. 2021 – 30. des. 2021· 3 umsagnir

Tóbaksvarnalög

Áformað er að sameiginlega EES-nefndin taki tóbaksvarnatilskipunina upp í EES-samninginn í janúar 2022. Í tilefni af því er hafin vinna við endurskoðun laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 og af því tilefni birtast hér áform um lagasetningu þess efnis, frummat á áhrifum þess sem og þýðing á tilskipuninni.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-225/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. desember 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. janúar 2022)

Í ljósi þess að næsti fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar verður ekki fyrr en 4. febrúar 2022 þá er ekki nægilegt svigrúm til að setja málið í þann farveg sem þarf á 152. löggjafarþingi. Hefur því verið ákveðið að fresta málinu að svo stöddu og er áætlað að setja það á dagskrá 153. löggjafarþings.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Bindindissamtökin IOGT
    Kópavogur 22. desember 2021 Umsögn Æskunnar um áform um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002 (EES-reglur) HRN21110017 í samráðsgátt.[1] Æskan fagnar tillögum að sterkari forvörnum sem og í þessari tillögu sem er til þess fallin að styðja við góðan árangur í forvörnum á Íslandi. Það er von okkar að náist að draga sem fyrst úr notkun tóbaks og nikótínvara á borð við tóbakslausa nikótínpúða sem er ný vara á markaðinum og hefur náð töluverðri útbreiðslu á skömmum tíma.[2] Nikótín er ávanabindandi efni og því óæskilegt að ungt fólk byrji að nota þessar vörur og verði háð nikótíni. Æ… Lesa alla

    Kópavogur 22. desember 2021 Umsögn Æskunnar um áform um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002 (EES-reglur) HRN21110017 í samráðsgátt.[1] Æskan fagnar tillögum að sterkari forvörnum sem og í þessari tillögu sem er til þess fallin að styðja við góðan árangur í forvörnum á Íslandi. Það er von okkar að náist að draga sem fyrst úr notkun tóbaks og nikótínvara á borð við tóbakslausa nikótínpúða sem er ný vara á markaðinum og hefur náð töluverðri útbreiðslu á skömmum tíma.[2] Nikótín er ávanabindandi efni og því óæskilegt að ungt fólk byrji að nota þessar vörur og verði háð nikótíni. Æskan hefur frá stofnun 1886 hvatt til að ekki sé verið að prufa, fikta með, nota eitthvað sem hægt er að ánetjast. Æskan hvetur ráðamenn til að standa með þeim sem vinna í forvörnum því forvarnir á Íslandi hafa verið til fyrirmyndar í áratugi og skapað kynslóðir sem hafna neyslu áfengis og annara vímuefna.[3] Æskan hvetur ráðamenn að skoða miklu betur mál er varða forvarnir og lýðheilsu. Virkja þau lög sem sannarlega standa með forvörnum gegn markaðssetningu og auglýsinga efna sem hafa neikvæð áhrif á börn á hvaða miðlum sem er. Æskan fagnar viðleitni hins opinbera gagnvart viðkomandi málaflokki og styður stefnu stjórnvalda sem kemur fram í fjármálaáætlun á málefnasviði 32. „Að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks með því að minnka tóbaksneyslu og vernda fólk fyrir áhrifum tóbaksreyks. Jafnframt að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji neyslu tóbaks og hjálpa þeim sem vilja hætta neyslu tóbaks.“ Stjórnvöld verða að horfa á öll ávanabindandi efni sem valda tjóni. Lýðheilsumat er mælikvarði sem ætti hiklaust að taka upp hið snarasta þegar fjallað er um mál sem þetta. Heildarstefna í forvörnum ætti að taka gildi sem skýr viðmið að draga sem mest úr neyslu tóbaks, nikótíns, áfengis og annara vímuefna. Æskan lýsir sig fúsa til að leggja lið við vinnu við að undirbúa stefnuna þar sem Æskan er hluti af stærstu forvarnasamtökum heims Movendi. Sigurbjörg Helga Sigurgeirsdóttir Formaður, Æskan Barnahreyfing Aðalsteinn Gunnarsson Framkvæmdastjóri Æskan barnahreyfing [1] https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3094 [2] https://www.gallup.is/frettir/dagleg-notkun-nikotinpudum-er-ordin-meiri-en-rafrettum/ [3] https://rannsoknir.is/

  • #2Guðlaug Birna Guðjónsdóttir
    Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins fagnar áformum um lagasetningu um tóbaksvarnir og að innleitt verði í íslenskan rétt Evrópulöggjöf um tóbaksvörur og tengdar vörur. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur alla tíð barist fyrir takmörkunum á tóbaksneyslu til að koma í veg fyrir margvíslegt heilsutjón af völdum hennar.og hefur margoft skorað á heilbrigðis¬yfirvöld að móta framtíðarstefnu í tóbaksvörnum ekki síst til að koma í veg fyrir að börn og ungmenni ánetjist nikótíni. Það er löngu tímabært að Ísland hugi að næstu stóru skrefum í tóbaksvörnum, t.d. með því að setja sér stefnu ei… Lesa alla

    Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins fagnar áformum um lagasetningu um tóbaksvarnir og að innleitt verði í íslenskan rétt Evrópulöggjöf um tóbaksvörur og tengdar vörur. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur alla tíð barist fyrir takmörkunum á tóbaksneyslu til að koma í veg fyrir margvíslegt heilsutjón af völdum hennar.og hefur margoft skorað á heilbrigðis¬yfirvöld að móta framtíðarstefnu í tóbaksvörnum ekki síst til að koma í veg fyrir að börn og ungmenni ánetjist nikótíni. Það er löngu tímabært að Ísland hugi að næstu stóru skrefum í tóbaksvörnum, t.d. með því að setja sér stefnu eins og gert hefur verið í nálægum löndum og tímasetja hvenær stefnt skuli að tóbakslausu landi og ákveða sem fyrst að taka upp „hlutlausar“ tóbaksumbúðir og banna bragðefni í tóbaki og nikótínvörum og hvers kyns auglýsingar og markaðssetningu, sem hefur fyrst og fremst þann tilgang að koma nýjum neytendum á bragðið. Ísland hefur verið að dragast aftur úr öðrum vestrænum ríkjum í tóbaks¬vörnum, þar sem við vorum lengi vel í forystu.

  • #3British American Tobacco

    Hjálagt er umsögn við mál nr. 225/2021.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-109/2022· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. júl. 2022 – 29. júl. 2022· 2 umsagnir

Tóbaksvarnalög

Í kjölfar þess að sameiginlega EES-nefndin tók tóbaksvarnatilskipunina upp í EES-samninginn 4. febrúar 2022 er hafin vinna við að innleiða ákvæði þess í lög um tóbaksvarnir nr. 6/2002.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-109/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. júlí 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. desember 2022)

Tvær umsagnir bárust um áformin og var í kjölfarið unnið að drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002, sbr. mál nr. S-176/2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-176/2022· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. sep. 2022 – 10. okt. 2022· 6 umsagnir

Tóbaksvarnalög

Frumvarp þetta felur í sér breytingu á tóbaksvarnalögum og er til innleiðingar á tóbakstilskipuninni 2014/40/ESB og 2014/109/ESB sem sameiginlega EES-nefndin tók upp í EES-samninginn 4. febrúar 2022.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-176/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. október 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. desember 2022)

Alls bárust sex umsagnir um frumvarpið. Tekið var tillit til flestra þeirra athugasemda sem þar komu fram og er greint frá því í 5. kafla greinargerðar seð fylgir frumvarpi til laga um breytingu á tóbaksvarnalögum sem lagt hefur verið fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1British American Tobacco

    Hjálagt er umsögn við mál nr. 176/2022.

  • #2Edda Dröfn Daníelsdóttir
    Heilbrigðisráðuneytið Síðumúli 24 108, Reykjavík Efni: Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2022. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir stuðningi við frumvarpið um breytingu á lögum um tóbaksvarnir og telur sérstaklega mikilvægt að koma í veg fyrir að börn og unglingar byrji að nota vörur sem innihalda nikótín sem í framhaldinu geta haft skaðleg áhrif á heilsu notandans. Fíh vísar í fyrri umsögn félagsins um sama efni dagsetta 8. júlí 2022 þar sem meðal annars fram kom að heilsuvernd og forvar… Lesa alla

    Heilbrigðisráðuneytið Síðumúli 24 108, Reykjavík Efni: Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2022. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir stuðningi við frumvarpið um breytingu á lögum um tóbaksvarnir og telur sérstaklega mikilvægt að koma í veg fyrir að börn og unglingar byrji að nota vörur sem innihalda nikótín sem í framhaldinu geta haft skaðleg áhrif á heilsu notandans. Fíh vísar í fyrri umsögn félagsins um sama efni dagsetta 8. júlí 2022 þar sem meðal annars fram kom að heilsuvernd og forvarnir ættu að hafa sérstakan forgang, einkum til að draga úr algengi reykinga og tóbaksnotkunar á meðal ungmenna. Þetta telst til fyrsta stigs forvarna, sem ættu að vera forgangsatriði varðandi löggjöf um vörur sem innihalda nikótín. Þar eru hjúkrunarfræðingar í lykilhlutverki þar sem þeir sinna forvörnum sem fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu m.a. á heilsugæslustöðvum og í skólahjúkrun. Er þetta í samræmi við þriðja heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um heilsu, vellíðan og auknar forvarnir, sem jafnframt er í stefnu Fíh í hjúkrunar- og heilbrigðismálum til 2030. Jafnframt styður heilbrigðisstefna heilbrigðisráðuneytisins til 2030 þetta líka en þar er einnig fjallað mikilvægi 1. stigs heilbrigðisþjónustu sem eru forvarnir. Fíh leggur ríka áherslu á að mjög mikilvægt er að missa ekki niður þann einstaka árangur sem náðst hefur í tóbaksvörnum hér á landi. Virðingafyllst, Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

  • #3Guðfinna H Þorvaldsdóttir
    Umsögnina sendir undirrituð fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar frumvarpinu en vill koma eftirfarandi á framfæri: Í greinargerð með frumvarpinu stendur "Ákveðið var að innleiða þau ákvæði tilskipunarinnar sem Íslandi ber í samræmi við EES-samninginn, en ekki fara í frekari innleiðingu þótt heimildir standi til. Meginástæðan er sú að aðstæður varðandi tóbaksneyslu hér á landi eru allt aðrar en á meginlandi Evrópu þar sem algengt er að daglegar reykingar séu yfir 20% og ekki talin vera sama þörf til að setja eins strangar reglur og tilskipunin býður upp á."… Lesa alla

    Umsögnina sendir undirrituð fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar frumvarpinu en vill koma eftirfarandi á framfæri: Í greinargerð með frumvarpinu stendur "Ákveðið var að innleiða þau ákvæði tilskipunarinnar sem Íslandi ber í samræmi við EES-samninginn, en ekki fara í frekari innleiðingu þótt heimildir standi til. Meginástæðan er sú að aðstæður varðandi tóbaksneyslu hér á landi eru allt aðrar en á meginlandi Evrópu þar sem algengt er að daglegar reykingar séu yfir 20% og ekki talin vera sama þörf til að setja eins strangar reglur og tilskipunin býður upp á." Í greinargerðinni kemur ekki fram hvað það er sem heimildir standa til en ekki stendur til að innleiða hér. Krabbameinsfélagið vill undirstrika mikilvægi þess að hvergi sé slakað á í tóbaksvörnum. Í öðrum löndum er litið til Íslands með aðdáun á þeim árangri sem hér hefur náðst. Þeirri stöðu viljum við halda. Árangurinn náðist með mjög samstilltu átaki stjórnvalda, Krabbameinsfélagsins og fleiri aðila, meðal annars með margháttuðum stjórnvaldsaðgerðum. Þrátt fyrir að mjög góður árangur hafi náðst er ekki þar með sagt að bakslag geti ekki orðið og mikilvægt að haga stjórnvaldsaðgerðum þannig að þær vinni sem mest gegn slíku. Frá því að stærstu skrefin voru tekin í tóbaksvörnum hefur mikið breyst sem getur mögulega ógnað þeim árangri sem hér hefur náðst. Má þar á meðal nefna miklar breytingar á samsetningu þjóðarinnar en hingað hefur á stuttum tíma flutt stór hópur fólks erlendis frá, sem hefur alist upp við allt önnur viðmið varðandi tóbaksnotkun. Krabbameinsfélagið leggur áherslu á að í tóbaksvörnum sé hvergi gefið eftir, frekar gengið lengra en brýnasta þörf krefur. Þannig eru hagsmunir almennings, ekki síst barna og unglinga, í fyrirrúmi. Með góðri kveðju f.h. Krabbameinsfélags Íslands Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri

  • #4Ásgeir Johansen
    Til heilbrigðisráðherra Reykjavík, 10. október 2022 Athugasemdir við breytingu á tóbaksvarnarlögum (6/2002) og innleiðingu tóbakstilskipunar 2014/40/ESB og 2014/109/ESB. Með vísan til samráðsgáttar frá 23. september 2022 með skilaboðum um breytingu á tóbaksvarnarlögum og innleiðingu tóbakstilskipunar 2014/40/ESB [hér eftir nefnd „tilskipun“] og 2014/109/ESB. , vill Rolf Johansen & Co. koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1. Í tilskipuninni var kveðið á um aðlögunartímabil fyrir tóbaksvörur með einkennandi bragði Tilskipunin tók gildi 19. maí 2014 og almennt bann… Lesa alla

    Til heilbrigðisráðherra Reykjavík, 10. október 2022 Athugasemdir við breytingu á tóbaksvarnarlögum (6/2002) og innleiðingu tóbakstilskipunar 2014/40/ESB og 2014/109/ESB. Með vísan til samráðsgáttar frá 23. september 2022 með skilaboðum um breytingu á tóbaksvarnarlögum og innleiðingu tóbakstilskipunar 2014/40/ESB [hér eftir nefnd „tilskipun“] og 2014/109/ESB. , vill Rolf Johansen & Co. koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1. Í tilskipuninni var kveðið á um aðlögunartímabil fyrir tóbaksvörur með einkennandi bragði Tilskipunin tók gildi 19. maí 2014 og almennt bann við bragðbættu tóbaki tók gildi 20. maí 2016 (31. gr. tilskipunarinnar). Jafnframt heimilaði tilskipunin að allar bragðbættar tóbaksvörur sem settar voru á markað fyrir 20. maí 2016 yrðu seldar til 20. maí 2017 (gr. 30.a. tilskipunarinnar). Hins vegar er gr. 7(14) tilskipunarinnar var kveðið á um að „Ef um er að ræða tóbaksvörur með einkennandi bragði, þar sem sölumagn alls sambandsins er 3% eða meira í tilteknum vöruflokki, skulu ákvæði þessarar greinar gilda frá 20. maí 2020“. Með öðrum orðum er eins árs aðlögunartímabil fyrir allar tóbaksvörur með einkennandi bragði tilgreint í tilskipuninni. Fyrirvari um t.a.m. mentól tóbak er þannig gerður miðað við sölumagn þess. Ennfremur undirstrikar tilskipunin mikilvægi aðlögunartímabils fyrir tóbaksvörur með einkennandi bragði til að gefa neytendum nægan tíma til að skipta yfir í aðrar vörur, afstaða sem er sett fram í inngangsorðum tilskipunarinnar þar sem fram kemur sú pólitíska skoðun að „< …> vörur með einkennandi bragði með hærra sölumagni ættu að vera hætt í áföngum yfir langan tíma til að gefa neytendum nægan tíma til að skipta yfir í aðrar vörur“. Með vísan til framangreinds og skýr skortur á aðlögunartíma í frumvarpsdrögunum viljum við vekja athygli á því að frumvarpsdrögin eru ekki í samræmi við tilskipunina. Við viljum því leggja áherslu á mikilvægi þess og samræmi við tilgang tilskipunarinnar að tryggja jafna og sanngjarna framkvæmd. Með hliðsjón af markaðshlutdeild menthol vindlinga, sem er í kringum 20% og að rík hefð er á Íslandi fyrir menthol samanborið við evrópu þá væri vel til þess fallið ásamt því að gæta að óhlutfallslegu jafnvægi milli Íslands og evrópu að menthol væri undanskilið úr þessum drögum að frumvarpi til laga. Ellegar, til vara væri aðlögunartíminn mjög langur til að tryggja jafna og sanngjarna framkvæmd. Öll önnur nálgun væri óréttmæt og óhófleg. Ef litið er til kynjahlutfalla, þá hefur tilfinningin verið sú að drög þessi að frumvarpi munu halla töluvert meira á kvenkyn en karlkyn. 2. Skilgreining á „einkennandi bragði“ ætti að vera í samræmi við tilskipunina Í tilskipuninni er „einkennandi bragð“ skilgreint sem „<…> greinilega áberandi lykt eða bragð <...>“ (t.d. á dönsku: „fremtrædende duft eller smag“ og norsku: „klart merkbar lukt eller smak“). Við þýðingu tilskipunarinnar yfir í íslenskt réttarfar er mikilvægt að þýðingin sé í samræmi við upprunalegt orðalag til að koma í veg fyrir misskilning og rými fyrir rangtúlkanir þegar ný lög taka gildi á Íslandi. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar verið er að þýða skilgreiningar sem venjulega eru háðar mörgum túlkunum. Í núverandi ástandi teljum við skilgreiningu á „einkennandi bragði“ í frumvarpsdrögunum frábrugðna þeirri sem er í tilskipuninni, sem getur breytt merkingu skilgreiningarinnar og einnig þeirri túlkun í þá íslenskum lögum. Við viljum því leggja áherslu á mikilvægi þess að endurskoða skilgreiningu á „einkennandi bragði“ í frumvarpsdrögunum þannig að hún samsvari betur skilgreiningunni sem kveðið er á um í tilskipuninni. Ef skilgreiningin er ekki nógu nákvæm getur það haft lagalegar afleiðingar, sem við ættum að forðast eins og mögulegt er. 3. Merking og umbúðir Breytingartillaga í þessum drögum, samanborið við núverandi lög, leggur til víðtækari heimild ráðherra að setja í reglugerð(-ir), sem sumpart getur verið eftir geðþóttaákvörðun ráðherra, breytingu á útliti einingarpakka, þyngd pakkninga, stærð þeirra og lögun. Slíkar ákvarðanir eiga að vera á vegum Alþingi Íslendinga þar sem t.d. er verið að ræða takmörkun og skerðingu á vörumerkjaeign sem hefur ekkert með viðvörunarmerkingar og staðsetningar þeirra að gera sem nú er að finna í tilskipuninni. Hér er því lagt til að núverandi lagagrein standi óbreytt samkvæmt núgildandi lögum. Virðingarfyllst, f.h. Rolf Johansen & Co Ásgeir Johansen Framkvæmdastjóri

  • #5Lilja Sigrún Jónsdóttir

    Þakka tækifæri til umsagnar. Bestu kveðjur, LSJ

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    10 ræður · 32 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 18. janúar 2023
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
672Stjórnarfrumvarp2. des. 2022Willum Þór ÞórssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur15. desember 2022 kl. 20:34
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd15. desember 2022 kl. 20:34
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

10 ræður · 32 mín
  • 1. umræða: 10 ræður · 3 ræðumenn · 32 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Vilhjálmur ÁrnasonSjálfstæðisflokkur23 mín
Hildur SverrisdóttirSjálfstæðisflokkur313 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur516 mín

Umsagnir og erindi

13 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 5. jan. 2023, frestur 18. jan. 2023.

Hver sendiTegundBarstSkjal
HeilbrigðisráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
HeilbrigðisráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Rolf Johansen & Co ehfumsögnOpna PDF
Heilbrigðisráðuneytið - uppfærtminnisblaðOpna PDF
Krabbameinsfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Heilbrigðiseftirlit ReykjavíkurumsögnOpna PDF
Embætti landlæknisumsögnOpna PDF
LyfjastofnunumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Lyfjafræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag íslenskra hjúkrunarfræðingaumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisinsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.