Breytingar á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi
Markmið frumvarpsins er að einfalda og bæta málsmeðferð hjá Persónuvernd auk þess sem lagðar eru til breytingar sem þykja nauðsynlegar að fenginni reynslu af framkvæmd persónuverndarlöggjafarinnar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-182/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. nóvember 2022)
Þrjár umsagnir bárust um frumvarpsdrögin við kynningu í samráðsgátt. Umsagnirnar leiddu til þess að ákveðin atriði voru áréttuð í athugasemdum við 2., 3. og 5. gr. frumvarpsdraganna. Gerð er grein fyrir helstu atriðum umsagnanna og viðbrögðum við þeim í niðurstöðuskjali og í frumvarpinu sem er lagt fram á Alþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Hilmar Vilberg Gylfason
Undirritaður gerir eftirfarandi athugasemdir við 3. gr. frumvarpsins varðandi breytingu á 39. gr. laganna: Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við þá breytingu sem lögð er til með frumvarpinu að Persónuvernd taki ákvörðun um hvort kvörtun sem berist gefi nægilegar ástæður til rannsóknar. Nú er það svo að Persónuvernd er stjórnvald sem lýtur reglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en ein af grunnreglum þeirra laga er rannsóknarreglan. Þar sem almennir borgarar geta sent kvartanir til Persónuverndar þá verður að hafa í huga að ekki verður gerð sú krafa til kvartenda almennt að þeir hafi þekkingu t… Lesa alla
Undirritaður gerir eftirfarandi athugasemdir við 3. gr. frumvarpsins varðandi breytingu á 39. gr. laganna: Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við þá breytingu sem lögð er til með frumvarpinu að Persónuvernd taki ákvörðun um hvort kvörtun sem berist gefi nægilegar ástæður til rannsóknar. Nú er það svo að Persónuvernd er stjórnvald sem lýtur reglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en ein af grunnreglum þeirra laga er rannsóknarreglan. Þar sem almennir borgarar geta sent kvartanir til Persónuverndar þá verður að hafa í huga að ekki verður gerð sú krafa til kvartenda almennt að þeir hafi þekkingu til að meta hvaða upplýsingar þurfa að fylgja kvörtun eða að gengið verði út frá því að kvartandi geti komið öllum málsástæðum á framfæri strax í kvörtun án þekkingar á því hvað það er sem skipti máli við úrvinnslu málsins. Miðað við greinargerð með frumvarpinu þá er tillagan tilkomin vegna þrýstings frá Persónuvernd vegna mikils fjölda mála og ónógra fjárveitinga. Verður að telja það nokkuð alvarlegt mál að ráða eigi bót á fjársvelti stofnunarinnar með því að draga úr réttindum almennra borgara. Undirritaður telur því með öllu ótækt að Persónuvernd verði ekki gert að rannsaka allar kvartanir sem sendar eru stofnuninni og úrskurða að því loknu. Jafnframt má bæta því við að Persónuvernd hefur undanfarið stundað þá iðju að koma sér undan því að úrskurða í málum með afar óheiðarlegum hætti en það felur í sér að við framkvæmd andmæla þá setur Persónuvernd eftirfarandi texta inn í bréf til kvartanda sem fylgir afriti af andmælum þess sem kvartað er yfir ,,[…] berist engin svör innan frestsins verður litið svo á að þú hafir ákveðið að falla frá kvörtun þinni. Verður málinu þá lokað í málaskrá Persónuverndar.“ Þessi framsetning stofnunarinnar er afar villandi en hún ber með sér að Persónuvernd hafi tekið afstöðu til andmæla þess sem kvartað er vegna og mat stofnunarinnar sé að kvörtunin eigi ekki rétt á sér. Það er hinsvegar ekki sú staða sem er uppi þarna því á þessum tímapunkti hefur Persónuvernd ekkert skoðað andmælin og það því sett í hendur þess sem kvartar að meta andmæli sem oft á tíðum eru margra blaðsíðna flókinn lagatexti unninn af lögmönnum stórfyrirtækja. Óeðlilegt er að slík kvöð sé lögð á almenna borgara. Núverandi ákvæði persónuverndarlaga takmarka mjög möguleika almennra borgara til að fá endurskoðaðar þær ákvarðanir sem Persónuvernd tekur þar sem eingöngu er hægt að bera slíkar ákvarðanir undir dómstóla. Vekur það nokkra furðu að hvorki sé hægt að kæra ákvarðanir Persónuverndar til ráðuneytis dómsmála né heyri þær ákvarðanir undir endurskoðun úrskurðarnefndar. Aðgengi almennra borgara að dómstólum er orðið afar takmarkað vegna yfirgengilegs kostnaðar við að vísa málum þangað, auk þess sem stefnendur geta átt á hætt að vera gert að greiða stefnda málskostnað tapist mál fyrir dómstólum. Kæruleiðir hvort sem er til ráðuneytis eða úrskurðarnefndar eru því mikilvægur þáttur í að tryggja almennum borgurum réttláta málsmeðferð. Sú tillaga sem lögð er til í b-lið 3. gr. frumvarpsins, þ.e. að bæði ákvarðanir og ákvarðanir um að taka mál ekki til rannsóknar verði eingöngu á valdi dómstóla að endurskoða er í raun aðför að réttindum hinna skráðu einstaklinga sem telja á sér brotið . Afar mikilvægt er að hið minnsta málsmeðferð Persónuverndar verði kæranleg til dómsmálaráðuneytisins. Undirritaður mælir eindregið gegn samþykkt frumvarpsins í núverandi mynd nema að samhliða verði bundin í lög kæruleið til ráðuneytis eða sett á fót úrskurðarnefnd persónuverndarmála. Sé þess óskað er undirritaður tilbúinn til frekara samráðs um málið. Virðingarfyllst Hilmar Vilberg Gylfason, lögfræðingur Breiðavík 5, 112 Reykjavík, s. 8686988
- #2Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SVÞ- Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samorku, Samtaka fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs Íslands um málið.
- #3Samband íslenskra sveitarfélaga
Sjá viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.