Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 350. mál

Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald

Öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 15. jún. 2022

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að endurskoða ákvæði laga um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 15. jún. 2022 greiddu 44 atkvæði með og 6 á móti, 6 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
9. febrúar 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
8
Umræða í þingsal
16 ræður · 1 klst.

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. feb. 2023

Markmiðið

Að endurskoða ákvæði laga um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.

Hvað breytist

Lagt er til einfalda regluverk með því að felld verði brott ákvæði sem snerta störf Hafrannsóknastofnunar er snúa að rannsóknum á sjávargróðri og um leið samstarf við aðrar stofnanir um þau efni. Þá er lagt til að afnumin verði heimild til að leyfisbinda móttökustöðvar fyrir þang. Gert er ráð fyrir að Fiskistofa gefi út leyfi til nýtingar á þangi á grundvelli nýtingaráætlunar.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs dragist saman um u.þ.b. 8,5 milljónir kr. vegna þess að sjávargróður verður undanskilinn veiðigjaldi.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bjarkey Gunnarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
15. jún. 2022
Samþykkt44 með · 6 á móti · 6 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • F11–0
  • 237–0
  • 430–6
  • Flf4–0
  • Sf0–0 · 6 hjá
  • V5–0
  • M1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 10. mar. 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Þörungaverksmiðjan hf., Stykkishólmsbær, Reykhólahreppur, Landssamband smábátaeigenda, Breiðarfjarðarnefnd o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. · 16 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs dragist saman um u.þ.b. 8,5 milljónir kr. vegna þess að sjávargróður verður undanskilinn veiðigjaldi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 15. júní 2022: 44 með, 6 á móti, 6 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

41 annar þingmaður greiddi atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti1 tók til máls

5 aðrir þingmenn greiddu atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

6 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-172/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2020 – 18. sep. 2020· 16 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni).

Frumvarpið varðar stjórn nýtingar á sjávargróðri. Þá er frumvarpið einnig liður í áherslum ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-172/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. desember 2020)

Frumvarpið var tekið til frekari athugunar í ráðuneytinu og ekki lagt fram á 151. löggjþ.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Gunnar Ólafsson

    Staða mála í lagaumhverfi Þara-ræktar er okkur sérlegt hugðarefni. Meðfylgjandi skjal sýnir stöðu máli eftir rannsókn framkvæmda af okkur í Djúpinu Bolungarvík, Háskólastri Vestfjarða(vegna SOSCULT) og Eldey Aqua.

  • #2Náttúrufræðistofnun Íslands

    Meðf. er umsögn Náttúrufræðistofnunar.

  • #3Jón Örn Friðriksson
    Gerðar eru eftirfarandi athugasemdir við 3. og 4. grein frumvarpsins: Í 3. gr. er tekið fram að öll sömu fyrirmæli gildi um öflun sjávargróðurs og gilda um fiskiskip og fiskveiðar skv. III., V. og VI kafla laga um stjórn fiskveiða. Í V. kafla þessara laga eru fyrirmæli um greiðslu veiðigjalda. Veiðigjöld geta ekki átt við um þangslátt á sjávarjörðum eða öflun annars sjávargróðurs innan netlaga. Í 4. gr. í athugasemdum um lagafrumvarpið kemur fram að merkjum jarða er oftast lýst til fjörunnar. Af þessu hlýst að fjara sjávarjarða er eign landeiganda. Þang og annar sjávargróður er áfastur lan… Lesa alla

    Gerðar eru eftirfarandi athugasemdir við 3. og 4. grein frumvarpsins: Í 3. gr. er tekið fram að öll sömu fyrirmæli gildi um öflun sjávargróðurs og gilda um fiskiskip og fiskveiðar skv. III., V. og VI kafla laga um stjórn fiskveiða. Í V. kafla þessara laga eru fyrirmæli um greiðslu veiðigjalda. Veiðigjöld geta ekki átt við um þangslátt á sjávarjörðum eða öflun annars sjávargróðurs innan netlaga. Í 4. gr. í athugasemdum um lagafrumvarpið kemur fram að merkjum jarða er oftast lýst til fjörunnar. Af þessu hlýst að fjara sjávarjarða er eign landeiganda. Þang og annar sjávargróður er áfastur landareigninni og eign landeiganda rétt eins og korn á ökrum. Innheimta veiðigjalds á þangi eða öðrum sjávargróðri er þannig í ósamræmi við 72. gr. stjórnarskrár sem fjallar um friðhelgi eignarréttarins. Til að leiðrétta þetta ósamræmi er lagt til að breytingar verði gerðar á 2. mgr. 3 gr. frumvarpsins þannig að textinn verði eftirfarandi: Utan fjara og netlaga gilda öll sömu fyrirmæli og gilda um fiskiskip og fiskveiðar skv. III., V. og VI. kafla laga þessara og öðrum lögum á sviði sjávarútvegs, m.a. um færslu afladagbókar, löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðum og greiðslu veiðigjalds, gilda, eftir því sem við á, um skip sem hafa leyfi skv. 1. mgr. og öflun sjávargróðurs frá þeim. Samkvæmt 4. gr. lagafrumvarpsins skal hafa samkomulag við ábúenda eða landeiganda um þangslátt innan stórstraumsfjöruborðs sjávarjarða. Hins vegar er felld út 1. mgr. í gildandi lögum en þar segir að sá sem hyggst afla sjávargróðurs innan netlaga sjávarjarðar þurfi að hafa náð samkomulagi við landeiganda um heimild til öflunarinnar. Er lagt til að 1. mgr. í 4. gr. laganna verði eftirfarandi: Um þangslátt innan stórstraumsfjöruborðs sjávarjarða og öflunar sjávargróðurs innan netlaga sjávarjarða fer samkvæmt samkomulagi við ábúenda eða landeiganda. Netlaga er upphaflega getið í Grágás, lögbók íslenska þjóðveldisins, og síðar í 2. kapítula rekabálka Jónsbókar frá árinu 1281. Þar eru netlög skilgreind skv. svokallaðri dýptarreglu en þá eru ystu mörk netalaga þar sem 20 möskva selanet standi grunn á fjöru. Í Jónsbók er jafnframt tekið fram að landeigandi eigi m.a. þara sem er innan netlaga auk ýmissa annarra hlunninda sem upp eru talin. Ákvæði rekabálks Jónsbókar hefur aldrei verið fellt úr gildi. Er því eðlilegt að álykta að eigendur sjávarjarða eigi rétt til þaratekju og nýtingu annars sjávargróðurs innan netlaga. Með tilkomu veiðitilskipunarinnar árið 1849 voru netlög skilgreind með öðrum hætti, það er 60 faðmar eða 112,98 m frá stórstraumsfjörumáli. Netlaga er einnig getið með sambærilegum hætti í 8. ml. 1. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglun og spendýrum. Þar eru netlög skilgreind sem hafsvæði 115 metra út frá stórstraumsfjörumáli landeignar. Ágreiningur hefur verið um hvort miða á við dýptarreglu Jónsbókar eða fjarlægðarreglu veiðitilskipunarinnar. Niðurstöður Hæstarréttar í tveimur dómum gefa tilefni til að miða frekar við dýptarreglu Jónsbókar. Annars vegar er um að ræða dóm Hæstaréttar frá 19. september 1996 á blaðsíðu 2518 og hins vegar dóm Hæstaréttar frá 28. apríl 2005 á blaðsíðu 1640. Í báðum dómunum kemst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að miða skuli við 2. kapítula Jónsbókar, um 20 möskva dýpi netlaga, þegar um brot á fiskveiðilöggjöf er að ræða, í stað fjarlægðarreglu veiðitilskipunarinnar. Ekki verður gerð frekari tilraun í þessum texta til að útkljá ágreining um hvort miða beri við dýptarreglu Jónsbókar eða fjarlægðarreglu veiðitilskipunarinnar við skilgreiningu netlaga enda er það ekki tilgangur þessarar umsagnar. Eins og réttilega er bent á í 4 gr. í athugasemdum með lagafrumvarpinu er löng venja fyrir því að samþykki landeiganda sjávarjarða þurfi til þangsláttar. Sömuleiðis er löng venja fyrir að samþykki landeiganda þurfi fyrir nýtingu annarra hlunninda innan netlaga. Á það til dæmis við um lagningu grásleppuneta innan netlaga. Þá hafa landeigendur, sem ekki nytja slík hlunnindi sjálfir, getað leigt út réttinn til nýtingar hlunnindanna. Sem dæmi má nefna að Stykkishólmsbær hefur tímabundið leigt út sjávarjarðir, sem þá voru í eigu sveitarfélagsins, til aðila sem fengu, gegn greiðslu, einkarétt á lagningu grásleppuneta innan netlaga og nýtingu annarra hlunninda jarðanna. Sá gjörningur var í samræmi við áðurnefnd ákvæði í rekabálk Jónsbókar og er dæmi um þá hefð sem ríkt hefur um réttláta nýtingu hlunninda, þar með talið sjávargróðurs, innan netlaga. Á mörgum sjávarjörðum eru töluverð hlunnindi í landi, má þar helst nefna æðarvarp. Varpið er viðkvæmt og getur spillst ef ekki er farið gætilega um svæðið á varptíma. Öflun sjávargróðurs í fjöru og innan netlaga getur haft neikvæð áhrif á æðarvarp og annað fuglalíf. Er því bæði sanngjarnt og eðlilegt að öll öflun sjávargróðurs á þessu svæði verði samkvæmt samkomulagi við landeiganda um heimild til öflunarinnar. Með vísan í ofanritað þykir ljóst að frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni) getur ekki staðið óbreytt. Undirritaður hvetur til að farið verði að þeim tillögum um breytingar á frumvarpinu sem hér eru lagðar til. Fyrir hönd stjórnar Hvallátra ehf., Jón Örn Friðriksson Framkvæmdastjóri Hvallátra ehf og eigandi sjávarjarða við Breiðafjörð

  • #4Ásgeir Gunnar Jónsson
    Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni) Gerðar eru eftirfarandi athugasemdir fyrir hönd Einingar ehf. 580788 1659 sem á og rekur sjávarjarðirnar Húshólma ln. 211568, Baulhólma ln. 2115620 og Hesthöfða ln. 2115619 á Breiðafirði. 3. gr. Hér kemur fram að öll sömu fyrirmæli gildi um öflun sjávargróðurs og gilda um fiskiskip og fiskveiðar skv. III., V. og VI kafla laga um stjórn fiskveiða. Í V. kafla þessara laga eru fyrirmæli um greiðslu veiðigjalda. Sjávargróður sem aflað er innan sjávarjarða eða netlaga er eign landegeind… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni) Gerðar eru eftirfarandi athugasemdir fyrir hönd Einingar ehf. 580788 1659 sem á og rekur sjávarjarðirnar Húshólma ln. 211568, Baulhólma ln. 2115620 og Hesthöfða ln. 2115619 á Breiðafirði. 3. gr. Hér kemur fram að öll sömu fyrirmæli gildi um öflun sjávargróðurs og gilda um fiskiskip og fiskveiðar skv. III., V. og VI kafla laga um stjórn fiskveiða. Í V. kafla þessara laga eru fyrirmæli um greiðslu veiðigjalda. Sjávargróður sem aflað er innan sjávarjarða eða netlaga er eign landegeinda, enda vex sjávargróður á landareign landeigenda rétt eins og gróður sem vex á túnum bænda er eign landeigenda. Veiðigjöld geta því ekki átt við um öflun sjávargróðurs á sjávarjörðum eða innan netlaga nema þeim sé skilað til landeiganda. 4. gr. Í 4. grein frumvarpsins er eingöngu kveðið á um að leita þurfi leyfis ábúanda eða landeiganda vegna þangsláttar innan stórstraumsfjöruborðs. Telur undirritaður nauðsynlegt að 1. mgr. 15. gr. b í lögum nr. 116/2006 standi einnig óbreytt. „Áður en sá sem hefur leyfi skv. 15. gr. a hefur öflun sjávargróðurs innan netlaga sjávarjarða þarf að hafa náðst samkomulag við landeiganda um heimild til öflunarinnar.“ Vísað er til laga nr. 73/1990, um eignarrétt íslenska ríkisins á auðlindum hafsbotnsins, en þar segir í 1. gr.: Íslenska ríkið er eigandi allra auðlinda á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga og svo langt til hafs sem fullveldisréttur Íslands nær samkvæmt lögum, alþjóðasamningum eða samningum við einstök ríki. 
 Hugtakið auðlind samkvæmt lögum þessum tekur til allra ólífrænna og lífrænna auðlinda hafsbotnsins annarra en lifandi vera. 
 Netlaga er upphaflega getið í Grágás, þar eru netlög skilgreind skv. svokallaðri dýptarreglu en þar eru ystu mörk netalaga þar sem 20 möskva selanet (6,88 m) standi grunn á fjöru. Í Jónsbók er jafnframt tekið fram að landeigandi eigi m.a. þara sem er innan netlaga auk ýmissa annarra hlunninda sem upp eru talin. Ákvæði rekabálks Jónsbókar hefur aldrei verið fellt úr gildi. Er því eðlilegt að álykta að eigendur sjávarjarða eigi rétt til þaratekju og nýtingu annars sjávargróðurs innan netlaga. Athugasemdir við lagafrumvarp þetta Í athugasemdum stendur í 4. grein: „Engin þörf er á því að vísa til netlaga í frumvarpi þessu.“ Þetta getur undirritaður ekki tekið undir. Skv. Fylgiskjali I liggja ekki fyrir niðurstöður á rannsóknum um útbreiðslu og magn þara í Breiðafirði og er því ekki hægt að útiloka að hægt sé að afla sjávargróðurs td. þara innan netlaga. Því ætti það að teljast mjög brýnt að vísa til netlaga í frumvarpi þessu. Í sjávargróðri í fjörum og innan netlaga er að finna mikilvæga fæðu fyrir fugla og sjávardýr, þ.m.t. æðarfugl og ekki síst æðarunga sem dvelja þar mk. fyrsta mánuðinn. Því er mikilvægt að öll öflun sjávargróðurs í fjörum og innan netlaga sé innan skynsamlegra marka og ætíð samkvæmt samkomulagi við landeigenda, enda er æðarvarp verðmæt hlunnindi margra sjávarjarða. Undirritaður telur ekki ásættanlegt að frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni) standi óbreytt og vænta þess að tekið verði fullt tillit til ofangreindrar umsagnar og eignarréttur sjávarjarða virtur. Virðingarfyllst, Eigandi (100%) Einingar ehf. Ásgeir Gunnar Jónsson

  • #5Bjarni Svanur Kristjánsson

    Hér er um grímulausa þjóðnýtingu náttúruauðlinda sem eru í einkaeign að ræða og mun ég aldrei viðurkenna að þessi lög ef samþykkt verða standist stjórnarskrá Íslands. Og það sem verra er, auðlindir þessar eru með þessu frumvarpi í raun afhentar alþjóðlegum auðhringum eins og DuPont. Að öðru leita vil ég taka undir athugasemdir sem koma fram í umsögnum númer 3 og 4 hér á undan. Undirritaður er eigandi sjávarjarðar við Breiðafjörð

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    12 ræður · 44 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 10. mars 2022
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    4 ræður · 16 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 12 með, 34 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 36 með, 5 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 36 með, 5 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 40 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 40 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  17. Þingskjal
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 44 með, 6 á móti
  19. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
490Stjórnarfrumvarp9. feb. 2022Svandís SvavarsdóttirLesaPDF
1125Nál. með brtt.31. maí 2022Stefán Vagn Stefánsson, Bjarkey Gunnarsdóttir +6LesaPDF
1127Nál. með frávt.1. jún. 2022Gísli Rafn ÓlafssonLesaPDF
1226Frumvarp eftir 2. umræðu13. jún. 2022—LesaPDF
1303Lög í heild15. jún. 2022—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

11 alls · 8 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur22. febrúar 2022 kl. 17:01
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd22. febrúar 2022 kl. 17:01
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Fellt13. júní 2022 kl. 12:29
    Atkvæðagreiðsla í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“: till. um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar á.
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 14 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 11 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 7 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 2 á móti · 2 sat hjá
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2022 kl. 12:29
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 5 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2022 kl. 12:30
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“.
    2.--3. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 5 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2022 kl. 12:30
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“.
    1 (ný 4. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2022 kl. 12:31
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“.
    5.--6. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2022 kl. 12:31
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“.
    2 (ný 7. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:5 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2022 kl. 12:33
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“.
    3 (ný 8. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. júní 2022 kl. 12:33
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 12:38
    Að samþykkja frumvarpið „Stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 6 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

16 ræður · 1 klst.
  • 1. umræða: 12 ræður · 5 ræðumenn · 44 mín
  • 2. umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 16 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka515 mín
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins314 mín
Gísli Rafn ÓlafssonUtan þingflokka313 mín
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka28 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn24 mín
Haraldur BenediktssonSjálfstæðisflokkur16 mín

Umsagnir og erindi

12 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 24. feb. 2022, frestur 10. mar. 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Þörungaverksmiðjan hf.kynningOpna PDF
StykkishólmsbærumsögnOpna PDF
StykkishólmsbærviðbótarumsögnOpna PDF
ReykhólahreppurumsögnOpna PDF
Landssamband smábátaeigendaumsögnOpna PDF
BreiðarfjarðarnefndumsögnOpna PDF
Þörungaverksmiðjan hf.umsögnOpna PDF
Æðarræktarfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegiumsögnOpna PDF
Fjórðungssamband VestfirðingaumsögnOpna PDF
Samtök náttúrustofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.