Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 457. mál

Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

Heimildir til bráðabirgðaráðstafana o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 26. apr. 2022

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 152. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja að lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana séu í samræmi við rétta innleiðingu á Evróputilskipun um mat á umhverfisáhrifum. Að tilgreina nauðsynleg skilyrði fyrir veitingu bráðabirgðaheimilda í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Lagt fram af Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
12. mars 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
140 ræður · 4 klst. 33 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 27. mar. 2023

Markmiðið

Að tryggja að lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana séu í samræmi við rétta innleiðingu á Evróputilskipun um mat á umhverfisáhrifum. Að tilgreina nauðsynleg skilyrði fyrir veitingu bráðabirgðaheimilda í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Hvað breytist

Útfæra á nánar skilyrði fyrir veitingu undanþágu frá starfsleyfi á grundvelli laganna með hliðsjón af athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Í tilvikum þar sem starfs- eða rekstrarleyfi hefur verið fellt brott vegna annmarka á umhverfismati verður bráðabirgðaleyfi aðeins veitt ef gerðar verða allar nauðsynlegar lagfæringar á umhverfismati sem nauðsynlegar eru til að umhverfismatið uppfylli kröfur samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins hefur rétturinn áréttað að heimild til tímabundinna ráðstafana til að bæta úr göllum á umhverfismati geti aðeins átt við í sérstökum undantekningartilvikum. Með frumvarpinu er lögð til breyting á orðalagi tiltekinna lagaákvæða þannig að allur vafi sé tekinn af varðandi það að um sé að ræða sérstök undantekningartilvik.

Lög sem breytast

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Lög um fiskeldi, nr. 71/2008. Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Bráðabirgðaniðurstaða ESA í máli vegna kvörtunar sem hafði verið beint til ESA vegna veitingar rekstrarleyfa til bráðabirgða og veitingar tímabundinna undanþága frá starfsleyfi til reksturs fiskeldisstöðva (14. apríl 2020).

Formlegt áminningarbréf ESA þar sem sjónarmið í bráðabirgðaniðurstöðunni eru áréttuð (15. desember 2021).

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.

Úrskurðir úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 3/2018 og nr. 5/2018.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 13. maí 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Umhverfisstofnun, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Bændasamtök Íslands, Landvernd · allar umsagnir
Umræða í þingsal
4 klst. 33 mín · 140 ræður
20 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 4 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-232/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. des. 2021 – 5. jan. 2022· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fiskeldi, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana (leyfisveiting til bráðabirgða)

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um fiskeldi og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-232/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. nóvember 2025)

Samþykkt sem lög nr. 28/2023

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    140 ræður · 4 klst. 33 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 13. maí 2022
    2 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
660Stjórnarfrumvarp12. mar. 2022Guðlaugur Þór ÞórðarsonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur26. apríl 2022 kl. 21:00
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd26. apríl 2022 kl. 21:00
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

140 ræður · 4 klst. 33 mín
  • 1. umræða: 140 ræður · 21 ræðumaður · 4 klst. 33 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn22 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka23 mín
Ásthildur Lóa ÞórsdóttirFlokkur fólksins33 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn43 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn34 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin34 mín
Logi EinarssonSamfylkingin45 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn45 mín
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirUtan þingflokka45 mín
Halldóra MogensenUtan þingflokka46 mín
Sigmar GuðmundssonViðreisn68 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur610 mín
Guðbrandur EinarssonViðreisn811 mín
Gísli Rafn ÓlafssonUtan þingflokka611 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins924 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur1326 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin1331 mín
Þórunn SveinbjarnardóttirSamfylkingin1331 mín
Jóhann Páll JóhannssonSamfylkingin1532 mín
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka1747 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 29. apr. 2022, frestur 13. maí 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Heilbrigðiseftirlit ReykjavíkurumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.