Frumvarp til laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa
Frumvarpsdrögin miða að því að veita Reykjavíkurborg heimild til að setja á fót nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa fyrir börn sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-65/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 26. mars 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Guðríður Björk Magnúsdóttir
Athugið líka hvað varð um börnin, hvort sem þau voru ættleidd, sett í varanlegt fóstur og hvernig heilsast þeim í dag,
- #2Árni Haukdal Kristjánsson
Starfstími vöggustofa og rekstraraðilar hefur skolast til. Hið rétta er að Reykjavíkurborg rak og bar ábyrgð á vöggustofunum á starfstíma þeirra 1949–1979. Fyrst Vöggustofunni að Hlíðarenda við Sunnutorg sem var starfrækt á árunum 1949–1963. Sú starfsemi flutti að Dyngjuvegi 18 undir heitinu Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins sem var starfrækt á árunum 1963–1973. Thorvaldsensfélagið gaf Reykjavíkurborg húsið en kom ekki nálægt rekstrinum. Árið 1973 var Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins breytt í upptökuheimili fyrir 23 börn, frá 3 mánaða til 12 ára aldurs. Þar var rekin vöggustofa til ársins 1979.… Lesa alla
Starfstími vöggustofa og rekstraraðilar hefur skolast til. Hið rétta er að Reykjavíkurborg rak og bar ábyrgð á vöggustofunum á starfstíma þeirra 1949–1979. Fyrst Vöggustofunni að Hlíðarenda við Sunnutorg sem var starfrækt á árunum 1949–1963. Sú starfsemi flutti að Dyngjuvegi 18 undir heitinu Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins sem var starfrækt á árunum 1963–1973. Thorvaldsensfélagið gaf Reykjavíkurborg húsið en kom ekki nálægt rekstrinum. Árið 1973 var Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins breytt í upptökuheimili fyrir 23 börn, frá 3 mánaða til 12 ára aldurs. Þar var rekin vöggustofa til ársins 1979. Starfstími vöggustofa borgarinnar: Vöggustofan að Hlíðarenda 1949–1963 Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins 1963–1973 Upptökuheimilið að Dyngjuvegi 18 1973–1979 Þau markmið og meginverkefni sem Borgarráð kynnti sem grundvöll rannsóknar (sem nefnd er athugun) á starfsemi vöggustofa borgarinnar eru sögð byggð á frumvarpi þessu. Þó að það verði ekki séð þá segjast borgaryfirvöld vera bundin af honum þegar kom að því að lýsa markmiðum og meginverkefnum fyrirhugaðrar nefndar. Því miður eru þau öldungis ófullnægjandi. Raunar verður alls ekki séð að „athugun“ sem grundvallast á uppgefnum markmiðum skili niðurstöðum sem mestu máli skipta. Ef texti markmiða er skoðaður þá kemur í ljós að orðið „rannsókn“ er aldrei nefnt. Þess í stað eru orðin „athugun“, „að lýsa“ og „leitast við“ notuð og það er ekki hægt að túlka öðruvísi en að grunnt verði kafað. Þá ber eftirfarandi markmið með sér skilningsleysi á starfsháttum vöggustofa borgarinnar: „Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð...“ Það er óumdeild staðreynd, studd með mörgum rannsóknum, að starfshættir þeir sem tíðkuðust á vöggustofum borgarinnar buðu ekki upp á annað en skaðlega og illa meðferð á öllum börnum sem þar voru vistuð. Þetta atriði er útgangspunktur og þarf því ekki að rannsaka sérstaklega. Nú þegar liggja fyrir fjölmargar heimildir sem staðfesta illa meðferð á vöggustofubörnum og olli þeim og mæðrum þeirra skaða. Því væri nær að spyrja og leita svara við „hvers vegna“ í stað „hvort“. Vegna þess hve markmið borgaryfirvalda eru illa skilgreind og eftir því ómarkviss þá vil ég leggja áherslu á að rannsóknin þurfi að svara eftirfarandi grundvallarspurningum: 1. Hverjar voru ástæður þess að börn voru vistuð á vöggustofum borgarinnar? 2. Hver var ástæða þess að stórskaðlegir starfshættir, sem gengu þvert gegn fyrirliggjandi rannsóknum, heilbrigðri skynsemi og mannlegu eðli, voru við lýði á vöggustofum borgarinnar? 3. Hvernig þrifust börn á meðan þau voru vistuð á vöggustofum borgarinnar? 4. Hversu mörg börn voru ættleidd eða vistuð í fóstur frá vöggustofum borgarinnar og á hvaða forsendum? 5. Hversu mörg börn létust á vöggustofum borgarinnar og hver var dánarorsökin? 6. Hvað varð um börn sem vistuð voru á vöggustofum borgarinnar og hvernig vegnaði þeim í lífinu? Inn í ofangreindar grundvallarspurningar geta síðan fléttast aðrar spurningar sem máli skipta. Að þessu sögðu þá er það von mín að lýsing verði skerpt í frumvarpinu svo borgaryfirvöld geti samið betur skilgreind markmið og meginverkefni fyrir nefndina svo að úr megi verða alvöru rannsókn.
- #3Viðar Eggertsson
Í 1. gr. frumvarpsins er lýst markmið könnunarinnar og meginverkefni nefndarinnar í 5 tölusettum liðum. Í þeirri upptalningu vantar einn mikilvægan lið til viðbótar. Það er afar mikilvægt að við bættist tölusettur liður í 1. gr. Þar kæmi fram að rannsakað verði hvað varð um þau börn sem dvöldu á vöggustofunum eftir að þau höfðu lokið dvölinni. Það verði rannsakað hvernig þeim farnaðist eftir vistina og hvaða áhrif vistin hafði á þau til lengri tíma, andlega og líkamlega. Eins hvort merkjanlegur lægri lífaldur er meðal þessa hóps en annara sem bera má saman við, eins sjúkdómar, andleg… Lesa alla
Í 1. gr. frumvarpsins er lýst markmið könnunarinnar og meginverkefni nefndarinnar í 5 tölusettum liðum. Í þeirri upptalningu vantar einn mikilvægan lið til viðbótar. Það er afar mikilvægt að við bættist tölusettur liður í 1. gr. Þar kæmi fram að rannsakað verði hvað varð um þau börn sem dvöldu á vöggustofunum eftir að þau höfðu lokið dvölinni. Það verði rannsakað hvernig þeim farnaðist eftir vistina og hvaða áhrif vistin hafði á þau til lengri tíma, andlega og líkamlega. Eins hvort merkjanlegur lægri lífaldur er meðal þessa hóps en annara sem bera má saman við, eins sjúkdómar, andlegir og líkamlegir.
- #5Theódóra Kristjánsdóttir
Ég er eitt af vöggustofubörnunum og mig langar að benda á það að túlkun á eftirfarandi; "börn sem vistuð voru á vöggustofunum hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð" er mjög opin. Hvað er ill meðferð? Hvað er ofbeldi? Er það ekki ofbeldi að barni sé ekki sinnt nema eftir klukku? Er það ekki ofbeldi að barn liggi afskipt í algjörlega snauðu og örvunarlausu rými? Ég óttast að þetta orðalag bjóði upp á þá niðurstöðu að börnin hafi ekki sætt ofbeldi né illri meðferð því þau voru (vonandi) ekki lamin eða beitt kynferðisofbeldi. Það vantar nánari útskýringar á því hvernig eigi… Lesa alla
Ég er eitt af vöggustofubörnunum og mig langar að benda á það að túlkun á eftirfarandi; "börn sem vistuð voru á vöggustofunum hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð" er mjög opin. Hvað er ill meðferð? Hvað er ofbeldi? Er það ekki ofbeldi að barni sé ekki sinnt nema eftir klukku? Er það ekki ofbeldi að barn liggi afskipt í algjörlega snauðu og örvunarlausu rými? Ég óttast að þetta orðalag bjóði upp á þá niðurstöðu að börnin hafi ekki sætt ofbeldi né illri meðferð því þau voru (vonandi) ekki lamin eða beitt kynferðisofbeldi. Það vantar nánari útskýringar á því hvernig eigi að túlka "illa meðferð og ofbeldi". Það liggur fyrir að þær aðferðirnar sem voru viðhafðar, voru úreltar og beinlínis skaðlegar fyrir börnin. Það þarf að rannsaka hvaða áhrif þetta hafði á börnin til lengri tíma litið. Í hópi vöggustofubarna er fjöldinn allur af fólki sem hefur átt erfitt uppdráttar í lífinu og búið við stöðugan kvíða vegna aðstæðna sem það ólst upp við á vöggustofum. Einnig vantar alveg inn í þetta að svara þeirri spurningu; Hvernig reiddi vöggustofubörnum af í lífinu? Það þarf líka að finna út hvort fylgni sé á milli dvalartíma barns á vöggustofu og hvernig því hefur reitt af í lífinu. Fyrir mér er að þetta tvennt grundvallaratriði en því miður virðist eiga að skauta algjörlega framhjá þessum atriðum.
- #6Árni Haukdal Kristjánsson
Í frumvarpinu og fylgiskjali þess, „Mat á jafnréttis- og kostnaðaráhrifum lagasetningar„ verður ekki annað séð en að rannsóknin eigi að grundvallast að stórum hluta á kynjafræði. Þar er talað um að kyngreina tölfræðigögn, kynjaða vídd, skoða stöðu kynjanna innan málaflokksins o.s.frv. Svo segir: „Þá er mikilvægt að nefndaraðilar séu meðvituð um kynjaða vídd samfélagsins í fortíð og nútíð. Það má velta fyrir sér hvort mögulegar afleiðingar vanrækslu í frumbernsku hafi ólík áhrif á drengi og stúlkur, m.a. vegna kynjaðra staðalmynda sem gera drengjum síður kleift að tjá og vinna úr tilfinningum… Lesa alla
Í frumvarpinu og fylgiskjali þess, „Mat á jafnréttis- og kostnaðaráhrifum lagasetningar„ verður ekki annað séð en að rannsóknin eigi að grundvallast að stórum hluta á kynjafræði. Þar er talað um að kyngreina tölfræðigögn, kynjaða vídd, skoða stöðu kynjanna innan málaflokksins o.s.frv. Svo segir: „Þá er mikilvægt að nefndaraðilar séu meðvituð um kynjaða vídd samfélagsins í fortíð og nútíð. Það má velta fyrir sér hvort mögulegar afleiðingar vanrækslu í frumbernsku hafi ólík áhrif á drengi og stúlkur, m.a. vegna kynjaðra staðalmynda sem gera drengjum síður kleift að tjá og vinna úr tilfinningum sínum á uppbyggilegan hátt. Þá þarf einnig að hafa í huga hversu algengt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi er, og þegar slík áföll koma ofan á önnur áföll þá getur það haft samlegðaráhrif á heilsu og líðan kvenna, en rannsóknir hafa sýnt að það er kynbundinn munur á heilsu þar sem heilsa kvenna er gjarnan lakari en karla.“ Það er sjálfsagt að kynjafræðingar skoði vöggustofumálið þegar rannsókn lýkur en kynjafræði getur ekki verið lögð til grundvallar henni. Þessi nálgun stangast á við það sem lagt var upp með, enda aldrei verið nefnt á nafn, og þá hefur aldrei verið óskað eftir slíkri rannsókn. Nær væri að taka tillit til gildra ábendinga Réttlætis — þeirra sem málið varðar og eiga hagsmuna að gæta.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.