Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 582. mál

Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar

Umhverfisvæn orkuöflun

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 15. jún. 2022

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að auka hlutdeild orkusparandi tækjabúnaðar, sérstaklega varmadælna, við húshitun á rafhituðum svæðum með breytingum á styrkjakerfi til uppsetningar á slíkum búnaði.

Lagt fram af Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 15. jún. 2022 greiddu 52 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
1. apríl 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
11
Umræða í þingsal
53 ræður · 2 klst. 24 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 27. mar. 2023

Markmiðið

Að auka hlutdeild orkusparandi tækjabúnaðar, sérstaklega varmadælna, við húshitun á rafhituðum svæðum með breytingum á styrkjakerfi til uppsetningar á slíkum búnaði.

Hvað breytist

Lagt er til breytt fyrirkomulag á stuðningskerfi vegna umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun fyrir þá sem hita hús sín með raforku. Gert er ráð fyrir að veittir verði styrkir, að hámarki 1 milljón kr., til íbúðareigenda sem fjárfesta í og tengja tækjabúnað sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun og er þá sérstaklega horft til varmadælna.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Haraldur Benediktsson

Lokaatkvæðagreiðsla
15. jún. 2022
Samþykkt52 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • F11–0
  • 236–0
  • 436–0
  • Flf4–0
  • Sf5–0
  • V5–0
  • M0–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 13. maí 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Vestfjarðastofa, Skatturinn, Orkustofnun, Sveitarfélagið Skagafjörður · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 24 mín · 53 ræður
8 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 15. júní 2022: 52 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með5 tóku til máls

47 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna3 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-21/2022· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2022 – 11. feb. 2022· 6 umsagnir

Áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Umhverfis- og auðindaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-21/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. nóvember 2025)

.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Sveitarfélagið Skagafjörður
    Á 1001. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. febrúar 2022 var eftirfarandi bókað um mál 21/ 2022 til samráðs, Frumvarp um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir ánægju sinni með áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, sem hefur það að markmiði að tryggja einfaldara og sanngjarnara kerfi í kringum mótframlag ríkisins vegna kaupa á varmadælum. Ljóst er að hvatar til aukinnar notkunar varmadæla á köldum svæðum sem njóta ekki húshitunar með jarðvarma geta skil… Lesa alla

    Á 1001. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. febrúar 2022 var eftirfarandi bókað um mál 21/ 2022 til samráðs, Frumvarp um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir ánægju sinni með áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, sem hefur það að markmiði að tryggja einfaldara og sanngjarnara kerfi í kringum mótframlag ríkisins vegna kaupa á varmadælum. Ljóst er að hvatar til aukinnar notkunar varmadæla á köldum svæðum sem njóta ekki húshitunar með jarðvarma geta skilað umtalsverðum ávinningi til lengri tíma litið fyrir neytendur, ríkið og raforkukerfið í heild sinni. Orkusparnaður í kjölfar aukinnar notkunar varmadæla getur skipt verulegu máli í þeim orkuskiptum sem framundan eru. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Heimir Snær Gylfason
    Ég sem íbúi á svokölluðu köldu svæði og mikill áhugamaður um varmadælur og orkuskipti þykir hér jákvætt skref tekið með þessari tillögu. En vil benda á að mikilvægt er að taka allan vafa af varðandi niðurgreiðslur vegna húshitunar, að við móttöku styrks sé einungis verið að styrkja viðkomandi húseiganda til orkusparnaðar og niðurgreiðslur vegna húshitunar haldist. Einnig tel ég að hlutfall styrkjar verður einnig að vera nokkuð veglegt svo að húseigandi telji sig hafa hag af því að fara í framkvæmdir til orkusparnaðar, hvort sé um að ræða kaup á varmadælu eða auka einangrunargildi húsnæði… Lesa alla

    Ég sem íbúi á svokölluðu köldu svæði og mikill áhugamaður um varmadælur og orkuskipti þykir hér jákvætt skref tekið með þessari tillögu. En vil benda á að mikilvægt er að taka allan vafa af varðandi niðurgreiðslur vegna húshitunar, að við móttöku styrks sé einungis verið að styrkja viðkomandi húseiganda til orkusparnaðar og niðurgreiðslur vegna húshitunar haldist. Einnig tel ég að hlutfall styrkjar verður einnig að vera nokkuð veglegt svo að húseigandi telji sig hafa hag af því að fara í framkvæmdir til orkusparnaðar, hvort sé um að ræða kaup á varmadælu eða auka einangrunargildi húsnæðis. Mæli með að styrkir nái yfir alla þætti til orkusparnaðar. Og til að nefna nokkur dæmi: Aukin einangrun veggja og lofts, kaupa á nýjum og betri gluggum sem og varmadælum.

  • #3Almar Marinósson
    Gæta þarf þess að við breytingu þessa að framsal á niðurgreiðslum við því að þyggja styrk þennan verði afnumið með öllu. Það er engin hvati fólgin í eingreiðslu á tækjakaupum í eitt skipti og afnema niðurgreiðslu um leið. Mun verðmætari aðgerð og hvatameiri er að hafa styrkumsóknir sem leiða að orkusparnaði óháðan niðrgreiðslumm, heldur bundinn fasteign hverri. Með því þarf styrkþegi ekki að velta fyrir sér því hve miklu hann fórnar, heldur aðeins hve mikið hann fær. Ef áætla á upphæðir eða hlutfall til styktar þarf að hafa margt í huga. Eitt af því er hlutfall það sem fer af rafmagni til h… Lesa alla

    Gæta þarf þess að við breytingu þessa að framsal á niðurgreiðslum við því að þyggja styrk þennan verði afnumið með öllu. Það er engin hvati fólgin í eingreiðslu á tækjakaupum í eitt skipti og afnema niðurgreiðslu um leið. Mun verðmætari aðgerð og hvatameiri er að hafa styrkumsóknir sem leiða að orkusparnaði óháðan niðrgreiðslumm, heldur bundinn fasteign hverri. Með því þarf styrkþegi ekki að velta fyrir sér því hve miklu hann fórnar, heldur aðeins hve mikið hann fær. Ef áætla á upphæðir eða hlutfall til styktar þarf að hafa margt í huga. Eitt af því er hlutfall það sem fer af rafmagni til húshitunnar. Á heimili undirritaðs voru 46.039 kW/h notaðar á 13 síðustu mánuðum (1. jan 21 til 8. feb 22). Þar af voru 43.772 kW/h til húshitunar, eða um 95% af allri orku keyptri. Eitt er að veita styrk til tækjakaupa en þó er ekki allur raunkostaður kominn við það. Varmaskiptar eru flestir nokkuð erfiðir í uppsetningu og krefjast sérþekkingar á því sviði. Ekki er víst að slík þekking sé í grend við styrkþega og því má spyrja sig hvort upphæðir eða hlutfall í kostnaði eigi eiga við verð með eða án uppsetningar. Með uppsetningu er vafrmaskiptirinn tilbúinn en ekki fyrr. Auðvelt er að valda bilunum eða eyðileggingu á slíkum búnaði með óviðeigandi uppsetningu. Við breytingar sem þessar má hafa í huga langtíma áhrif breytingana. Með betri nýtingu rafmagns á köldum svæðium og útvíkkun niðurgreiðlsu til fyrirtækja og samtaka má styrkja aðstöðu orkufrekari iðnaðar og afhenda þá orku sem sparast til nýrra kaupenda í iðnaði sem ekki hefur verið staðsettur á köldum svæðum, kuldans vegna. Hið ágætasta mál er að breyta þessu lagaákvæði í anda þess sem segir til um. Slíkir styrkir eða niðrgreiðsla á búnaði þarf að taka mið af ofantöldu. Annars er fórnað stórum tækifærum til sóknar í sjálfbærni og jafnvægi í orkumálum þjóðar.

  • #4Ívar Dan Arnarson
    Ívar heiti ég og er mikill áhugamaður um varmanýtingu og varmadælur. sjálfur á ég hús og er með varmadælu til húshitunar, en varmadælur er búnaður sem er ekki eilífur og þarf styrkjakerfið sem styrkir húseigendur til kaupa á varmadælum að taka mið af því. mér finndist eðlilegt að eftir 12 - 15 ár myndi húseigandi vera kominn með endurnýjaðan rétt á styrk til endurnýjunar á fyrri varmadælu svo að orkuskiptin haldi áfram og verði varanleg! einnig er mjög mikilvægt að húseigendur á köldum svæðum haldi áfram sínum niðurgreiðslum á fluttningskostnaði rafmagns til húshitunar þó svo að þeir nýti… Lesa alla

    Ívar heiti ég og er mikill áhugamaður um varmanýtingu og varmadælur. sjálfur á ég hús og er með varmadælu til húshitunar, en varmadælur er búnaður sem er ekki eilífur og þarf styrkjakerfið sem styrkir húseigendur til kaupa á varmadælum að taka mið af því. mér finndist eðlilegt að eftir 12 - 15 ár myndi húseigandi vera kominn með endurnýjaðan rétt á styrk til endurnýjunar á fyrri varmadælu svo að orkuskiptin haldi áfram og verði varanleg! einnig er mjög mikilvægt að húseigendur á köldum svæðum haldi áfram sínum niðurgreiðslum á fluttningskostnaði rafmagns til húshitunar þó svo að þeir nýti sér styrk til kaupa á varmadælu. núverandi kerfi er náttúrlega ekkert styrktar kerfi heldur er þetta fyrirframgreiddur afsláttur! einnig er það gífurlega mikilvægt svo að raunverulegur orkusparnaður eigi sér stað að styrkirnir séu veglegir og taki mið af kostnaði við gæðabúnað sem myndi skila sér meiri orkusparnaði.

  • #5Erlingur Hjörvar Guðjónsson
    Erlingur Guðjónsson heiti ég og starfa hjá RARIK Austurlandi og þessi málaflokkur snertir mig töluvert, bæði í mínu starfi en ekki síður vegna búsetu. Ég bý rétt utan þéttbylis þar sem er hitaveita sem talin er vera ágætlega hagstæð hitaveita þegar kemur að húshitun. Það er sorglega stutt frá okkur í þá hitaveitu sem myndi spara okkur gríðarlegan kostnað við húshitun ef við værum á þeirri veitu samanborið við það að kynda með rafmagni eins og nú er. Ég er þeirrar skoðunar að mörgu sé að huga hér, Varmadælur og að styrkja fólk með greiðsluþáttöku í formi styrks til að draga úr kostnaði noten… Lesa alla

    Erlingur Guðjónsson heiti ég og starfa hjá RARIK Austurlandi og þessi málaflokkur snertir mig töluvert, bæði í mínu starfi en ekki síður vegna búsetu. Ég bý rétt utan þéttbylis þar sem er hitaveita sem talin er vera ágætlega hagstæð hitaveita þegar kemur að húshitun. Það er sorglega stutt frá okkur í þá hitaveitu sem myndi spara okkur gríðarlegan kostnað við húshitun ef við værum á þeirri veitu samanborið við það að kynda með rafmagni eins og nú er. Ég er þeirrar skoðunar að mörgu sé að huga hér, Varmadælur og að styrkja fólk með greiðsluþáttöku í formi styrks til að draga úr kostnaði notenda við að koma sér upp hagkvæmari hitunartæki er gott og vel. En í stóra menginu er þetta svolítið tvíeggja sverð, við flytjum inn meira að keyptum búnaði til að láta fólk spara raforkunotkun, hjálpa þeim til sparnaðar með slíku er í megindráttum gott og vel meinandi concept svo ég sletti. En eins og bent hefur verið á þá eru varmadælur ekki eilífartæki og þessi tæki þarfnast bæði viðhalds og endurnýjunar eftir ákveðin ára fjölda og misjafnlega langan tíma. Uppsettning og viðhald þessara tækja er á höndum sérfróðra aðila sem hafa sérhæft sig í þessum búnaði og þessir aðilar hafa ekki allir búsetu næst þeim svæðum sem mesta þörfin fyrir þennan búnað er, þannig að þjónusta við þessi tæki mun reynast notendum sem fara í slíkar lausnir mjög dýr sökum fárra aðila sem munu hafa sérfræðiþekkingu á þessu og því ljóst að styrkurinn eða eingreiðslan mun á endanum éta börnin sín hjá þeim sem hann þyggja þegar í slíkan búnað verður farið. Ég held að almennt sé ekki óskynsamlegt að notast við orkusparandi búnað eftir fremsta megni, en ég sé ekki annað en að búnaður til slíks þurfi að reynast fólki bæði endingargóður og hagkvæmur til lengri tíma litið en styttri ef þetta á að vera talið vænlegt fyrir orkuskiptin og til orkunýtingar. Ég þykist vita að lögin eru ekki að taka afstöðu til hvaða varmadæla fólk fer í. Heldur hvað á styrkurinn að vera hár og hvernig á þetta að vera? Styrkur sem eingreiðsla, greiðsluþáttaka í kostnaði hjá notendum etc ? Ég er ekki með upphæðina í huga mér, en er klárlega þeirrar skoðunar að ef þú sækir um styrk, þá er hann til að styrkja kostnaðaðarsamar breytingar sem þú ert að ráðast í og ætti svo ekki að hegna þér í beinu framhaldi með því að taka af þér niðurgreiðslur. Af hverju getum við fengið bensín á sama verði milli landshluta, en við getum ekki fengið rafmagn á sama verði um land allt? Hvað varðar umsóknarferli og annað slíkt ætti auðvitað að einfalda það ferli eftir fremsta megni og kynna það vel fyrir fólki opinberlega með góðum kynningum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-42/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2022 – 9. mar. 2022· 2 umsagnir

Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Drög að frumvarpi um niðurgreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar .

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-42/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. nóvember 2025)

Samþykkt sem lög nr. 69/2022 á Alþingi

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Sveitarfélagið Skagafjörður

    Á 1005. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. mars 2022 var tekið fyrir mál 42/2022 til samráðs, Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Byggðarráð fagnar frumvarpinu og lýsir yfir stuðningi við framgöngu þess. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Hörgársveit

    Hörgársveit fagnar frumvarpinu og styður eindregið framgang þess.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    22 ræður · 47 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 13. maí 2022
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    31 ræða · 1 klst. 37 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 13 með, 30 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  20. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  21. Þingskjal
  22. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  23. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
824Stjórnarfrumvarp1. apr. 2022Guðlaugur Þór ÞórðarsonLesaPDF
1126Nál. með brtt.1. jún. 2022Stefán Vagn Stefánsson, Haraldur Benediktsson +7LesaPDF
1150Breytingartillaga2. jún. 2022Eyjólfur ÁrmannssonLesaPDF
1202Frumvarp eftir 2. umræðu9. jún. 2022—LesaPDF
1374Lög í heild15. jún. 2022—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

15 alls · 11 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur26. apríl 2022 kl. 23:15
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd26. apríl 2022 kl. 23:15
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:46
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:46
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    2.--5. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Fellt9. júní 2022 kl. 19:48
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 12 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 12 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 6 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:49
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:49
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    6. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:49
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    2 (tvær nýjar greinar, verða 7.--8. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:50
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    7. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:50
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    3
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:50
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    Ákv. til brb., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2022 kl. 19:51
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“.
    ný fyrirsögn
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur9. júní 2022 kl. 19:51
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd9. júní 2022 kl. 19:51
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 20:48
    Að samþykkja frumvarpið „Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

53 ræður · 2 klst. 24 mín
  • 1. umræða: 22 ræður · 6 ræðumenn · 47 mín
  • 2. umræða: 31 ræða · 4 ræðumenn · 1 klst. 37 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Birgir ÞórarinssonSjálfstæðisflokkur825 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur1017 mín
Gísli Rafn ÓlafssonUtan þingflokka615 mín
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka24 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn23 mín
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins1341 mín
Stefán Vagn StefánssonFramsóknarflokkur1034 mín
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur26 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 29. apr. 2022, frestur 13. maí 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Fjórðungssamband Vestfirðinga og VestfjarðastofaumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
OrkustofnunumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.